Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1996, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996
Viðskipti
Pizza 67 í Kaupmannahöfn:
Forsetinn fjörg-
aði viðskiptin
- segir Gísli Gíslason framkvæmdastjóri
Gjaldeyrisforöinn:
Jókst um
400 milljónir
í nóvember
Gjaldeyrisforði Seðlabankans
jókst um tæpar 400 milljónir króna
í nóvember sl. og nam 25,8 millj-
örðum króna í lok mánaðarins. Er-
lendar skammtímaskuldir bankans
jukust hins vegar um 1,6 milljaröa
þannig að gjaldeyrisstaðan rýrnaði
um 1,2 milljarða króna.
Heildareign Seðlabankans í
markaðsskráðum verðbréfum jókst
um 2,6 milljarða í nóvember. Eign
bankans í spariskírteinum og rík-
isbréfum lækkaði lítillega en ríkis-
víxlaeign jókst um 3,1 milljarð.
Kröfur bankans á ríkissjóð og rík-
isstofnanir stóðu nánast í stað í
mánuðinum en kröfur bankans á
innlánsstofnanir jukust um nærri
1,6 milljarða.
Vaxtarsjóður á
100 milljónir
Heildareignir Vaxtarsjóðsins,
sem er nýr hlutabréfasjóður í eigu
VÍB, eru nú orðnar 100 milljónir
króna. Sjóðurinn var stofnaður af
Hlutabréfasjóðnum hf. í lok októ-
ber sl. í tilefni af 10 ára afmæli
þess síðamefhda.
Vaxtarsjóðurinn hefur þegar
fjárfest að stóram hluta í hlutabréf-
um sjávarútvegsfyrirtækja. Sjóður-
inn hefur einnig fjárfest i bréfum
fyrirtækja í öðrum atvinnugrein-
um, s.s. í iðnaði. Stefnt er að skrán-
ingu hlutabréfa Vaxtarsjóðsins á
Verðbréfaþingi þegar skilyrðum
verður uppfyllt.
Evrópusambandið:
Styrkir um-
hverfisstjórnun
íslenskra
fyrirtækja
Tíu íslensk fyrirtæki í fisk-
vinnslu og matvælaiðnaði hafa
verið valin til þátttöku í nýju um-
hverfisstjórnunarverkefhi á vegum
Evrópusambandsins, ESB. Sam-
bandið greiðir helming kostnaðar
við verkeftiið en auk þess styður
Átak til atvinnusköpunar þau fyr-
irtæki sem valin hafa verið.
Fyrirtækin sem hér um ræðir
eru Borgey, Bakki, Bakkavör,
Faxamjöl, Fiskiðjusamlag Húsavík-
ur, íslenskt franskt, íslensk mat-
væli, Lýsi, Miðnes og Tros. Fyrri
hluti verkefnisins stendur fram á
mitt næsta ár. Á þeim tíma verða
umhverfismál fyrirtækjanna
greind og byggðui- upp grunnur aö
umhverfisstjómunarkerfi innan
þeirra. í síöari hluta verkefnisins
gefst fyrirtækjunum kostur á að
taka upp viðurkennt umhverfis-
stjómunarkerfi, byggt á umhverfis-
reglum ESB, svokölluðum EMAS-
reglum. -bjb
Gunnar G. Schram:
Rit um úthafs-
veióisamning
Nýlega kom út rit á ensku um Út-
hafsveifiisamning Sameinuðu
þjófianna. Útgefandi er hollenska
forlagifi Martinus Nijhoff og
Kluwer International. Höfundar
bókarinnar eru Gunnar G. Schram
prófessor og Jean-Pierre Lévy,
fyrrum yfirmafiur Hafréttardeildar
SÞ í New York. Hér sést Gunnar
afhenda Halldóri Ásgrímssyni ut-
anríkisráfiherra eintak af bókinni.
„Reksturinn gengur mjög vel og
mikið að gera á staðnum, mun meir
en við þorðum að vona. Þetta byrj-
aði mjög rólega, en eftir forseta-
heimsóknina jókst aðsóknin jafnt og
þétt,“ segir Gísli Gíslason, lögfræð-
ingur og framkvæmdastjóri Pizza 67
i Kaupmannahöfn, í samtali við DV.
Þriðjungur jólabókanna í ár er
prentaður erlendis og er það svipað
hlutfall og í fyrra. Þá jókst reyndar
hlutfall prentunar erlendis úr 22% í
rúm 30%. Þetta kemur fram í nýrri
samantekt sem Bókasamband ís-
lands hefur gert á prentstað ís-
lenskra bóka sem birtast í bókatíð-
indum Félags íslenskra bókaútgef-
enda. Heildarfiöldi bókanna er 439
sem er eilítil fiölgun frá síðasta jóla-
bókaflóði.
Að þessu sinni eru nærri sjö af
hverjmn tíu íslenskum jólabókum
prentaðar hér innanlands. Afgang-
urinn skiptist á 15 lönd. Mest er
prentað í Portúgal eða 7% allra ís-
lenskra bóka, frumsamdra sem
þýddra. Næst kemur Singapore með
6,6%, þá Danmörk með 4,7% og Sví-
þjóð með 4,3%. Önnur lönd eru
Þýskaland, Ítalía, Belgía, Hong
Kong, Bretland, Kína, Noregur,
Spánn, Frakkland, Slóvenía og
Slóvakía.
Ef eintakir bókaflokkar eru skoð-
aðir kemur í ljós að ævisögur og
endurminningarbækur eru mest
prentaðar á íslandi, eða 85% af þeim
flokki. Algengast er að bamabæk-
Hlutabréfaviðskipti um Verð-
bréfaþing og Opna tilboðsmarkað-
inn í síðustu viku námu rúmum 120
milljónum króna. Mest var keypt af
bréfum Marels eða fyrir 23,5 millj-
ónir króna. Næstmest var keypt af
bréfum Granda eða fyrir 19 milljón-
ir króna. Þróun á gengi bréfa þess-
ara tveggja fyrirtækja má sjá í graf-
inu hér fyrir neðan. Töluvert var
Sem kunnugt er kom Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti íslands, við hjá
þeim þegar hann heimsótti Dana-
veldi á dögunum og gæddi sér á
pitsum fyrirtækisins.
Gísli segir að rekstrarleyfishafar
séu búnir að festa sér húsnæði fyrir
Pizza 67 staði í bæði Bergen í Nor-
umar séu prentaðar erlendis, eða
nærri 60% af þeim bókum.
Eins og sést á meðfylgjandi grafi
hefur hlutur íslenskra prentsmiðja i
prentun jólabókanna minnkað jafnt
einnig keypt af hlutabréfum Flug-
leiða eða fyrir 13,4 milljónir.
Núna á mánudaginn námu hluta-
bréfaviðskiptin tæpum 30 milljónum
króna. Þar af var keypt fyrir 9 millj-
ónir í Hraðfrystistöð Þórshafnar þeg-
ar gengi bréfanna stökk úr 1,86 í 3,15.
Er það hækkun um tæp 70%.
Þingvísitala hlutabréfa hækkaði
lítillega sl. mánudag í 2212 stig en
egi og Landskrona í Svíþjóð og
verði þeir staðir opnaðir alveg á
næstunni. Hann segir að nokkrir
aðilar hafi áhuga á að opna fleiri
Pizza 67 staði í Danmörku og verði
farið nánar út í þau mál eftir ára-
mótin.
og þétt síðastliðin þrjú ár. í jóla-
bókaflóðinu 1993 voru 80% allra
bóka prentaðar á íslandi en hlutfall-
ið er nú komið niður í 67%.
var komin niður í 2207 stig i síðustu
viku. Eilitil hækkun hefur orðið á
þingvísitölu húsbréfa en ávöxtun
nýjustu bréfa hefur nánast staðið í
stað að undanfomu.
Stígandi sterlingspundsins er
ekki lengur fyrir hendi ef marka má
skráningu Landsbankans þegar við-
skipti hófúst í gærmorgun. Þá var
sölugengi pundsins 111,36 krónur
Ný stjórnlist
Út er komin hjá Framtíðarsýn
bókin Ný stjómlist eftir Þorkel Sig-
urlaugsson,
viðskipta-
fræðing og
framkvæmda-
stjóra þróun-
arsviðs Eim-
skips. Efni
bókarinnar
er byggt á
skrifum Þor-
kels í Við-
skiptablaðið
og erindum
sem hann hefru flutt undanfarin
misseri.
Meginefni bókarinnar tengist
þeim umbrotatímum sem við lifúm
á og þeim áhrifum sem þeir hafa á
daglegt líf stjómenda, almennra
starfsmanna og þjóðfélagið í heild.
Þorkell skoðar margar helstu
stjórnunarstefnur samtímans
gagnrýnum augum og bendir jafnt
á kosti sem galla,“ segir m.a. í
kynningu útgefanda.
Viðskiptatengsl
viö Frakka aukin
Á aðalfundi Fransk-íslenska
verslunarráðsins í síðustu viku
var m.a. ákveðið að stuðla enn
frekar að auknum viðskiptatengsl-
um íslands og Frakklands. Fyrir-
hugað er að endurgjalda heimsókn
fulltrúa franskra fyrirtækja til ís-
lands í fyrra með því að efna tO
Frakklandsferðar á næsta ári.
Brynjólfur Helgason er nýr stjórn-
arformaður Fransk- íslenska versl-
unarráðsins. -bjb
Magnesíuverk-
smiðja undirbúin
DV, Suðurnesjum:
„Við erum ekki farin að sjá út
nákvæmlega hversu mikið land
verksmiðjan þarf á að halda. Þegar
sú ákvörðun liggur fyrir verður
farið í viðræður um landakaup,“
sagði Jónína Sanders, formaður
landakaupanefndar Reykjanesbæj-
ar, í samtali við DV.
Nefndin var sett á stofn vegna
fyrirhugaðrar byggingar magnesí-
umverksmiðju við Sandhöfn á
Reykjanesi. Svæðið sem um er
rætt tilheyrir dánarbúi Júnkara-
gerðis og Kalmannstjarnar. Að
sögn Jónínu mun nefndin leita eft-
ir upplýsingum hjá þeim aðilum á
íslandi sem gengið hafa í gegnum
hliðstæðan feril, landakaup vegna
stóriðju, áður en viðræður um
kaup á landinu hefiast. -ÆMK
sem er heldur lægra en í síðustu
viku þegar það fór hæst í rúmar 113
krónur. Gengi annarra gjaldmiðla
hefur breyst lítið milli vikna.
Heimsmarkaðsverð á áli fór und-
ir 1500 dollara tonnið núna eftir
helgina. Annars ríkir friður á mark-
aðnum eins og einn álspekingur
orðaði það. Ekki að vænta mikilla
breytinga á næstunni. -bjb
Prentun íslenskra jólabóka í ár:
Þriðjungur prent-
aður erlendis
- var fimmtungur fyrir þremur árum
Hvar eru jólabækurnar prentaðar?
0 '93 '94 '95 '96
PVl
-bjb
Mest keypt af Marelsbréfum