Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Page 24
24 MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1996 Fólk y Jólayjöfin til Islendínga erlendís - cískrift að daglegum fréttum * frá íslandi FÆKfjólwðÍum Þverholt 11. Simi 550 5000. Fax 550 5999. /Vc’tfang: faxfrettir@ff.is Fnxfréttlr ur fjolmiölum eru frettir fru Islandi og færa lesandanum a stuttu og aögengilegu formi þær frettir sem eru efst a baugi hverju sinni. Faxfrettir koma ut 5 claga vikunnar a tveim sidum, manudaga til fostudaga, kl. 13 ad islenskum tima. Dreifileiöir: • Fax • Tölvupostur DV, Suðureyri: Senn líður að jólahátíðinni og landsmenn halda sín jól með mi- sjöfnum hætti. Undirbúningur jól- anna hefst sums staðar í nóvember með bakstri og hreingemingu auk jólagjafakaupa. Allt þetta fylgir nú- tímafjölskyldunni og meira til. Jóla- kapphlaupið stendur nú sem hæst og hver er að verða síðastur að út- rétta, gera það sem þarf til þess að hafa jólin sem best úr garði gerð. í Arnarfirði býr fólk einsamalt á afskekktum bæjum sem lætur jóla- kapphlaupið lönd og leið. Það sinn- ir sínum skepnum og fyrir því em jólin tími friðar og kærleika. DV spjallaði við Sigríði Ragnarsdóttur, bónda á Hrafnabjörgum, Sigurjón Jónasson, bónda á Lokinhömmm, og þá feðga, Pétur Sigurðsson og Þorbjörn son hans á bænum Ósi í Arnarfirði, um jólin og þeirra jólasiði. Við norðanverðan Arnarfjörð í fjarðarmynninu standa tveir bæir hlið við hlið. Bæjarstæðin em und- Sigríður Ragnarsdóttir, bóndi á Hrafnabjörgum, fer í spariföt á aðfangadag, kveikir á kerti og hlustar á útvarpsmess- una. DV-myndir Róbert Schmidt ir hrikalegum hömrum í Lokin- hamradal og tignarlegt fjallið Skeggi skartar hvössum tindum og eggjum. Þar búa Sigriður Ragnars- dóttir og Sigurjón Jónasson, einbú- ar hvort á sínum bænum. Skammt er á milli bæjanna og lækurinn sem rennur þar á milli segir til um landamerkin. Annars ríkir sátt og samlyndi á milli þeirra sveitunga. Ekki er akfært þangað yfir vetrar- mánuðina þó svo Elli Kjaran bögglist þangað af og til í gegnum skafla og torfærur færandi þeim bændum póst og annað nauðsyn- legt. Við stöldrum fyrst við hjá Sig- ríði og spyrjum hana um jólasiði og jólahald. Kveikt á kerti Sigríður Ragnarsdóttir hefur haldið jól einsömul á annan áratug. Hún er með tæplega 140 kindur, tvo hunda og einn kött. Sigríður er orð- in 73 ára gömul, kvartar imdan eilít- illi gigt en er að öðru leyti við hesta- heilsu. Hvemig skyldi hún halda jólin? „Ég haka ekkert fyrir jólin. Ég fæ sendar kökur og læt þær nægja. Undirbúningur er lítill, ég tek til hér heima og sinni skepnun- um eins og venjulega. Þorláksmess- an er góð tilbreyting, þá borða ég skötu, hæfílega kæsta. Á aðfanga- dag klæði ég mig í sparifotin, kveiki á kerti og hlusta á jólamessuna í út- varpinu. Nú orðið hef ég ekkert jóla- tré né skreytingar. Venjulega borða ég hangikjöt á jóladag og læt það duga yfír jólin. Ég hef mína trú og hef boðskap jólanna í huga þegar þau ganga í garð. Boðskapur sem hefur að geyma frið, trú og kær- leika.“ Sef illa í vondum veðrum Sigríður segist ekki halda ára- mótin hátíðleg. Hún eldar góðan mat, annað ekki. Engir flugeldar, brennur né sprengingar verða hjá henni og orðið langt síðan tendrað var á flugeldum á Hrafnabjörgum. Blaðamaður spyr Sigríði spurning- ar sem brennur á mörgum: Hvers vegna borðið þið Sigurjón ekki sam- an á jólunum? „Já, nei, mér finnst alltaf eins og það vanti þriðja mann- inn. Þetta tíðkaðist hér áður fyrr en það er liðin tíð.“ Sigríður fær mjólk hjá Sigurjóni 3ja hvern dag en hann hefur þessa flnu kú sem mjólkar vel fyrir tvo. í vondum veðrum segist Sigríður sofa illa. „Ég svaf niðri í gær vegna óveðurs og ég óttast vindinn og snjóinn, sérstaklega þeg- ar hann blæs harkalega. Nú, það er fleira sem heldur vöku fyrir manni. Mýsnar eru á milli þilja við höfða- gaflinn og það er óþolandi. Köttur- Einbúarnir í Arnarfirði láta jólakapphlaupið lönd og leið: Lágfóta kemur og þefar af hangikjötinu - súpukjöt og kindahjörtu á aðfangadag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.