Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Side 54
58 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 K V I K M Y IL \ I Regnboginn/Laugarásbíó - Jólahasar: Innkaupaferð á aðfangadag « Það er ekki oft sem ís- lenskuð kvikmyndanöfn segja meira um innihald kvikmyndarinnar en þau upprunalegu en svo er þó með Jólahasar (Jingle All the Way). ís- lenska nafnið passar einstaklega vel við þessa nýjustu kvikmynd Amolds Schwarzeneggers þar sem hann fer hamförum í leit að einni sérstakri jólagjöf á aðfangadag. Það er með eindæmum hvað Schwarzenegger þrjóskast við að leika í gamanmyndum og virð- ist honum alveg sama um allar ráðleggingar um að láta það eiga sig. Eftir að hafa orðið sér og öðrum til skammar í Junior hélt maður að hann myndi láta segjast. Ekki aldeilis. Hér er hann mættur í hlutverki heimilisföður sem vanrækir fjölskyldu sína og Schwarzenegger er svo mikið mál að tjá sig í töluðu máli að eftir tiu mínútur er hann búinn með sinn skammt af því ef miðað er við þær myndir sem hann stendur sig best í. Það er ekki aðeins hálfgerð pína að sjá hann reyna að vera fyndinn heldur er austurrísk rödd einkar illa til fallin að fara með enskan texta. Það er því ekki nema von að loks þegar honum tekst að ná upp stígandi í myndina þá er hann kominn í hlut- verk Túrbómannsins, leikfangs sem hann er búinn að reyna að hafa upp á fyrir son sinn allan aðfangadaginn. Jólahasar byggist dálítið upp á samskiptum tveggja feðra sem eru í leit að sömu jólagjöflnni og beita hvor annan brögðum þegar á þarf að halda. í hlutverki mótherja Schwarzeneggers er svartur gamanleikari sem kallar sig Sinbad og gerir hann fátt sem gleður augað, fettir sig og brettir og notast við orðaforða sem kynbræðrum hans í gamanleikara- stéttinni er gjarnt á að ofnota. Jólahasar er þó ekki alslæm, það eru einstök atriði sem má hafa ánægju af, til að mynda heimsókn Schwarzeneggers í fabrikku sem vafasamir jólasveinar stjóma. En þegar á heildina er litið er þetta enn ein tilraun Schwarzeneggers til að leika í gamanmynd sem mistekst. Taka verður þó fram að á þeirri sýningu sem undirritaður sá skemmtu margir sér vel. Það voru að vísu nær eingöngu böm, 12 ára og yngri. @pers:Leik- stjóri: Brian Levant. Handrit: Randy Komfield. Kvikmyndataka: Victor J. Kember. Tónlist: David Newman. Aðalleikarar: Arnold Schwarzenegger, Sinbad, Phil Hartman, Rita Wilson, Robert Conrad og Jasmes Belushi. Hilmar Karlsson Stjörnubíó - Matthildur: Margur er Matthildur (Matilda) er fjórða kvik- myndin sem Danny DeVito leikstýrir. Hann byrjaði glæsilega á þessu sviði með tveimur biksvörtum kómedíum, Throw Momma From the Train og War of the Roses, en honum gekk ekki eins vel með Hoffa, sem var drama byggð á ævi verkalýðsleiðtog- ans Jimmy Hoffa. DeVito er í góðu formi, bæði sem leiksfjóri og leikari í MatthOdur, sem gerð er eftir rómuðu bamaævin- týri Roalds Dahls. De Vito færir söguna i ameriskt þjófélag þar sem bömin em útundan í kapphlaupi foreldranna í lífsgæðahlaupinu. Eins og í sönnu ævintýri er um ýktan veruleika að ræða og persónumar em sérlega skemmtilegas útfærðar. Matthildur er undrabarn sem fæðist inn í kolómögulega fjölskyldu, sem vill sem minnst vita af henni, skammar hana fyrir að horfa ekki á sjón- varp eins og aðrir krakkar og gleymir hvað hún er gömul og þar með að láta hana í skóla. Matthildur er ekki aðeins afburðagáfað barn, heldur býr hún yfir hugarorku sem kemur til góða loks þegar hún hefur skóla- göngu. Matthildur er fyrst og fremst vel heppnuð íjölskyldumynd. Mara Wilson er hvers manns hugljúfi í hlutverki Matthildar, hún sýndi það í Mrs. Doubtfire og Miracle on the 4th Street að hún er náttúrutalent og það sem einkennir hana í hlutverki Matthildar er mikil leikgleði sem skín frá henni og smitar út frá sér. Danny DeVito og Rhea Perlman fara á kostum í hlutverki foreldra hennar og ekki er hægt aö skilja við myndn- ina án þess að minnast á leik Pam Friers í hlutverki skólastýrunnar, Frenju eins og krakkamir kalla hana. En þessi skólastýra, sem er fyrr- um kúluvarpari, spjótkastari og sleggjukastari og hatar börn eins og pestina og verður ógleymanleg í meðfórum Ferris. Leikstjóri: Danny DeVito. Handrit: Nicholas Kazan og Robin Swicord. Kvikmyndataka: Stefan Czapsky. Tónlist: David Newman. Aðalleikarar: Mara Wilson, Danny DeVito, Rhea Perlman, Embeth Davidtz og Pam Ferris. Hilmar Karlsson knár þótt hann sé smár *** Amerískir gagnrýnendur velja það besta Gagnrýendur í Los Angeles völdu Secret & Lies bestu kvikmynd ársins og Mike Leigh besta leikstjórann. Hún verð- ur sýnd í Háskólabíói í janúar. Fargo, Leyndarmál og lygar og Brimbrot í uppáhaldi - Geoffrey Rush besti leikarinn hjá þremur gagnrýnendahópum Þrír hópar bandcirískra gagnrýenda hafa nú valið bestu kvik- myndimar og bestu leikara ársins og þótt ekki séu hópamir sammála um bestu kvikmyndir þá eru það nokkrar myndir sem koma við sögu hjá þeim öllum. Fyrstur til að senda frá sér lista var hópur í New York sem kallar sig New York Critics Circle. Þar var valin besta kvikmyndin Fargo, eftir þá Cohen- bræður, Joel og Ethan. Besti leikari í aðalhlutverki var valinn Geoffrey Rush fyrir leik sinn í Shine, þar sem hann leikur ástralskan píanóleikara sem á við geðræn vandamál að stríða. Besta leikkonan var valin Emily Watson fyrir leik sinn í Breaking the Waves og Lars von Trier fékk leikstjómarverð- launin fyrir sömu kvikmynd. Leikararnir og félagarnir Stanley Tucci og Campbell Scott fengu verðlaun fyrir bestu fyrstu kvikmynd, en þeir stýrðu saman The Big Night. Leikar- ar í aukahlutverkum vora valin Courtney Cox fyrir The People vs. Larry Flynt og Harry Belafonta fyrir leik sinni í Kansas City. Það besta í Los Angeles Það kvað nokkuð við annan tón hjá gagnrýnendum í Los Ang- eles. Þeir völdu bestu kvikmynd Secret & Lies, mynd sem gagnrý- endur í New York hundsuðu alveg. Þá var Mike Leigh valinn besti leikstjóri fyrir sömu kvikmynd og Brenda Blethyn var valin besta leikkonan, einnig fyrir Secret & Lies. Þeir í Los Angeles vora aftur á móti sammála um besta leikar- ann, Geoffrey Rush, fyrir Shine. Edward Norton var valinn besti aukaleikarinn fyrir hvorki meira né minna en þrjár kvikmyndir, Primal Fear, Everyone Says I Love You og The People vs. Larry Flint, en sú ágæta leikkona Barbara Hersey hlaut sömu viðurkenningu fyrir leik sinn í The Portrait of a Lady. Besta erlenda kvikmyndin Ástralski leikarinn Geof- var valin Le Ceremonie, eftir frey Rush hefur fengiö Claude Chabrol, en stutt er síðan góða dóma fyrir túlkun hún var sýnd í Háskólabíó. Fyrir s,na a píanósnillingi Fargo fengu þeir Cohenbræður svo sem stríðir við geðræn verðlaun fyrir besta handrit ársins. vandamál í Shine og Það hpsta í RflStnn völdu gagnrýnendahóp- rdU UBöld I DUoLUII arnir þrír hann besta Gagnrýnendur í Boston yöldu Tra- ieikara (aða|hlutverki. mspotting sem bestu kvikmynd ársins, Mike Leigh besta leikstjór- ann fyrir Secret & Lies. Besti leik- arinn var valinn Geoffrey Rush og er hann með fullt hús enn sem komið er og hefur verið valinn besti leikarinn af þremur gagnrýnendahópum. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart þótt hann fengi óskarstilnefningu í febrúar. Besta leik- konan var valin Brenda Blethyn fyrir leik sinn í Secret & Lies. Poppgyðjan Courtney Love fékk verðlaun sem besta leikkonan i aukahlutverki fyrir leik sinn í The People vs. Larry Flynt, en í henni leikur hún eiginkonu Flynts, dópista sem endar líf sitt með því að taka of stóran skammt. Þeir í Boston voru sam- mála kollegum sínum í Los Angeles um að veita Edward Norton aukaleikaraverðlaun fyrir þrjár kvikmyndir. The Big Night fékk tvenn verðlaun fyrir besta handrit (Stanley Tucci og Joseph Tropiano) og bestu nýju leikstjórarnir (Stanley Tucci og Campbell Scott). -HK Nýtt kvikmyndahús í Reykjavík: Kringlubíó - í Sam-bíóum geta nú 3300 manns verið á sama sýningartíma í þrettán sölum Annan dag jóla munu Sambíóin opna nýtt og full- komið kvikmyndahús í verslunarmiðstöðinni Kringlunni í Reykjavík. Er þetta fyrsta kvik- myndahúsið sem rís hér á landi í fjórtán ár, eða allt frá því Bíóhöllin var opnuð í Mjóddinni árið 1982. Hönnun þess, tækjabúnaður og skipulag er allt í samræmi við ströngustu staðla og gera Kringlubíó að einu fullkomnasta og besta kvik- myndahúsi í Evrópu. Kringlubíó er fimmta kvikmyndahúsið sem Sam- bíóin starfrækja og það fjórða í Reykjavík. Fyrir em Bíóhöllin og Sagabíó í Mjódd, Bíóborgin við Snorrabraut og Nýja bíó í Keflavík sem var einmitt fyrsta kvikmyndahúsið í eigu fyrirtækis- ins. Með tilkomu þriggja sala Kringlubíós ráða Sambíóin nú alls yfir þrettán sýningarsölum og geta yfir 3300 manns sótt sýningar samtímis. Öll hönnun Kringlubíósins tekur mið af ströng- ustu kröfum sem gerðar era til kvikmyndahúsa nútímans. Lögð er mikil áhersla á að sem best fari um áhorfendur, rými milli áhorfendabekkja sé nægilegt og að gólfhalli falli að breyttri meðal- hæð sýningargesta. Þá er og lögð sérstök áhersla á aðgengi fatlaðra að hinu nýja kvikmyndahúsi og þannig reynt að koma til móts við þarfir sem flestra. Þrir fullkomnir sýningarsalir, allir með THX Dol- by Digital Arkitekt Kringlubíósins er enginn annar en Ric- hard Abraham, einhver þekktasti hönnuður versl- unarbygginga í heimi. Abraham hannaði Kringl- una á sínum tíma. Síöustu dagana fyrir jól hefur verið unnlö á fullu í Kringlubíói við frágang fyrir opnunina annan dag jóla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.