Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Side 26
 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir Hlutur lesandans Rósur og rósir - er gata afþreyingarbókmennta þyrnuin stráð? A tímum fallinna Berlínarmúra og sam-fall- innar Evrópu eru hugmyndir um markalínur og af- markanir orðnar dálítið ruglingslegar. Ein þeirra landamæra sem hafa raskast eru milli afþreyingar og fagurbókmennta, þar sem hvort ríkið um sig gerir hnitmiðaðar inn- rásir í hitt. Konur riöu á vaöiö meö ádeilu á heimiiisofbeldi Konungurinn í ríki afþreyingarbókmennt- anna er án efa Stephen King sem með Úr álög- um sendir frá sér sína bestu skáldsögu lengi, snarpan og sterkan hrylling, blandaðan sterk- um áróðri. Það er orðið að tísku meðal hryll- ingshöfunda að deila á raunverulegt ofbeldi og riðu konurnar á vaðið með ádeilu á heim- ilisofbeldi í kjölfar aukinnar umræðu. Þegar á svo viðkvæmum málefnum er tekið koma strax upp spurningar um siðleysi og ábyrgð- arleysi gagnvart þeim kalda raunveruleika sem nýttur er sem söluvara. Vissulega er stundum illa farið með eld- fimt efni en King kemst vel frá sínu. Söguhetjan, Rósa, „vaknar upp“ einn morgun eftir 14 ára barsmíðar manns síns og flýr heimili sitt alls- laus og hálfsturluð. Eigin- maðurinn eltir hana uppi og inn í heim sturlunar hennar þaðan sem enginn sleppur ósnortinn. Þýðingin er ein sú besta sem ég hef séð á sögum Kings eri hefði þó mátt við einni lokaslípun. Á hinn bóginn er þýðingin á nýjustu bók Jack Higgins, Engli dauðans, afar slæm. Þegar slíkt bætist við óvenjulé- lega bók eftir þennan höfund verður lesturinn ansi erfiður. Higgins nýtir sér einnig eldfimt efni sem eru landamæra- deilurnar á Norður-írlandi. Meðan bresk yfirvöld reyna að koma á friði við IRA koma upp ný hryðjuverkasamtök sem virðast þverpólitísk auk þess að vera ótrúlega vel upplýst. Líkt og King reyn- ir Higgins við femínisma og hefur konur í stórum hlutverkum, en ólíkt King lend- ir hann í voðalegum ógöngum með sínar kvenpersónur og endar með mun meiri kvenfyrirlitningu en fannst í fyrri bók- um hans sem skiptu sér lítt af konum. Kvenrithöfundurinn Mary Higgins Clark gefur King ekki mikið eftir í vinsældum. Rós- ir dauðans er spennandi og áhugaverður lög- fræðitryllir um lýtalækningar og lýti á réttar- kerfinu. Saksóknarinn Kerry McGrath rekst óvart á mál þar sem saklaus maður virðist hafa verið ranglega dæmdur og fljótlega eru hún og dóttir hennar í hættu því málið kem- ur við mörg kaun. Rósir dauðans er gott dæmi um hvað spennusögur með kvenhetjum eru orðnar flottar en enn eru lýti á þýðing- unni sem gera söguna óþarf- lega stirða í lestri. íslenska afþreyingarskáld- konan Birgitta H. Halldórs- dóttir gefur Clark ekki mikið eftir í að skrifa spennandi sögu með konum í aðalhlut- verkum. í Skagaflrðinum eru friðarspillar á kreiki og það kemur í ljós að gömul sár gróa seint. Með því að nota séríslenskt (ó)veðurfar og aðstæður á bóndabæjum - svo sem haug- húsið! - skapar Birgitta í skáldsögunni Ofsótt magnaða spennu og jafnvel hrylling auk þess að vera svo heppin að vera óþýdd og þar með gersamlega laus við stirfni í texta. Meðan afþreyingarbókmenntir eru stór hluti af jólabókaflóðinu og sifja hátt á met- sölulista er umræðan um þær engin og greini- legt að ekki þykir mikið til þeirra koma. Þetta kemur berlega fram í þýðingunum þar sem kastað er til höndum og lítil virðing borin fyr- ir þeim sem bækurnar lesa. Clark og King eru meðal langvinsælustu höfunda bókasafnanna og eru iðulega upppöntuð langt fram í tímann. í Evrópu og Bandaríkjunum hefur vegur af- þreyingarmenningar aukist og umfjöllunin um hana batnað og þetta skilar sér síðan inn í bókmenntimar sjálfar, eykur á metnað höf- undanna og veitir þeim aga. Sams konar um- ræðu vantar sárlega hér og kemur jafnt niður á lesendum sem höfundum. Stephen King: Úr álögum. Björn Jónsson þýddi. Fróði 1996. Jack Higgins: Engill dauðans. Gissur Ó. Erlingsson þýddi. Hörpuútgáfan 1996. Mary Higgins Clark: Rósir dauðans. Jón Daníelsson þýddi. Skjaidborg 1996. Birgitta H. Halldórsdóttir: Ofsótt. Skjaldborg 1996. Hátíðaréttir Hátíðaréttir er þriðja bókin í flokknum íslensk- ar gæðauppskriftir en áður hafa komið út Grill- réttir og Pastaréttir. Rit- stjórar eru Björg Sig- urðardóttir og Hörður Héðinsson sem sjá um upp- skriftir og matreiðslu hjá matreiðslu- klúbbnum Nýjum eftirlætisréttum. í bókinni er Qöldi uppskrifta að gimileg- um réttum á hátíðaborð. Ljósmyndir em af hverjum rétti og allt hráefiii miðað við ís- lenskar aðstæður. Leiðbeiningar em ein- faldar og þægilegar. Vaka-Helgafell gefur út. Endurholdgun kanínu Umbúðalaust góð bók - Hver er skýringin á því? „Er ekki skýringin á framþróuninni sú að allt fari batnandi?" - Heldurðu að fólk breytist við að lesa svona bækur? „Menn breytast auðvitað ákaflega seint, en þetta er allt í gerjun. Og ég held að fólk fari batnandi þó að erfitt sé að merkja breytingu á áratugum eða fáein- um öldum. Ef við lítum yfir víðara svið virðist þróunin óneitanlega ganga fram og upp. Mér finnst þessi bók góð, umbúðalaust góð að því leyti að höfundurinn er lærður læknir og vel lesinn maður. Hann hefur skilið skammtakenninguna sem er helsta kenning 20. aldarinnar, og þá fyrst og fremst kenningar Niels Bohr sem gerði því skóna að við lifðum ekki alfarið í heimi efnis, tíma og rúms, þótt þetta séu gallharðar staðreyndir, heldur sé grund- völlurinn andlegs eðlis. Uppgötvanir Aspect-hópsins franska sönnuðu eiginlega að Einstein hefði haft rangt fyrir sér en Niels Bohr rétt fyrir sér, og það hefur breytt gífurlega miklu hjá vísindamönn- um sem skilja hvað þetta þýðir. Við höf- um misst grundvöllinn sem menn litu á sem sjálfsagðan hlut á 19. öld og lengst af á þeirri 20. Chopra byggir á þessu öllu og tengir það ævafornum kenningum wu wei, sem ganga út á að gera allt án þess að reyna mikið á sig, sem hlýtur alltaf að vera vinsælt! Hann beitir gömlum taóisma og vissum fornum hugmyndum eins og karma- lögmálinu, og byggir úr þessu talsvert ferska nýja heimspeki. Það er ekki hægt að segja að vanmetinn í bókinni Raggi litli og Pála kanína eftir Harald S. Magnússon segir frá því þegar Raggi eignast kan- inu sem honum þykir af- skaplega vænt um. Hann verður því harmi sleginn þegar hún deyr af slysför- um. Það verður Pála kan- ina líka og þótt henni sé vel tekið hinum megin saknar hún Ragga svo mikið að hún freistast þess að komast aftur til jarðarinnar. Brian Pilkington teiknaði myndir viö söguna en Iðunn gefur út. Svikinn veruleiki Dananum Michael Larsen hef- ur verið skipað á bekk með Peter Hoeg fyrir spennusögur sínar. Svik- inn veruleiki segir frá blaðamanninum Martin Molberg sem reynir að finna morðingja unnustu sinnar. í því máli virðist engu treystandi, ekki einu sinni ljósmyndum sem má breyta að vild. Sverrir Hólmarsson þýddi bókina en Vaka-Helgafell gaf hana út. Jólatónleikar Bubba Bubbi Morthens heldur sína árlegu jólatónleika á Hótel Borg á Þorláksmessu kl. 23. Bubbi er með tvær hljómplötur í ár; Allar áttir varð gullplata 6. desember en Hvita hliðin á svörtu er hljóðbók þar sem Bubbi les eigin ljóð við undirleik valinna tónlistarmanna. Á tónleikunum blandar Bubbi á staðnum efhi af nýju plötunum og eldra efni. Með honum spilar Jakob Smári Magnússon á bassa. Forsala miða er á Hót- el Borg og í Skífubúðunum. Þegar mest á reynir Nýjasta bók Danielle Steel á íslensku heitir Þegar mest á reynir og segir frá virtum og auðugum hjón- um á fímmtugsaldri í New York. Hún er lögmaður, hann er fjármálamaöur og saman eiga þau litla dóttur. En dag einn ber ógæfan að lyrum og þegar framtíðin angfr á bláþræði verða þau að endurmeta tilfinningar sín- ar hvort til annars. Skúli Jensson þýddi en Setberg gefúr út. Ósýnilegi vinurinn Ósýnilegi vinurinn er barnabók eftir Kari Vinje og Vivian Zahl Olsen. Þar segir frá Palla Pimpen sem kynnist Jón- atan Finkeltopp í næsta garði og gegnum hann „ósýnilegum vini“ sem Jónatan á, einkennileg- um maimi í kjól með skegg sem getur geng- ið á vatni. Palli verður mjög forvitinn og þá kallar Jónatan mömmu sína sem leiðir Palla f allan sann- leika um Jesú. Eftir þá frásögn á Palli ósýnilegan vin sem vemdar hann frá skrímslunum 1 nóttinni. Þórdís Ágústsdóttir og Gyða Karlsdóttir þýddu en Salt gaf út. stórlega Gunnar Dal skáld, heimspekingur og þýðandi, hefur verið þaulsætinn á met- sölulistum undanfarin ár, og enn hefur hann vermt sæti ofarlega undanfarið með þýðingu sína á bókinni Lögmálin sjö um velgengni eftir Deepak Chopra, sem er Bandaríkjamaður af indverskum ættum. „Já, það er einkennilegt að bókin skuli seljast svona vel, því þetta er eiginlega heimspekirit,“ segir Gunnar. „En það virðist vera að menn séu orðnir svona heimspekilega sinnaðir hin síðustu ár.“ Gunnar Dal: þróunin gengur fram og upp. hann velji úr fortíð heldur umskrifar hann hana við hæfi 21. aldar. Hann er með foma speki og framúrstefnumennina í vísindum í einum og sama textanum." Samverkan allra hluta til góðs „Titillinn Lögmálin sjö um velgengni geymir gamla kristna hugmynd sem var líka til löngu á undan kristni,“ heldur Gunnar áfram, „um samverkan allra hluta til góðs; hin gullnu snið. Þú gast ekki verið að einhverju leyti í samræmi, annað hvort varstu út úr samræminu eða i því. Þetta er ævafom hugsun um heims- samræmið; ef menn gera vissa hluti rétt þá hefur það velgengni í för með sér, og ef þeir gera þá á rangan hátt þá verður upp- skeran önnur. Chopra er að þessu leyti ekki að segja neina nýja hluti, og auðvit- að flokkast þetta undir trú eða skoðun hjá honum, er á þessu stóra gráa svæði hug- myndanna." - Hverju viltu skila til þeirra tjölmörgu sem fá bókina í jólapakka? „Ég bið bara að heilsa þeim! Þó vil ég kannski fá að skila til þeirra að þeirra hlutur hafi verið stórlega vanmetinn. Því bók er ekki til þó að hún sé samin og þýdd, hún verður til þegar velviljaður og greindur maður les hana, og þegar ég segi maður þá á ég að sjálfsögðu við konur ekki síður, og eiginlega öllu heldur, því ég held að þetta sé meira bók íyrir konur, þær em dýpri eins og þú veist. Það ætti að borga mönnum kaup fyrir að lesa bækur, því lesendur skapa menn- inguna. Ef til vill er allt of mikið til af rit- höfundum en það er allt of lítið til af góð- um lesendum! Jafhvel gáfuðustu menn þjóðarinnar eru ólæsir, ef inaður notar gamla formúlu sem Mark Twain samdi á öldinni sem leið, rnn að maður sem les ekki bók sé á sama stigi og maður sem kann ekki að lesa. Og gáfuðustu íslend- ingar í dag em það störfum hlaðnir að þeir hafa ekki smugu til að lesa bækur að neinu ráði. Og þetta er dýrmætasti les- endahópurinn.“ - En ef þeir hefðu tíma til að lesa eina bók um jólin, ætti það þá að vera þín bók? „Ef ég játaði því væri ég að brjóta eitt grundvallarboðorð hennar. Chopra segir einmitt að maður eigi ekki að eyða tíma sín- um í að verja eigin skoðanir eða að fordæma aðra menn eftir eigin reglum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.