Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Blaðsíða 14
14
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1996
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aöstoöarritstjóri: EUAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11,
blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI14, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsinggr: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. r Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblaö 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds.
Frið og réttvísi
Einlægar óskir um frið á jörð og kærleika manna í
milli einkennir gjaman boðskap kirkjunnar manna á
jólum. Svo mun vafalaust einnig verða á þeirri jólahátíð
sem gengur í garð á morgun, aðfangadag.
Þótt slíkar frómar óskir fái kannski litlu áorkað um
sinn er þörfin á fórnfúsri baráttu fyrir friði meiri nú en
oft áður. íbúar flestra Vesturlanda geta að vísu fagnað
því að vera lausir við vopnuð átök innan landamæra
sinna eða við nálægar þjóðir en friður er því miður ijar-
lægt hugtak í fjöldamörgum ríkjum víða um heim. Oftar
en ekki em börnin helstu fómarlömb stríðsátakanna -
bömin sem kristnir menn telja gjaman að jólin eigi sérs-
takt erindi við.
Samkvæmt nýrri alþjóðlegri skýrslu hafa áttatíu og
tvær styrjaldir verið háðar í heiminum síðustu sex árin,
eða frá árinu 1990, og em margar enn í fullurn gangi. í
langflestum tilvikum er um að ræða borgarastrið af einu
eða öðm tagi. í slíkum átökum em fómarlömbin ekki
fyrst og fremst hermenn, eins og í stríðsátökum á milli
þjóða, heldur saklaus almenningur.
Fram kemur í þessari skýrslu að síðustu tíu árin hafi
um tvær milljónir bama látið lífið vegna stríðsátaka í
heimalöndum sínum. Mjög margir hafa slasast alvarlega
og búa við örkuml það sem eftir er ævinnar.
Suður-afríski biskupinn Desmond Tutu er einn þeirra
áhrifamanna sem hvatt hafa leiðtoga þjóða heims til að
binda enda á slík hryðjuverk sem eru framin með vopn-
um sem em að mestu leyti framleidd af nokkrum helstu
iðnríkjum Ameríku og Evrópu. Vesturlandabúar bera
þannig líka beina ábyrgð á ógnarverkunum.
Boðskapur kristinna manna um frið er nátengdur
kröfunni um réttlæti. Sá snjalli kennimaður Jón biskup
Vídalín orðaði þá hugsun vel fyrir tæpum þremur öld-
um í predikun á jólanótt:
„Réttvísin og friðurinn kyssi hvört annað, segir Dav-
íð. Þar segist vel enginn vera, sem ekki friðinn kjósi, en
allir vilja þó ekki réttlætið æfa, eins og hvört kunni ann-
ars án að vera. Þar sem ekki er réttvísi, þar er aldrei
friður. Þar sem ekki er hinn sanni friður, þar er aldrei
réttvísi.“
í jólapredikuninni, sem finna má í Vídalínspostillu,
gagnrýnir biskupinn enn frekar þann frið sem felst í að
látast ekki sjá óréttlætið í samfélaginu:
„Þegar veraldarinnar synir eru mektugir orðnir og
hafa brotið undir sig aðra, svo að enginn vogar að stíga
á það strá er þeim mislíkar, þá hyggja menn að þeir séu
í friði. En það er víst að þeir eð öðrum hafa ranglega til-
gjört hafa þá hvað minnstan frið er þeim sýnist einskis
ófriðar von vera, því friður þessi heldur jafhan stríð við
samviskuna og nær þeir hafa öngvan að berjast við þá
berjast þeir við sjálfa sig. Soddan friði eiga öll Guðs böm
að hafna, jafnvel þótt það sé nú um stundir friðsemi köll-
uð að líða og samþykkja eður að minnsta kosti látast
ekki sjá hinar verstu skammir og ódyggðir, og hlutsemi
kölluð ef nokkur vandlætir þar um.“
Það er að sjálfsögðu skylda allra góðra manna að líta
ekki undan þegar ranglæti og yfirgangur blasir við aug-
um, hvort sem er í eigin landi eða í fjarlægum heimsálf-
um, en láta sig varða um velferð náungans. Þá er frekar
von til að boðskapurinn um frið og réttvísi nái eyrum
þeirra sem enn fara með óffiði gegn meðbræðrum sín-
um.
DV óskar lesendum sínum og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla.
Elías Snæland Jónsson
Hverjir vilja búa við helstu umferðargötur höfuðborgarsvæöisins ef umferðaraukningin verður viðlíka og í
Stokkhólmi? spyr greinarhöfundur.
Sjálfbær sam-
göngustefna
vilja halda vinsældum
allra, eru skiljanlega
tregir til þess að kveða
upp úr um það hvernig
byggð skuli skipulögð
og að hverju skuli stefnt
í samgöngumálum til
þess að við getum búið í
meiri sátt við bílis-
mann. Sérfræðingar
OECD í þessum málum
hafa samt fyrir nokkru
bent á að þjóðir heims
verði að fmna leiðir til
þess að losna út úr þeim
vitahring sem þær eru
komnar í í þessum efh-
um og gerbreyta um
stefnu. Á það er bent að
samgöngukostnaður
OECD-landanna sé nú
„Fólk vill heldur ekki lengur þá
stefnu eöa stefnuleysi, þar sem
sífellt er verið að hleypa meiri
umferð á ofhlaðið umferðarkerfí
og inn í gróin íbúðarhverfí - oft að
nauðsynjalausu. “
Kjallarinn
Gestur Ólafsson
arkitekt og skipulags-
fræðingur
Undanfarna ára-
tugi hefur skipulag
umferðar, gatna og
byggðar hér á
landi, eins og
reyndar víða ann-
ars staðar, ein-
kennst af því að
haldið sé áfram ár
frá ári, með sömu
afstöðu og aðgerð-
um og áratugina á
undan. Þetta er
lika auðveldasta
leiðin fyrir þá sem
vinna að þessum
málum, skipuleggja
byggð, götur og
bílastæði, enda eru
miklir hagsmunir
oft tengdir þvi að
áfram sé haldið á
sömu braut hvert
svo sem hún kann að
liggja.
Miklir hagsmun-
ir
Þótt til séu aðferð-
ir til þess að skipu-
leggja byggð þannig
að fólk þurfi lítið á
einkabíl að halda þá
eru miklir hagsmun-
ir líka tengdir því að
fólk kaupi sem flesta bíla og aki
þeim sem mest. Því verður heldur
ekki neitað að bílar hafa fært þeim
einstaklingum, sem hafa efni á að
kaupa þá og reka, mikið frelsi. Á
hinn bóginn er það staðreynd að
hver meðalbíll býr til um tvö tonn
af C02 á ári auk hávaðamengunar,
slysa og annarra ytri áhrifa.
Kostnaður vegna umferðarslysa
á íslandi nemur nú um 16-18 millj-
örðum á ári auk þess sem hátt á
annað þúsund íslendingar týna líf-
inu eða slasast þrátt fyrir að um-
talsverðu fé sé varið í það að
hvetja fólk til þess að spenna belt-
in og aka varlega. Samt geta ekki
nærri allir átt bíl.
íslenskir stjómmálamenn, sem
orðinn milli 5 og 10% af lands-
framleiðslu (GDP) og fari ört vax-
andi.
Morgundagurinn ólíkur
gærdeginum?
Hér á íslandi er auðvelt að
spyrja hvort morgundagurinn
verði nokkuð ólíkur gærdeginum
og benda á að ísland sé stórt og að
hér sé oft hvasst - svo tínd séu til
þau rök sem oft em höfð uppi i
þessari umræðu. Samt er það svo
að fólk vill ekki, í sívaxandi mæli,
láta bjóða sér neikvæð áhrif bíl-
ismans. Fólk vill heldur ekki leng-
ur þá stefnu eða stefnuleysi þar
sem sífellt er verið að hleypa
meiri umferð á ofhlaðið umferðar-
kerfi og inn í gróin íbúðarhverfi
oft að nauðsynjalausu - þegar til
em hagkvæmari og vistvænni
leiðir til að leysa þessi mál.
Ef við horfum lengra fram í tím-
ann en til morgundagsins eða
næstu kosninga þá sjáum við þessi
mál ef til vill skýrar. Svíar gera nú
t.d. ráð fyrir að bifreiðaumferðin í
Stokkhólmi muni aukast um 80%
til ársins 2020 ef ekkert verður
gert. Við getum spurt okkur sjálf
að því hverjir vilji búa við helstu
umferðargötur höfuðborgarsvæð-
isins í framtíðinni ef umferðar-
aukningin verður viðlíka og þar.
Mikill ávinningur
Ennþá hafa íslenskir stjórn-
málamenn ekki tekið þessi mál
jafnfostum tökum og margir
kollegar þeirra erlendis. Þessi
mál eru síður en svo auðveld
viðfangs, þótt mikið sé hægt að
læra af reynslu annarra þjóða í
þessum efnum. Ávinningurinn
af betra skipulagi getur samt
verið mjög mikill, bæði hvað
varðar ódýrara samgöngukerfl,
styttri og færri ferðir, minni um-
ferðartafir, færri slys, betra um-
hverfi og vinsældir allra þeirra
sem láta sig þessi mál miklu
varða.
Margt bendir til þess að áfram-
hald ríkjandi stefnu og viðhorfa í
umferðarmálum kalli yfir okkur
umtalsverð vandamál á komandi
árum. Hér vantar sjálfbæra land-
notkunar- og samgöngustefnu og
forgangsröðun aðgerða í samræmi
við breytt gildismat hjá fólki.
Þetta breytta gildismat kallar á
betra skipulag, öruggara umhverfi
og minni mengun. Fólk vill líka
taka þátt í þessari stefnumótun og
það vill vera sannfært um að að-
gerðir í samgöngumálum færi því
í raun og veru það bætta heildar-
umhverfi sem að er stefnt.
Gestur Ólafsson
Skoðanir annarra
Neyddir til frjálsræðis
„Með auknu erlendu samstarfi hafa íslendingar
verið neyddir til að breyta ýmsum reglum í frjáls-
ræðisátt og er það vel. Það væri hinsvegar æskilegra
að frumkvæðið komi frá Alþingi íslendinga og þar
væri lögð fram áætlun um að draga ríkisvaldið útúr
hverskonar samkeppnisrekstri. Það er flestum ljóst
að til lengri tíma litið er nauðsynlegt að ríkið ein-
beiti sér að þeirri starfsemi sem almenn sátt ríkir
um að sé best komin í höndum ríkisvaldsins en láti
aðra þætti þjóðlífsins í friði.“
Viktor B. Kjartansson í Mbl. 20. des.
Síldarkvóti - byggðakvóti
„Ég er alfarið á móti byggðakvóta í hvaða formi
sem hann er. Ef á að úthluta síldarkvóta til ein-
hverra byggða sem áður unnu aflann í meiri mæli
en aðrir, þá ætti alveg eins að úthluta. þorskkvóta,
humarkvóta o.s.frv. Það myndi aðeins leiða til
illinda innbyrðis í sveitarfélögum. Þær byggðir sem
nú vilja að þeim sé bættur upp síldarmissirinn
höfðu miklar skattatekjur og nuðu góðs af þessu
tímabili á meðan það v£n-ði.“
Jónas Haraldsson hjá LÍÚ, í Mbl. 20. des.
Flutningur ríkisstofnana
„Ákvörðun um flutning Landmælinga Islands upp
á Akranes var tekin eins og á ekki að taka slíkar
ákvarðanir. I það minnsta er ljóst að ef um einkafyr-
irtæki væri að ræða hefði enginn eigandi látið sig
dreyma um að standa að málinu eins og umhverfis-
ráðherra hefur gert með dyggum stuðningi ríkis-
stjórnarinnar.... Gerræðislegt valdboð eins og um-
hverfisráðherra beitir nú við að flytja Landmæling-
ar til Akraness virðist ekki gera annað en að eyði-
leggja verðmæti í stofnuninni og tefja eða koma í
veg fyrir að aðrar stofnanir verði fluttar út á land.“
Úr forystugrein 50. tbl. Viðskiptablaðsins.