Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Qupperneq 12
12
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1996
Spurningin
Hvert er uppáhalds-
jólalagið þitt?
Torfi Magnússon nemi: Last
Christmas er dúndurgott.
Hrefna Björn Sigvaldadóttir
nemi: Snjókom falla.
María Björk Þórsdóttir nemi: Ég
hlakka svo til, með Svölu Björgvins-
dóttur.
Einína Sif Signýjardóttir nemi:
Jólahjól með Sniglabandinu er upp-
áhaldslagið mitt.
Ingvi Brynjar Sveinsson nemi:
Jólahjólið.
Jón Þór Guðbjörnsson nemi:
Senn koma jólin.
Lesendur
Hvar er verðbólgan?
Verðlag og vinnumarkaður
Vísitala neysluverðs 178,5 10.96
Veröbólga-3 mán. 3,7% 10.96
-ár 2,1% 10.96
Vísit. neyslu - spá 178,7 11.96
(Fors.: Gengi helst 179,0 12.96
innan +/- 6% marka) 180,0 01.97
Launavísitala 148,0 09.96
Árshækkun-3 mán. 0,3% 09.96
-ár 5,1% 09.96
Kaupmáttur-3 mán. 2,7% 07.96
-ár 3,7% 07.96
DV
Tryggvi Bjarnason skrifar:
Margar verðhækkanir hafa kom-
iö fram undanfarna mánuði og
einnig á þjónustu. Engin mælist
samt verðbólgan. En strax er talað
um verðbólgu ef einhverra hækk-
ana gætir hér hjá launafólki og sagt
að verðbólgan fari á fljúgandi ferð.
Eitthvað er nú bogið við slíkan út-
reikning. - Og alltaf situr launþeg-
inn eftir þegar gerðar eru lagfær-
ingar á vísitölukerfinu.
Einfalt dæmi. - Tíu stykki af
kleinum kostuðu fyrir 9 mánuðum
129 kr. í júlí á þessu ári 159 kr. og
svo í nóvember sl. 179 kr. Og þetta
er ekki eina dæmið. Bakarísvörur
hafa hækkað i verði, án þess að ég
hafi séð það koma fram í vísitöluút-
reikningum. Hækkanimar taka
einfaldlega gildi líkt og hjá ríkinu
og einokunarstofnunum þess.
Lækkun á olíuvörum kemur
heldur aldrei fram hér á landi eftir
miklar lækkanir erlendis. Hún
myndi þó lækka vísitöluna hér veru-
lega. Samtryggingin er hins vegar
svo mikil hér í þessum verslunar-
geira að enginn árangur næst. Dæmi
um þetta: Bensínfatið (200 lítrar)
kostaði í júlí sl. um 230 dollara, fór
svo í 235 dollara í lok júlí. Þá varð
hækkun hér um leið og tilkynnt að
engar birgðir væru í landinu. Síðan
lækkaði verðið á olíufatinu í 226
dollara í ágúst en engin verðlækkun
hér!
Um miðjan september hækkaði
verð á olíufatinu aftur í 234 dollara
og þá hækkað bensínið hér sam-
stundis. Er þetta ekki einkennilegt?
Og allt byggt á vísitöluútreikningi!
Auðvitað er þetta stórgallað verslun-
arkerfi. Og allt byggt á vísitöluút-
reikningum! Ég hef spurst fyrir um
hvort hér sé um að ræða hækkun
vegna flutningskostnaðar en svo er
ekki. Hvaða hækkanir eru þetta þá?
Og enn spretta upp bensínstöðvar
en engin verðlækkun, utan hvað
sums staðar er afsláttur, þetta 2 kr. á
lítra, sé ekki veitt þjónusta við að
dæla bensíni á bílinn. En verkafólk
er á lágum launum þar sem annars
staðar. Verst að Irvingbræður
skyldu ekki koma hingað, þá hefði
samkeppnin í þessum geira lækkað
vísitölu og verðbólgu og væntanlega
margt annað sem virðist svo ein-
kennilegt í allri einkavæðingunni.
Er hér kannski ekki um að ræða
einkavæðingu, bara einokunarvæð-
ingu? Einokunarvæðingin er verri
en ríkisrekstur því það er rikið sem
tapar í formi gjaldanna. Þetta á einn-
ig við um einkarekstur i mörgum til-
fellum, eins og sjá má í útflutningi á
vinnuafli. Þar hafa tapast umtals-
verðir gjaldaliðir fyrir ríkið. Einnig
í svokallaðri „útílöggun" fyrirtækja.
Gegn þessu er ekki spornað, enda
rikisstjórnin sífellt að skera niður til
Skattafarsinn á Alþingi
Ástráður hringdi:
Auðvitað er það hreinn skrípa-
leikur - farsi - sem Alþingi hefur
nú opinberað þjóðinni, að hækka
skattheimtuna til bráðabirgða, eins
og það er orðað, til þess að geta haft
eins konar borð fyrir báru þegar
kemur að kjarasamningum í byrjun
ársins. Það er hins vegar síður en
svo grín að þetta skuli geta gerst
fyrir augum alþjóðar.
Og enn eina ferðina: skattar ein-
staklinga munu nú hækka en fyrir-
tækjanna lækka! Eru þingmenn og
ráðamenn þjóðarinnar að gera sér
það að leik að fá alla þjóðina upp á
móti sér? Ég er sammála forseta ASÍ
sem segir að þetta gangi þvert á við-
horf almennings í landinu. Maður
veit satt að segja ekki hvemig ráða-
menn lands og þjóðar hafa hugsað
sér að mæta kjarabótum, sem nú
hljóta loks að verða að veruleika eft-
ir allar þjóðarsáttimar sem gerðar
hafa verið um að hreyfa ekki við
neinu öðru en kyngja verðhækkun-
um þegjandi á sl. þremur árum.
Ég legg til að Alþingi verði að
störfum þegar kjaraviðræður hefj-
ast á nýju ári því nú verður ekki við
það unað að samið verði um kjara-
bætur án þess að ríkisvaldið stað-
festi það sem um verður samið. Of
oft hefur það verið leikið að semja
við vinnuveitendur og svo komi rík-
ið og taki allt aftur umsvifalaust.
^▼•▼'▼,T |T» ( I M ? : |
i'g'j"**. ' ; i
„Þingvellir eru ekki og verða aldrei „helgistaður" í mínum huga. - Frá Þingvöllum, prestssetrið og kirkjan.
„Helgistaðurinn" Þingvellir?
Helga Einarsdóttir skrifar:
Þessar línur eru eins konar eftir-
þankar eftir að hafa heyrt og séð
viðtal í þættinum „Á elleftu stundu"
sl. miðvikudag þar sem rætt var við
þær Hönnu Maríu Pétursdóttur,
fyrrvemdi prest á Þingvöllum, og
Auði Eir Vilhjálmsdóttur, prest í
Þykkvabæ. - Þar kom talinu m.a. að
séra Hanna vitnaði til atviks er
varðaði bílaauglýsingu sem sýndi
bíl er þaut eftir Almannagjá og átti
að tákna bíl á leið til Vítis - að sögn
- og sem séra Hanna María harmaði
að skyldi gerast á þessum stað.
Þetta finnst mér einmitt vera at-
vik sem fellur í hóp þeirra óhæfu-
verka sem á Þingvöllum hafa verið
framin allt frá upphafi. - Frá mín-
um bæjardyrum séð em Þingvellir
ekki „helgistaður" nema síður sé.
Þar var jú Alþingi stofnað og haldið
um aldir þar sem menn veltust um
útúrdrukknir með vígaferlum í
bland. Þar var saklausum konum
drekkt án þess að yfirvöld depluðu
auga og önnur verk eftir því.
Ég held að flestir hafi haft ein-
hverja ógæfu af að tengjast Þing-
völlum með einum eða öðrum
hætti. Ég tel að menn geti þakkað
sínum sæla losni þeir frá Þingvöll-
um óskaddaðir á sál og líkama.
Þingvellir eru ekki og verða aldrei
„helgistaður" í mínum huga.
Morðin í
Tsjetsjeníu
Jóhanna skrifar:
Hörmulegar fréttir af morðum
á hjálparfólki á vegum Rauða
krossins, að störfum í Tsjetsjen-
íu, vekja upp spumingar. Við ís-
lendingar eigum fólk við hjálpar-
störf og höfiun þegar orðið fyrir
barðinu á óaldarliði í þessum
löndum, m.a. þegar ungur sjúkra-
liði var myrtur. Eigum við að
skipta okkur af málum í þessum
löndum sem bjóða ekki upp á
annað en ribbaldastjórnir og
hættu á hverju homi? Ég vil láta
draga alla aðstoð til baka. Við
megum ekki missa neinn að þarf-
lausu.
Aðstoð Mæðra-
styrksnefndar
Ingibjörg Sigurðard. skrifar:
Mikil örtröð er hjá Mæðra-
styrksnefnd sem úthlutar gjöfum
til bágstaddra. Ef þessi aðstoð fer
til þeirra sem raunverulega eiga
um sárt að binda efnahagslega
eða af öðrum ástæðum finnst
mér þetta gott mál. Ég hef sjálft
séð að þangað leitar líka fólk sem
mér sýnist ekki eiga erfitt. Og
sögur ganga um að hinir svoköll-
uðu nýbúar eða litað fólk frá
Asíulöndunum óski eftir aðstoð,
einkum notuðum fatnaði, til að
senda til heimalandsins eða það
selur I Kolaportinu. Illt er ef satt
reynist því þöi’fin á þessari að-
stoð er brýn en til bágstaddra
eingöngu.
Samvinna Flug-
leiða og South-
West Airlines
Helgi Gunnarsson skrifar:
í frétt Sjónvarps sl. miðviku-
dag kom fram líkt og í öðrum fjöl-
miðlum að Flugleiðir hf. og
bandariska flugfélagið South-
West Airlines hefðu gert sam-
starfssamning sín á milli. Gott
mál og fréttnæmt í sjálfu sér. En
ekki datt fréttamanninum hjá
Sjónvarpinu (fréttastjórinn sjálf-
ur í þetta sinn) í hug að spyrja
hvaða hagræöis íslenskir farþeg-
ar nytu af þessu. Verður þeim t.d.
boðið lægra verð á Atlantshafs-
leiðinni til Baltimore eða innan
Bandaríkjanna? Sitja þeir loks
við sama borð og hinir erlendu
farþegar sem kaupa miða alla
leið til Lúxemborgar um ísland?
Hvar er fréttagildi svona fréttar?
Vill BSRB
stéttaskiptingu?
Árni skrifar:
Fréttir þessa dagana segja að
opinberir starfsmenn séu famir
að ýta í aðildarfélög ASÍ fyrir að
leyfa sér að krefjast sama lífeyr-
isréttar og opinberir starfsmenn.
Hér er komið dæmið um eggið og
hænuna. Hverjir hafa stuðlað að
menntun grislinganna sem svo
hasla sér völl innan BSRB, BHM
og fleiri félaga innan opinbera
geirans? Og þetta eru þakkimar.
Ja svei! Nú koma þeir fram
ógrímuklæddir, þessir pilsfalda-
þénarar hjá BSRB, og boða aúkna
stéttaskiptingu milli sín og hinna
sem eiga að sitja við annað og fá-
tæklegra borð í lífeyrismálum
sem öðru.
Þenslulaus
svæði fá sitt
Halldór S. hringdi:
Þingmenn landsbyggðarinnar
fá nú sínu framgengt að stöðva
framkvæmdir á þéttbýlissvæðinu
hér syðra. Og hefur ríkisstjómin
samþykkt tillögu þess efiiis að út-
hluta 80 milljónum króna til at-
vinnuuppbyggingar á svokölluð-
um þenslulausum svæðum á
landsbyggðinni. - Allt verður
landsbyggðinni að vopni en
Reykjavík og nágrenni að sama
skapi niöurlægt. Þingheimur sér
dyggilega um það.