Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1996
Fréttir
Persónuafsláttur stendur í staö og skattar hækka:
Ríkisstjórnin er vond við launa-
fólk, fatlaða og atvinnulausa
- segir Kristján Guðmundsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur
Það verður gert og þá þurfum við
stuðning og samstöðu og þá munum
við sjá bjartari tíma. Þetta eru búin
að vera ein samfelld vonbrigði siðan
rikisstjómin og alþingismenn hrif-
suðu til sín kauphækkanir sem
voru tugum þúsunda umfram það
sem aðrir fengu. Síðan hefur þetta
verið ein allsherjarröð af vonbrigð-
um og fólk er orðið dofið. Það kem-
ur að því að fólk mun rísa gegn
þessu og mjög kraftmikið, trúi ég.
Mín spá er að það gerist eftir ára-
mótin. Fólk hefur ekki almennilega
áttað sig á þessum jólapakka frá rík-
isstjóminni og hvað í honum felst.
Það finnur það ekki fyrr en eftir
áramótin og þá verða engin gleði-
bros á því fólki,“ sagði Kristján
Gunnarsson. -ÆMK
DV, Suðurnesjum:
„Menn töldu að persónuafsláttur-
inn myndi hækka en ekki að ríkis-
stjómin myndi hrifsa til sín með
þessum hætti í formi aukinna
skatta. Þessi ríkisstjóm hefur verið
afar vond við launafólk, fatlaða og
atvinnulausa. Hún hefur riflð af
þeim réttindi og skert laun þeirra.
Verkafólk verður nú að taka sig
saman og efla samstöðu og standa
þétt saman í komandi kjarasamn-
ingum. Við verðum að ná þessu til
baka,“ sagði Krisfján Gunnarsson,
formaður Verkalýðs- og sjómannafé-
lags Keflavíkur og nágrennis, í sam-
tali við DV um þá ákvöröun ríkis-
stjómarinnar að hækka ekki per-
sónuafsláttinn nú um áramótin og
hækka þar með tekjuskatt einstak-
linga.
Kristján segir að þessi ákvörðun
ríkisstjómarinnar hafi komið sér á
óvart. Hann hafi trúað ýmsu upp á
hana en ekki þessu. Aðgerðin sé
lúaleg og ekki stórmannleg fyrir
ríkisstjóm Davíðs Oddsonar.
„Verkafólk verður að leggja til
hliðar innbyrðisátök og vera sam-
huga í að ná þessum skerðingum tii
baka. Þetta verður aila vega ekki
skiptimynt á mínu borði í komandi
kjarasamningum. Ríkisstjómin fær
ekki að búa sér til skiptimynt fyrir-
fram eins og þeir hafa oft gert áður
Það verður ekki liðið nú. Það verð
ur mikilvægt að launafólk verði til
búið og bregðist ekki kalli þegar for
ystan mun taka á þessum málum
Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, seg-
ir að ríkisstjórnin sé vond við launafólk og það iýsi sér í þeim aðgeröum að
hækka ekki persónuafslátt og stuðla þannig að skattahækkunum. Hann segir
að fólk muni rfsa gegn ríkisstjórninni í þessum málum. DV-mynd Ægir Már
Bóksölulisti DV:
Bjartsynni en utgefendurnir
„Ég verð að játa að ég var mjög
bjartsýnn á bókina, eiginlega meira
bjartsýnn en útgefendur hennar og
skrásetjarinn. Samt sem áður kem-
ur það mér á óvart að hún skuli
vera í fyrsta sæti, þvi þetta er
langtum meiri sala en hægt var að
gera ráð fyrir,“ segir Benjamín H.
Eiríksson.
„Bókin hefur fengið prýðilega
dóma og það skemmir ekki fjrrir
sölunni. Ég hafði það á tiifinning-
unni að þegar fólk færi að lesa bók-
ina og segja hvað öðru frá henni þá
færi salan í gang og það er það sem
virðist hafa gerst,“ segir Benjamín.
Bók Hannesar Hólmsteins Gis-
surarsonar um Benjamín H. Eiríks-
son er sú bók sem seldist mest í síð-
ustu viku og var áberandi sölu-
hæsta bókin. I síðustu viku mæld-
ist hún fimmta söluhæsta bókin,
þannig að hún hefur tekið mikinn
kipp á síðustu vikunni fyrir jólin.
Frá siysstað á gatnamótum
Sæbrautar og Langholtsvegar.
DV-mynd S
Umferðarslys:
Ekið á þrjá
vegfarendur
Tvö alvarleg umferðarslys urðu í
Reykjavík í gærdag þegar ekið var
á þrjá gangandi vegfarendur.
12 ára gamall drengur slasaðist
alvarlega þegar ekið var á hann og
félaga hans á mótum Kringlumýr-
arbrautar og Listabrautar á fjórða
tímanum í gær. Drengimir voru á
leið yfir Kringlumýrarbraut í vest-
ur þegar þeir urðu fyrir bílnum.
Báðir piltarnir voru fluttir á
slysadeild. Annar þeirra hlaut
slæm höfuðmeiðsl og var lagður
inn á gjörgæsludeild en hann mun
ekki vera i lífshættu, að sögn
lækna þar. Félagi hans slapp meö
minni háttar meiðsl og fékk að fara
heim eftir skoðun.
Þá var ekið á unga konu sem var
að fara yfir götu á gatnamótum Sæ-
brautar og Langholtsvegar. Konan
var flutt á slysadeild og var í rann-
sókn í gærkvöldi. Að sögn lækna
vora meiðsl hennar ekki talin al-
varleg. -RR
- segir Benjamín H. Eiríksson
Sú bók sem seldist næstmest er
kökubók Hagkaups sem fram að
þessu hafði verið söluhæsta bókin.
Bókin Lögmálin 7 um velgengni
eftir Deepak Chopra tekur einnig
risastökk upp á við því hún var 15.
söluhæsta bókin í síðustu viku en
er nú í þriðja sætinu. Bamabókin
Játningar Berts er í fjórða sætinu
en var í öðru sætinu í síðustu viku.
Almennt má segja að barna- og
unglingabækumar á listanum hafi
færst neðar á listann í þessari
viku, samanborið við sölutölur síð-
ustu viku. Játningar Berts, Ekkert
að marka, Latibær á ólympíuleik-
unum og Á lausu eru allar neðar á
listanum nú en í síðustu viku.
Mannlífsstiklur Ómars Ragnars-
sonar voru ekki á listanum í síð-
ustu viku en mælist nú sjötta sölu-
hæsta bókin. Fjórar aðrar bækur
eru nýjar á listanum nú, bækumar
í 14., 17., 19. og 20. sæti listans.
Bókaverslanirnar, sem taka þátt
í sölukönnun DV, em: Hagkaups-
verslanirnar í Skeifunni og Kringl-
unni, á Akureyri og í Njarðvík, Ey-
mundsson í Kringlunni, Penninn í
Kringlunni, Penninn í Hallarmúla,
Penninn í Hafnarfirði, Penninn og
Eymundsson í Austurstræti, Bók-
val á Akureyri, Bókaverslunin
Sjávarborg í Stykkishólmi, Bóka-
búð Sigurbjörns á Egilsstöðum,
Bókabúð Brynjars á Sauðárkróki,
Kaupfélag Ámesinga á Selfossi og
Bókabúð Keflavíkur í Reykjanes-
bæ. -ÍS
£iiii
1. (5)
2. (1)
3. (15)
4. (2)
5. (3)
6. (-)
7. (4)
8. (9)
9. (7)
10. (6)
11. (12)
12. (10)
13. (17)
14. (-)
15. (14)
16. (13)
17. (-)
18. (16)
19. (-)
20. (-)
óöluAœðiu (mfuvi
- 4. vika -
Benjamín H. Eiríksson - Hannes H. Gissurarson
Kökubók Hagkaups
Lögmálin 7 um velgengni - Deepak Chobra
Játningar Berts - A. Jacobsson og S. Olsson
Lífskraftur - Friðrik Erlingsson
Mannlífsstiklur - Ómar Ragnarsson
Ekkert að marka - Guðrún Helgadóttir
Útkall á 11. stundu - Óttar Sveinsson
Latibær á ólympíuleikunum - Magnús Scheving
Á lausu - Smári Feyr og Tómas Gunnar
Lávarður heims - Ólafur Jóhann Ólafsson
Z - ástarsaga - Vigdís Grímsdóttir
Þórður í Haga - Óskar Þórðarson
Úr álögum - Stephen King
íslandsförin - Guðmundur Andri Thorsson
Lífsins tré - Böðvar Guðmundsson
Rósir dauðans - Mary Higgins Klark
Allt í steik - Helgi Jónsson
Mars og Venus í svefnherberginu - Dr. John Gray
Lækningamáttur líkamans - Andrew Weil
Boðið upp á jólaferðir til íslands:
Erlendir ferðamenn
í kirkjugarðana
„Þegar erlendir ferðamenn koma
til íslands þarf að hafa ofan af fyrir
þeim. Þeim sem koma hingað yfir
jólin er meðal annars boðið upp á
rútuferðir í kirkjugarðana þar sem
þeim er sýndur sá séríslenski siður
að vitja leiða ættingja og vina,“ seg-
ir Magnús Oddsson ferðamálastjóri
en í ár hefur verið gert mikið átak í
að markaðssetja jólaferðir til ís-
lands.
Áramótaferöir vinsælar
Auk þess sem ekið er með erlenda
ferðamenn í kirkjugarðana er farið
með þá í verslunarferð í Kringluna
og hefðbundna ferð til Gullfoss og
Geysis. Alls koma 250-300 erlendir
ferðamenn til íslands yfir jólin.
„Þetta hefur gengið betur en menn
bjuggust við en það má ekki gleyma
því að það er talið að um 800 íslend-
ingar eyði jólunum erlendis. Það er
allur gangur á því hvemig ferða-
fólkið, sem kemur hingað, eyðir
tímanum, til dæmis veit ég um
nokkra Þjóðverja sem ætla að eyða
jólunum í bændagistingu," segir
Magnús og bætir við að flestir er-
lendir ferðamenn, sem eyði jólum
og áramótum á íslandi, séu frá
Norður- Ameríku og Evrópu.
Áramótaferðir til íslands eru vin-
sælar sem fyrr en átta ár eru síðan
farið var að markaðssetja slíkar
ferðir hingað til lands. Talið er að
um 1500 erlendir ferðamenn fagni
nýju ári á íslandi. „Áramótamark-
aðurinn er miklu stærri en jóla-
markaðurinn en það hefúr oröið
mikil hugarfarsbreyting í þjóðfélag-
inu varðandi afgreiðslutíma og ann-
að því.tengt sem var mikið vanda-
mál fyrir 2-3 árum,“ segir Magnús
að lokum. -JHÞ
Stuttar fréttir
Fiskeldismet
Metframleiðsla verður í ís-
lensku fiskeldi á þessu ári. RÚV
greindi frá.
Vill endurskoðun
Fjármálaráðherra vill endur-
skoða lög um stimpilgjald og
eignaskatt. Stimpilgjöld nema
um einum og hálfum milljarði á
ári. Stöð 2 sagði frá þessu.
Milljónir í sjónvarp
Stjómvöld eru tilbúin að verja
tíu milljónum króna í beina út-
sendingu bandai’iskrar sjón-
varpsstöðvar frá íslandi. Stöð 2
sagði frá.
Samherji til Noregs
Samherji á Akureyri hefur
keypt hlut í norskri samsteypu á
sviði sjávarútvegs. Samherji tek-
ur við stjóm á fiskvinnslu og út-
gerð. Ríkissjónvarpið sagði frá.
Sjávarútvegur tapar
Samkvæmt fréttum Ríkissjón-
varpsins var sjávarútvegurinn
rekinn með tapi á árinu sem er
að líða samkvæmt nýju uppgjöri
Þjóðhagsstofhunar.
Hækkun endurskoöuð
Fjármálaráðherra segir að
hækkun almennra tryggingabóta
verði endurskoðuð þegar komið
hefur í ljós hvemig þróunin í
málaflokknum verður. Ríkis-
sjónvarpið sagði frá. -JHÞ
Sigfús Hall-
dórsson látinn
Tónskáldið og listmálarinn Sigfús
Haildórsson lést á laugardag, 76 ára
að aldri. Sigfús hlaut fjölda viður-
kenninga fýrir störf sín á sviði
menningar og lista. Hann hlaut
meðal annars Riddarakross hinnar
íslensku fálkaorðu árið 1979 og var
heiðurslistamaður og heiðursborg-
ari Kópavogs.
Sigfús er þó sennilega þekktastur
fyrir að hafa samið Litlu fluguna og
lagið við ljóð Tómasar Guðmunds-
sonar, í Vatnsmýrinni. -JHÞ