Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1996 * ± JL Mennimir bak við brellumar í Star Wars: Skapa raunveruleg- an sýndarveruleika Defanti (liggjandí) og Sandiii hata tundíð upp byltingarkennda sýndarveruteikataeknk Þeir félagar Tom Defanti og Daniel Sandin telja sig hafa fund- ið vandann við sýndarveruleik- ann. Þeir segja að hann liggi í þeirri tækni sem miðlar þessum sýndarveruleika til þess sem hann upplifir. Til dæmis er frek- ar erfitt að þykjast vera staddur í geimskipi milljónir ljósára frá jörðinni þegar maður er er með níðþungan hjálm á hausnum og allur flæktur í víra. Þar sem þessir menn eru virtir prófessor- ar við háskólann í Illinois í Chicago er sennilega nokkuð mikið til í þessari kenningu þeirra. Þeir hafa líka fundið nýja lausn á því hvemig tölvustýrð- um sýndarveruleika er komið á framfæri. Þeir vilja ekki ein- skorða sig við hjálma og víra heldur telja þeir betra aö búa til heil herbergi sem em ekkert annað en hátæknivæddar sýnd- arveruleikasvítur, kallaðar CAVE. Eini búnaðurinn sem menn þurfa að nota til þess að njóta stemningarinnar í þessum herbergjum eru gleraugu sem era ekki öliu fyrirferðarmeiri en venjuleg sólgleraugu en í þeim em litlir LCD-skjáir. Einnig fá menn „stýripinna" sem minnir helst á dulræna galdrastafi. Sandin, sem er prófessor í list- um og með mastersgráðu í eðlis- fræði, segir að þeir hafi unnið tímamótaverk. „Þetta er fyrsta byltingin í fjarvídd síðan á dög- um endurreisnarinnar,“ segir hann. Hann og Defanti, sem er tölvunarfræðingur, hafa verið að búa sig undir þessa byltingu síð- an á áttunda áratugnum. Á löng- um róðrar- og gönguferðum í gegnum árin hafa þeir rætt nýjar leiðir til að láta tölvur skapa nýja heima. Með því fyrsta sem þeir afrekuðu vom nýjar aðferð- ir við brellur í hinni goðsagna- kenndu mynd, Star Wars. Nú þegar hafa Defanti og Sand- in fengið mikið hrós fyrir vinnu sína. Flestallir sérfræðingar á þessu sviði segja sýndarveru- leikaherbergi þeirra það full- komnasta sem hafi verið gert á sviði sýndarveruleika síðan menn fór að dreyma um að skapa nýja heima. Samantekt: JHÞ Vefsjónvarp ógnar kaldastríðslögum Á dögum kalda stríðsins bönnuðu bandarísk lög að dulmálslyklar væru fluttir út enda væri það ógnun við þjóðaröryggi. Slíkt bann er enn í gildi en svokallað vefsjónvarp er á góðri leið með að breyta því. í net- tölvum sem em tengdar við sjón vörp og hafa selst í hundraða- þús undatali í Bandaríkjunum em full komnir dulmálslyklar sem eru jafn öflugir þeir sem herafli og leyni þjónusta Bandaríkjanna notar. Það gerir notendum kleift að gefa upp kreditkortanúmer og aðrar persónu- legar upplýsingar á fullkomlega örr- uggan hátt. Þróunin í þessum mál- um hefur verið ótrúlega hröð. Fyrir tíu árum var Cray XMP-48 öflugasta ofurtölva heims og hún kostaði litla 3,5 milljarða á núvirði. Nettölvurn- ar sem tengjast sjónvörpunum eru seldar á 21 þúsund krónur í Banda- ríkjunum en eru öflugri en Cray- tölvan. Nú vilja fyrirtæki vestan- hafs losa um bannið enda óttast þau að verða skilin eftir í samkeppninni um ömggar leiðir til þess að senda upplýsingar um netið. Þegar hægt verður telja margir aö þá fyrst muni Intemetið fara að vaxa og dafna. Samantekt: JHÞ Svokallaðir Public Key dulmálslyklar virka þannig að notandinn sækir duimálslykil á netið. Einungis þeir sem hafa aðgang að dulmálslykli viðkomandi geta lesið þau skilaboð sem hann hefur ruglað með iyklinum. Fjölda mynda úr seinni heimsstyrjöldinni er að finna á slóðinni http: //goph- er.nara.gov:70/Oh/in- form/dc/audvis/still/ww2photo .html Uppskriftir Fjölbreyttar uppskriftir era á slóðinni http://ecepl.usl.edu/caj- un/toc.htm Kattardýr Allt um kattardýr er að finna á slóðinni http://hoohoo.ncsa.u- iuc.edu/Public/AGA/pics/ani mals/cats/cats.html Gæludýr Mikil fræðsla um gæludýr er á slóðinni http://www.ac- mepet.com/ Graham Bell Upplýsingar um manninn sem fann upp símann er á slóð- inni http: //pac- media.com/fecha/sa- ints/bell.html Corel Draw brennir sig á ---------------wwwwww&zœwwm Smáauglýsingadeild DV er opin: • virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22 Tekið er á móti smáauglýsingum til kl. 22 til birtingar nœsta dag Ath. Smáauglýsing í Helgarblað DV þarf þó að berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag Smáauglýsingar 550 5000 hakakrossinum hvers kyns nasistaáróðri í Þýskalandi og varð fyrir- tækið að hætta sölu á Cor- el Draw um stundarsakir og setja viðvöranarmerki á hugbúnaðarpakka sína þar sem notendum er bent á þýsk lög um nas- istaáróður. Talsmaöur Corel segir að í framtíðinni muni eng- ar myndir sem tengjast nas- isma fylgja Corel Draw. Samantekt: JHÞ Kanadíska fyrirtækið Cor- el Draw lenti aldeilis illa í því á dögunum þegar þýsk yfirvöld hófu rannsókn á nýnasistaklíku í Múnchen. Nasistamir höfðuð nefnilega notað smámyndir af Adolf Hitler og hakakrossi til að „skreyta“ nafnspjöld sín en þær fengu þeir úr hinu geysivinsæla forriti Corel Draw en rúmlega 24 þúsund smámyndir af ýmsu tagi fylgja því. Bannað er stranglega að dreifa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.