Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Síða 8
8 sælkerínn LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 Brahim Boutarhroucht frá Marokkó gefur uppskriftir að framandi ráttum: Lambatajine og gulrótaréttur „Marrokkóbúar nota mikið krydd í sína matar- gerð en maturinn er alls ekki bragðsterkur. Oftast er blandað saman súru og sætu. Hér á íslandi elda ég á marokkóskan hátt en ég hef reyndar ekki réttu áhöldin. Það stendur þó til bóta,” segir Brahim Bout- arhroucht frá Marrokkó sem býr hér á landi. Hann segir að aðallega sé notað svokallað tajine sem er leirfat með keilulaga loki. Réttirnir heita tajine eftir þessum potti og geta verið samsettir úr kjöti, kjúkling eða fiski, blandað ýmsum grænmetistegund- um. Annar algengur réttur í Norður-Afríku er kúskús. Brahim býður lesendum DV upp á lambatajine og hollan eftirrétt úr gulrót- um. „Ég kaus að gefa upp- skrift að tajine úr lamba- kjöti af því íslenska lamba- kjötið er mjög gott. Venju- lega er þessi réttur lagað- ur þegar mikið stendur til, svosem fæðing eða gifting. Fólk borðar hann alls ekki daglega, til þess er hann of íburðamikill. Rétturinn er eldaður þegar gesti ber að garði og ætlaður þeim til heiðurs. Hann er auðveld- ur í matreiðslu og nokkuð dæmigerður fyrir matar- soðinu, ásamt steytta gerð okkar,” segir Brahim. Lambatajine 1 kg lambakjöt í bitum, af bógi eða læri 2 laukar 3 hvítlauksrif 200 g sveskjur (lagðar í sjóðandi vatn) V2 bolli sesamfræ 1 bolli möndlur 1 tsk. kanill (sléttfull) 1 kanilstöng 1 saffranþráður 5 msk. sykur (sléttfullar) 2 msk. ólífuolía salt og vatn Skerið 1 lauk og hvítlaukinn smátt. Setjið kjötið í stóra pönnu með salti, olíu, smáttsaxaða lauknum, hvítlauk, saffran og kanil- stöng. Steik- ið kjöt- ið í þess- ari m blöndu í 5 mínútur, hellið vatni á kjötið þannig að fljóti yfir. Sjóðið við vægan hita og hrærið í öðru hverju. Þegar kjötið er fúll- soðið og laust í sér takið þá hlemminn af pottinum. Takið frá i annan pott tvær ausur af soðinu. Sneiðið niður hinn laukinn og setj- ið yfir kjötið. Stráið 2 msk. af sykri yfir og hrærið í. Eldið í 10 mínútur og hrær- ið í öðru hverju. Sjóðið möndlurnar í 2-3 mínútur, þurrkið og afhýðið. Brúnið þær á pönnu í smádreitli af olíu og látið renna af þeim á pappír. Brúnið sesEunfræ- in á þurri pönnu, varist að þau brenni. Sjóðið sveskj- umar í frátekna kjöt- kanilnum og 3 msk. af sykri. Raðið kjötinu á hringlaga fat, setjið sveskj- ur og möndlur út í og strá- ið sesamfræjum yfir. Gulrótadesert - fyrir 4 400 g gulrætur 3 appelsínur sykur og kanill eftir smekk Þvoið og skafið gulræt- urnar. Rífið þær mjög smátt á rifjárni eða í ma- tvinnsluvél. Kreistið safann úr appelsínunum og hellið yfir gulræturnar. Bragð- bætið með sykri og kanil. Kælið í minnst hálfa klukkustund. Berið fram með þeytt- um rjóma, ef vill. Saman við þetta mega vera nokkrar döðlur í bitum ef þær eru við höndina. Brahim gefur uppskrift að réttum frá Marokkó. DV-mynd Hilmar Þór % Uppskrift að pipar- kökuhúsi Mörgum finnst til- heyra að baka og skreyta prýða umhverfið með fal- legu piparkökuhúsi. piparkökuhús um jólin og leggja á sig heilmikið erfiði í því skyni. Hér kemur uppskrift að stóru og sterklegu piparköku- húsi. Hús úr þessu deigi er þó ekkert sérlega gott til átu. 3 dl síróp 800 g sykur 500 g smjör 1 msk. engifer 2 msk. negull 2 msk. kanill 1 egg 800 g hveiti 1 tsk. natron Deigið er bakað í 12-16 mín. Erfitt getur verið að hnoða það í höndunum og því best að setja það í hrærivél með hnoðara. -GHS matgæðingur vikunnar Ragnar Sigurðsson, matgæðingur í Þorlákshöfn: Ofnbökuð ýsa og rjómaskrúfur Ragnar Sigurðsson, iþróttakenn ari í Þorlákshöfn, er snjall kokkur; sem kann ýmsar skemmtilegar uppskriftir. Ragnar gefur hér uppskrift að ofnbakaðri ýsu og pastarétti sem hefur verið ákaf- lega vinsæll. Að sögn Ragnars hefur þessi réttur lifað af allar breytingar í matargerð heimil- isins gegnum tíðina. pönnu. Rjómanum hellt yfir, humar- og rjómaosti bætt út í, látið malla í nokkrar mínút- ur eða þar til osturinn er bráðinn og rjóminn þykknar. Fiskurinn er settur í eldfast fat, sós- unni hellt yfir og bakað í ofni í 15 mín við 200 gráður. Bor- Rjómaskrúfur 500 g pastaskrúfur Ofnbökuð ýsa 800 g ýsuflök 1 dl teriyaki-sósa 1 rauð paprika 8 sveppir 1 blaðlaukur 1 dós humarostur 200 g rjómaostur y41 rjómi olía til steikingar picanta sítrónupipar Fiskurinn er roð- flettur, beinhreinsað- ur og skorinn í bita Bitamir eru settir í fat. Kryddaö- ir með pic- anta og sítrónupipar og teriyaki-só- sunni hellt yfir. Geymt í kæli í 1 klst. Niður- sneiddur blaðlaukur, paprika í strimlum og sveppir „svit- að“ í olíu á íð fram með hrís- grjónum, grænu salati og hvítlauks- brauði. 400 g sveppir 1 bréf skinka 1 peli rjómi steinseíja sykur + sérrí smjör 2 msk. ólífuolía parmesanostur Pasta sett í sjóðandi vatn og saltað. Vatnið er sigtað frá eftir suðu. Sveppimir eru skornir og látnir krauma í smjöri, sykri stráð út á og síðan smáskvetta af sérríi (V2 dl). Soðið past- að er sett í pott ásamt smjörklípu, olíu, salti og pipar og hrært saman. Potturinn er settur á helluna, rjómanum hellt yfir og soðið við væg- an hita eða þar til rjóminn þykknar. Þá er sveppunum, niðurskorinni skinku og stein- selju bætt út í. Rifn- um parmesanosti er stráð yfir. Ragnar skorar á heiðurshjónin Hall- dór Sigurðsson og Ester Hjartardóttur en þau eru mjög lið- Ragnar Sigurðsson matgæðingur gefur uppskrift að pastarétti sem hefur lifað af tæk saman i eld- allar aðrar uppskriftir og ýsurétti. DV-mynd Sigrún Lovísa húsinu. -GHS ÍUppskriftaleikur: Ostakaka og smákökur Uppskriftaleik Jóns Arilíussonar, konditormeistara í Perlunni, hjá Valdísi á Bylgjunni er nú lokið og j ljóst hverjir em vinningshafar. Sig- urvegarar eru að þessu sinni: Ragna Karlsdóttir, Vitabraut 6, Hólmavík, og Kristín Andrésdóttir, Hlégerði 12, Kópavogi. Áður voru j vinningshafar Beta Ásmundsdóttir, j Lautasmára 51, Kópavogi, Silja Þor- steinsdóttir, Grænuvöllum 6, Sel- fossi, og Ágústa Júníusdóttir, Ár- skógum 17, Egilsstöðum. Fjöldinn allur af góðum uppskrift- um barst í uppskriftaleikinn og seg- ir Jón að erfitt hafi verið að velja úr fjöldanum því að uppskriftimar hafi verið mjög jafn góðar. Hér koma uppskriftir nýjustu vinningshaf- anna, þeirra Rögnu og Kristínar. Ragna gefur uppskrift að ostaköku og Kristín að spennandi smákökum. Ostakaka með Mars súkkulaði Haust-hafrakex eða Hobnobs- hafrakex, ca 20 kökur, muldar í skál. Bleytt í með bræddu smjörlíki og/eða sérríi eða kahlua. Kex- mylsnan er sett í eldfast mót og þjappað vel á botninn. Uppskriftaleiknum á Bylgjunni er nú lokið og eru nöfn vinningshafa. Myndin hér á ekki við neina upp- skriftanna. Ostahræran 150 g rjómaostur með ananas- krókant 100 g flórsykur 1 peli þeyttur rjómi Ostur og flórsykur em þeytt sam- an þar til hræran verður mjúk. Þeytta rjómanum er blandað saman við. 1H-2 Mars-súkkulaðistykki eru brytjuð smátt og þeim hrært saman p jytHÞ - ; ■ I Flestir hafa sjálfsagt bakað Ijúffeng- ar og spennandi smákökur fyrir jól- in. Þessi mynd á ekki við neina upp- skriftanna á þessari síðu. við ostahræruna. Ostahræran er sett ofan á kex- botninn. Kakan er kæld í nokkrar klst. eða fryst. Áður en hún er bor- in fram er J4-1 Mars-súkkulaði og V2 dl rjómi brætt við vægan hita í potti. Kakan er skreytt með brædda súkkulaðinu. Mjög gott og fallegt er einnig að skreyta kökuna með jarð- arbeijum og kíví. Maltesers-smákökur 2 eggjahvítur 1 bolli sykur 1 Bounty, mulið y2 tsk-. vanilludropar 3 pk. Maltesers-kúlur, léttmuldar I 1 Snickers, saxað smátt Eggjahvítur eru þeyttar. Sykur- inn er settur út í smátt og smátt og vanilludropum bætt við. Öllu hinu er blandað varlega út í. Deigið má ekki bíða. Deigið er sett á bökunarpappír á plötu með teskeið. Bakað gullin- brúnt við góðan hita í nokkrar mín- útur. Bíðið aðeins með að taka smákökurnar af plötunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.