Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Side 47
3.' LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
■é
idge
59
Olympíumótið á Rhodos 1996:
Agætur árangur hjá landsliðinu
Eins og kunnugt er af fréttum
tókst íslenska landsliðinu að kom-
ast í átta liða úrslit á ólympíumót-
inu eftir harða lokabaráttu þar sem
margar af bestu bridgeþjóðum
heimsins urðu að játa sig sigraðar.
Þetta er glæsilegur árangur sem
ekki má vanmeta þótt landsliðið
hafi síðan tapað fyrir Indónesum
sem voru í banastuði og hefðu lík-
lega unnið hvaða lið sem er.
Indónesar hafa um langt árabil
verið meðal fremstu bridgeþjóða
Austurlanda og komist oft í úrslit
heimsmeistara- og ólympíumóta.
En skoðum árangur landsliðsins
nokkuð nánar.
Það vinnur 28 leiki, jafnar einn
og tapar sex, þar af þremur með
minnsta mun. Að meðaltali skorar
það 18,7 vinningsstig í hverjum leik
sem er náttúrlega frábært í jafn-
sterku móti sem ólympímótið er.
Eftir þetta getur enginn verið í
vafa um að íslendingar eru í hópi
sterkustu bridgeþjóða heimsins og
við getum verið stoltir af landsliði
okkar sem skipað var eftirfarandi
spilurum:
Guðmundur Páll Amarson, Þor-
lákur Jónsson, Jón Baldursson,
Sævar Þorbjörnsson, Aðalsteinn
Jörgensen og Matthías Þorvaldsson.
Ragnar Hermannsson þjálfari og
Bjöm Eysteinsson fyrirliði eiga líka
þakkir skildar, enda hefir Björn nú
skipað sér í röð bestu fyrirliða
heimsins.
I siðasta þætti tók prentvillupúk-
inn völdin og spilið komst ekki til
skila. Við skulum gera aðra tilraun.
111. umferð spilaði íslenska sveit-
in við þá svissnesku. í gegnum árin
hafa Svisslendingar verið auðveld
bráð fyrir íslendinga og svo fór
einnig nú. Við skulum skoða eitt
spil frá leiknum.
ur Páll á fjórum spöðum í þriðju
hönd og n-s áttu ekkert svar við því.
Það er nú samt með ólíkindum því
þeir eiga jú 27 HP milli handanna.1
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Hins vegar er óneitanlega erfiðara
að glíma við fjóra spaða en þrjá.
Hvass stíll Guðmundar Páls gaf því
góðan ávöxt í þetta sinn.
Norður hóf vörnina með tígulás
og skipti siðan í tromp. Það var
kærkomin innkoma fyrir Guðmund
sem notaði tækifærið og spilaði
laufl. Suður fór upp með ás og þar
með var Guðmundur kominn með
sjö slagi og 11 impa.
Guðmundur Páll Arnarson og Þorlákur Jónsson spila gegn indónesunum Danny Sacul og Franky Karwur í annarri
lotu fjórðungsúrslitanna. Indónesarnir sigruðu örugglega í leiknum.
A/N-S
4 ÁG98653
•á 9
♦ D9
* K96
4 107
* ÁD2
4 ÁK86
* DG103
N
V A
S
* D
•á 87643
* G10542
* 52
4 K42
•á KG105
♦ 73
* Á874
í lokaða salnum opnaði Svisslend-
ingurinn í vestur á þremur spöðum
eftir tvö pöss og Aðalsteinn doblaði.
Austur sagði pass og fjögurra hjarta
sögn Matthíasar í suður varð loka-
sögnin:
Austur Suður Vestur Norður
pass pass 3 spaðar dobl
pass 4 hjörtu pass pass
pass
Vörnin var ekki á skotskónum
þegar vestur ákvað að spila út
spaðaás og meiri spaða. Austur
DV-mynd Isak
trompaði og þar með var Matthías
með spilið unnið. Hann gat nú tekið
trompin af austri og sótt laufkóng-
inn meðan hann átti spaðafyrirstöð-
una. Það voru tíu slagir og 620 til Is-
lands.
í opna salnum opnaði Guðmund-
Grímsöœ
v/Bústaðaveg
Skreytingar við öll
tœkifœri. Fríheimsending
fyrir sendingar yfir 2.000 kr.
Sími 588-1230
Olympíumót í Rhodes 1996
Opinn flokkur
Úrslit leikja og meðaltal andstæðinga
UMF Andstæðing. Vp - VP Meöalt andst.
1 ÍSLAND - Ungverjaland 14 - 16 15,54
2 ÍSLAND - ftalía 16 - 14 19,77
3 ÍSLAND - USA 18 - 12 17,71
4 ÍSLAND - Guadeloupe 24 - 6 14,51
5 ÍSLAND - Kýpur 25 - 5 07,94
6 ÍSLAND - Holland 21 - 9 18,09
7 ÍSLAND - ísrael 12 - 18 18,39
8 ÍSLAND - Slóvenía 23 - 7 15,16
9 ÍSLAND - Máritius 25 - 0 11,76
10 ÍSLAND - Tyrkland 15 - 15 15,41
11 ÍSLAND - Sviss 21 - 9 14,63
12 ÍSLAND - Júgóslavía 22 - 8 15,23
13 ÍSLAND - Tæland 19 - 11 11,01
14 ÍSLAND - Grikkland 21 - 9 15,31
15 ÍSLAND - Tævan 11 - 19 18,86
16 ÍSLAND - Portúgal 16 - 14 14,31
17 ÍSLAND - Túnis 25 - 5 11,61
18 ÍSLAND - Venesúela 21 - 9 14,80
19 ÍSLAND - Ástralía 13 - 17 16,34
20 ÍSLAND - Mónakó 19 - 11 13,89
21 ÍSLAND - Kenla 22 - 8 08,51
22 ÍSLAND - Egyptaland 16 - 14 14,63
23 ÍSLAND - Brasilía 17 - 13 17,38
24 ÍSLAND - Bretland 18 - 12 18,17
25 ÍSLAND - Hong Kong 23 - 7 14,39
26 ÍSLAND - Eistland 17 - 13 14,63
27 ÍSLAND - Fr Pólónesia 25 - 5 11,47
28 ÍSLAND - Mexíkó 16 - 14 10,74
29 ÍSLAND - Jórdanía 24 - 6 10,46
30 ÍSLAND - Finnland 14 - 16 16,09
31 ÍSLAND - Noregur 18 - 12 17,97
32 ÍSLAND - Indland 17 - 13 17,17
33 ÍSLAND - Lettland 20 - 12 12,63
34 ÍSLAND - Rússland 6 - 24 18,43
35 ÍSLAND - Búlgaría 19 - 11 12,56
ÍSLAND - Andstæðingar 18,7 - 11,3
Krim
Glæný
snjóbrettabúö á
Laugavegi 12
FROSTVARNIR A VATNSINNTOK
Því að taka óþarfa áhættu. Láttu leggja hitastreng á vatnsinntakið
Hitastrengur • frábær reynsla
Rafhitastrengirnir frá Sigurplasti hafa veriö notaðir á
íslandi í yfir 20 ár. Árangurinn er mjög góður. Hætta á
frostskemmdum er engin. Einungis þarf að tengja
strenginn við 220 V straum og strengurinn hitnar
sjálfkrafa þegar kólnar í veðri.
Komið í veg fyrir frostskemmdir
með hitastrengnum frá Sigurplasti
Rafhitastrengurinn kemur í tilbúnum settum og er hann
sjálfhitastillandi. Útsölustaðir eru: Glóey, Ármúla 19
og Johan Rönning hf., Sundaborg, Reykjavík, Rafport,
Kópavogi, Rafbúö Skúla, Hafnarfiröi, Árvirkinn, Selfossi,
og Raflagnadeild KEA, Akureyri.
O
H
E Ajj
m m •• l jj' i ^ ' %.-■
i'^3a- ?
Dæmi um frágang á leiöslu til aö koma I veg fyrir frostskemmdir.
VÖLUTEIGUR 3, MOSFELLSBÆ. SÍMI 566-8300