Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Page 21
MANUDAGUR 23. DESEMBER 1996 • Vefjól Ef þú hefur ekki þegar tekið eftir því þá gengur jólahátíðin í garð á morgun. Vonandi verður sem mest um dýrðir hjá flestum og einnig hjá netbúum. Það er líka um auðugan garð að gresja á Intemetinu, þar er jólastemningin i tyrirrúmi. Mönn- um er þó bent á að það er miklu heilnæmara að halda alvörujól með nánum ættingjum og vinum, ekki finna þig fasta eða fastan á ein- hverri spjallrás klukkan sex á að- fangadag. Jólasveinar Á slóðinni http://santa.b- x.com/milk.htm er þeim sem hana skoða tjáð að um sé að ræða hina einu réttu síðu jólasveinsins en sá sem þetta skrifar hefur óljósan grun um að hér sé einhver verslunarmið- stöð i dulargervi. Þeir fá úldna kart- öflu í skóinn. Öllu skemmtilegra er síðan á slóðinni http://africa.c- is.co.za/santa/visitor.html en þar er hægt að senda jólasveininum tölvu- póst. (Flestir vita þetta ekki en jóla- sveinninn á flunkunýja 200 megariða Pentiumvél og spilar Red Alert með öll ljós slökkt og græjum- ar i botni eða flakkar um vefinn> í leit að upplýsingum um leikfanga- gerð í þeim fáu frístundum sem hann á). Einnig geta þeir sem vilja höfða til bamsins i sjálfum sér sótt sér litabækur með jólamyndum. Auðvitað vilja allir eiga jólasvein- inn (jólasveinana) og hvort sem þið trúið því eða ekki þá telja Tyrkir sig eiga tilkall til hans. Rökstuðninginn er að finna á slóðinni http://www.tm-key.org/tur- key/news/santa.htm Á slóðinni http://www.comevisit.com/billbo- ard/bl623.phtml er heimasíða ein- hvers jólasveins sem býr á norður- pólnum ásamt konu sinni, Melanie, hreindýmm og þremur músum. Skyldi Giljagaur vita af þessu? Hægt er að senda jólasveininum staðlað tölvubréf á slóðinni http: //www.marlo.com/santa.htm og hægt er að fá svar frá þeim rauð- klædda innan nokkurra sekúndna. Hvort sem þú trúir því eða ekki þá er hægt að fylgjast með jólasveinin- um í beinni útsendingu á slóðinni http://www.fla.iiet/cgi-bin/sd/s- anta/santacam Þar er einnig hægt að komast inn á það sem vefsíðu- hönnuðir segja vera lista yfir uppá- haldssíður jólasveinsins. Jólasögur Klassíska jólasagan eftir Charles Dickens http://www.literat- ure.org/Works/Charles-Dickens/c- hristmas-carol/index.html Sagan bak við þann sið að setja upp jólatré er á slóðinni http://santa.smart.is:82/s- anta/tree.htm Allt um jólin í Ástral- íu er að finna á slóðinni http: / /www.gil.com.au/ozkidz/Christm- as/index.html Þar á meðal eru níu ástralskar jólasögur. Nokkrar jóla- sögrn- er að finna á slóðinni http: //www.autopen.com/xmas96.shtml Jólasaga er einnig á slóðinni http: //www.nettiradio.fi/test/santa/tale- 4.htm Velskar jólasögur eru á vef- síðu á slóðinni http://www.ihi.a- ber.ac.uk/~spk/christmas.html Risastórt tengingasafn á jólasíður úti um allan heim er á slóðinni http: / / www.aristotle.net/christmas/c- hristmas.htm Fallegar jólamyndir eru á slóðinni http://weyl.zib-berl- in.de/HTMLs-English/Christm- as.html Jólagrín Að lokum má svo nefna síðuna http://www.netcore.ca/~gkil- lops/twasl.html en þar eru nokkrir missmekklegir jólabrandarar. Fleiri slíkir eru á slóðinni http://www.mer- ton.ox.ac.uk/fun/xmas/ Þar er með- al annars gerð grein fyrir því aö en- gillinn er alltaf á toppnum á jólatrj- ám vestanhafs. Á vefsíðunni http: //javelin.commed.unsw.edu.au/kar- en/xmas/humour.htm er snúið út úr nokkrum frægum jólalögum. -JHÞ Glæpamenn í Ameríku: Takmarkaður aðgangur „Við getum ekki litið fram hjá þeim möguleika að harðsvíraðir og snjallir glæpamenn geti notað netið til að fremja alvarlega glæpi,“ segir Edward Reilly, formaður banda- rísku skilorðsnefndarinnar, en hún hefur ákveðið að takmarka tölvuað- gang nokkurra hættulegra glæpa- manna sem hafa fengið reynslu- lausn. Yfirvöld segja að ástæðan sé sú að á netinu sé margt vafasamra upplýsinga og ósæmilegt efni. Til dæmis er nefnt að þar séu upplýs- ingar um hvernig búa megi til sprengjur, bamaklám og hatursá- róður sem hættulegir glæpamenn ættu ekki að fá að komast í tæri við. í framtíðinni munu dæmdir glæpa- menn á skilorði þurfa að fá sérstakt leyfi til þess að kaupa sér aðgang að netinu. Einnig er gert ráð fyrir þvi að sumir þeirra þurfi að setja búnað á tölvur sínar sem yfirvöld geta not- að til að fylgjast með tölvunotkun þeirra. Samantekt: JHÞ Jóladag kl. 13.00 Klassíkfm 106,8 ogAðalstöðin 90,9 á áamtengdimv m&imi Á jóladag kl. 13-00 flytjum við upptöku frá stórtónleikum sem haldnir voru í Avery Fischer Hall í New York í haust í minningu Bandaríska tenorsöngvarans Richard Tucker. Fjöldi þekktra söngvara söng á þessum árlegu tónleikum til styrktar ungum tónlistarmönnum, þ.á.m. Kristján Jóhannsson. Sinfóníuhljómsveit Metropolitan óperunnar lék. Stjórnandi tónleikanna var James Levine. & REMY MARTIN FIN£ CHA.MPAGNF. COGNAC V/SA PÓSTUR OG SÍMI L Landsbanki íslands Ðanki allra landsmanna FJÁRVANGUR iKtm vei■ i11iaimiiuii HAPPDRÆTTI I HÁSKÓLA ÍSLANDS 9097909 AÐALSTÖÐIN iQmsá jrfów ^ífi'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.