Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Blaðsíða 60
Alla laugardaga
Vertu viðbúinfn)
vinningi!
VINNINGSTOLUR
25.10/96
@@@
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
5505555
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
Fíkniefni, brugg og tæki til fram-
leiðslu á landa voru gerö upptæk
viö húsieit i Kópavogi í gær. Hér
sjást sjást lögreglumennirnir Pétur
Guömundsson og Ágústa Péturs-
dóttir kanna bruggtækin.
■r DV-mynd S
Kópavogur:
Fíkniefni og
brugg fannst
við húsleit
Lögreglan í Kópavogi gerði í gær,
með aðstoð fikniefnadeildar lögregl-
unnar í Reykjavík, húsleit á tveim-
ur stöðum í austurbæ Kópavogs.
„Við leitina fundust 6 grömm af
amfetamíni og 14 grömm af hassi
auk bruggs og tækja til framleiðslu
á landa. Karlmaður um fertugt var
handtekinn og er hann í haldi vegna
rannsóknar málsins," sagði Magnús
Eianrsson, yfirlögregluþjónn í
Kópavogi, við DV um málið.
-RR
Blaðaafgreiðsla
ÐV og innheimtu-
deild áskrifta
í DV-húsið
Frá og með næsta mánudegi, 4.
nóvember, verður blaðaafgreiðsla
DV og innheimtudeild áskrifta i
Þverholti 11, DV-húsinu,
Blaðberum, sem eru að sækja
rukkunarhefti sín, er bent á að
koma í Þverholt 14 í dag, laugardag-
inn 2. nóvember, en Þverholt 11
mánudaginn 4. nóvember.
Blaðaafgreiðsla DV er opin mánu-
daga frá 6-20, þriðjudaga til föstu-
daga frá kl. 9-20 og laugardaga frá
kl. 6-14.
—...—Unnheimtudeild áskrifta er opin
frá kl. 9-17 alla virka daga.
Utanríkisráöherra Dana um Kolbeinseyjardeiluna:
Til dómstóla
ef ekki semst
- en Danir vilja fullreyna samningaleiðina
DV, Kaupmannahöfn.
Það hefur fjölmargt breyst síð-
an í byrjun aldarinnar. Ég vona
að í samningaviðræðum milli ís-
lendinga, Grænlendinga og Dana
finnist lausn á þessu máli,“ sagði
Niels Helveg Petersen, utanríkis-
ráðherra Danmerkur, við blaða-
mann DV, aðspurður um svokall-
aða Kolbeinseyjardeilu milli
Dana og Islendinga, sem snýst
um hvort Kolbeinsey sé gildur
grunnlínupunktur og þar með
hvort miðlína lögsögu íslands
skuli miðuð út frá eynni.
Utanríkisráðherrann átti fund
með íslenskum blaðamönnum í
Kaupmannahöfn og DV spurði
hann hvort danska utanríkis-
ráðuneytið ætti ekki erfitt með
að krefjast þess að hnekkt yrði
ákvörðun þess sjálfs um lögsögu
Kolbeinseyjar sem ákveðin var í
upphafi aldarinnar.
í lok síðustu aldar áttu Danir í
viðræðum við Breta, mesta flota-
veldi þess tíma, um lögsögu
strandríkja sem lyktaði með því
að samkomulag var gert um
þriggja mílna lögsögu. í fram-
haldinu var dregin þriggja mílna
landhelgislína kring um ísland
en jafnframt um Vestmannaeyj-
ar, Grímsey - og Kolbeinsey, eins
og sést á korti frá þessum tíma
sem DV birti fyrr á árinu. Þessi
ákvörðun Dana þýddi að Kol-
beinsey var viðurkennd sem full-
gild eyja með eigin lögsögu og
þar með grunlínupunktum.
„Við eigum að geta komist að
samkomulagi um skiptingu
svæðisins en ef í ljós kemur að
það er ekki mögulegt þá viljum
við vísa því til úrskurðar dóm-
stóla," sagði Niels Helveg Peter-
sen, utanríkisráðherra Dana, við
DV. Ráðherrann mun eiga fund
með Halldóri Ásgrímssyni utan-
ríkisráðherra í Reykjavík í
næstu viku.
-SÁ
ReynisQall:
Tuttugu
snjóflóð
„Umferð í íjalllendi hér er mjög
viðsjárverð og menn þurfa því að
fara með gát,“ segir Grétar Einars-
son, lögreglumaður i Vík, en 20
snjóflóð féllu úr Reynisfjalli, rétt
vestan við Vík, i gær og fyrradag.
Flóðin eru misstór og hefur eitt
fallið niður undir veg. Byggð er
ekki i hættu að sögn Grétars en
hann vill ítreka óskir um að menn
fari með gát á svæðinu. -sv
Jonnu leitað
á hafsbotni
Björgunarsveitarmenn, lögregla og
varðskip reyndu í gær að finna Jonnu
SF 12 sem fórst sunnan við land, milli
Víkur og Kirkjubæjarklausturs, fyrir
um hálfum mánuði. Þrír skipverjar
fórust með bátnum en menn hafa eng-
ar nákvæmar hugmyndir um hvar
hann liggur.
Töluverðu braki úr honum hefur
skolað á land en lík mannanna þriggja
hafa ekki komið fram. Telja menn
ekki óliklegt að þau geti enn verið í
bátnum þar sem ekkert brak hefúr
komið úr stýrishúsi.
Veður var afleitt í gær og hamlaði
aðgerðum en reiknað er með að hald-
ið verði áfram að leita næstu daga.
» -sv
Þessi mynd var tekin í fyrrinótt þegar ein elsta kirkja landsins, aö Vöilum í Svarfaðardal, brann. Eldurinn stendur hér upp úr forkirkjunni enda slökkviiiös-
menn nýkomnir á staöinn. Aö mati sérfræöinga eyðilagöist ómetanlegur dýrgripur þar sem kirkjan var. DV-mynd Jóhanna Gunnlaugsdóttir
DANIR ÆTTU A£> FARA í
MÁL Vl£> SJÁLFA SIG!
Veðrið á morgun
og á mánudag:
Norðlægar áttir
Á morgun og mánudag verða
norðlægar áttir ríkjandi með
éljum norðan til á landinu.
Syðra verður bjart og kalt veð-
ur. Frost verður um 2-4 stig,
kaldast i innsveitum.
Veðrið í dag er
á bls. 65
Veðurhorfur á morgun og mánudag
samlæstar hurðir
Hörku
vetrarpakki
fylgir með öllum Opel
Bílheimar ehf.
t □ 0 ©
Sœvarhöfba 2a Sími: S25 ?000