Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Síða 48
60
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 33"V
trimm
Ragnar Tómasson:
Hver er staðan sex
ámm síðar?
- næstum því „antisportistinn" sem hóf skokk og aflra líkamsrækt feitur og hálffimmtugur
Mörgum finnst lakara hversu fáir
þeir eru sem stunda líkamsraekt að
einhverju marki þegar þeir eru
komnir á sextugsaldurinn. Skilning-
ur á gildi hreyfingar almennt fyrir
alla aldurshópa varð ekki almennur
fyrir en á allra síðustu árum hér á
landi. Hinu má þó ekki gleyma að
þeir einstaklingar í þessum aldurs-
hópi sem einhverja líkamsrækt
stunda eru líklega fremur í greinum
sem minna ber á, eins og badmint-
on, að ógleymdu golfinu.
Ragnar Tómasson lögfræðingur
tók sig til hálffimmtugur, og rúm-
lega það, og hóf líkamsrækt. Hann
hafði aldrei áður stundað neinar
íþróttir, nema þá skólaleikfim-
ina gömlu. í frásögn af bók
hans, Hristu af þér slenið, er
rakið mat hans sjálfs á lík- tf
amlegu ástandi í upphafi.
Ragnar hóf enduruppbygg-
ingarstarfið árið
1988 en vill sjálf-
ur miða
skokkaldur
sinn við
árið 1990
þegar
hann
tók
þátt í
Reykja-
víkur-
maraþoni
og hljóp þá
reyndar heilt
maraþon,
eða 42,2 km.
„Að fara í
heilt
maraþon
var
vitað al-
veg út í
hött mið-
að við
getu
mína
þá og
alls
ekki
mar var
l- S'
A
til eftirbreytni," sagði Ragnar. „En
að ná þvi var samt sem áður ólýsan-
leg upplifun sem aldrei gleymist.“
Erfiðara að hætta í lík-
amsræktinni nú en að
byrja á henni í upphafi
- Hver er þá staðan sex árum síð-
ar? Hefurðu haldið þessu áfram?
Hvað er þér hugstæðast um líkams-
rækt og það sem henni fylgir?
„í dag væri miklu erfiðara fyrir
mig að hætta líkamsrækt heldur en
var að byrja á henni í upphafi,"
svaraði Regnar. „Ég get best lýst
þessu þannig að það að kynnast
líkamsrækt hafi fyrir mig ver-
ið dásamleg reynsla. Fyrir
fram hefði ég aldrei trúað þvi
að líkamsrækt ætti eftir að
verða svo mikill áhrifavaldur í
lífi mínu. Þetta snerti bæði lik-
amlega og andlega stöðu
mína og líðan. Ég veit
ekki um nein verald-
leg gæði sem gætu
komið í stað
líkamsrækt-
arinnar fyr-
ir mig.
Það er
ótrú-
hvað
reglu-
bundin
hreyfing hefur
sterk áhrif á alla
líðan okkar. Skað-
semi kyrrsetunnar er
sífellt að verða mönn-
um ljósari.
Maður nýtur betur
þess góða í lífinu og á
betra með að takast á við
erfiðleikana þegar mað-
ur er í góðu formi. Lík-
amsræktin er betri
skrokkinn og
Góð fyrir fólk á skrifstofum og alla aðra
Að teygja á sinum og vöðvum er allra meina bót og bæði gott að gera fyr-
ir og eftir æfingar og ekki síður i vinnunni eða við námið.
Þessi teygja er mjög góð fyrir fólk sem starfar á skrifstofum. Nauðsynlegt
er að fara bæði varlega og hægt úr og í þessa teygju. Kosturinn við hana er
m.a. sá að hægt er að gera hana hvar sem er og ekki einu sinni nauðsynlegt
að standa upp frá vinnu sinni. En sinar og vöðvar í og við hálsinn eru við-
kvæm gagnvart átaki svo rétt er að fara varlega, ekki síst ef fólk er stíft og
jafnvel með vöðvabólgu. En ef allrar varúðar er gætt er í lagi að taka þessa
teygju, þó svo ekki hafi verð hitað upp á undan. Þarna er verið að teygja á
hálsvöövunum og á vöðvum sem liggja frá hálsi og niður í bak. Annarri
hendinni er haldið undir stólinn en hinni ofan á höfðinu og því hallað frá
stólhendinni um leið. En munið - engin átök. Farið að þeim mörkum þar
sem finnst fyrir teygjunni en ekki lengra og ekki skemmra. Verið síðan í
teygjunni minnst 20 til 30 sek. - ekki skemur. Hættið siðan rólega og skipt-
ið um hönd og halla. (Endurbirt þar sem textinn varð illilega viðskila við
myndina.) DV-mynd Pjetur
Ragnar Tómasson lögfræðingur hóf líkamsrækt hálffimmtugur.
sálina en nokkurt læknislyf. Hún
lífgar skrokkinn og kætir sálina."
Aðeins erfitt
fyrstu sex vikurnar
- Er þetta þá aldrei erfitt eða leið-
inlegt? Er líkamsræktin, skokkið og
fleira tóm hamingja?
„Já, það er nefni-
lega ekki fjarri lagi.
Ég tók ekki of djúpt í
árinni þegar ég sagði
áðan að fyrir mig
væru kynnin af lík-
amsrækt dásamleg reynsla. Þetta
var erfitt aðeins fyrstu sex vikurnar
þegar ég var að staulast af stað
fremur af vilja en mætti eftir ára-
langt bílífi, ofát og hreyfmgarleysi."
- Nú tekur þetta töluverðan tíma.
Einhverju fómaðirðu liklega í stað-
inn?
„Það er rétt. Liðir eins og að
horfa á sjónvarp, fara á bíó, sunnu-
dagsbíltúrar eða aðrar tómstunda-
ferðir á bílnum hafa fallið niður.
Meira að segja hestamennskan hef-
ur orðið útundan. Hefði mátt segja
mér slíkt tvisvar hér áður því á
henni hef ég haft mikinn áhuga um
áratuga skeið. Enn hefur þetta að
vísu ekki komið niður á vinnunni."
Sálarstríð þriðju vikunn-
ar endar með uppgjöf
eða áframhaldi af
skyldurækninni einni
- Hvað gæturðu sagt öðrum sem
jafnvel langar til að byrja að hreyfa
sig i fyrsta sinn markvisst eða þá
aftur eftir langt hlé?
„Höfum það hugfast að enginn
saknar þess sem hann ekki þekkir.
Flestum finnst líkamsræktin
spennandi fyrstu vikuna, aðra vik-
una fara að renna á menn tvær
grímur, þriðju vikuna eiga menn oft
í sálarstríði sem annaðhvort endar
með uppgjöf eða þeir herða upp hug-
ann og halda áfram af skyldurækni
einni saman. Fjórða vikan er þolan-
legri, sú fimmta er í góðu lagi og
þrauki maður
sjöttu vikuna
eru talsverðar
líkur á því að
maður hafi
komist yfir erf-
iðasta hjallann
og líkamsrækt sé að verða hluti af
lífsstílnum."
Vantrúin á eigin getu
er stæsta vandamálið
og kannski það eina
„Á hverjum degi hitti ég fólk sem
dreymir um að losna við aukakílóin
og byrja í einhverri líkamsrækt. En
það er eins og þetta fólk trúi því
ekki að það geti byrjað. Vantrúin á
eigin getu er stærsta og kannski
eina vandamálið. í hverju Reykja-
víkurmaraþoni eru hundruð þátt-
takenda sem fyrir nokkrum árum
eða misserum voru að sligast undan
i aukakílóunum en tóku sér loks tak
og eru með þátttöku sinni að vinna
sinn stærsta sigur - sigurinn yfir
vantrúnni og efanum - sigurinn á
sjálfum sér. Tíminn sem hlaupið er
á skiptir engu máli heldur það eitt
að takast á við verkefni og ljúka
því.
Við skulum muna að vandamálin
eru aðeins dýrmæt tækifæri sem
eru hugvitssamlega dulbúin sem
erfiðleikar," sagði Ragnar Tómas-
son að lokum.
Umsjón
Úlafur Geirsson
Barnabiblía byrjandans
sem hefur ætlað að byrja
í ótal mörg ár
... á sjúkrahúsinu gafst gott tóm til
að leiða hugann að ástandi líkam-
ans. Ég sem aldrei ætlaði að verða
feitur var kominn með ístru. Maginn
stóð út í loftið. Fötin
pössuðu illa. Reynt var
að láta sem minnst bera
á frjálslegum vextinum.
Úthaldið var ekkert. Ég
var sífellt að togna í
öxlum og hnjám. Hrot-
urnar ætluðu alla lif-
andi að drepa. Á ferð-
um einn með vinum
mínum varð ég að vera einn
herbergi. Vinirnir vildu hafa svefn-
frið. Ég fann hvernig hrörnunin
helltist yfir mig. Einu hélt ég vand-
lega leyndu: Ég var löngu búinn að
afsala mér þeim sérréttindum okkar
karlanna að .... standandi - fannst
miklu léttara að sitja.
Ofanritað er sýnishom úr einum
upphafskafla bókar sem nefndur er
Ástandið um fimmtugt. Bókin heitir
Hristu af þér slenið og höfundur,
sem hér að ofan lýsir eigin mati á
ástandi sínu fyrir nokkurm árum,
heitir Ragnar Tómasson og er lög-
maður, þekktur maður í þjóðlífmu
og til skamms tima fyrir flest fremur
en líkamsrækt. Reyndar er viðtal við
hann hér á síðunni.
Bókina Hristu af þér slenið prýða
ýmsir kostir. Má þar telja hrein-
skilni höfundar en jafnframt virð-
ingu hans fyrir viðfangsefninu og
lesendum og sjálfum sér. Einn höfuð-
kostur bókarinnar er hversu stutt
hún er en jafnframt fróðleg. Hún er
líka skemmtileg og jafnhliða áður-
nefndri virðingu fyrir lesendum og
sjálfúm sér hefur höfundur jafnframt
hæfileikann til að sjá sig og aðra í
spaugilegu ljósi. Þetta er alhliða bók
fyrir alla sem vilja fara að hreyfa sig
og hressa þó árunum hafi fjölgað og
nokkuð hafi verið slegið slöku við
nokkra síðustu áratugi.
Sá sem þetta ritar hefur ekki enn
rekist á jafngóða bók fyrir þann sem
um árabil hefur „ætlað að fara að
byrja að hreyfa sig aftur, hvort sem
það er nú ganga, skokk eða eitthvað
annað. Bókin Hristu af þér slenið er
gulls ígildi fyrir þá fjölmörgu sem
þannig er ástatt um.
(Endurbirt leiðrétt.)
Fram undan...
Þeim fækkar óðum fyrirhuguð-
| um hlaupum í ár fyrir almenning
| og gildir raunar hið sama um
| hlaup hörðustu keppnismanna.
! Okkur er ekki kunnugt um nema
| eftirtalin fjögur hlaup fram að
áramótum og þar af eru þrjú á
Ígamlársdag. Séu önnur hlaup á
dagskrá væri vel þegið að fá um
það upplýsingar.
Stjömuhlaup FH 16. nóvember
Ink. Hefst kl. 13 við íþróttahúsið í
Kaplakrika í Hafnarfirði. Tíma-
taka á öllum vegalengdum. Vega-
lengdir og flokkaskipting bæði
kyn: 10 ára og yngri hlaupa 600
m, 11-12 ára hlaupa 1 km, 13-14
ára hlaupa 1,5 km, 15-18 ára
hlaupa 3 km, 19-39 ára og 40 ára
og eldri hlaupa 5 km. Allir sem
ljúka hlaupunum fá verðlaun.
Upplýsingar veita Sigurður Har-
aldsson í síma 565 1114 og Ragna
Jóna i síma 555 2899
Gamlárshlaup ÍR 31. desember
: nk. Hefst við ÍR-húsiö við Tún-
götu í Reykjavík kl. 13. Vega-
lengd um 9,5 km í öllum flokkum.
1 Flokkaskipting bæði kyn: 18 ára
1 og yngri, 19-39 ára, 40-44 ára,
145-49 ára, 50-54 ára, 55-59 ára, 60
ára og eldri. Skráning frá kl. 11.
Upplýsingar veita Gunnar Páll
Jóakimsson í síma 565 6228 og
Katrín Atladóttir í sima 567 6122.
Gamlárshalaup UFA 31. desem-
ber nk. Hefst kl. 12 við Dynheima
á Akureyri. Skráning frá kl. 11.
Vegalengdir 4 km og 10 km með
tímatöku. Upplýsingar veitir Jón
Ámason í simum 462 5279 og 462
6255.
Gamlárshlaup KKK 31. desem-
ber kl. 13 við Akratorg á Akra-
nesi. Vegalengdir 2 km og 5 km.
Upplýsingar veitir Kristinn
Reimarsson í síma 431 2643.