Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 ennmg 27 Kristinn Reyr: þarf svolítiö átak til aö gera svona nokkuö. Vonar að fólk þrefi sem mest um valið Hálfkæringur og hlýja „Ég er fædd á sjómannadaginn árið 1958 sem þótti ansi góð byrjun í minni fjölskyldu," segir Linda Vil- hjálmsdóttir í upphafi inngangs að nýjustu Ijóðabók sinni, Völsum úr síðustu siglingu. Að dóttirin skyldi fæðast á þessum merka degi þótti að sjálfsögðu gott innlegg í ætt sem hafði meira eða minna alið mann- inn á sjó, en tengslin við hafið og ástina á því rekur Linda lítillega í spriklandi fjörugum aðfaraorðum. Hún segir af æsku sinni á Seltjam- amesi og sjómannavölsunum sem ómuðu hátt og snjallt um húsið úr Óskalögum sjúklinga. Þessir valsar sem í „unglinga“uppreisninni blossuðu upp og urðu ungri skáld- konu tilefni ádeiluskáldskapar. „En það er ekki hægt að vera á móti sjó- mannavölsunum til lengdar," segir Bókmenntir Sigríður Albertsdóttír Linda. „Þeir em svo innilega væmn- ir að maöur fellur fyrir þeim aftur og aftur“ (15). Vel má segja að ljóð- in sem hér birtast séu óður til væmninnar en vel að merkja hefur orðið væmni jákvæða tilvísun í þessu sambandi! Ljóðin em að vísu ekkert „hann elskaði þilfór hann Þórður“-dæmi en það gátu þeir sem lesið hafa fyrri bæk- ur Lindu auðvitað sagt sér fyrir. Linda segir ljóðin hafa orð- ið til í kjölfar siglingar sem hún tók sér á hendur með saltfiskflutningaskipi frá Njarðvík til Frakklands og til að byrja með vissi hún ekkert hvað hún ætti með þau að gera: „eitthvað eimdi eftir af gömlu valsafóbíunni því mér fannst þau ansi léttvæg og varla hókarhæf ‘ (17). En sem betur fer sluppu Ijóðin á blað og koma fyrir sjónir lesand- ans í bók sem að útliti rímar við innihaldið, er himinblá eins og hafið í rómantískustu völsunum. Og rómantísku hughrifín ná tökum í „morg- unljóði“: „ég er úr/ljósi og w lofti/yfir mér/svífandi sjó- fugl/undir mér/lína úr ljóði/hafið/er skínandi bjart“ (41). Þetta ljóð endurspeglar velliðan, sátt og sælukenndan hroll; vímukennt ástand sem kannski næst hvergi betur en í þessari víðáttu þar sem rennur saman „himinn og haf“ (42). Fleiri svona „leiðsluljóð" má finna í bók Lindu, ljóð sem eru að springa af hamingju og er kannski best lýst með orðinu „frelsi“. Frelsi sem er svo yfirþyrmandi að „mann/langar/í sjóinn í/magn- að/ómengað/myrkrið“ (32). Eða skyldi ljóðmælanda kannski langa út í myrkrið af öðrum ástæðum? Langar hann að renna saman við hafið svo þjáningunum linni, sjó- veikinni sem svo er lýst: „mik- ill/um hábjartan/mikill/og skellir mér niður/steypir sér yfir mig/kjaftur og klær“ (36) Það er ekki bara „söngur“ og „ævintýr“ í sjómannslífi Lindu. Hún heldur sig raunsæismegin þrátt fyrir róman- tíska spretti. í Völsunum glittir einnig í kunn- uglegan kæruleysistóninn úr fyrri bókum Lindu og þá sérstæðu lagni hennar að blanda saman i einu og sama Ijóðinu hálfkæringi og hlýju. Hún er sposk þegar hún lýsir lif- inu um borð, kokkinum sem eldar loðið læri „ættað úr úrúgúvæ/eða ofnsteikt í ullarsokk" (46) og há- setunum sem „andskotast" saman (24). Þær skondnu lýsingar eru þó fullar af alúð og væntumþykju. Það er greinilegt að skáldkonunni er annt um yrkisefhi sin hvort sem þau birtast í formi manns eða nátt- úru og þeim skilar hún til lesandans í myndrænum og eftirminnilegum ljóðum. Linda Vilhjálmsdóttir Valsar úr síðustu siglingu Mál og menning 1996 Linda Vilhjálmsdóttir: „Ekki hægt að vera á móti sjómannavölsunum til lengdar." Bók Davíðs Út er komið geysimikið rit í tveimur bindum til heiðurs Davíð Davíðssyni eftir 35 ára starf sem prófessor við Háskóla íslands og yfirlæknir á Landspítala. í hókunum eru yfir 80 greinar eftir samstarfs- menn og fyrr- verandi nem- endur Davíðs, bæöi strangvís- indalegar og erf- iðar aflestrar öðrum en fræði- mönnum og léttar og skemmti- legar greinar - jafrvel meinleg- ar - sem allur almenningur hef- ur gagn og gaman af. Til dæm- is eru greinar um sjúkdómslýs- ingar í fombókmenntum, tengsl beinbrotahættu og lifii- aðarhátta, orsakir kransæða- sjúkdóma, frestun ellinnar, þverstæður jólahalds frá sjón- arhomi geðlæknis og um lauf- vinda. Langt viðtal er við Davíð sjálfan um störf hans og formáli er eftir Ólaf Ólafsson land- lækni. Alls em bækumar tæpar 1300 síður. Háskólaútgáfan gef- ur út. Innsýn í mann- tilveru Fjölvi hefur gefið út ritið Inn- sýn í mannlega tilvem eftir Einar Þorstein Ás- geirsson. í kynningu útgefanda segir svo um kjarna verksins: „Mikil þáttaskil eru framundan. Endur- skoða þarf allan gmndvöll tilveru okkar. Raunvís- indalögmál sem trúað hefur verið á, Newton-lögmálið og Einstein- lögmálið, standa höUum fæti og fá ekki staðist.“ Bókin skiptist í tæplega 600 kafla þar sem höf- undur rannsakar margvíslega þætti trúarbragöa og svokaU- aðra dulvísinda og skipar þeim í nýja fræðigrein sem hann kaUar „Eðlisfræði mannlega sviðsins". lega Kristinn Reyr var að gefa út úr- valsljóð sin að eigin vali í bókinni Úrvalsljóð ein. AUs em ljóðabækur hans tólf frá 1942 tU 1991 og valdi hann eitthvað úr þeim öUum. Var eitthvert sérstakt tUefni tU þessa? „í sem fæstum orðum þá á hann Elías Mar hugmyndina," svarar Kristinn. „Það þarf svolítið átak tU að gera svona nokkuð, og mér kom á óvart hve erfitt það reyndist, en ég vUdi bera sjálfur ábyrgð á verk- inu og ekki þurfa að kenna nein- um öörum um það. Upplagið á þessum bókum var aldrei stórt og þær eru löngu gersamlega upp- umar.“ - Út frá hverju gekkstu þegar þú valdir eitt en hafnaðir öðm? „Út frá fimmtíu ára reynslu af þessum ljóðum og líka ummælum sem ég mundi eftir um stök ljóð í rit- dómum. Bókunum mínum var yfir- leitt vel tekið þó að sfimdum væri ég skammaður eins og hundur - en það var auðvitað hið besta mál... á mað- ur ekki að segja það svona eftir á? Ég var lengi að þessu og flýtti mér hægt, en mér finnst erfitt að segja nákvæmlega viö hvað ég mið- aði. Ég gekk meira út frá tilfinning- unni fyrir ljóðunum núna en hugs- anlegu sögulegu gildi þeirra. Aðrir eru mér sjálfsagt ósammála um margt, og ég vona að fólk þrefi sem mest um valið! En það hefur verið ágætur tónn i því sem hefur verið skrifað um bók- ina.“ Reyndar var óbeint tilefni bók- arinnar áttræðisaf- mæli höfundarins fyrir tveim árum, en Kristinn fæddist í Grindavík 30. des- ember 1914. Elías Mar skrifaði grein um Kristin í Morgunblaðið í tilefni af afmælinu og er hún birt í bók- inni. Að lokum eitt dæmi úr Úr- valsljóðum einum. Það heitir „Ljómun“: Veðurguðum er vel til vina um stundir á hjara heims og náttsólin dansar nakin á spegli nyrsta hafs háttprúð og tigin að halda fyrir oss himneskri vöku. Hver er að hringja? Númerabirtir rábœrt verð! Nú getur þú séð númer þess sem er að hringja, áður en þú lyftir símtólinu. Skjárinn sýnir dagsetningu, tíma hvers símtals og fjölda símtala sem hafa borist. Tækið geymir síðustu 50 símanúmer og virkar þannig sem símboði, ef þú nærð ekki að svara. kr. 3.490 PÓSTUR OG SÍMI Söludeild Ármúla 27, sími 550 7800 f Þjónustumiðstöð í Kirkjustræti, sími 800 7000 • Söludeild Kringlunni, sími 550 6690 • Póst- og símstöðvar um land allt J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.