Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Side 4
4 MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1996 Fréttir Þjóðinni fjölgar um rúm 10 prósent en Vestfirðingum fækkar um 13,4 prósent: Ekkert landsvæði utan höfuð- borgarsvæðisins heldur sínu - mjög mikiö áhyggjuefni - segir Einar K. Guöfinnsson alþingismaöur Vestfirðinga „Þetta er mjög mikið áhyggjuefni en kemur þó ekki á óvart. Við er hér ekki síst að sjá afleiðingar af þeim hremmingum sem dunið hafa yfir Vestfiröinga. Þar ber hæst af- leiðingar af fiskveiðistjórnun og hræðileg áfoll í Súðavík og á Flat- eyri,“ segir Einar Kristinn Guð- flnnsson, fyrsti þingmaður Vestfirð- inga, um þá miklu mannfækkun á Vestfjörðum sem staöfest er í bráða- birgðatölum Hagstofunnar. í skýrslu Hagstofunnar kemur fram að Vestfiröingar eiga íslands- met í mannfækkun og hafa ekki ver- ið færri síðan 1860. Á síðustu 10 árum hefur Vestfirðingum fækkað um tæplega 1400 manns, úr því að vera áriö 1986 10.230 í þaö aö vera nú 8.856. Þessi fækkun nemur 13 prósentum ef litið er á fjórðunginn í heild. Ef hins vegar er skoöuð fækk- un innan einstakra svæða þá kemur í ljós aö mest er fækkunin í Vestur- hyggð þar sem íbúum fækkar úr 1634 niður í 1291 eða um 21 prósent á einum áratug. Á sama viðmiðun- artima fjölgar á landinu í heild um 10,7 prósent og á höfuðborgarsvæð- inu fiölgar um 19,7 prósent eða sem nemur 26.503. Sú fiölgun ein og sér samsvarar þreföldum Qölda allra Vestfirðinga nú. Það vekur nokkra athygli að ekkert svæði utan höfuð- borgarsvæðisins nær til sín þeirri hlutfallshækkun sem átt hefur sér stað hjá þjóðinni. Suðumesin kom- ast næst því að halda sinu en þar fiölgar fólki um 9,2 prósent þannig að þar vantar því 1,5 prósent til að ná raunhækkun. Einar Kristinn segir að rangt væri að halda því fram aö til væru einfaldar lausnir fyrir Vestfirðinga. Hann segir þó ýmis teikn vera á lofti sem auka ættu bjartsýni á aö þessari þróun mætti snúa við. „Utanaðkomandi fiárfestar hafa verið að koma með verulegt fiár- magn inn í vestfirskt atvinnulíf. Úr því að þeir hafa trú á framtíð at- vinnulífsins á Vestfiörðum ættum við Vestfirðingar aö hafa sömu trú. Reynslan segir okkur að þau byggð- arlög, sem best standa á landsbyggð- inni, séu þau sem hafa á að skipa fiölbreyttu atvinnulífi. í því sam- bandi vil ég leggja áherslu á þýð- ingu ríkisvaldsins. Síðast en ekki síst verða Vestfiröingar sjálfir að vera duglegri að benda á hið já- kvæða sem samfélög þeirra hafa upp á að bjóða,“ segir Einar Krist- inn. -rt Vestfirðir Vesturland Suðumes Höfuðborgarsvæðið Suðuriand Allt landið: 1986: 244.009 1996: 269.735 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri um Qölgun á höfuðborgarsvæðinu: Vinnumarkaðurinn þolir ekki alagið - mikilvægt að það sé blómlegt mannlíf úti á landi „Ég lít ekki svo á að það eigi að vera keppikefli að íbúum í borginni fiölgi, ég held að það sé mikilvægt firir höfuðborgina að það sé blóm- legt atvinnulíf og mannlíf úti á landi," segir Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir um þá niðurstöðu Hagstofu ís- lands að nær öll mannfiölgun undan- farinna ára hafi orðið á höfúðborgar- svæðinu. „Það er sýnt að störfum hefur ver- ið að fiölga í borginni en samt hefur fiölgað á atvinnuleysisskrá. Það er því greinilegt að vinnumarkaðurinn í Reykjavík þolir ekki þetta aukna álag. Það sama hefur komið fram hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur, meðal skjólstæöinga hennar ber nokkuð á fólki sem hefur flust bú- ferlum," segir Ingibjörg Sólrún. Hún bendir jafhframt á að meira beri á aðfluttu fólki meðal skjólstæðinga Félagsmálastofnunar Reykjavíkiur- borgar en áður. „Ég ímynda mér að þetta fólk hafi margt verið atvinnu- laust í sinni heimabyggð og hafi komið til Reykjavíkur í von um að finna sér vinnu hér þar sem vinnu- markaðurinn er fjölbreyttari. Þaö gengur svo upp og ofan.“ -JHÞ Dagfari Jólagjöfin í ár Allt frá því skattamir voru fúndnir upp hafa skattþegar verið að njóta góðs af skattlagningu. Elstu menn muna ekki eftir öðru en góðvild og tillitssemi skattayf- irvalda gagnvart greiðendum. Skattar hafa oröið þjóðfélaginu og fólkinu í landinu til blessunar. Á sínum tíma voru skattar lagðir á til að standa undir sam- eiginlegum samfélagslegum vel- ferðarmálum þar sem ríki og sveitarfélög tóku til sín nokkurn hluta af launum hins vinnandi manns til að geta rétt að hinum vinnandi manni aftur. Enda hef- ur sú stefha lengi verið almennt viðurkennd að það fari betur á því að hið opinbera hafl sjálfsafla- fé fólks á milli handanna til að gera það fyrir fólkið sem fólkið sjálft hefur ekki vit á að gera fyr- ir sig. Samkvæmt þessari kenningu hafa skattar farið jafnt og þétt hækkandi meö árunum. Opinber- ir aðilar verða að fá sitt og þeir hafa þurft aö fá meira og meira með hverju árinu því sífellt er fólkið að gera meiri kröfur til hins opinbera um þjónustu sem inna þarf af hendi fyrir fólk sem getur ekki þjónað sér sjálft. Og skattálagning og skattheimta er öll af þessari ætt. Hún er til hag- ræöis og hagræðingar fyrir fólk- iö. Þannig var það þegar stað- greiðslan var innleidd. Þá var það gert til að auðvelda fólki að greiða skattana sína og til að það væri unnt voru skattar hækkaðir lítið eitt í þágu fólksins og stað- greiðslunnar. Og þegar verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga var breytt voru skattar aftur hækkaðir til að létta undir með fólkinu sem hjó í sveitarfélögun- um til að það gæti sinnt sér sjálfu. Svo voru grunnskólamir fluttir yfir til sveitarfélaganna og þaö var mikið þarfaþing fyrir fólkið í landinu og sveitarfélögunum og auðvitaö þurfti að hækka skatt- ana ögn til að það mætti takast. Sumir skattar verða til óvart og þannig var um jaöarskattana svo- nefndu og illræmdu sem urðu til án þess að menn áttuðu sig á þvf, enda eru skattar oftast af hinu góða og renna til velferðarmál- efna og það var þvi reiðarslag fyr- ir hið opinbera þegar það kom í Ijós að fólk borgar jafhvel meira en það hefur í skatta þegar um jaðarskatta er að ræða. Til að lækka þessa jaðarskatta í þeim tilgangi að fólk geti staðiö skil á jaðarsköttunum hefúr ríkis- sfiómin í góðvild sinni ákveðið að lækka jaðarskattana áður en hún lýkur störfum eftir tvö ár. Til að það góðverk megi takast hefur fiármálaráðherra ákveðið að frysta persónufrádráttinn sem leiðir til þess að almennir tekju- skattar hækka rnn átta hundruð milljónir á næsta ári. Sfiómar- andstaðan hefur gagnrýnt þessa hækkun en gagnrýnin er á mis- skilningi byggð. Sfiórnarandstað- an skilur ekki að þetta er besta jólagjöfin í ár. Átta hundruð milljón króna skattahækkun í ár er til að auðvelda ríkissfióminni að lækka jaðarskattana. Þetta er gert fyrir fólkið í landinu. Til að það gefist svigrúm til skattalækk- unar fyrir þá sem mest þurfa á skattalækkun að halda eftir tvö eða fleiri ár þegar ríkissfiórnin hefur reiknað það út hvernig skattamir geta hækkað til að lækka þá í þágu fólksins sem greiðir skatta til að hið opinbera hafi fé á milli handanna handa fólki sem borgar skatta sem standa undir kröfum fólksins. Ríkissjóður verður auðvitaö að hafa efni á að lækka skatta. Og til þess þarf að hækka skatta. Það er í þágu fólksins. Þjóðin er þakklát fyrir þessa skattahækkun. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.