Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Page 6
6 útlönd LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 UV stuttar fréttir Ðeilt um kjarnorku Brestir eru komnir i stjórn- arsamstarfiö í Svíþjóö vegna deilu um hvenær eigi að loka | kjamorkuverum landsins. Styrkur kannaður Paavo Lipponen, forsætisráð- herra Finnlands, segir að at- kvæða- greiðsla í þinginu í febrúar um nýtt frum- varp um auk- ið frjálsræði í afgreiðslu- tíma verslana verði jafnframt atkvæða- | greiðsla um traust á stjórn sinni. Á bólakafi í 10 vikur Frakkinn Guy Delage hefur í hyggju að dveljast 8 til 10 vikur neðansjávar um borð í pínukaf- báti í Indlandshafi snemma á næsta ári. Engin jólainnkaup Bandaríski geimfarinn John Blaha verður fjarri fjölskyld- ' unni á jólunum, um borð 1 rúss- nesku geimstöðinni MIR, en hann losnar að minnsta kosti við jólaösina i búðunum. Fangar í dópi Allt að helmingur allra fanga í ástralska fylkinu Queensland neyta ólöglegra fíkniefna sem gestir eða starfsmenn smygla inn í fangelsin. Jeltsín snýr aftur Boris Jeltsin Rússlandsfor- seti snýr aftur til vinnu á |j mánudag, sjö vikum eftir kransæðaaðgerð, en læknar vilja að hann fari sér hægt. ísraelar fagna ísraelsk stjórnvöld fögnuöu í gær þrýstingi stjómar Clintons á Palestínumenn um að gera samkomulag um flutning ísra- elskra hermanna frá Hebron. B Leið yfir Bonino Emma Bonino, sem fer með sjávarútvegsmál í fram- kvæmda- stjórn Evr- ópusam- bandsins, féll í yfirlið í gærmorgun eftir 21 klukkustund- ar fund þar sem gengið var frá fiskveiði- kvótum skipa sambandsins fyr- ir næsta ár. Úr stjórninni Miðdemókratar tilkynntu í gær að þeir myndu hverfa úr samsteypustjóm Pouls Nyrups | Rasmussens, forsætisráðherra I Danmerkur, við fyrstu hentug- ; leika en fimm þingmenn þeirra munu þó halda áfram að greiða atkvæði með stjóminni. Mið- demókrötum blöskraði þáttur flokka lengst til vinstri í fjár- lagabaráttunni. Reuter Erlend hlutabréfaviðskipti: Iðnaðarhlutabréf í háu verði Dow Jones vísitala verðbréfa í iðnfyrirtækjum náði sínu næst- hæsta stigi á árinu sl fimmtudag eft- ir mjög fjörug viðskipti á verðbréfa- mörkuðum í vikunni á undan. í vikunni varð samdráttur í við- skiptum á bandarískum verðbréfa- mörkuðum sem olli lítils háttar hækkun á gengi dollars. Miklir kuldar eru nú í miðríkjum Bandaríkjanna og þeir ásamt naum- um oliu- og bensínbirgðum hafði þau áhrif að olíu- og bensínverð steig mjög mikið. Þannig steig bens- íntunnan af 95 oktana bensíni um 10 dali í vikunni, eða úr 214 dölum í 224 dali sem var verðið í gær. -SÁ Perústjórn neitar aö ganga að kröfum gíslatökumanna: Heilsufar gíslanna fer hríðversnandi Stjórnvöld í Perú eru staðráðin í að ganga ekki að kröfum skæruliða Tupac Amaru hreyfingarinnar sem halda um 400 gíslum i japanska sendiherrabústaðnum í Lima. Á sama tíma versnar ástandið innan dyra með hverri klukkustundinni sem liður. Heilsu gíslanna hrakar og langar biðraðir eru eftir að komast á salemi. Til marks um þá örvæntingu sem hefur gripið um sig meðal gíslanna birtust skilti á ýmsum tungumálum í glugga á annarri hæð bústaðarins í gær þar sem beðið var um mat og að opnað væri á ný fyrir vatn, rafmagn og síma. Stjórn Albertos Fujimoris forseta hefur setið á neyðarfundum með yf- irmönnum hersins. Hún sagði í gær að hún væri bjartsýn á að friðsamleg lausn fyndist. Hún hefur þó sagt að ekki verði gengið að þeim kröfum skæruliða að láta félaga þeirra lausa úr fangelsi, þar á meðal foringja hreyfingarinnar. Um tuttugu skæruliðar gerðu áhlaup á sendiherrabústaðinn á þriðjudagskvöld til að mótmæla efnahagsstefnu stjórnarinnar og til að sýna að marxískir skæruliðar í Perú væru ekki dauðir úr öllum æðum. „Ástandið innan dyra er erfitt. Þar eru allt of margir og hitinn er óbæri- legur,“ sagði Sergio Natarajan, full- trúi Rauða krossins, eftir heimsókn til gíslanna. „Meðal þeirra sjúkdóma sem hrjá gíslana eru sykursýki, mag- asár, hjartakvillar og niðurgangur.“ Það varð svo aðeins til að auka spennuna í gær að maður sem sagð- ist tilheyra skæruliðahreyfmgunni hringdi í útvarpsstöð í Lima til að vara við öllum árásum á sendiherra- bústaðinn. Orðrómur er á kreiki um að her- inn verði látinn skerast í leikinn en á sama tíma hafa japönsk stjórnvöld gefið til kynna að þau sé ekki ánægð með harðlínuafstöðu Fujimoris. Menn úr leyniþjónustunni í Perú hafa hitt fangelsaða leiðtoga skæru- liðanna og reynt að fá þá til að for- dæma félaga sína opinberiega, en án árangurs til þessa. Reuter Ekkert leikfang er jafn eftirsótt í Lundúnum fyrir þessi jól og Busi Ijósár sem er fígúra úr hinni vinsælu mynd, Toy Story. Það er því eins gott að gæta birgðanna vel eins og gert er hér. Símamynd Reuter Breskir áhorfendur tárast yfir söng Madonnu í Evitu Breskir aðdáendur bandarisku poppsöngkonunnar Madonnu táruð- ust af hrifningu og klöppuðu henni óspart lof í lófa fyrir frammistöðu hennar í kvikmyndinni Evitu þegar hún var tekin til almennra sýninga í Lundúnum í gær. „Hún var alveg frábær," sagði Sally, ljósmyndari frá Lundúnum, sem var meðal bíógesta. „Mér fannst mjög gaman og er ég þó vandlátari en allt sem vandlátt er. Ég hef aldrei þolað Madonnu en öðru máli gegnir nú. Eg hef aldrei séð fólk klappa svona eftir kvik- mynd.“ Viðtökur almennings virðast svo sannarlega benda til þess að Ma- donnu hafi tekist að blása nýju lífi í kvikmyndaferil sinn eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir að undan- fornu. „Hún kemur til með að eiga sal- inn við óskarsverðlaunaafhending- una. Ég er enn með tár í augunum," sagði námskonan Jo Tanner. Madonna hefur þegar verið til- nefnd til Golden Globe kvikmynda- verðlaunanna sem þykja oft mæli- kvarði á hvernig fer við óskarsverð- launaafhendinguna. En þótt hinn almenni borgari haldi vart vatni af hrifningu á Madonnu eru gagnrýnendur blað- anna ekki alveg jafn kátir. Gagnrýn- andi Daily Mail segir góða spretti í myndinni en hún renni dálítið út í sandinn í lokin. Reuter Kauphaliir og vöruverð erlendisl ■DVj Bretlandi holl- ara að vera í Evrópusam- bandinu | John Major, fbrsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að landið Íværi mun betur sett innan Evr- ópusambandsins en utan en hann ítrekaði þá skoðun sína ! að sambandið I yrði að vera Ssveigjanlegra. Major sætir harðri gagn- II rýni áf hálfu ; ; ýmissa þingm; |' ins sem eru andvígir ESB og af- Iskiptasemi framkvæmdastjórnar- innar í Brussel. Major sagði hins vegar í viðtali við BBC-sjónvarpið að sívaxandi miðstýring frá Brussel væri Bret- um ekki að skapi. Stjörnufræðing- urinn Carl Sagan látinn Bandariski stjörnufræðingur- inn og Pulitzer-verðlaunahafinn , Carl Sagan, sem gerði raunvís- indin aðgengileg öllum abnenn- ingi með bókum sínum og sjón- varpsþáttum, sem m.a. hafa verið sýndir á Islandi, lést á sjúkrahúsi í Seattle í gær, 62 ára að aldri. Sagan dó úr lungnabólgu eftir tveggja ára baráttu við sjaldgæf- an blóðsjúkdóm sem leiddi til I krabbameins, að sögn talsmanns Ísjúkrahússins. Sagan var prófessor við hinn virta Cornellháskóla í nærri 30 ár og skrifaði meira en tuttugu | bækur og hundruð fræðigreina um margvísleg efni, allt frá lofts- 8 lagsbreytingum á Venusi til ■ kjarnorkustyrjalda. Sagan var | m.a. mikill áhugamaður um líf á öðrum hnöttum. Námsmenn stöðvuðu alla umferð í Belgrad Um fjörutíu þúsund náms- | menn í Belgrad lömuðu miðborg- ina í gær með því að loka brú og |j helstu breiðstrætunum skömmu Ífyrir mesta annatímann til að mótmæla kosningasvikum stjórn- i aiflokksins. Aðgerðir þessar bar upp á fe sama dag og nefnd á vegum Ör- yggis- og samvinnustofnunar Evrópu kom til Serbíu til að j kanna ásakanir stjórnarandstæð- :; inga en þeir hafa mótmælt lát- laust í rúman mánuð. Juppé ráðlagt að fita sig til að auka vinsældir : I 1 : Alain Juppé, forsætisráð- herra Frakklands, hefur verið ráðlagt að bæta á sig einum tíu kílóum ef það mætti verða til þess að auka vinsældir hans meðal al- mennings. Juppé er langur og mjór og óvinsælasti forsætisráð- herra Frakk- lands í háa herrans tíð. Þvi finnst Chirac forseta timabært að gera eitthvað í málinu. „Það eykur nú ekki á vinaleg- heitin að vera langur og mjór,“ segir Juppé í kvörtunartón. „For- setinn hefur oft sagt mér að ég ætti að bæta á mig tíu kílóum þar sem það mundi gera mig krúttlegri. Það er sennilega rétt hjá honum.“ Juppé skýrði frá þessu í út- varpsviðtali í tilefni nýrrar bók- ar sinnar sem varö til eftir að kona nokkur hrópaði að honum ókvæðisorð. I bókinni viður- kennir hann að gagnrýnin særi hann. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.