Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 13 Unga fólkið og Valhöll Undarlega hljóðlát virðist sú unga kynslóð vera sem nú er að verða fulltíða og þar á meðal þau sem koma til með að taka við stjórnartaumunum eftir ca. tvo eða þrjá áratugi. Það verður ekki annað heyrt en þau séu dauft berg- mál af flokksforystu fjórflokk- anna, hvert í sínum flokki. Hvergi er þetta meira áberandi en í Sjálfstæðisflokknum. Engu er líkara en að ungir sjálfstæðis- menn bíði eftir pöntunum eða nokkurs konar málefnalista frá flokksvaldinu um hvað ræða skuli. Tvö ár frá S.U.S.-þinginu Nú eru liðin tvö ár síðan S.U.S. hélt þing sitt í Kópavogi, sem frægt varð er foringi þeirra, Davíð Oddsson, mætti þar og snupraði þá fyrir að ætla sér að ræða aðal- málið sem fyrir lá, það er Evrópu- sambandsmálin, með þeim afleið- ingum að málið var nánast tekið af dagskrá enda fékk það enga af- greiðslu þar. Ekki var annað vitað en unga fólkið hefði einungis ætl- að að ræða þau mall rétt eins og hver önnur án nokkurra skuld- bindinga eða fyrirfram gerða áætl- ana. Ég kenndi í brjósti um þetta unga fólk sem lagðist í duftið og hefur varla reist höfuð frá jörðu síðan nema hafa annað augað á formanninum. Að hugsa til þess að eitthvað af þessu unga fólki eigi eftir að stjóma landinu og hef- ur ekki einu sinni kjark til þess að ræða þau mál sem upp kunna að koma vegna flokkshollustu. „Sjálfsmetnaður hverrar þjóöar er dýrmætur“. - íslensk ungmenni gægjast inn í varnarliðsþyrlu. kvótabrask hefur leikið lausum hala undir handarjaðri stjórn- valda. Eitt er að berjast af eigin ramm- leik til velgengni og auðæfa enda sjálfsagt. Annað er að láta færa sér auðæfi upp í hendur með vald- boði. Djúp þögn ríkir hjá ykkur Undarleg þögn Nú er hið fjöl- menna flokksþing sjálfstæðis- manna fyrir nokkru afstaðið. Við sem fylgjumst með fréttum úti á landsbyggðinni heyrðum ekki mikið frá ungu kynslóðinni þar. Fannst þeim sjálfsagt að þegja yfir því að þar var lögð blessun yfir það óréttlæti að búið er ánafna einstökum mönnum aðalauðlind þjóðarinnar. Með stjórnskipuðu valdi þar sem ótrúlegt sukk og „Því skal ekki trúað að unga fólk- ið ætli að hjakka í sömu hjólförum og það stjórnmálagengi sem nú ræður ríkjum. Þar sem miðstýring- ar- og einkahagsmunagæslupóli- tíkusar fara hamförum.“ þótt kynslóð ykkar og næstu kyn- slóðir hafi verið sviptar frjálsræði til þess að keppa á jafnréttisgrund- velli við suma jafnaldra ykkar. Varla eruð þið öll erfingjar þess- ara auðæfa eða hvað? Unga fólkiö og erlend hervernd ins um hervemdina í landinu. Fá ár em síðan að það þótti engum manni sæm- andi að hafa ekki skoðun á þeim mál- um. Einkanlega ef hann lét sér stjórn- mál einhverju skipta. Vill unga fólkið að herinn verði hér til þess að vemda það ár og síð og alla tíð án þess að rétta litla fingur til hjálpar í því her- vemdarstarfi? Er þetta ekki það sem heitir að tapa andlit- inu fyrir öðram þjóð- um heims? — Ekki varð ég var við neinn stuðning frá ungum sjálfstæö- ismönnum er Björn Bjarnason menntamálaráðherra tæpti á þessu máli á sl. ári, hvort ekki væri athugandi fyrir íslendinga að taka einhvem þátt í vömum landsins með eigin hendi. Bjöm var átalinn í ræðu og riti vegna þess að hann leyfði sér að Kjallarinn Halldór Her- mannsson verkstjórl, ísafiröi brydda á þessu sem umræðugrundvelli. Sjálfsmenntaður hverrar þjóðar er dýr- mætur. Því er henni hollt andlega séð að vera reiðubúin að verja land sitt sjálf eða með þarf. Annar eiginleiki virð- ist hins vegar fara vaxandi en það er þj óðrembuhátturinn þar sem sjálfumgleðin ræður ríkjum gagn- vart öðram þjóðum. Skammt er eftir i nýja öld. Því skal ekki trú- að að unga fólkið ætli að hjakka í sömu hjól- 1■“ fömm og það stjóm- málagengi sem nú ræður ríkjum. Þar sem miðstýringar- og einkahagsmunagæslupólitíkusar fara hamförum. Verði svo þá lifir ekki ánægð þjóð í þessu landi á næsu öid. Halldór Hermannsson Framtíð innanlandsflugs Ef innanlandsflug verður fært til Keflavíkur verða eftirfarandi breytingar augljósar: í fyrsta lagi þyrfti veg yfir Skerjafjörð, þaðan á Reykjanesbraut með þrem brúm og göngum fyrir innanbæjarum- ferð í Hafnarfírði. Síðan þyrfti að tvöfalda Reykjanesbraut. í hana þarf 21 W á fer- metra til að forð- ast hálku. Til þess þarf u.þ.b. 130 sekúndulítra af heitu vatni, gróft reiknað. Við virkjun á há- hitasvæðinu við Trölladyngju gæti þá jafnframt fengist veraleg raforka til stór- iðju. Við hraðbraut til Keflavikur, þá er hægt að bóka inn í Reykjavík, daginn áður ef fólk vill, þannig að farþegar þaðan sinna ekki far- angri lengur en í rútuna til Kefla- víkur. Það léttir nokkuð á farþeg- um. Þannig má að verulegu leyti hafa flugafgreiðsluna í Reykjavík sem léttir á Flugstöðinni. Ekki allt óhagræöi Við að innanlandsflug yrði í Keflavík breyttist það þannig að hægt væri að bóka farangur til út- landa úti á landi og fljúga snemma morguns þaðan. Það þýðir nætur- staðsetningu flugvéla úti á landi. Morgunflugin út á land taka far- þega sem koma um nótt frá útlönd- um. Síðdegisflugin út á land taka farþega út á land beint frá Kefla- vík. Þannig að það er ekki allt óhag- ræði fyrir landsbyggðina að flytja flugið til Keflavíkur. Það eykur og hlutdeild innanlandsflugs í sam- göngum innanlands að farið sé snemma suður, þá næst fuflur dag- ur í bænum. Þessu fylgir þörf á nokkuð vel búnum biðsölum bæði í Keflavík og í Reykjavík. Rekstur ferðamennsku úti á landi á sumrin getur þýtt að farþegar koma beint að utan til áætlunarflugvafla innanlands sem eyk- ur og auðveldar þá þjónustu. Við bættar vegasamgöngur minnkar markaður innanlandsflugsins. Það er því til nokk- urs að vinna að geta boðið ferðamönnum flug beint áfram til að auka þann mark- að. Við að Reykjavík gefur eftir flugvöll sinn þá er komið að þeim tímamótum sem felast í tvöföld- un Reykjanesbraut- ar og að stóriðjusvæði á Reykja- nesi verða vinnumarkaðssvæði Reykjavíkur. Þannig vinnst aftur það sem tapast við að flytja flug- völlinn. Vegur yfir Skerjafjörð yrði bót á fáránleikanum í vega- samgöngum á mflli Reykjavíkur og Kópavogs vegna hrepparígs og auðveldar markaðssvæði höfuð- borgarsvæðisins. Við flutning inn- anlandsflugs til Keflavíkur yrðu fastar áætlunarferðir með bílum á milli, óháð þvi að ver- ið sé að safna farþeg- um í flug, sem síðan nýtist sem bættar al- menningssamgöngur með hraðferð í tengi- bíla suðurfrá og í leiðakerfi á höfuðborg- arsvæðinu. Æfingavöll á Seltjarnarnesi Það þarf álíka mikla orku til að hita Kefla- víkurflugvöll og Reykjanesbraut. Þar þarf nokkrar rann- sóknir. Að samgöngur um Keflavíkurflugvöll séu með sem auð- veldustum hætti er að- alatriði í samgöngu- málum þjóðarinnar. Spurningin er ekki hvort eigi að leggja Reykja- vikurflugvöll niður heldur hvem- ig best verði staðið að flugsam- göngum. Varðandi æfmgaflugvöll fyrir litlar flugvélar þá má kannske ekki nefna það en Suður- nes á Seltjamamesi krefst ekki mikils aðflugs yfir byggð. Þar mætti gera minni æfingaflugvöll. Þorsteinn Hákonarson „Að samgöngur um Keflavíkurflug- völl séu með sem auðveldustum hætti er aðalatriði í samgöngumál- um þjóðarinnar. Spurningin er ekki hvort eigi að leggja Reykjavíkur- flugvöll niður heldur hvernig best verði staðið að flugsamgöngum.“ Kjallarinn Þorsteinn Hákonarson framkvæmdastjóri Meö og á móti Samtímagreiðslur úr LÍN Mann- réttindi Ogmundur Jónas- son alþingísmaður. „Það er stórkostlegt hags- munamál fyrir námsmenn að fá fram breytingu á námslánafyrir- komulaginu þannig að teknar verði upp sam- tímagreiðslur úr Lánasjóði is- lenskra náms- manna. Fyrir- komulagið sem námsfólk býr við í dag þýðir að námsfólk þarf að fjár- magna nám sitt með bankalán- um. Þar af leiðir að það þarf að greiða vexti til bankanna sem eru hærri en til lánasjóðsins. Við í þingflokKÍ Alþýðubandalagsins og óháðra höfum lagt fram fmm- varp á Alþingi til að fá þessu breytt og til að fá endurgreiðslu- hlutfallið lækkað. Það hefur sýnt sig að þær klyfjar sem lagðar eru á ungt fólk í námi eru orðnar svo þungar að það fær ekki undir þeim risið. Á þessu veröur að verða breyting. Það er ekki bara hagsmunamál fyrir námsfólk heldm- fyrir þjóðfélagið allt. Fyr- irkomulagið eins og það er núna er slæmt af mörgum ástæðum. Ekki aðeins fjárhagslega heldur einnig hefur það slæm áhrif á líðan fólks vegna þess hve mikla óvissu þetta fyrirkomulag skap- ar. Það var þannig á sínum tíma að fólk þurfti að sanna sig í námi í eitt ár áður en það fékk sam- tímagreiðslu. Nú hefur skrefið verið stigið til fulls og fólki er haldið í óvissu í þessum efnum allan námstímann. Það tel ég vera fullkomlega óásættanlegt. Peningalega gengur þetta ekki upp og það gengur heldur ekki upp að búa fólki það óöryggi sem þetta skapar.“ Véitir aðhald „Ég tel að núverandi fyrir- komulag, að greiða ekki námslán fyrr en að lokinni önn og að prófi náðu, veiti námsmönnum að- hald. Það tryggir að fólk fái ekki lán nema það nái þeim árangri í námi sem það á að ná til að verða láns- hæft. Þaö er einnig stað- reynd aö þetta sparar lána- sjóðnum fjármuni. Áður en nú- verandi kerfi var tekið upp var talsvert um það að fólk hæfi nám, tæki námslán og hætti síð- an námi. Lánið fór síðan bara í neyslu í einhvem stuttan tíma hjá fólki sem aldrei varð raun- verulegir námsmenn. Þegar nú- verandi lánafyrirkomulag var tekið upp var svo komið að fjár- hagsstaða Lánasjóðs íslenskra námsmanna var orðin vægt sagt slæm. Þegar staðan og skuld- bindingar sjóðsins vom reiknað- ar fram í tímann kom í ljós að hann hefði orðið gjaldþrota ef ekkert hefði verið að gert. Síðan kom í ljós að þær aðgerðir sem farið var út í náðu því markmiði að bjarga fjármálum sjóðsins og reisa hann við. Menn hafa verið að tala um að núverandi fyrir- komulag valdi óöryggi ef fólk veikist í miðri eða síðari hluta annar eða eitthvað þvíumlíkt. Ég held að þar sé um svo fáa ein- staklinga að ræða að auðvelt sé að bjarga slíkum málum komi þau upp.“ S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.