Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Síða 11
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 iviðtal gera upp við sig. Það eru reyndar til unglingar sem taka afstöðu tiltölu- lega ungir en svo eru aðrir sem taka afstöðu eldri. Þetta er hverjum og einum í sjálfsvald sett því þetta er einstaklingsákvörðun og það er ekki þrýst á neinn.“ Skírnin yfirlýsincj um afstöðu Eru börn ykkar fermd eins og gerist hjá þjóðkirkjunni? „Nei, og það er vegna þess að skímin er yflrlýsing um þá afstöðu sem einstaklingurinn hefur tekið og þarf ekki að staðfesta með fermingu síðar meir. Menn mega ekki rugla saman nafngjöf og skím. Börnin okkar fá nöfn, jafnvel strax við fæð- ingu, og því fylgir engin athöfh. Skírnin hjá okkur fer svo fram þeg- ar einstaklingurinn hefur nægjan- lega þekkingu sjálfur, vit og löngun, til þess að gera vígslu sína til Guðs opinbera. Það segir sig því sjálft að fólk er á öllum aldri þegar það skirist.“ Ámi á sjálfur böm og hann segir að allt umstangið sem fylgir jólum fari að sjálfsögðu ekki fram hjá börnum. „Þau sjá ljósaflóðið, skreytingamar og alla umgjörðina sem höfðar ekki síst til bama. Þá kemur það í hlut okkar foreldranna að upplýsa bömin okkar, kenna þeim og vera með þeim og reyna að vera mótvægi við allt það sem er að gerast í kringum þau. Böm eru alltaf börn og það kann að vera að þetta taki á þau. En þeg- ar hömin era upplýst um sannleik- ann eins og hann er þá skilja þau oft meira en við gerrnn okkur grein fyrir. Við lítum líka svo á að það sé engin ástæða til að gefa eftir varð- andi trú okkar vegna þess hvað all- ir aðrir gera. Þótt meginþorri manna haldi jól breytir það ekki þeirri staðreynd að jólin eiga sér heiðinn uppmna." Djúpstæður ágreiningur Ekki er jólahald það eina sem ykk- ur greinir á um við þjóðkirkjuna? „Nei, sá ágreiningur er djúpstæð- m- og það að við höldum ekki jól er ekkert aðalatriði fyrir okkur þótt það sé áberandi. Það er margt sem greinir okkur frá þjóðkirkjunni og kemst ekki allt fyrir i einu blaðavið- tali. Eitt er t.d. þrenningarkenning- in. Við trúum því að Guð sé Guð, Jesús sé sonur Guðs og heilagur andi starfskraftur Guðs. Kirkjan kennir að Guð, Jesús kristur og heil- agur andi séu þrjár persónur í ein- um guði, allar jafnar að mætti og valdi.“ „Við trúum því að Guð muni imj- leiða ríki sem muni taka í taumana hér á jörðinni, útrýma öllu óréttlæti og endurreisa mannkynið til þess fullkomleika sem það glataði forð- um. Þetta mun gerast í mjög náinni framtíð en um dag og stund vitum við ekki. Þetta mun gerast þannig að Guð mun sjálfur fyrir milligöngu sonar síns, Krists, sem er konungur þess ríkis sem við biðjum um í Fað- irvorinu, taka í taumana hér á jörðu og útrýma óréttlætinu. Þetta mun með öðrum orðum ekki gerast með mannlegri íhlutun heldur mun Guð nota andlegt svið til að koma þessu til leiðar." Þetta þýðir væntanlega að það mun eiga sér stað allsherjar hugar- farsbreyting hjá fólki? „Nei, ég er ekki að segja það. Sum- ir munu taka við sannleika Biblí- unnar og þrá það að búa við þau skilyrði sem Guð setur hér á jörð- inni og það sem býr í hjörtum þess- ara manna er opið fyrir Guði. Svo eru aðrir sem eru guðlausir og hafa þannig hugsunarhátt að hann er til þess eins að brjóta niður, skemma og spilla og eyðileggja það jákvæða og góða. Þessir einstaklingar munu ekki breyta sér. Til þess að réttlætið muni aftur blómstra verða þessir einstaklingar að hverfa af jörðinni." Allir fá tækifæri Hverfa? Hvemig mun það gerast? „Eins og segir í dæmisögunni um sauðina og hafrana þá skipaði Hann sauðina sér til annarrar handar til eilífs lífs en höfrunum til hinnar til eilífrar afmáunar. Þetta er mjög hart en Guð sjálfur mun taka í taumana fyrir milligöngu Jesú Krists. En þetta er ekki óréttlát ráð- stöfun að okkar áliti því allir menn fá tækifæri til að taka afstöðu þvi Guð notar Votta Jehóva um alla jörðina til að prédika fagnaðarer- indið um guðsríkið. Núna er þetta starf unnið af 5,4 milljónum boð- enda í yfir 200 löndum um heim all- an. Árangurinn er sá að á síðasta ári létu 360 þúsund manns skírast." Sjáum við ekki einmitt þama kominn hinn ljóslifandi vott sem er í hugum margra íslendinga ágengur einstaklingur sem bankar upp á hjá fólki, er uppáþrengjandi og ágengur og setur jafnvel fót milli stafs og hurðar vilji viðkomandi ekki tala við hann?“ Neikvæðar hugmyndir „Ég hafði sjálfur þessa afstöðu til vottanna og neikvæðar hugmyndir almennt um trúarhópa. En þegar ég kynntist þessu betur sá ég að þetta vora ýkjusögur scm gengu á milli manna. Hins vegar held ég að það valdi oft misskilningi að fólk er ekki nógu hreinskilið þegar vottur- inn kemur í heimsókn. Viðkomandi býður vottinum e.t.v. inn til sín og þegar votturinn er að meta það hvort hann eigi að koma aftur fær hann ekki skýr svör. Viðkomandi á erfitt með að segja nei og slíkt getur valdið misskilningi." Ég hef heyrt þess dæmi að Vottar Jehóva séu harðari í afstöðu sinni t.d. hvað varðar það að fyrirgefa, þeir séu jafhvel tilbúnir að útskúfa sínum nánustu fyrir hluti sem fyrir þjóðkirkjumenn séu langt frá því að gefa tilefni til slíks. Ég get nefnt sem dæmi að dóttir sem yrði ófrisk án þess að vera í hjónabandi þætti í augum votts hafa gefið tilefni til út- skúfunar úr fjölskyldu sinni. Fyrirgefningin rík „Fyrirgefningin er mjög rík hjá okkur. Við erum öll ófullkomin og e.t.v. gerum við okkur betur grein fyrir þessum ófullkomleika vegna þess að við eram alltaf að stilla okk- ur upp til fullkomnunar í augum Guðs. Verði mönnum á mistök, hvort sem þau eru lítil eða stór, þá er allt gert til að reyna að hjálpa viðkomandi. Ef viðkomandi sér eft- ir, iðrast, þá er fullkomin fyrirgefn- ing til staðar. Ef viðkomandi iðrast hins vegar ekki þá komum við að hinu sem gerir okkur öðravísi en aðra vegna þess að við tökum á málum og það getur verið sárt. Þá kann að vera nauðsynlegt vegna hreinleika safn- aðarins að grípa til þess að gera hann rækan úr söfnuðinum. Ef hann svo síðar meir er tilbúinn að taka við hjálp standa honum allar dyr opnar. Það eru þessi mál sem þarf stundum að taka á í söfnuðin- um og það er gert vegna þess að Biblían gerir kröfu til okkar hvað varðar kristilega breytni. Til að vera Vottur Jehóva verðum við að uppfylla þessar kröfur, við getum ekki leyft okkur að hafa þær að engu. Þetta er miklu virkara trú- arsamfélag en stóru kirkjutrúar- samfélögin og einstaklingurinn er miklu virkari í starfi safnaðarins." Dansa ekki með Svo við endum í svipuðum dúr og við byrjuðum: Þegar jólin ganga í garð hjá meginþorra íslensku þjóðar- innar nk. þriðjudagskvöld er þá bara „venjulegt“ kvöld heima hjá þér? „Nei, nei. Við vottar fáum þriggja daga frí eins og aðrir. Fridaga notum við eins og aðrir til að slappa af og það getur vel verið að menn hafi eitt- hvað annað í matinn en venjulega, geri eitthvað skemmtilegt með fjöl- skyldum sínum, en um eiginlegt jóla- hald er ekki að ræða. Við gefum ekki gjafir og dönsum ekki í kringum jólatré." Kemur ekki upp togstreita eða ágreiningur innan þeirra fjölskyldna þar sem sumir eru vottar en aðrir ekki? „Það er sennilega einstaklings- bundið en við leggjum mikið upp úr því að þar sem um trúarlega skiptar fjölskyldur er að ræða taki menn til- lit til skoðana annarra án þess að gerast þátttakendur í jólahaldi þeirra." -gk Tígri í umferöinni er komin út! 50 vinningssögur úr ritgeröa- samkeppninni Tígri í umferðinni skrifaöar af krökkum á grunn- skólaaldri um land allt. Krakkar! Læriö umferöarreglurnar meö Tígra. Verö aöeins kr. 290 Bókin er fáanleg í eftirtöldum bókabúðum: Bókabúðin Möppudýrið-Sunnuhlið 12-600 Akureyri-Bókaverslunin Edda-Hafnarstræti 100-600 Akureyri-Bókabúðin Heiðarvegi 9-900 Vestmannaeyjar-Bókabúöin Hlöðum v/Lagarfljótsbrú-701 Egilsstaði-Úlfarsfell-Hagamel 67-107 Reykjavík-Bókabúöin Veda- Hamraborg 5-200 Kópavogur-Bókaverslunin Grima-Garðatorgi 3-210 Garðabæ-Bókabúö Böðvars-Reykjavikurvegi 64-220 Hafnarfirði- Astund Austurveri-Háaleitisbraut 68-108 Reykjavík-Bókabúð Arbæjar-Hraunbæ 102-110 Reykjavik-Bókabúö Máls og menningar- Laugavegi 18-101 Reykjavík-Bókabúð Máls og menningar-Síðurmúla 7-9-108 Reykjavík-Bókabúðin Grafarvogi-Hverafold 1-3 -112 Reykjavik-Bókabúðin Kilja-Háaleitisbraut 58-60-108 Reykjavik-Hugborg-Efstalandi 26-108 Reykjavík-Söluturninn Iðufelli-lðufelii 14-111 Reykjavík-Söluturninn Hölagarði-Hólagarði 2- 4-111 Reykjavik-Söluturninn Álfheimum-Álfheimum 2-104 Reykjavík- Söluskálinn Grímsbæ-Efstalandi 26-108 Reykjavik-Nóatún Rofabæ-Rofabæ 39-110 Reykjavik Otrúlegt en satt ! Ásvaldur Sigurðsson, Neskaupstað: „Fyrst notaði ég Gymbody-tœkið daglega í tvœr vikur og síðan einn og einn stakan dageftir það. Ég hefekki verið einsgjóður í baki og nu, í yfir 20 ár og er ekki einusinni stífur í bakinu á morgnana." Ema Jóhannsdóttir Reykjavík: „Gymbody-tœkið mitt heldur niði vöðvabólgu, sem ég hefannars átt vanda til að fá Svo finn ég að ég hefstyrkst heil- mikið og verkir í baki heyra sög untii til. Mér líður mun betur Geir Harðarson, Reykjavík: „Ég hefverið að ná upp fullum styrk eftir slys, sem ég lenti í og Gymbody-tcekið hefur hjálpað mér ótrúlega mikið. Árangur minn hefur farið fram úr mínum björtustu vonum." OlWiíT Vœgar bylg'ur eru sendar í vöövann Sbmféifðiiw Þegar bylgjurnar aukast spennist vöðvinn Þegar bylgjurnar hœtta, slaknar á vöðvanum Slendertone er vöðvaþjálfunartœki æm styrkir þig og grennir, án þess að þú þurfir að œfa, Þú getur horft á sjónvarp, gengið úti með hundinn eða sinnt störfum þínum. Á meðan senda tœkin þœgilegar rafbylgjur misdjúpt í vöðvana og láta þá taka á, hvort sem er iítið eða mikið, allt eftir þínum óskum. Tœkin ganga fyrir rafhlöðum og öryggið er fullkomið. Silicone-blöðkur sem endast og endast. Þú kemst í toppform með Siendertone! Aðal sóibaðsstofan Þverholti 14 • Sími 561 8788 • Fax 561 8780 240 œfingar á40rnrn. Gymbody 8 er tæki sem sér um styrkingu og fitubrennslu. 8 blöbkur. 40 mínútur gefa 240 æfingar. Einnig mjög gott viö vöðvabólgu, libverkjum og fleira. Myndband fylgir og taska.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.