Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Side 4
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 JL^"V Formaður Mæðrastyrksnefndar á Akureyri um vaxandi fátækt: Fólk á ekki peninga ffyrir jóla- gjófum handa börnum sínum - grætur þegar það biður um aðstoð DV, Akureyri: „Það missa margir vald á tilfínn- ingmn sínum og gráta þegar þeir þurfa að biðja um aðstoð og þetta tekur svo á mig að ég græt oft einn- ig. Það er daglegur viðburður að fólk brotni niður þegar það leitar til okkar eftir hjálp svo það geti haldið jól fyrir sig og bömin sín,“ segir Jóna Berta Jónsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefhdar á Akureyri. Jóna Berta hefur starfað hjá Mæðrastyrksnefndinni í 14 ár og segir fátæktina á Akureyri núna meiri en nokkru sinni áður, ef marka megi fjölda þeirra sem leitar til nefndarinnar eftir aðstoð. „Þetta er ekki bara bundið við jólin. Fólk leitar til okkar eftir aðstoð allt árið en vissulega er meira um það fyrir jólin. Ég sé ekki þetta góðæri sem alltaf er verið aö tala um og þegar fólk á við veikindi að stríða, at- vinnuleysi kemur til sögunnar eða sambúðarslit, svo að eitthvað sé neöit, þá er ekki von á góðu. En fólk sem hefur atvinnu þarf líka einnig aö leita til okkar eftir aðstoð.“ Jóna Berta segir það hafa forgang að útvega fólki mat fyrir jólin. „Við fáum að vita um fjölskyldustærð viðkomandi og útbúum matarpakka fyrir hverja og eina fjölskyldu sam- kvæmt því. Þegar fólk segist ekki hafa peninga til að kaupa jólagjafir fyrir bömin sín reynum viö einnig að setja einhverja peninga með, e.t.v. 5-10 þúsund krónur eftir því hversu stóra fjölskyldu um er að ræða. Við erum einnig með mjög mikið af góöum fatnaði sem okkur hefur borist og stendur fólki til boða. Við gerum þetta ekki einar sem eram að starfa fyrir nefndina. Fjöldamörg fyrirtæki aðstoða okkur og ég hef m.a. leitaö til sjómann- anna okkar sem brugðust vel við. Það er sorglegt að ástandið skuli þurfa að vera svona en það er því miöur veruleikinn," segir Jóna Berta. -gk Jólahald hjá fjölskyldu með eina fyrirvinnu: Fjárhagurinn fer undir núllið - segir Hlynur Ingi Grétarsson, verkamaður Hlynur Ingi Grétarsson. Jólin stefna fjárhag fjölskyld- unnar í uppnám, en hann sér fram á að vinna jólin upp í sumar, með vinnu í sumarfríinu. DV-mynd GVA „Við höfum eng- in eftii á að halda jól. Ég er eina fyr- irvinna heimilis- ins og hef lítið meira en dagvinn- una að lifa á og vinnan sýnist ætla að dragast enn meira saman eftir áramót. Jólin selja fjárhaginn úr skorðum og við verðum að velta þeim áfram á und- an okkur með VISA-kortinu þangað til vinnan eykst aftur í sum- ar,“ segir Hlynur Ingi Grétarsson, verkamaöur hjá Reykjavíkurborg. „Við erum með ódýrari bíl en flest- ir, við eigum ódýr- ari íbúö en flestir og ég er í fúllri vinnu og á ekki verri launum en hver annar, alla vega betri en flest- ir verkamenn, en við náum engu saman.“ Hlynur Ingi segir að und- anfarin ár hafi hann unnið í sum- arfríum auk þess að vera allt sumarið að reyna að komast yfir alla þá aukavinnu sem fáanleg sé, hér og þar og alls staðar, til þess eins að rétta af hallann eftir veturinn á undan. „En þetta er allt til einskis. Það verður enginn pen- ingur eftir.“ Hlynur Ingi og kona hans hafa fest kaup á lítilli íbúð og tekst að standa í skilum með afborganir og halda nokkum veginn í horfmu. Þau eiga gamlan bíl og nauðsynleg- ustu heimilistæki, en ef eitthvað bil- ar, hvort sem þaö er bíllinn eða t.d. þvottavélin, þá er eftiahagurinn um leið í uppnámi og margra mánaða bamingur að rétta hann af eftir slík áfðll. Þau hjónin hafa rætt um að flytja úr landi, en af því hefur ekki orðið. „Maður rífur sig ekki svo auðveldlega upp með konu og lítið bam til að fara í ókunnugt land frá vinum og ættingjum. Það er hins vegar virkilega sárt að heyra hve miklu hærri laun fólk hefúr annars staðar í löndunum í kringum okkur fyrir sömu störf en miklu styttri vinnutíma. Ég hef sjálfur séð það hjá gömlum kunningjum og vinum, sem hafa flutt burt til að búa og starfa erlendis, að þeir hafa miklu hærri ráðstöfunartekjur en maöur sjálfur hefur, miklu meiri. Auk þess er allt kerfið í nágrannalöndunum miklu réttlátara gagnvart fjöl- skyldufólki, hvort sem þaö er skattakerfið eða opinber þjónusta," segir HQynur Ingi Grétarsson. -SÁ Jóna Berta Jónsdóttir og Helga Stefánsdóttir hjá Mæðrastyrksnefndinni á Akureyri í einu af herbergjunum þar sem mikið er til af barnafatnaöi til þeirra sem á slíku þurfa að halda. DV-mynd gk Skýrsla um Miðbæ Hafnarfjarðar: Staðfestir óráðsíuna - segir Lúðvík Geirsson bæjarfulltrúi „Þessi skýrsla endurskoðendanna staðfestir það sem menn hafa sagt um hvílik óráðsía hefur verið í kring um Miðbæ Hafnarfjarðar og hversu bæjarfélagið er flækt í hana,“ segir Lúðvík Geirsson, bæj- arfulltrúi í Hafnarfirði. Lúðvík segir það einnig athyglis- vert að búið er að binda í bygging- unni á fimmta hundrað milljónir króna en endurskoðendumir virðist ekki geta gert sér grein fyrir hversu miklu fé bærinn hefur tapað og ekki séu nærri öll kurl enn komin til grafar í þeim efnum. Skýrsla endurskoðenda um Mið- bæ Hafnarfjarðar verður rædd á fundi bæjarfulltrúa í Hafnarfirði og skýrsluhöfunda í dag. Lúðvík segir að þau einkennilegu álög virðist hvíla á bænum í sambandi við Mið- bæ að fara halloka í öllum viðskipt- um sem tengjast byggingunni. Þannig hafi alls konar frágangsmál og sölusamningar eftir að bærinn yfirtók bygginguna verið í óreiðu. -SÁ Hróp aö menntamálaráðherra: „Pereat“ ekki ókvæðisorð Freyr Rögnvaldsson, nemandi í Fjölbraut Norðlands vestra, hefur sent athugasemd varðandi umfjöll- un um ókvæðisorð sem hann var sagður hafi kallað að menntamála- ráðherra, Bimi Bjamasyni, á fundi í skólanum. „Þegar ljóst var að ekki fengjust nauðsynleg svör um fallskattinn svokaúaða, gekk ég út af fundinum og kallaði um leið: „Pereat, Bjöm Bjamason" sem vísar í þekkt minni í íslandssögunni þegar nemendur hrópuðu Sveinbjöm Egilsson, rekt- or Lærða skóla, af. Pereat útleggst nánast, setjum hann af. Eftir á að hyggja voru þetta óþarflega hvat- skeytleg ummæli og orðum mínum hefði ég mátt stilla betur í hóf. Sjálf- sagt er að biðjast afsökunar á þeim. Mig furðar hins vegar á því að slíkt sagnaminni sé kallað ókvæðisorð og gert að fjölmiðlamat, en verra ftnnst Lögreglan á Patreksfirði fór í nokkuð óvænta eftirlitsferð upp á Dynjandisheiði í fyrradag og ók þar fram á útlendinga á fólksbíl. Bíllinn sat fastur í snjóskafli og var að verða bensínlaus. Mennimir höfðu ekið úr Ólafsvík en höfðu ekki dval- ið lengi á heiðinni þegar lögreglan ók fram á þá í ferð sem var hugsuð mér ef reynt er að gera FNV tor- tryggilegan vegna þessa máls,“ seg- ir í bréfi Freys Rögnvaldssonar. -sv til þess að líta eftir ijúpnaskyttum. Ef ekki hefði komið tfl skyndiferðar löggu hefðu mennimir áreiðanlega þurft að dúsa lengi á heiðinni. Hún er alltaf kolófær í vikur og mánuði á þessum tíma. Gangan til byggða hefði verið afar löng og ekki síst fyr- ir þá sök að ómögulegt er að vita hvora leiöina þeir hefðu valið. -sv Útlendingar á Dynjandisheiði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.