Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1996
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Fjölmennar kröfugöngur um gjörvallt Perú í gær:
Tugþúsundir krefjast
lausnar sendiráðsgísla
Tugþúsundir Perúmanna gengu
um götur borga og bæja landsins í
gær og kröfðust þess að marxískir
skæruliðar slepptu um 340 gíslum
sem þeir halda í bústað japanska
sendiherrans í höfuðborginni Lima
og hvöttu til friðsamlegrar lausnar
gíslamálsins.
Karlar og konur á öllum aldri
sungu þjóðsönginn, veifuðu per-
úska þjóðfánanum og sungu: „Frið-
ur, friður. Frelsi til handa gíslun-
um.“
í Lima var mannfjöldinn klædd-
ur í grænt og hvítt, tákn friðar og
vonar.
„Með göngu okkar viljum við
sýna samstöðu með samborgurum
okkar, gíslunum. Það hefst ekkert
með ofbeldi. Við viljum frið og ró,“
sagði Gloria Canales sem hélt í
hönd dóttur sinnar í göngunni.
Margir óbreyttir borgarar óttast
að Alberto Fujimori, forseti Perús,
hafi gengið of langt þegar hann
kallaði gíslatökumennina hryðju-
verkamenn í sjónvarpsávarpi til
þjóöarinnar og að það muni hafa í
för með sér blóðbað.
í ávarpi sínu hvatti Fujimori
skæruliða Tupac Amaru hreyfing-
arinnar til að leggja niður vopnin
og sleppa gíslunum.
„Þannig verður hægt að útiloka
að valdi verði beitt og út frá því
verður hægt að semja um útgöngu-
leið,“ sagði forsetinn í ávarpinu að-
faranótt sunnudagsins.
Hann neitaði alfarið að láta und-
an kröfum skæruliðanna og sleppa
rúmlega fjögur hundruð félögum
þeirra sem sitja nú í fangelsum
landsins.
„Það er ljóst að það samræmist
ekki lögum. eða þjóðaröryggi að
láta lausa þá sem hafa framið morð
og staðið fyrir hryðjuverkaárás-
um,“ sagði Fujimori.
Um tuttugu vel vopnaðir skæru-
liðar réðust inn í sendiherrabú-
staðinn á þriðjudagskvöld og tóku
í gíslingu mikinn fjölda málsmet-
andi manna af mörgum þjóðem-
um.
Ryutaro Hashimoto, forsætisráð-
herra Japans, spáði því í gær að
lausn gíslamálsins væri enn langt
undan. Þá vísuðu japanskir emb-
ættismenn á bug í gær fréttum
breska blaðsins Independent um
að skæruliðarnir hefðu krafist
margra milljarða dollara lausnar-
gjalds fyrir starfsmenn ýmissa
stórfyrirtækja sem væru í hópi
gíslanna. Reuter
Hindranir I vegi biörgunar gíslanna í Perú
fia> er einkum tvennt sem gæti komi> í veg fyrir hugsanlega björgun gjslanna sem hafa veri> í haldi skæruli>a I
bústa> japanska sendiherrans í Lima í Perú frá flví á flri>judagskvöld. í fyrsta lagi eru fleir og gíslatökumennirnir
á fmsum stö>um I byggingunni og í ö>ru lagi gætu flrengslin komi> í veg fyrir björgun.
Sta>setning gísUnna
Margt fólk á loku>u svæ>i
Mestur flungi áhlaups öryggissveita
yr>i hér. Skærulhar gætu skflt sér
á bak vi> gíslana
Nau>synlegt er a> öryggissveitirnar ver>i tíu sinnum
fjölmennari en skæruli>ar ef reynt ver>ur a> bjarga
gíslunum, sem fif >ir a> rúmlega 600 manns yr>u saman
komnir á mjög litlum bletti
•
TSkæmlbar
(15 to 27)
lllö
MMfífíss
ttmwma.
Gíslunum hefur veri> skipt upp í hópa og eru fiestir á fyrstu hæ> flar sem fleir ynu i skothrí>inni
mi>ri ef öryggissveitir leg>u til atlögu
2.hæ>
Mikilvægustu gislarnir í augum skæruli>a.
Fáar inngöngudyr gefa skæruli>um meira
svigrúm til a> taka gislana af lífi ef nau>syn
krefur
@ A>al-
inngangur
@ Bílskúr
@ Svefnherbergi á
Eldhús
^ Danssalur
Veislutjald
Fáir inngangar eru á a>albyggingunni
á sendirá>sló>inni og flví njóta örygg-
issveitirnar ekki eins li>smunarins
Sksrulbar MRTA
Milli 15 og 27 marxískir
skæruli>ar sem kreflast
fless a> félögum fleirra
ver>i sleppt úr
fangelsi
Vita> er a> leyniskyttur skæru-
li>a, vopna>ir rifflum me> sjón-
aukum og innrau>um mi>unarbúna>i,
eru vi> mikilvæga glugga á efri hæúnni
REUTERS
Marcello Mastroianni
jarðsettur í Róm í gær
Marcello Mastroianni, einhver
frægasti kvikmyndaleikari Evr-
ópu og goðsögn í heimalandinu
ítaliu, var jarðsettur i gær eftir líf-
lega minningarathöfn úti undir
berum himni í hjarta Rómar.
Hundruð óbreyttra ítala troð-
fylltu lítiö torg fyrir framan ráð-
hús borgarinnar þar sem kista
leikarans stóð á rauðum dregli.
Lítill rósavöndur lá ofan á kist-
unni.
Ekkja Mastroiannis, Flora
Carabelia, Barbara dóttir þeirra
og leikkonan Sophia Loren sátu
þöglar hjá þegar vinir minntust
leikarans sem lést af völdum
krabbameins í Paris í síðustu
viku, 72 ára að aldri.
Franska léikkonan Catherine
Deneuve, fyrrum ástkona Mastro-
iannis, og dóttir þeirra, Chiara,
voru ekki viðstaddar.
Lík Mastroiannis lá á viðhafn-
arbörum í ráðhúsinu um helgina
og komu fimmtán þúsund manns
Sophia Loren.
til að kveðja hann hinstu kveðju.
„Harmurinn er mikill, rétt eins
og þegar móðir mín dó. Kafla í lífi
minu er lokið,“ sagði Sophia Lor-
en sem lék á móti Mastroianni í
mörgum kvikmyndum. Reuter
Skotárás og sprengjutilræði á Norður-írlandi:
Börn syngja fyr-
ir þverrandi frið
Hundruð ungmenna úr röðum
mótmælenda og kaþólikka komu
saman í nístingskulda í miðborg
Belfast á Norður-írlandi í gær til að
syngja jólalög í þágu friðar sem
margir íbúar landsins álíta að sé nú
senn úti.
Einni klukkustundu síðar sprakk
bílsprengja og særði illa kaþólskan
mann. Sá atburður varð aðeins til
þess að auka enn á ótta manna um
að átök milli kaþólikka og mótmæl-
enda mundu blossa upp að nýju.
Enginn lýsti ábyrgð á sprengju-
árásinni á hendur sér en lýðveldis-
sinnar töldu hana vera verk skæru-
liða sambandssinna sem eru fylgj-
andi tengslunum við Bretland.
Jólalagasöngvaramir komu sam-
an á stað þar sem Bill Clinton
Bandaríkjaforseti stóð á aðventunni
í fyrra en friðarandinn, sem hann
mælti fyrir í stuttri heimsókn sinni
til Irlands, hefur nú nánast alveg
horfið.
Bilsprengjan, sem særði vel
þekktan lýðveldissinna, fylgdi í kjöl-
far skotárásar írska lýðveldishers-
ins (IRA) inni á barnaspítala á
föstudag og olli mikilli reiði allra,
sama hvar í flokki þeir stóðu.
„Andrúmsloftið er slæmt," sagði
einn stjórnmálamanna sambands-
sinna aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir skotárásina á bama-
spítalanum á föstudag. Einn lög-
regluþjónn særðist lítillega í þeirri
árás sem beindist að stjórnmála-
manni mótmælenda sem var hjá al-
varlega veiku bami sínu.
„Þegar menn taka að skjóta fólk á
bamadeildum sjúkrahúsanna er
ekki mikil von eftir fyrir þetta
land,“ sagði kona sem hlýddi á jóla-
sönginn.
Reuter
Bændur slaka á klónni
Grískir bændur fiarlægðu í
gær vegatálma sem hafa valdið
miklu öngþveiti í samgöngum
landsins undanfama 24 daga.
Komið að Arafat
ísraelsmenn hafa sagt sendi-
manni Clintons Bandaríkjafor-
seta að það sé
nú Yassers
Arafats, leið-
toga Palestínu-
manna, að sjá
til þess að
komist verði
að samkomu-
lagi um brott-
flutning ísraelskra hermanna
frá Vesturbakkabænum Hebron.
í steininn
ísraelskur herdómstóll dæmdi
tvo Palestínumenn í lífstíðar-
fangelsi fyrir að aðstoða menn
úr röðum Hamas skæruliða sem
grönduðu tugum ísraelsmanna í
sjálfsmorðsárásum.
Týnd börn
Starfsmenn Rauða krossins,
sem fylgjast með ílóttamönnum
frá Rúanda á heimleið, segja að
mikið sé um að börn verði við-
skila við foreldra sína.
Snurða á þráðinn
Snurða hijóp á þráðinn hjá
belgísku lögreglunni í gær í leit
hennar að hugsanlegu leyniher-
bergi í námum þar sem barna-
níðingurinn Dutroux kann að
hafa haldið fómarlömbum sín-
um. Gijóthrun í stiga kom í veg
fyrir leit.
Vopnahlé framlengt
Stjómarherinn í Mið-Afríku-
lýðveldinu og uppreisnarmenn
hafa framlengt vopnahlé sitt um
einn mánuð.
Major hvergi banginn
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, er hvergi banginn og
segist hlakka
til komandi
kosningabar-
áttu þótt hann
hafi misst
þingmeiri-
hluta sinn þótt
flokkur hans
sé klofinn í af-
stöðunni til ESB og þótt Verka-
mannaflokkurinn njóti mun
meiri vinsælda.
Fiæðir á Spáni
Vegir rofnuðu og hundrað
manna þurftu að flýja að heiman
vegna flóða af völdum úrheffis-
rigninga á Suður-Spáni í gær.
Andstaða Dana linast
Danskir kjósendur hafa linast
í andstöðu sinni við sameigin-
lega mynt Evrópusambandsins
ef marka má nýja skoðanakönn-
un sem gerð var fyrir blaðið
Berlingske Tidende.
Hamar og sigð á brott
Franskir kommúnistar
ákváðu á flokksþingi um helg-
ina að hafa hamar og sigð ekki
lengur sem merki flokksins.
Með og á móti Slobodan
Þúsundir manna, ýmist með
eða á móti Slobodan Milosevic
forseta, þustu
út á götur
borga og bæja
Serbíu í gær
vegna yfirvof-
andi úrskurð-
ar um meint
kosningasvik
stjómvalda.
Stjórnarandstæðingar þykjast
vita að úrskurðað verði þeim í
hag.
Nýjar vísbendingar
Franska lögreglan hefur feng-
ið nýjar vísbendingar í rann-
sókn sinni á morði breskrar
skólastúlku í sumar og leitar nú
manns sem nauðgaði öðrum
breskum táningi nokkmm
klukkustundum áður en morðið
var framið. Reuter