Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 fmæli 55 Tll hamingju meðafmælið 22. desember I-------------------------- 95 ára Guðbjörg J. Jónsdóttir, | Hrafnistu í Reykjavík. 90 ára ------------------------- Hjörleifur Sigurðsson, Sogavegi 84, Reykjavík. Vilborg Ólafsdóttir, Álfheimum 68, Reykjavík. 85 ára ---------------—— Sveinn Kr. Guðmundsson, Espigrund 7, Akranesi. Ólöf Júlíusdóttir, | Garðabraut 11, Akranesi. 80 ára Guðríður Jónsdóttir, Garðvangi, Garði. Hún mun taka á móti gestum að Urðarbraut 5, Garði, miUi kl. 17.00 og 19.00. 75 ára I--------------- Jóhannes G. Jóhannesson, Laugarbrekku 13, Húsavík. Svava Sigurðardóttir, i Ásgerði 1, Reyðarfirði. I Sigrlðnr Eyja Pétursdóttir, I Eiríksgötu 21, Reykjavík. 70 ára Þórey Daníelsdóttir, Blöndubyggð 13, Blönduósi. Björn Þór Pálsson, Laufási 11, Egilsstöðum. Gísli Þórðarson, Vesturgötu 52, Reykjavík. 60 ára Ragnhildur Þorsteinsdóttir, j Úlfsstöðum I, Hálsahreppi. IKatrín Sigurjónsdóttir, Gilsárstekk I, Reykjavík. Ingólfur H. Ámundason, Þrastahrauni 8, Hafnarfirði. Einar Kristjónsson, Sandholti 24, Ólafsvík. Ingólfur Ármannsson, skóla- og menn- ingarfulltrúi Akureyrarbæj- ar, Vanabyggð 2B, Akureyri. Eiginkona hans er Hrefna Hjálmarsdóttir | ari. Tekið verður á móti gestum í | Vaðlabergi, Hótel KEA, milli I kl. 17.00 og 19.00, sunnudaginn 1 22.12.. 50 ára Steinunn Unnur Pálsdóttir, Háteigi 6A, Keflavík. Davíð Höskuldsson, Birkigrund 12, Kópavogi. Margrét Hallsdóttir, Brávöllum, Glæsibæjarhreppi. 40 ára Haukur Sigurbjörnsson, Stillholti 11, Akranesi. Kristín Björnsdóttir, Safamýri 53, Reykjavík. Guðbjartur Birkir Jónsson, Austurvegi 15, ísafirði. Guðrún S. Benediktsdóttir, Austurbergi 16, Reykjavík. Guðlaugur H. Friðjónsson, Breiðvangi 9, Hafnarfirði. Magnús Ming Magnússon, frá Víetnam, starfsmaður hjá Mjólkursam- sölunni, Laufengi 11, Reykjavík. Margrét Ingólfsdóttir, Norðurvangi 14, Hafnarfirði. leikskólakenn- Einar Bárðarson Einar Bárðarson húsasmiður, Skerjavöllum 8, Kirkjubæj- arklaustri, verður sjötugur á morg- un. Starfsferill Einar fæddist í Hraunbæ í Álfta- veri en ólst upp í Hvolhreppi í Rang- árvaflasýslu. Hann stundaði barna- skólanám að Stórólfshvoli 1935-40, stundaði nám við Smíðaskólann Hólm í Landbroti frá 1946, við Iðn- skólann á Selfossi 1948-49 og lauk sveinsprófi í húsasmíði 1950 en meistari hans var Valdemar Run- ólfsson. Einar hefur síðan stundað húsa- smíðar i Reykjavík, á Sel- fossi og á Kirkjubæjar- klaustri. Fjölskylda Einar kvæntist 12.8. 1950 Rannveigu Eiríks- dóttur, f. 5.10. 1931, hús- móður. Hún er dóttir Ei- ríks Skúlasonar og Hildigunnar Magnúsdótt- ur, bænda í Þykkvabæ í Landbroti. Börn Einars og Rannveigar eru Bárður, f. 1950, húsasmiður 1 Nor- egi, var fyrst kvæntur Klöfu Sæland og eiga þau eitt barn, þá kvæntur Berit Valle og eiga þau eitt bam en nú kvæntur Liv Mari og eiga þau eitt barn; Eiríkur, f. 1952, vél- tæknir í Reykjavík, kvæntur Kristbjörgu Sig- urfinnsdóttur og eiga þau tvo syni og tvö barna- börn; Kristín, f. 1953, kennari i Reykjavík, gift Hannesi Jóhannssyni og eiga þau tvö börn; Gunn- ar, f. 1954, kjötiðnaðar- maður á Selfossi, kvænt- ur Hjördísi Georgsdóttur og eiga þau fjögur börn; Bjarni, f. 1956, vél- stjóri í Reykjavík. Systkini Einars eru Jónína Bárð- ardóttir, f. 17.6. 1921, húsmóðir í Reykjavík; Bergur Bárðarson, f. 24.2. 1924, húsamálari i Reykjavík; Steinunn Jóna Bárðardóttir, f. 7.11. 1928, húsmóðir í Reykjavík; Sumar- liði Bárðarson, f. 18.6. 1930, málari í Reykjavík; Margrét Bárðardóttir, f. 28.5. 1932, kennari i Reykjavík; Ing- ólfur Bárðarson, f. 20.8. 1934, kjöt- iðnaðarmaður á Selfossi. Foreldrar Einars voru Bárður Bergsson, f. 1887, d. 1939, snikkari og bóndi í Hraunbæ og síðar í Duf- þaksholti, og k.h., Guðlaug Jóns- dóttir, f. 1896, d. 1962, húsmóðir. Einar verður heima á afmælis- daginn og tekur með ánægju á móti gestum. Einar Bárðarson. Einkaleyfi á nafninu Útgáfa barmmerkja ensku knatt- spyrnufélaganna er heill kapítuli út af fyrir sig og ef tfl vill er Manchester United stórtækast í því sambandi. Félagið sjálft hefur einkaleyfi á að nota nafnið Manchester United. Það gefur út merki félagsins í ýms- um útgáfum við ýmis tækifæri og eru þau orðin um 150 talsins að minnsta kosti. Dæmi eru um að einkaaðilar gefi út merki félagsins í leyfisleysi og þá hefur oftar en einu sinni komið til þess að félagið hefur látið innkalla slík merki. Stuðningsmannaklúbbar félags- ins víðs vegar á Bretlandseyjum og víða um lönd, sem skipta hundruð- um, hafa hins .vegar fengið leyfi til að gefa út sín eigin merki og það var einmitt það sem Ármanni datt í hug að gera. í stuðningsmanna- klúbbi Manchester United á íslandi eru um 800 félagar. Aðsetur klúbbs- ins er í Reykjavík en aðeins er leyföur einn stuðningsmanna- klúbbur í hverju landi utan Bret- landseyja. Manchesterveikin á Byggðaveginum „Það er best að vísa þér beint inn í það heilagasta," sagði Ármann Kolbeinsson, 29 ára gamall Akur- eyringur og aðdáandi enska knatt- spyrnuliðsins Manchester United, þegar DV leit inn hjá honum í vik- unni. Það „heilagasta" á heimfli hans er herbergið þar sem hann safnar saman merkjum sínum, mynd- bandsspólum, bæklingum og fleiru sem tengist United-liðinu. Ármann segir marga vera verr haldna af hinni svokölluðu „fótboltaveiki" en hann og hans aðaláhugamál varð- andi uppáhaldslið sitt, Manchester United, sé að safna barmmerkjum félagsins sem eru til í mismunandi útgáfum í hundraðatali. „Ég byrjaði þessa söfnun árið 1992 og langaði að eignast merki allra ensku knattspymuliðanna. Ég gekk þá í samtökin „Accoci- ation of Football Badge Collectors" til að hafa betri aðgang að þessum merkjum, fá fréttabréf samtakanna sent reglulega og komast þannig í samband við aðra safnara. Ég komst fljótlega yfir öll merki ensku liðanna og fór þá að einbeita mér að söfnun á merkjum Manchester United," segir Ármann. Ármann í „því heilagasta" á heimili sínu, umvafinn merkjum íþróttafélaga þar sem merki Manchester Unitet eru í miklum meirihluta. DV-mynd gk Manchester United Akureyri „Ég ákvað í september á síðasta ári að búa til íslenskt merki félags- ins. Ég talaði við forráðamenn stuðningsmannaklúbbsins í Reykja- vík en þeir hafa sennilega misskilið mig eitthvað og tóku erindi mínu fremur fálega. Ég fékk þá leyfi þeirra til að láta framleiða „Manchester United - Akureyri" merki. Þegar það var gert kom af sjálfu sér að láta útbúa merki stuðn- ingsmannaklúbbsins á íslandi með áletruninni „Manchester United ís- land“. Það er greinilegt að þessi merkja- söfnun er mikið áhugamál hjá Ár- manni. Hann segist eyða miklum tíma í bréfaskriftir til merkjasafn- ara úti um allan heim og hafi til dæmis sent um 150 bréf til þeirra á þessu ári. Allt snýst þetta um að komast yfir sem flestar tegundir merkja Manchester United, bæði frá félaginu sjálfu, frá stuðnings- mannaklúbbunum í Bretlandi og líka frá öðrum löndum. Ármann á merki víðs vegar að úr heiminum, svo sem frá Rúmeníu, Ítalíu, Möltu og jafnvel Argentínu. Þessi merki eru áberandi í safni Ármanns sem í eru mörg hundruð merki og hann hefur einnig hafið söfnun á merkj- um íslenskra knattspyrnufélaga og samtaka. Eins og í himnaríki „Ég hef einu sinni komið á heimavöll Manchester Unitet, Old Trafford. Það var núna í haust en ég sá liðið auðvitað þegar það kom til Akureyrar árið 1982. Að koma á Old Trafford var eins og að koma til himnaríkis, ég lýsi því ekki öðruvísi," segir Ármann. Við ræddum litið við hann um , knattspyrnu en undirritaður gat þó ekki stillt sig um að spyrja Ár- mann að því í lokin hvers vegna liðið hans væri að tapa titlinum i ensku knattspyrnunni til Arsenal. „Við skulum sjá til í vor þegar upp verður staðið. Liðum sem eru í Evrópukeppni gengur oft illa i framan af keppnistímabilinu en i við sjáum til,“ sagði Ármann. -gk :l DV. Akureyri:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.