Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1996, Síða 55
J->V LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
afmæli -
Til hamingju
með afmælið
1. desember
95 ára_____________________
Steinn Guðni Hólm,
Dvalarheimilinu Skjaldarvík,
Glæsihæjarhreppi.
80 ára
—------------------------
Kristbjörg Guðbjömsdóttir,
Hraunbæ 146, Reykjavík.
75 ára____________________
Ingunn Símonardóttir,
Herjólfsgötu 28, Hafnarfirði.
Grimur Stefán Bachmann,
Stóragerði 12, Reykjavík.
Guðbjöm Guðjónsson,
Engjateigi 5, Reykjavík.
70 ára______________________
Ólöf Ragnarsdóttir,
Æsufelli 4, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er
Hilmar Ólafsson.
Þau taka á móti gestum í Fóst-
bræðraheimilinu, Langholts-
vegi 109-111, á morgun, sunnu-
daginn 1.12., milli kl. 15.00 og
18.00.
Hólmsteinn Þórarinsson,
Fossvegi 10, Siglufirði.
Jón Friðrik Karlsson,
Sunnugerði 7, Reyðarfirði.
Guðmundur Karlsson,
Hraunbæ 64, Reykjavík.
Huld Kristjánsdóttir,
Bylgjubyggð 27, Ólafsfirði.
Ragnheiður Magnúsdóttir,
Hnjóti I, Vesturbyggð.
Jón Ólafsson,
Mávabraut 12A, Keflavík.
Þórdis M. Þorleifsdóttir,
Torfufelli 27, Reykjavík.
Falur Friðjónsson,
Grenivöllum 24, Akureyri.
60 ára____________________
Kristín Theódórsdóttir,
Fögrukinn 3, Hafnarfirði.
Gxmnar Berg Gunnarsson,
Skarðshlíð 2G, Akureyri.
Valdls Ragnarsdóttir,
Bjargaiianga 2, Mosfellbæ.
Georg St. Aðalsteinsson,
Ashamri 75, Vestmannaeyjum.
Hallgrímur Baldvinsson,
Þverholti 14, Akureyri.
Hann er að heiman.
50 ára_____________________
Guðrún Benediktsdóttir
snyrtifræðingur,
Hraunbrún 19, Hafnarfirði.
Eiginmaður hennar er Guðjón
Jóhannsson pípulagningar-
meistari.
Þau taka á móti gestum að
heimili sínu eftir kl. 17.00 á af-
mælisdaginn.
Guðjón Þór Valdimarsson,
Holtsbúð 69, Garðabæ.
Gunnar Jóhannsson,
Vaglaseli 3, Reykjavík.
Eyþór Ingólfsson,
Kársnesbraut 101, Kópavogi.
Guðlaug B. Sigurðardóttir,
Norðurvangi 38, Hafnarfirði.
Thomas G. Hassing,
Dynskógum 30, Hveragerði.
40 ára_________________
Ellert Jón Þorgeirsson
sölustjóri,
Dalseli 29, Reykjavík,
3. hæð til vinstri.
Eiginkona hans er Ásta Sig-
urðardóttir Schiöth.
Þau verða með opið hús að
heimili sínu sunnudaginn 1.12.
Hilmar Þór Harðarson,
Stekkjarhvammi 27,
I Hafnarfmði.
Hinrik Arnar Hjörleifsson,
Sjávargrund lOb, Garðabæ.
Omar Imsland,
Eiðismýri 20, Seltjarnarnesi.
Árni Amason,
Vallarási 4, Reykjavík.
Eh'as Oddsson,
Hafraholti 28, ísafirði.
Halldóra Halla Jónsdóttir,
Höfðabraut 2, Akranesi.
Guðmimdur R. Þorvaldsson,
Garði,.Garðabæ.
Karl Óskarsson,
Bergstaðastræti 6, Reykjavík.
Hjálmtýr Sigurðsson,
Unufelli 11, Reykjavík.
Sigríður Þórarinsdóttir,
Esjubraut 9, Akranesi.
Brynja Jóhannsdóttir,
Reynignmd 47, Akranesi.
Geir Sigurðsson,
Móholti 11, Isafirði.
Jón Magnússon
Jón Magnússon, fyrrv. sýslumað-
ur, Bókhlöðustíg 7, Stykkishólmi, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Jón fæddist á Eskifirði og ólst þar
upp. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR 1946 og embættisprófi í lögfræði
frá HÍ 1952.
Jón var fulltrúi hjá bæjarfógetan-
um á Seyðisfirði og sýslumanninum
í Norður-Múlasýslu 1952, fulltrúi á
málflutningsskrifstofu Kristjáns
Guðlaugssonar hrl. í Reykjavík
1952-62, fulltrúi hjá sýslumanninum
í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu
frá 1962, var skipaður aðalfulltrúi
þar og bæjarfógelans í Ólafsvík
1985, var skipaður sýslumaður í
Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu og
bæjarfógeti í Ólafsvík, með aðsetur
í Stykkishólmi 1989, og gegndi því
starfi til 1992 er honum var veitt
lausn frá embætti að eigin ósk.
Jón sat í hreppsnefnd Stykkis-
hólmshrepps 1970-74, var formaður
sjálfstæðisfélagsins Skjaldar i
Stykkishólmi 1970-73, sat í yfirkjör-
stjórn Vesturlandskjördæmis
1968-87 og formaður hennar 1976-87.
Fjölskylda
Jón kvæntist 21.3.
1951 Katrínu Sigurjóns-
dóttur, f. 3.6. 1927, hús-
móður og fiskvinnslu-
konu. Hún er dóttir Sig-
urjóns Sigurðssonar,
verslunarstjóra í
Reykjavík, og k.h„
Rannveigar Vídalín
Guðmundsdóttur hús-
móður.
Börn Jóns og Katríri-
ar eru Sigurjón, f. 27.12.
1949, byggingatæknifræðingur
Stykkishólmi; Sigrlður, f. 4.10. 1951,
húsmóðir í Reykjavík, gift Sævari
Hermanníussyni rafvélavirkja; Ingi-
björg, f. 2.10. 1952, hjúkrunarfræð-
ingur í Reykjavík; Katrín, f. 11.1.
1954, húsmóðir í París, gift Henri
Amsellem fiskinnflytjanda; Högni, f.
21.4. 1955, byggingaverkfræðingur í
Reykjavík, kvæntur Elínu Rós
Snorradóttur tækniteiknara; Rann-
veig, f. 11.9.1957, hjúkrunarfræðing-
ur í Reykjavík, gift Halldóri Jóns-
syni heimilislækni; Áslaug, f. 6.12.
1958, landfræðingur í Reykjavík, gift
Sigurþóri Hólm Tryggvasyni raf-
magnsverkfræðingi; Sif, f.
5.2. 1960, húsmóðir í New
York, gift Mark Harris
Steenberg viðskiptafræð-
ingi.
Systkini Jóns: Guðný, f.
21.6. 1919, stjómarráðsfull-
trúi; Þorbjörg, f. 12.10.
1921, yfirlæknir; Gisli, f.
5.2. 1929, píanóleikari og
skólastjóri.
Foreldrar Jóns voru
Magnús Gíslason, f. 1.11.
1884, d. 21.9. 1970, sýslu-
maður á Eskifirði, alþm.
og ráðuneytisstjóri í Reykjavík, og
k.h., Guðrún Sigríður Jónsdóttir, f.
27.9. 1897, d. 23.5. 1965, húsmóðir.
Ætt
Magnús var bróðir Ólafs, fram-
kvæmdastjóra í Viðey, föður Dav-
íðs, fyrrv. seðlabankastjóra, föður
Ólafs, ráðuneytisstjóra í forsætis-
ráðuneytinu. Magnús var sonur
Gísla, b. á Búðum í Fáskrúðsfirði,
Högnasonar, járnsmiðs á Skriðu í
Breiðdal, bróður Kristínar,
langömmu Sigurðar Þórarinssonar
jarðfræðings. Högni var sonur
Gunnlaugs, prests á Hallormsstað,
Þórðarsonar, prests í Kirkjubæ í
Tungu, Högnasonar, „prestaföður"
á Breiðabólstað í Fljótshlíð, Sigurðs-
sonar. Móðir Högna var Ingibjörg
Brynjólfsdóttir, systir Rósu,
langömmu Páls, föður Sigurðar rit-
höfundar.
Móðir Magnúsar var Þorbjörg
Magnúsdóttir, prests í Heydölum,
Bergssonar og Vilborgar Eiríksdótt-
ur, systur Benedikts, langafa Júlíu,
móður Valgeirs Sigurðssonar,
fræðimanns á Þingskálum.
Guðrún Sigríður var dóttir Jóns,
prófasts í Nesi í Norðfirði, Guð-
mundssonar, b. á Grímsstöðum á
Hólsfjöllum, Ámasonar. Móðir Jóns
var Helga Jónsdóttir, b. á Valþjófs-
stað í Núpasveit, Jónssonar. Móðir
Guðrúnar Sigríðar var Guðný Þor-
steinsdóttir, prests í Heydölum, Þór-
arinssonar, prests á Hofi í Álfta-
firði, Erlendssonar. Móðir Þorsteins
var Guðný Benediktsdóttir, prests á
Skorrastöðum, Þorsteinssonar.
Móðir Guðnýjar Þorsteinsdóttur
var Sigríður Pétursdóttir, prests á
Valþjófsstað, Jónssonar.
Hann er að heiman.
Sigurður Freysteinsson
Sigurður Freysteins-
son, Þórannarstræti 121,
Akureyri, er sjötíu og
fimm ára í dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist á
Glerárbakka í Glæsibæj-
arhreppi, nú Akureyri, og
ólst upp í Baldursheimi í
Glerárþorpi. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Gagn-
fræðaskóla Akureyrar
1941.
Sigurður stundaði sjó-
mennsku á skólaárunum
og eftir að þeim lauk. Hann tók
meirapróf bifreiðastjóra 1946 og ók
á Bifreiðastöð Oddeyrar og Bifreiða-
stöð Akureyrar 1955-91 er hann
hætti störfum. Auk þess vann hann
i tólf ár þessa timabils við verslun-
arstörf hjá véladeild KEA.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 30.11. 1949 Sig-
rúnu Lovísu Grimsdóttur frá Flat-
eyjardal, f. 18.2. 1927, húsmóður.
Hún er dóttir Gríms S.
Sigurðssonar og Huldu
Tryggvadóttur er bjuggu
að Jökulá á Flateyjardal
en þau eru bæði látin.
Böm Sigurðar og Sig-
rúnar Lovísu em Grím-
ur, f. 18.7.1949, véltækni-
fræðingur á Akvu-eyri,
kvæntur Sigríði Finns-
dóttur og em dætur
þeirra Hulda Björk og
Ragnheiður Sara; Frey-
steinn, f. 12.12. 1950,
skrifstofúmaður, kvænt-
ur Kolbrúnu Sigurpáls-
dóttur og era synir þeirra Sigurður
Rúnar og Baldvin; Hulda Guðlaúg, f.
22.10.1952, hjúkrunarfræðingur, gift
Brynjari Þórarinssyni og era böm
þeirra Þórður Freyr og Sigrún
Lovísa; Guðbjörg, f. 29.4.1956, tölvu-
fræðingur, gift Skúla Kristjánssyni
og era synir þeirra Andri og Teitur;
Sigurður, f. 25.5.1958, framkvæmda-
stjóri í Danmörku, kvæntur Liv
Marit; Sigrún Lovísa, f. 23.7. 1968,
hjúkranamemi, í sambúð með Sig-
Sigurður
Freysteinsson.
Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir,
skrifstofumaður á Hrafri-
istu í Hafnarfirði, Háa-
hvammi 9, Hafnarfírði, er
fertug í dag.
Starfsferill
Bryndís fæddist á Sól-
vangi í Hafnarfirði og
ólst upp við Öldutúnið í
Hafriarfirði. Hún stund-
aði nám við Öldutúns-
skóla, lauk prófum frá
Flensborgarskólanum og
útskrifaðist síðar sem
skrifstofutæknir frá tölvuskóla.
Bryndís helgaði sig heimilisstörf-
um og bömunum fyrstu tuttugu og
tvö hjúskaparárin en er nú auk þess
skrifstofumaður á Hrafnistu í Hafn-
arfirði.
Bryndís og maður hennar hófu
búskap á Suðurgötunni í Hafnar-
firði en byggðu síðan við Háa-
hvamm í Hafnarfirði þar sem þau
hafa átt heima frá 1982.
Bryndís er stofrifélagi í Lions-
klúbbnum Kaldá í Hafnarfirði.
Helstu áhugamál Bryndísar eru ætt-
fræði og skokk en hún hljóp New
York City maraþonið þann 3.11. sl. í
tilefni fertugsafmælisins.
Fjölskylda
Bryndís giftist 17.7. 1975 Lúther
Þorgeirssyni, f. 25.7.1946, sjómanni.
Hann er sonur Þorgeirs Þórarins-
sonar, útgerðarmanns í
Grindavík, og Helgu Har-
aldsdóttur húsmóður.
Börn Bryndísar og
Lúthers eru Helga, f. 5.3.
1975, en dóttir hennar er
Bryndís Líf, f. 29.11. 1993;
Harpa Snjólaug, f. 5.10.
1977, í sambúð með Ólafi
E. Ólafssyni og er sonur
þeirra ísak Lúther, f. 24.7.
1996; Svavar, f. 7.11. 1983;
Lovfsa, f. 17.10. 1985.
Dóttir Lúthers frá því
áður er Jóhanna Ámý en
maður hennar er Stefán Bragi Sig-
urðsson og eru böm þeirra Hafþór
Örn, Sigurður Bragi, Sigrún og
Kristján Berg.
Systkini Bryndisar eru Berghildur,
f. 6.12. 1950, kennari á Akureyri, gift
Guðmundi Þór Ásmundssyni skrif-
stofustjóra; Ingvar, f. 6.10.1953, d. 22.2.
1996; Hafdís, f. 20.10. 1953, húsmóðir,
gift Guðjóni Hilmarssyni prentara;
Edda, f. 25.8. 1967, tækniteiknari hjá
Fjarhitun, gift Emil B. Hallgrímssyni,
byggingatæknifræðingi.
Foreldrar Bryndísar eru Svavar
Jóhannesson, f. 21.1. 1933, á eftir-
launum, og Guðbjörg Tómasdóttir,
f. 19.4.1929, húsmóðir, skáldkona og
frístundamálari.
Bryndís og Lúther taka á móti
gestum á heimili sínu í dag milli kl.
20.00 og 23.00.
Bryndís
Svavarsdóttir.
urði Jóhannessyni.
Systkini Sigurðar: Sigriður, f.
18.8. 1818, d. 21.10. 1991, var gift
Bjama Jóhannessyni skipstjóra og
eignuðust þau sjö börn; Hallfríður,
f. 27.2. 1928, aðalfulltrúi í Garðabæ,
gift Emi Eiðssyni og eiga þau tvö
böm; Pétur F. Breiðfjörð, f. 16.9.
1930, kvæntur Ragnheiði Ámadótt-
ur og á hann eina dóttur.
Foreldrar Sigurðar; Freysteinn
Sigurðsson, f. 16.8.1886, d. 13.2.1967,
iðnverkamaður í Baldursheimi í
Glerárþorpi, og k.h., Guðlaug D. Pét-
ursdóttir, f. 5.5. 1893, d. 13.3. 1964,
húsmóðir.
Sigurður verður erlendis á af-
mælisdaginn.
S0LU<<<<<<
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis
þriðjudaginn 3. desember 1996 kl. 13-16 í porti bak við skrifstofu
vora að Borgartúni 7 og víðar.
1 stk. Volvo 850 GLE 1993
8 stk. Subaru 1800 station 4x4 1986-91
1 stk. Toyota Corolla station 1991
1 stk. Toyota Corolla 1990
1 stk. Daihatsu Charade (skemmdur) 1990
1 stk. Daihatsu Rocky 4x4 1990
2 stk. Toyota Land Cruiser 4x4 1988
2 stk. Nissan Patrol 4x4 (8 farþega) 1990-91
3 stk. Toyota Hi Lux double cab, 4x4, 1988-92
1 stk. Mitsubishi L-300, 4x4, 1988
1 stk. Mitsubishi L-200 m/húsi, 4x4, 1990
1 stk. Mitsubishi Pajero 4x4 1986
1 stk. Mitsubishi Pajero, 4x4, (skemmdur) 1991
1 stk. Ford Econoline Club Wagon, 4x4, (11 farþega) 1988
1 stk. Ford Econoline 1988
1 stk. Toyota Hi Ace 1988
1 stk. Ford F-100 pickup, 4x4, 1983
1 stk. M. Benz 711 D vinnuflokkabíll með krana 1987
1 stk. M.Benz Unimog m/húsi, 4x4, (stór kerra geturfylgt) 1962
1 stk. M. Benz 2235 vörubifreið með palli og krana 1989
1 stk. vélsleði Arctic Cat Prowler 1990
1 stk. kapalvagn Lancier 1983
Til sýnis hjá Siglingamálastofnun, Vesturvör 2, Kópavogi:
3 stk. Atlas Copco loftpressur, 700 cuft
1 stk. BSP 700 B rekhamar, 2.700 kg
3 stk. BSP 900 B rekhama.r 3.900 kg hver
1 stk. BSP 1000 B rekhamar, 5.600 kg
Til sýnis hjá Þingvallanefnd við þjónustumiðstöðina
á Þingvöllum:
1 stk. hjólaskófla, Bobcat 653, 1993
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri sama dag kl. 16.30 að við-
stöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum sem
ekki teljast viðunandi.
Borgartúni 7, 105 Reykjavík
sími 552 6844 Fax 562 6739
(ATH. inngangur í porti frá Steinatúni).