Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Blaðsíða 15
MANUDAGUR 23. DESEMBER 1996 15 Jólin - hið sanna liós í þér „Ljós aðventunnar í skammdeginu ætti að snerta hjarta þitt hljóðlega." „Ég trúi þessu bara ekki, mér finnst eins og tíminn fljúgi áfram og ég get ekkert við því gert. Aðventan runnin upp og ég ekki farin að hugsa um jól- in ... kannski er það aldurinn ... ég hlakka samt alltaf mikið til jólanna...“ Svo komst kona ein að orði við mig um daginn. Já, tími aðventunnar er runninn upp. Tími þegar við stillum huga og beinum sjón- um okkar að komu hátíðarinnar miklu, fæðingarhátíðar frels- arans - jólanna, og að sá Jesús sem við minnumst á jólum muni koma aft- ur og dæma lifendur og dauða. Ljós aðventunnar Aðventa eða jólafasta merkir að við prófum okkur sjálf, skoðum og íhugum hvað það er sem gefur líf- inu gildi í raun og veru - og hvers vegna við þurfum á frelsaranum að halda og þeim hoðskap sem jól- in færa. Aðventa er tími vonar. Þegar skuggar skammdegisins þéttast tendrum við aðventuljós sem vitna um komu ljóssins eilífa. Að- ventuljósin í gluggunum og að- ventukransarnir eru í raun bæn: „Kom, Drottinn Jesús.“ Það er aldrei sem nú að myrk- ursins kæfandi þögn megi sín lít- ils er þessari kveðju, þessari bæn, er stillt út 1 glugga og hún er ætl- uð þér, vegmóðum og þeim er fyr- ir innan gluggann daglegt líf bygg- ir. Ljós aðventunnar í skammdeg- inu ætti að snerta hjarta þitt hljóð- lega. Eg segi ætti því það er undir þér komið hvort þú ert tilbúin að baða hjarta þitt í geislum kveðj- unnar, taka á móti og endurvarpa kveðj- unni „kom þú Drott- inn“, ekki aðeins til mín heldur og til ná- unga þíns. Að í hjarta þínu ríki frið- ur, kærleikur og von. Þessi kveðja lætur ekki hátt í skarkala daganna fram að jól- um. Það eru margir sem reyna að gera sitt besta til að ræna hjarta þínu og fara með á torg „allsnægt- anna“. Þeir eru fjöl- margir er knýja fast á með tilhoð sem „ekki“ er hægt að haftia. Ekki tilboðsvara Friður, kærleikur og von er ekki tilboðsvara sem háð er verð- sveiflum markaðarins. Þau systk- ini er heldur ekki að finna í stynj- andi vöruhillum verslana er birta kauptölur vikulega, þetta margir hafa komið og létt á sér með raf- rænu plasti eða vel smurðri sneið af brauðstriti daganna. Leikið er undir á hárfína strengi tilfinn- inga, að það er nú einu sinni svo að tilgangurinn helg- ar meðalið - það er jú verið að gleðja vini og ætt- ingja hljómar fólskum tónum fyrir aftan. Búið er að ramma inn jólin með frösum eins og þetta verður þú að eiga eða eignast ef þú ætlar að halda jól, gleðileg jól, og við einfaldlega trúum því. Þetta verður eins og aumur brandari er syfjaður janúarmán- uður læðir sér bakdyramegin inn i hrollkaldan veruleikann, fær á til- fmningima að hann sé óvelkom- inn. Ygglt á svip horflr mannfólk- ið vonlausum auginn á skammdeg- ið sem sér sitt óvænna og kemur sér í burtu á silalegan hátt. Við tökum okkur til með tár á hvörm- um að raula með í jólalaginu, ..ég vildi að það væru jól alla daga...“ Spurt er á öðru hverju heimili þegar búið er að slökkva á raf- rænu ljósi því er kallaði svo ljúf- lega, tælandi á hjartað er sló áður taktfostu slagi eins og barn í sak- lausum leik. Voru jólin kannski bara draumur - martröð er rændi hjartanu og taldi því trú um að jól- in væru leikur er aldrei tæki enda? Þessu er til að svara að vissu- lega eru jólin alla daga ef hið sanna ljós fær aðgang að hjarta þínu. Það fæst ekki keypt í stór- mörkuðum borgarinnar eða raf- tækjaverslunum og það þarf ekki löggiltan rafverktaka til að tengja það á réttan hátt. Friðarins er að leita í þér sjálfum í stórmarkaði þíns eigin huga og vilja. Kærleik- ans eldur fær aðeins yljað öðrum ef þú ert tilbúinn að blása á glæð- ur þíns eigin kærleika. Vonin er þinn andardráttur er þú getur blásið í þann er finnur ekki frið- inn, kærleikann og vonina. Hið sanna ljós er að fmna í þér, þú skalt ekki efast um það eina einustu stund. Þú sjáif/ur ert sú gjöf er þú getur gefið af á hverjum degi allan ársins hring. Hvað sem allar auglýsingar og frasa þessa heims áhrærir ert þú þess um- kominn að halda gleðileg jól. Ef þú ert tilbúinn að gefa af þér með öðr- um. Tækifærið til þess er núna á jólafostunni og finna þá gleði og þá birtu er lýsir yfir allt skamm- degi er hljóðlátt ljós heimsins, hið sanna ljós, fær að setjast að í þínu hjarta. Þór Hauksson Kjallarinn Þór Hauksson prestur í Árbæjarkirkju „Hvað sem allar auglýsingar og frasa þessa heims áhrærir ert þú þess umkominn að halda gleði- legjól. Efþú ert tilbúinn að gefa af þér með öðrum. “ Jólaþankar „Eg er búinn að týna Jesú!“ hljómaði örmjó barnsrödd. „Bið- iði, ég er búinn að týna Jesú!“ Svo skall hávaðinn yfir: „Klukkna- hreim, klukknahreim hljóm’ um fjöll og fell...“ og ég heyrði ekki lengur í honum en hafði komið auga á hann þar sem hann sat með plastpoka, hafði tæmt hann á gólf- ið og var að gera birgðakönnun. Tvær stórar stelpur sem gátu ver- ið systur hans og vinkona hennar stóðu yfir honum. Trúlega hafði stelpuliðið farið í Kringluna í jóla- gjafakaup, orðið að passa litla gaurinn og tekið hann með. Önnur stelpnanna hróp- aði á enn fleiri stelpur: „Bíðiði, Snorri er búinn að týna Jesú! Oh boy!“ Svo settust þær hlæjandi á gólflð, fóru að leita að Jesúbaminu og hugga snöktandi Snorra. Þá varð fyrir mér bekkur, einn af þessum stóru, traustu, á efri hæðinni í Kringlunni. Ég settist niður og fór að horfa í kringum mig, horfa á menn sem voru í óða önn að hlaupa uppi jólin hver með sinn poka; stórfjölskyldur í trylltri jólagjafaleit þar sem lágmark einn fjölskyldumeðlimur hafði orðið viðskila við hina, allir að leita og allir orðnir reiðir. Afi og amma hlupu um og reyndu að fmna gjaf- ir handa afkomendunum sem allt áttu, flissandi unglingar reikuðu um í stórhópum, sennilega nýbún- ir í jólaprófum með magann fullan af óróa í leit að einhverju stórfeng- legu, grátandi smábörn... Yfir öllu þessu hrein endalaus jóla- lagastemningin sem var svo yfir- þyrmandi að hún hafði löngu snú- ist upp í andhverfu sína og mann langaði mest til þess að troða vett- lingunum í eyrun til þess að finna frið fyrir hávaðanum en hefði þá vísast misst af einhverju jólatil- boðanna sem voru í gangi á ýms- um hæðum, að sögn mannsins í hátalarakerfmu. Breytt jólahald Sem ég sat þama fór ég að hug- leiða hvemig jólaundirbúningur og jólahald hefði breyst hjá þjóð- inni undanfarin þrjátíu ár. Á með- an það þótti sjálfsagt og eðlilegt hér áður að húsmæður skriðu inn i hvem skáp og ofan í hverja skúffu með lútsterk sápu- efni í byrjun jóla- föstu grípur nútím- inn glimmer og strá- ir því yfir skítinn, kveikir á marglitum jólaserium, ber inn greni og þá er komin þessi fína jólastemn- ing! Sama gildir um smákökurnar. Þær vom bakaðar, gefið smakk, baukarnir síðan innsiglaðir fram á Þorláksmessu og hlakkað til að opna þá aftur. Nú er bakað í byrjun jólafóstu og allt búið þegar jólin ganga í garð enda „hafa engir lyst á smákökum á jól- unum,“ eins og nágrannakona mín sagði og stundi við, „þá vilja allir steikur og konfekt.“ Lýst er eftir jóla- sveinakúltúr! Eftir látlausar tilkynningar í há- talarann fór mikil jólasveinahers- ing hjá. Hér kemur ekkert á óvart lengur! Sumir vom rauðklæddir, aðrir í sauðalitunum en hæst hafði Kertasníkir. Kertasníkir á miðri jólafóstu og langt í aðfanga- dag! Hvemig eiga nú blessuð böm- in að átta sig á jóla- sveinafræðunum leng- ur? hugsaði ég og hvarf í nostalgíukasti aftur til jólasveinsins, þessa eina sanna, sem birtist alltaf í sama glugganum á sama tíma austur á landi endur fyrir löngu og var beðið úti í kuldan- um með meiri eftir- væntingu og athygli en Kertasníkir og kumpánar hans hlutu í Kringlunni þennan dag þegar enginn mátti vera að því að staldra við hjá þeim þrátt fyrir öflugt há- talarakerfi. Og kannski var ég þama komin að kjarna málsins: Fyrir hvern voru lætin? Allir vora argir á svip, eins og þeir hefðu ekki hætis hót gaman af þessu! Var þetta hara skylda allt saman: kaupa inn, rífa í sig jólahlaðborð- in (eftir að jólaglöggið varð úrelt), skrifa jólapóst, dansa og syngja. Alla jólaföstuna stress og skylda... Engin furða þótt menn detti í það á Þorlák til þess að ná sér niður! Og Jesúbamið, hinn eini sanni upphafsmaður jólanna, týndur á gólfínu á annarri hæð í Kringl- unni... Kristín Steinsdóttir „Og kannski var ég þarna komin að kjarna málsins: Fyrir hvern voru lætin? Allir voru argir á svip, eins og þeir hefðu ekki hætis hót gam- an afþessul“ Kjallarinn Kristín Steinsdóttir rithöfundur Með og á móti Skata á Þorláksmessu Er mein- holl „Fyrst skal nefna að þetta er þjóðarréttur Vestfirðinga og ég er al- inn upp við skötu á Þor- láksmessu. Þá var skat- an elduð í stórum kæfupottum Og það sem son, bankastjóri. af gekk var steypt í mót og borðað sem álegg ofan á brauð sem er frábært. En fyrir utan gæðin með mörflotinu er þetta mein- hollur matur. Ef menn eru með of miklar magaSýrur eða eitt- hvað þá er vísasti vegurinn að borða skötu og reyndar hákarl líka. Það var aldrei verkað í skötustöppuna á Þorláksmessu heima nema tindabikkja og þá voru komin jól. Það var allt orð- ið alheilagt þegar skötulyktin barst um húsið árdegis á Þor- láksmessu. Ég hefi aðeins eina Þorláksmessu lifað án skötu- stöppu þegar ég var innlyksa á Akureyri í skóla og auðvitað kunnu þeir ekki þessa list enda margir slappir í maga skilst mér. Siðurinn er óbifanlegur á mínu heimili og svo mun vera meðan öndin þöktir i mínum nösum.“ Úr- eltur Guömundur Andri Thorsson rithöfundur. matur „Óspjöll- uð er skat- an herra- mannsmat- ur og þess vegna virk- ar það ein- kennilega á mann að íslendingar skuli ekki geta lagt hana sér til munns nema úldna. Þetta virð- ist í fljótu bragði ekki hafa neitt með mat- arnautn að gera. En kannski á hún að vera vond á bragðið, kannski á að vera þrekraun að þræla þessu í sig, kannski er þetta svona aðferð ættbálksins til að skilja sig frá öllum hinum, eins og hringur i gegnum nefið, sem er öragglega mjög sárt, eöa umskum. Kaest skata er úreltur matur. Að borða hana er eins og að neita sér um að nota vatnskló- sett bara til að vera þjóðlegur." -ggá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.