Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1996, Qupperneq 64
TRAKTOR
með kerru - margar gerðir
Veðriö á morgun:
Rigning um allt land
Á morgun verður austlæg eða breytileg átt, víðast kaldi eða stinnings-
kaldi, rigning um allt land og hiti 2-8 stig.
Veður á mánudag:
Hiti um frostmark
Á mánudag verður norðaustanstrekkingur norðanlands og él en breyti-
leg átt og skúrir sunnanlands. Hiti verður um frostmark.
ERU EKKI NIÐUR-
GREIDDIR TANNLÆKNA-
. TÍM AR NÆSTA TILBOÐ?
C CLAIRBOIS)
Heildverslunin Bjarkey
Ingvar Helgason
V
Mánudagur
Álla laugardaga
Vertu viðkúínín)
vinningí(
Vinningstölur
29.11.'96
17)(21)(28)
KIN
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
13550 5555
Frjálst,óháð dagblaö
LAUGARDAGUR 30. NOVEMBER 1996
Danir vissir
um sigur
DV, Danmörku:
í dag býr íslenska landsliðið í
handknattleik sig undir átökin gegn
Dönum í Álaborgarhöllinni en hinn
þýðingarmikli leikur þjóðanna fer
fram á morgun, sunnudag, og hefst
kl. 15.30.
Jafntefli eða sigur þýðir að ísland
verður í hópi þeirra 24 liða sem leika
um heimsmeistaratitilinn í
Kumamoto í vor. Ósigur þýðir að ís-
lenska liðið situr heima, nema svo
ólíklega fari að Litháen tapi stigi til
Úkraínu á heimavelli á morgun.
Islenska liðið er óbreytt frá fyrri
leiknum og allir eru heilir. „Ég held
að ég hafi aldrei haft svona lítið að
gera, allir eru fullfrískir og tilbúnir í
þennan mikilvæga Ieik,“ sagði Stefán
Carlsson, læknir íslenska liðsins.-VS
Verðstríð:
Tíu tonn af
Mackintosh
fyrir slikk
Ekki er langt síðan kartöfluverð
fór niður úr öflu valdi og í sl. viku
fór eggjabakkinn niður í 19 krónur.
í gær tók síðan Hagkaup upp á því
að selja 2 kg af Mackintosh-sælgæti
á 998 kr. og 10/11 bættu gott um bet-
ur og seldu dósina á 975 kr.
„Það kom okkur á óvart hvað
þetta rauk út. Við vorum með 3000
dósir eða 6 tonn af Mackintosh," seg-
ir Óskar Magnússon, forstjóri Hag-
kaups.
„Það er gífurleg samkeppni í
gangi og töluvert meiri nú en áður.
Ég á von á að aðrar vörur komi til
með að lækka mjög vegna baráttu á
markaðnum," segir Eiríkur Sigurðs-
son, eigandi 10-11 verslananna. Alls
fóru um 10 tonn af Mackintosh í
þessari lotu verðstríðsins. -GGÁ/RR
Stúlka myrt í skotárás á veitingahúsi í Kaupmannahöfn:
Islendingur slapp
við kúlnahríðina
- þrír særðir og 18 manns á sjúkrahús með taugaáfall
Gísli Gíslason lögfræðingur
slapp fyrir tilviljun við að lenda i
kúlnahríð manns sem skaut stúlku
til bana og særði þrjá karlmenn al-
varlega á veitingahúsi við
Gothersgade í Kaupmannahööi að-
faranótt fostudagsins.
Gísli býr í sama húsi og veit-
ingahúsið er í og ákvað hann og
tveir félagar hans að skreppa nið-
ur á veitingahúsið, sem er á jarð-
hæð hússins, til að fá sér öl fyrir
svefninn. Gísli fór á undan félög-
um sínum og þegar hann tók að
lengja eftir því að þeir kæmu fór
hann aftur upp í íbúðina til að
sækja þá, en á meðan átti blóðbað-
ið sér stað.
„Þetta veitingahús er ósköp
venjulegur rólegheita-bar, en það
getur ýmislegt gerst hvar sem er,“
segir Gísli í samtali við DV. í frétt-
um Kaupmannahafnarblaðanna í
gær er sagt frá atburðinum, en til-
drög skotárásarinnar eru sögð
óljós, en byssumaðurinn var hand-
tekinn á staðnum af lögreglumönn-
um sem voru gestkomandi á veit-
ingahúsinu.
Extra Bladet segir að mikil
skelfmg hafi gripið um sig í veit-
ingahúsinu og hafi alls 18 manns
verið fluttir á sjúkrahús eftir at-
burðinn, flestir vegna taugaáfalls.
Haft er eftir lögreglunni að veit-
ingahúsið hafi gott orð á sér og
uppákomur og vandræði þar sjald-
gæf.
Gísli, sem er einn eigenda Pizza
67, slapp naumlega ásamt félaga
sínum frá eldsvoða sem kom upp
í blokk sem þeir dvöldu í í Kaup-
mannahöfn í sumar. Því má segja
að Gísli sé í hringiðu atburðanna í
höfuðborg Danaveldis. -SÁ
Tremænd
sáret-
18 kort pá
Starfsmenn Skógræktarfélags Eyjafjaröar vinna við þaö þessa dagana aö hengja jólatrén upp í húsum félagsins í
Kjarnaskógi. Búiö er aö höggva nær öll þau tré sem fara í sölu en hún hefst til almennings 11. desember. Sölustaðir
veröa í göngugötunni, við KEA-Nettó og í Kjarnaskógi. Verö trjánna veröur svipaö og undanfarin ár, aö sögn
Hallgríms Indriöasonar, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Eyjafjarðar. DV-mynd gk
Reykjanesbraut:
Upplýst um
helgina
DV, Suðurnesjum:
„Staurarnir verða komnir upp
um helgina ásamt lýsingu að und-
anteknum smákafla rétt áður en
komið er að Kúagerði, þegar ekið
er frá Hafnarfirði. Sá kafli verður
að bíða betri tíma vegna frosts í
jörðu. Þar liggur ljósleiðarastreng-
ur sem þarf að færa svo að hægt sé
að reka staurana niður,“ sagði
Ingileifur Jónsson verktaki sem
sér um að koma upp lýsingu á
Reykjanesbraut.
Búið er að kveikja á 85 ljósa-
staurum á Reykjanesbrautinni
Hafnarfj arðarmegin. Alls verða
staurarnir 435 og ná til Fitja í
Njarðvík. Um 65 metrar eru á milli
staura. Á kaflanum, sem bíður um
sinn, verða 35 ljósastaurar. Þeir
verða settir upp um leið og hlánar
betur.
-ÆMK