Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Síða 19
MANUDAGUR 23. DESEMBER 1996 mennmg 19 Leitið og þér munuð... ? I Lúðrasveit Ellu Stínu heldur El- ísabet Jökulsdóttur áfram þar sem frá var horfið í Galdrabók Ellu Stínu sem kom út fyrir þremur árum. Þetta eru örsögur, sögur á mörkum ljóðs og prósa, naíviskar frásagnir sem einkennast af óheftri sköpunargleði og fjörugu ímyndun- arafli. Eins og í Galdrabókinni lenda söguhefjur í fjarstæðukenndum að- stæðum sem verða í meðfórum El- ísabetar eðlilegar og sjálfsagðar enda er hún höfundur sem kann að meðhöndla fantasíuformið. Sá heim- ur sem við sjáum er í augum persón- anna eðlilegur heimur. Þær efast ekki um það sem fyrir augu ber, eru kannski svolítið undrandi eins og lesandinn en af því að þær lifa og hrærast 1 veröld þar sem allt getur gerst meðtaka þær upplifanir sinar gagnrýnislaust. Það gerir lesandinn líka en freistast samt til að ferðast á bak við líkingarnar og táknin af því hann vill öðlast skilning á því sem höfundurinn er að segja. Og það þarf ekki að innleiða ný náttúrulögmál til þess að skilja sög- ur Elísabetar. Hinn undarlegi sagnaheimur afhjúpar annan heim sem er enginn annar en hin hversdagslega veröld okkar hér og nú. Veröld sem er eina stundina hlý og góð, á öðrum stundum grá, grimm og nístandi. Það sem sögumar afhjúpa kannski fyrst og síðast eru tilfinningar og þó yrkisefnin séu af háalvarlegum toga er Elísabet lagin við að sjá skoplegu hliðamar á mannlífinu. Með því að blanda saman alvöru og kaldhæðni tekst henni að draga fram sterkar og áleitnar tilfinningar, sbr. sagan „Mað- urinn sem dó einn“: „Einu sinni var maður sem dó einn Eiísabet Jökulsdóttir. Bókmenntir Sigríður Albertsdóttir á ónotalegum spítala og það var enginn sem hélt í höndina á honum eða heyrði hann segja síðustu orðin og hann var að hugsa um það þegar hann fann lífsandann fjara úr lík- amanum hvað það hefði verið nota- legra að farast í flugslysi með 367 öðrum“ (34). Þetta er ónotaleg mynd og mjög svo lýsandi fyrir þá kennd sem hvergi er minnst á; einsemd- ina. Sú tiifinning skýtur víðar upp kollinum og á sér mörg andlit og mismunandi. Mér finnst freistandi að túlka bókina í heild sinni sem aðför manneskjunnar að tilfinningum sínum, með öðrum orðum tilraun manneskjunnar til að nálgast sjálfa sig. En það er flókið ferli og ekki á allra færi eins og sögumar „Vinnu- konan“ (22) og „Vinnumaðurinn" (23) era til vitnis um. Þar segir af tveimur manneskjum sem þeytast þrotlaust um allan bæ í svo gegndarlausri leit að þau týna markmiðum sínum í öllum hamaganginum. Lúðrasveit Ellu Stinu er holl og skemmtileg lesning fyrir alla þá sem era til í að hræra svolítið upp í sjálf- um sér. Og ekkert hættuleg því mað- ur fær líka að brosa! Það sem helst er aðfinnsluvert er að í einstaka sögu er höfundur helst til sjálfhverfur og ligg- ur á lausninni eins og ormur á gulli. _________________ Svolítið gremjulegt en tapið vinnur maður upp í yndislegum sögum eins og „Friðarborðinu" (40-41) þar sem hjartahlýja, við- kvæmni og kímni spila saman í fullkomnu samræmi. Elísabet Jökulsdóttir Lúðrasveit Ellu Stínu Mál og menning 1996 PS... Menningarsíða DV sendir lesendum sínum innilegar óskir um mörg djúphugul síðdegi á athyglisverðum málverkasýningum, mörg skemmtileg kvöld í leikhúsi eða á tónleikum og margar gleðilegar vökunætur yfir góðum bókum á þessum jól- um. Jólakveðja síðunnar er eftir nýjasta nóbelsskáldið, Wislöwu Szymborsku, úr bókinni Útópíu sem Fjölvi gaf út með þýðingum Þóru Jónsdóttur skálds á úrvali ljóða hennar - og það heitir Fjölskyldualbúm Wislawa Szymborska. Enginn i fjölskyldunni hefur dáið af ást. Margt hefur gerst en ekkert í goðsagnarstíl. Einhver Rómeó með tæringu? Einhver lömuð Júlía? Nokkrir hafa náð hárri elli. Ekkert fórnarlamb vegna ósvaraðs bréfs sem vætt var í táram! Loks mættu ætíð grannamir með rósir og nefklemmugleraugu. Enginn kafnaði í mahonískápnum þegar maki ástkonunnar sýndi sig óvænt. Allar þessar slaufur, slæður og pífur hindraðu engan í að festast á mynd. Og aldrei í anda þess vítis sem Bosch málaði. Og aldrei fyrir byssuskoti úti i garði. (Þeir létust með kúlu í höföinu, en af öðra tilefni, á böram á vígvellinum.) Líttu á þessa hérna með töfrandi hárhnútinn, og bauga undir augunum líkt og eftir dansleik, satt er það hún flaut héðan í blæðingu en ekki til þín dansherra, og ekki af sorg. Má vera einhver á fyrri tíð, fyrir daga ljósmyndanna - en enginn þeirra sem era I albúminu svo ég viti. Sorgimar hlógu hver að annarri, dagamir flugu sína leið, raeðan þau létu huggast - og fóra úr flensu. Faöir vors krossar Krossar með faðirvorinu úr silfri og gulli. Verð á silfurkrossinum er 1.950 kr. með festi. Verð á 9 k. gullkrossinum er 4.950 kr. með festi. <%ull 7/iUm Laugavegi 49, símar 551-7742 og 561-7740 Bænamen Sjóferðabænin, silfur, kr. 4.490,14 k. gull kr. 17.990. Faðir vor, silfur, kr. 4.490,14 k. gull, kr. 14.990. Æðruleysisbænin, silfur, kr. 4.490,14 k. gull, kr. 13.900. <%ull leuin Laugavegi 49, símar 551-7742 og 561-7740 Herraarmbönd Mjög falleg herragullarmbönd á frábæru verði, 9 k. gull frá 16.200 kr. og upp í 32.000 kr. í 14 k. (ekki holað innan). Einnig úr silfri og double frá kr. 1.100. Eigum einnig fallegar herrakeðjur úr gulli og silfri á góðu verði. <$uU fiutn Laugavegi 49, símar 551-7742 og 561-7740 ; ! I ■ L - Gullhálsmen Falleg gullhálsmen, 14 k. gull á frábæru verði, smíðuð hjá okkur. Verð með ekta perlu kr. 5.500, með hematitt kr. 4.900 með festi. ■* rsr* * um\m Hringar Mjög fallegir gullhringar, tví- og þrílitir, gult, rautt og hvítt gull á frábæru verði, frá kr. 4.500. Hálsmen Töfrarúnir, silfurmen (stafir), verð með festi aðeins 1.850 kr. Töfrarúnir eru margra alda gamlar. Menn til forna notuðu rúnir þessar sér til verndar og heilla. Þeir sem þessar rúnir bera munu ekki í vandræði komast. <$ult <$uU fitun Laugavegi 49, símar 551-7742 og 561-7740 TfilLin Laugavegi 49, símar 551-7742 og 561-7740 <$uU @tföUin Laugavegi 49, símar 551-7742 og 561-7740

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.