Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Side 6
6 MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1996 Fréttir Sandkorn i>v Rauða kross deild Suðurnesja aðstoðar þá sem minna mega sín: Hef grun um að fólk leiti þangað sem það þekkist ekki - aðstoðum þegar við fáum ábendingar, segir Gísli Viðar Harðarson formaður Gísli Viöar Haröarson, formaöur Rauöa kross deildarinnar á Suöurnesjum, með fatnað sem Suöurnesjamenn hafa gefiö deildinni. DV-mynd Ægir Már DV, Suðurnesjum: „Það er töluvert erfitt að nálgast þá sem minna mega sín. Svæðið er ekki stórt og hér þekkjast allir. Ég hef grun um að það fólk leiti frekar til Reykjavíkur þar sem það þekkist ekki. Stoltið hjá fólki er nú þannig að það er ekki tilbúið að láta líta á sig sem ölmusufólk þó það þurfi virkilega á hjálp að halda. Við fáum hins vegar ábendingar um fólk sem lendir í timabundnum vandræðum og þá gerum við ráðstafanir í sam- vinnu við prestana og aðstandendur um að styrkja það fólk,“ sagði Gisli Viðar Harðarson, formaður Rauða kross deildar Suðurnesja, í samtali við DV í gær. Borist hafa 42 hjálparbeiðnir um jólaaðstoð til Rauða kross deildar- innar á Suðumesjum. Gísli Viðar segir að mest sé um að sama fólkið komi ár eftir ár. „Það var erfitt hjá því fólki að kemur hingað í fyrsta skipti og biðja um aðstoð. í dag eru þau spor ekki eins þung og í upphafi. Það eru mest einstaklingar sem óska eftir aðstoð og fáir í vinnu. Þetta er að mestu leyti öryrkjar og atvinnulaus- ar einstæðar mæður með mörg böm. Fólk hefur komið hingað og óskað eftir fjárhagsstuðningi og hef- ur deildin látið fólkið hafa matarút- tektir í stórmörkuðum á svæðinu. Fyrir þessi jól hefur verið úthlutaö nú þegar á fjórða hundrað þúsund. Við miðum við 5 þúsund krónur á bam en til einstaklinga fer það eftir aðstæðum hjá þeim og getur upp- hæðin verið 5-10 þúsund. Hæsta upphæð sem við höfum greitt er 25 þúsund,“ segir Gísli Viðar. En deildin hefur einnig látið fólk hafa fatnað sem þurfa á því að halda. Gísli Viðar segir að Suður- nesjabúar séu duglegir að senda fatnað til deildarinnar, um 2 tonn á mánuði og mjög góðar flíkur. Rauða kross deildin á Suðumesjum á sitt eigið húsnæði á 2. hæð að Hafnar- götu 15 í Keflavík. í deildinni em rúmlega 400 mjög öflugir félagar. „Auðvitað hefur þetta áhrif á okk- ur sem störfum við deildina. Mestu áhrifín eru fyrst og fremst hvað við gleðjumst yfir því þegar við sjáum að hjálpin gerir gagn og hvað gleðin er mikil hjá þvi fólki sem fær þessa aðstoð. Þetta er orðinn hluti af jóla- undirbúningi þess fólks sem starfar hér í deildinni," sagði Gísli Viðar Harðarson. -ÆMK Allt sé þá þrír sé Hákon Aðalsteinsson, sá landskunni hagyrðingur, orti ný- lega vísu sem fræðingar segja að slái ölí met. Vísan var ort í tilefni áttræðisafinælis Erlings nokkurs á Austfjörðum og grafin á tréhólk undir vínflösku sem Erlingi var gefin. Það sem gerir vís- una svo sér- staka er að hún er ort undir bragar- hætti sem nefnist Jafn- mælt“ en fyr- ir munu að- eins tvær slíkar visur, ein úr Hátta- tali Lofts ríka frá þvi um aldamótin 1500 og ein eftir Einar E. Sæmund- sen frá fyrri hluta þessarar aldar. Enda mun Hákon sjálfur hafa sagt eftir aö hann samdi þessa þriðju , jafnmæltu“ vísu íslandssögunnar að „allt sé þá þrír sé“. Ég yrki samt Hákon hringdi í Ragnar Inga bróðir sinn til að leyfa honum að heyra vísuna en Ragnar Ingi er landsfrægt ljóðskáld og í hópi mestu fræðimanna um íslenskan kveðskap fyrr og nú. Ragnar Inga mun hafa sett hljóðan er hann heyrði vísuna en loks þegar hann fékk málið sagði hann: „Jæja, Hákon minn, þetta er alveg íjómandi góð vísa hjá þér...en ég ætla samt að halda áfram að yrkja.“ Og þá er það ,jafn- mælta“ Hákonar: Önn daga, öll saga ei bíður, fram líður. Fljótt rekkar fast drekki, full klingi höfðtngja. Y1 veiti ölteiti áttræðum þul fræða. Ljúf mynd og lífs yndi lof syngi Erlingi. Fjöldaatvinnuleysi á Þingeyri: Sjáum ekki að lausnin felist í smá- skammtalækningum — segir Einar K. Guðfinnsson alþingismaður Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigöisráöherra haföi frumkvæöi aö námskeiöum í Hverageröi og heimsótti Heilsustofnun NLFÍ þegar þau voru kynnt. Hér er hún meö læknum, hjúkrunarfólki og fyrrverandi reykingafólki aö kynningu lokinni. DV-mynd Kristján Heilsustofnun NLFÍ í baráttu gegn reykingum DV, Selfossi: „Við þingmenn Vestfjarða erum að vinna að lausn á máli Þingeyr- inga. Fyrst og fremst höfum við beitt okkur fyrir því að Byggða- stofnun komi að þessu máli og þar hefur verið brugðist jákvætt við öll- um okkar óskum,“ segir Einar K. Guðfinnsson alþingismaður um at- vinnuleysisvanda á Þingeyri þar sem tugir manna ganga atvinnu- lausir eftir að frystihúsinu var lok- að og skip og kvótar fluttir af staðn- um. Hraðfrystihús Fáfnis hefur undanfarna mnánuði verið að mestu verklaust og þar starfa að- eins örfáir einstaklingar og flestir á skrifstofu fyrirtækisins. Nýlega var útgerð frystitogara Þingeyringa, Sléttaness ÍS, sameinuð undir merkjum Básafells á ísafirði. Einar Kristinn segir að þingmenn séu ekki inni á öðrum lausnum á Þingeyri en varanlegum. „Við teljum smáskammtalækn- ingar ekki hafa neinn tilgang. Markmiðið er að finna varanlega lausn og sú lausn felst í því að tengja atvinnulífið á Þingeyri við öflug sjávarútvegsfyrirtæki í ísa- fjarðarbæ. Það hefur því miður enn ekki tekist en ég bind vonir við að það takist i tengslum við þetta starf okkar,“ segir Einar Kristinn. í Hveragerði standa nú yfir nám- skeiö á vegum NLFÍ fyrir fólk sem vill hætta að reykja. Eitt námskeið hefur verið haldið og var því vel tekið af því fólki sem þátt tók. Námskeiðinu var komið á að beiöni heilbrigðisráðherra og var Ingibjörg Pálmadóttir stödd í Hvera- gerði þegar starfsfólk stofnunarinn- ar og þátttakendur fyrsta nám- skeiðsins kynntu sér efni þess. Þetta er fyrsta verkefni Heilsu- skóla NLFÍ og þegar hafa verið haldin nokkur námskeið og 60 ein- staklingar hafa útskrifast. Hvert námskeið stendur yfir í 6 daga og koma þátttakendur eingöngu til að læra að hætta að reykja. Áhersla er lögð á að þátttakendum líði vel, þeir upplifi notalegt og öruggt umhverfi þar sem þeir fá stuðning eftir þörf- um. Meginuppistaða í námskeiðunum er andleg, líkamleg og félagsleg upp- bygging. Nýtt er gnmdvallarmeð- ferð heilsustofnana, það er að byggja á heilsusamlegu lifemi. Lík- amsþjálfun, slökunar- og hugarþjálf- un og hollt mataræði. Sjálfsefling og ábyrgð á eigin heilsu er áberandi þáttm- í dagskrá námskeiðanna. í samtali DV við einn þátttakanda kom fram að hann hefði reynt marg- ar aðferðir til að hætta að reykja. Á þessu námskeiði væri komið alveg úr nýrri átt að viðfangsefninu og hann var þess fullviss að meiri ár- angur næðist i Hveragerði en náðst hefur hingað til. Dansleikia- búnaður? Hin hrottalega líkamsárás sem ungrn- maður varð fyrir á dansleik í Skagafirði fyrir skömmu hefur vak- ið upp nokkrar deilur um hver hafi verið tildrög árásarinnar. Sumir halda því fram að árás- in hafl átt sér langan að- draganda og verið fyrir- fram skipu- lögð en aðrir telja að svo hafl ekki ver- ið. 1 þeírra hópi er sýslu- maðurinn á Sauðárkróki sem segir árásina ekki hafa verið undirbúna fyrirfram. Þeir sem hafa velt þessu máli fyrir sér hafa m.a. í kjölfar þeirra orða brotið um það heilann hvort hafhaboltakylfa þyki sjáifsagð- ur búnaður á dansleiki i Skagafirði en sliku áhaldi var beitt við árásina með hörmulegum afleiðingum. Á ferð og flugi Körfuboltaliðin í úrvalsdeildinni leggja svo sannarlega sitt af mörk- um um þessar mundir tO að efla starfsemi Flugleiöa. öll liðin fengu til sín erlenda leikmenn í upphafi keppnistíma- bilsins sem komu að sjálf- sögðu til landsins með Flugleiðum en margir þeirra hafa fengiö reisupassann og verið send- ir heim og aðrir fengnir í þeirra stað. Sandkomsrit- ara telst svo til að nú sé búið að reka a.m.k. 5 erlenda leikmenn og einn erlendan þjálfara og eflaust koma svo aðrir í þeirra stað og svo e.t.v. enn aðrir í þeirra stað standi þeir sig ekki. Umsjón: Gylfi Kristjánsson -rt Vinningar sem dregnir voru út í HAPPI í HENDI síðastliðið föstudagskvöld komu í hlut eftirtalinna aðila. Birt með fyrirvara um prentvillur. Birgir Jóhannsson, Vesturbergi 72, Reykjavík Eskihlíð 8a, Reykjavík Birgir Sigurbjartsson, Hálúni 4, Reykjavík Greniteig 13, Keflavík Guögeir Arngrímsson, Faxabraut 42d, Keflavík Guðmundur R. Logason, Suöurgötu 80, Hafnarfiröi Gunnlaugur Róbertsson, , Heiðarbraut 29, Höfn ísafold Þorsteinsdóttir, Hjallabraut 6, Þorlákshöfn Jóhannes Jakobsson, Kríuhólum 2, Reykjavík LárusJón, Garðavegi 4, Hafnarfirði Mariné Stefánsdóttir, Vanabyggð 7, Akureyri María Asgrfmsdóttir, Hamragerði 29, Akureyri Marinó Traustason, Flétturima 26, Reykjavík RagnarIngi Árnason, Þinskálum 6, Hellu Shangwan Sinpru, Faxabraut 10, Mosfellsbæ Sígurbjörn Guðnason, Haukshólum 5, Reykjavík Símun Sigurðsson, -■ Kelifarseli 5, Reykjavík Þormóður R. Sváfnisson, Hrísalundi 109, Akureyri Vinningshafar gcta vitjað vinninga hjá Happdraúti Háskóla íslands, Tjarnargótu x,, tot Reykjavík, sitni 563 8300. -K. Ein.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.