Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Page 9
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1996
9
DV
Fréttir
Nýr meirihluti D-lista og F-lista myndaður i Vesturbyggð:
Stríðsástandi ekki lokið og deilt
um val á næsta bæjarstjóra
- glímum við mikinn Qárhagsvanda, segir Finnbjörn Bjarnason, F-lista
„Þetta virðist vera eitthvert sóló
hjá Finnbimi Bjamasyni, efsta
manni á F-listanum, því félagar
hans em margir hverjir ekki sam-
mála honum,“ segir Anna Jensdótt-
ir, oddviti framsóknarmanna í Vest-
urbyggð.
„Svarið, sem við gáfum sjáifstæð-
ismönnum og óháðum, var að við
væmm tilbúin að hlusta á þaö sem
þeir hefðu fram að færa. Jafnframt
að við værum ekki tilbúin til þess
að ráða Úlfar Thoroddsen, fyrrver-
andi sveitarstjóræ Patreksfjarðar,
sem næsta bæjarstjóra," segir
Anna.
Nýr meirihluti var myndaður i
Vesturbyggð um helgina með D-
lista Sjálfstæðisflokks og F-lista
Óháðra en það er í þriðja sinn á
þessu kjörtímabili sem það er
reynt. í fyrsta meirihlutanum sátu
B-listi, F-listi og A-listi en A-listinn
klauf samstarfið og myndaði meiri-
hluta með D-lista. A-listinn klauf
einnig þann meirihluta og D-listi
situr nú með F-lista og bæjarstjór-
inn Gísli Ólafsson víkur vegna óá-
nægju með störf hans. Bæjarstjóri
hefúr ekki verið valinn og gegnir
Gísli Ólafsson því ennþá því starfí.
Rætt hefur verið um að Framsókn-
armenn komi inn í samstarfið á síð-
ari stigum.
„Þeir virðast vilja fá okkur inn í
samstarfið. Okkar hugmynd var sú
að allir flokkar ynnu saman án
meiri- og minnihluta og ég bauð
upp á það á fimmtudag," segir
Anna.
Eina úrræðiö
„Það verður að koma í ljós hvem-
ig nýja meirihlutanum tekst til en
ég held að þetta hafi verið eina úr-
ræðið,“ segir efsti maður á F-list-
anum Finnbjöm Bjamason. Hann
segir að aðrar meirihlutamyndanir
Frá Patreksfirði sem er hluti af Vesturbyggð.
hafi verið fullreyndar og hann hafi
ekki verið tilbúinn að reyna það aft-
ur.
Opið að ræða við B-lista
„B-listanum hefur verið boðið að
ræða um að hann komi inn síðar en
ég veit ekki hver afstaða hans til
þess er. Það getur vel verið að fólk
átti sig og breyti sinni afstöðu. Frá
mínum bæjardymm séð væri alveg
opið að ræða við B-listann,“ segir
Finnbjörn.
Finnbjöm vill ekki ræða hver
verður nýr bæjarstjóri en segir
nokkur nöfn hafa veriö nefnd. Hann
staðfestir heldur ekki að Úlfar
Thoroddsen verði næsti bæjarstjóri.
„Ég held að það sem sumir kalla
stríðsástand sé ekki eins alvarlegt
og talað er um. Ég held að fólk
þyrfti að skilja að við þurfum aðal-
lega að glíma við stóran fjárhags-
vanda,“ segir Finnbjörn. -em
Jóhannes Leifsson gullsmiöur var einn af þeim mörgu sem renndu í Stóru-
Laxá í Hreppum síðasta sumar og veiddi vel. Óbreytt verö veröur á veiöileyf-
um í hana á milii ára. DV-mynd KSS
Jólaglaðningur Stangaveiðifélagsins:
Norðurá hækkar
Verð á veiðileyfum í laxveiðián-
um er aðeins farið að skýrast á
næsta sumari, byrjað er að selja
veiðileyfi í ámar og í mörgum
þeirra gengur það vonum framar.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur sendi
út fyrir fáum dögum verð á veiði-
leyfunum í þeirra veiðiám á sumri
komanda og virðist sem lítil hækk-
un sé á milli ára. í flestum er verð-
ið óbreytt. Norðurá í Borgarfirði
hefur verið þrjú sumur í röð feng-
sælasta laxveiðiáa og þar hækka
veiðileyfin óverulega á dýrasta tím-
anum. Dýrasti tíminn var í fyrra
47.600 en verður núna 48.900 sem er
ekki mikil hækkun.
En kíkjum aðeins á verð hjá þeim
Stangaveiðifélagsmönnum: Verðið í
Elliðánum er óbreytt á milli ára,
var 7.400 hálfur dagurinn í fyrra og
verður það aftur í ár. Óbreytt verð
er í Gljúfurá í Borgarfirði og er dýr-
asti dagurinn á 16.400. Norðurá í
Borgarfirði hækkar aðeins á
dýrasta tímanum en Norðurá tvö er
á sama verði og í fyrra. Þar er dýr-
ast 17.600. Smáhækkun er í Hítará á
dýrasta tímanum, var 24.800 í fyrra
en verður núna 25.200. Stóra-Laxá
verður á sama verði og í fyrra en
þar gekk feiknavel að selja veiði-
leyfin í fyrra. Dýrasti dagurinn í
henni er á 12.100 í sumar. Sogið er á
sama verði og í fyrra en dýrasti dag-
urinn er seldur á 13.300.
Við höfum heyrt að mikil eftir-
spum sé eftir veiðileyfum í Leir-
vogsá, Álftá og Rangárnar. Eins
klikkar salan ekki í Laxá á Ásum
frekar en fyrri daginn.
Jólaglaðningurinn frá Stanga-
veiðifélaginu er góður i ár enda
ekki tilefhi til að hækka veiðileyfin
eftir frekar slakt veiðisumar i fyrra.
Sölumáin í Laxá í Kjós, þar sem
enginn vissi hver mundi eiga að
selja veiðileyfin næsta sumar vegna
þess að tveir samingar voru í gangi,
virðast vera að skýrast. Englending-
urinn, sem leigir ána, og Ásgeir
Heiðar munu selja veiðileyfi en Páll
í Pólaris ekki.
G. Bender
Jeppabifreiö lenti í árekstri á mótum Hringbrautar og Njarðargötu á
laugardag og hafnaöi á umferöarvita. Hér sést frá slysstaö. DV-mynd S
Dagur hinnar kæstu skötu runninn upp:
Skatan æðislega góð
með öllu tilheyrandi
- segja Rúnar Júlíusson og María Baldursdóttir
Dy Suðurnesjum:
„Skatan er æðislega góð með öllu
tilheyrandi. Við reynum alltaf að
hafa skötu á Þorláksmessu. Við höf-
um reynt að skapa þessa ákveðnu
hefð með að hafa hana á Þorlák,“
sögðu hjónin landsþekktu, Rúnar
Júlíusson stórpoppari og María Bald-
ursdóttir söngkona og fyrrum fegurð-
ardrottning íslands, í samtali við DV.
í dag, á Þorláksmessu, er skötu-
dagur og komast landsmenn ekki
hjá því að finna skötulykt. Þeir sem
ekki þola lyktina hafa hlaupið að
heiman þann dag. Hjá Rúnari og
Maríu hefur verið nóg að gera fyrir
jólin eins og hjá öðrum landsmönn-
um. Þau segjast vera búin að kaupa
allar gjafimar og pakka þeim inn.
María segir að mikilvægt sé að fólk
stressist ekki fyrir jólin. Hún hefur
mjög gaman af jólaundirbúningi.
María og Rúnar eyða sínum jólum í
faðmi fjölskyldunnar. En Rúnar hef-
ur nóg að gera yfir hátíðarnar við
að spila og skemmta fólki. -ÆMK
Rúnar og María voru í gær búin aö tryggja sér skötu til aö matreiða meö tilheyrandi fnyk í dag. Þau segja þaö vera
hefö á heimilinu aö hafa skötu á Porláksmessu. DV-mynd Ægir Már
Yfir á rauðu og ók á jeppa
Árekstur varð á gatnamótum
Hringbrautar og Njarðargötu á
laugardag.
Ökumaður fólksbifreiðar ók yfir
á rauðu ljósi og lenti á jeppabifreið.
Við höggið fór jeppinn á umferðar-
vita.
Ökumenn beggja bifreiða slösuð-
ust við áreksturinn og voru fluttir á
slysadeild. Meiðsl þeirra reyndust
minni háttar.
-RR