Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Side 25
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1996
25
Fólk
inn hangir bara hér heima og nenn-
ir ekkert við þær að eiga.“ Aðspurð
um áframhaldandi búsetu á Hrafna-
björgum segir Sigríður: „Ég hef
stundum velt þessu fyrir mér en það
er eins og sú hugsun dofni með
hverju árinu sem ég er hér. Þetta
kallast víst átthagafjötrar. Ég held
að búseta mín haldist hér á meðan
ég held heilsu og get sinnt skepnun-
um,“ segir Sigriður Ragnarsdóttir
að lokum og biður fyrir jólakveðjur
til landsmanna.
Kindahjörtu á aðfangadag
Sigurjón, bóndi á Lokinhömrum,
er næsti viðmælandi. „Undirbún-
ingurinn er lítill fyrir jólin. Þó baka
ég svokallaðar prinssessukökur og
eina tertu sem ég borða yfir hátíð-
ina. Ég fæ einnig sendar kökur. Á
Þorláksmessu hefur Sigurjón skötu,
hæfilega kæsta, með mörfloti að
venju. Á aðfangadag eru á matseðl-
inum steikt kindahjörtu. „Já, ég sýð
kindahjörtu niður í 3 tíma, set þau í
krukkur. Síðan steiki ég þau upp úr
smjörlíki og lauk og geri síðan sósu
með þessum herramannsmat. Jóla-
hangikjötið er á jóladag og daginn
eftir líka. Ég tek til hér í kotinu og
hef lokið minum verkum fyrir fimm
á aðfangadag. Kveiki þá á kertum
og set þau út í glugga og hlusta á
messuna í útvarpinu, einnig mið-
næturmessuna. Svo líður mér ekki
vel nema veðrið sé það skaplegt að
hægt sé að sinna skepnunum." Sig-
urjón notar ekki áfengi um jólin og
segist undrandi á fólki sem drekkur
brennivín á jólunum, eins og hann
orðar það. „Ég á fina kú sem mjólk-
ar vel og ég læt mér mjólkina
nægja.“
Tófan við bæjardyrnar
Áramótin eru ekki haldin hátið-
leg í Lokinhömrum. Aðeins eldaður
góður matur. Sigurjón hefur séð mn
búið frá því faðir hans lést 1957 og
er því vanur einverunni. Hann seg-
ir að síminn sé eini mimaðurinn hjá
sér. Ekkert sjónvarp er á bænum.
Vindrella sem trónar hátt á staur
við húsið knýr orku á rafgeymi og
það er rafmagnið sem bóndinn á
bænum notar. „Sem betur fer fór
vindrellan ekki í óveðrinu mikla
hér fyrir nokkru. Ég man ekki eftir
öðru eins foráttubrimi og þá.“ Hann
segir að tófan sé orðin ágeng og oft
hafi hann séð hóp yrðlinga að leik
við bæjarhlaðið. „Það er greinilegt
að tófu fer fjölgandi, sporin eru um
alla sveit og alveg upp að bæjardyr-
unum,“ - segir Sigmjón Jónasson
bóndi að lokum og sendir jólakveðju
um land allt.
Jólalömb á Ósi
í lokin er staldrað við á Ósi tfið
innanverðan Amarfiörð. Þar búa
þeir feðgar Pétur Sigurðsson og Þor-
bjöm sonur hans. Pétur er kominn
á níræðisaldurinn og er heilsutæp-
ur nokkuð. Þorbjöm, eða Bjössi, sér
um búskapinn að mestu og sinnir
nú sauðburði í desember. „Já, sauð-
burður er hafinn. Það bar ein þann
6. desember og því lambi heilsast
vel. Við megum búast við að 2-3
kindur þeri fyrir áramótin," segir
Bjössi. í fyrra bar ein kind 1. desem-
ber, og árið á undan bám 43 kindur
yfir veturinn sem er í meira lagi.
„Jólin em almennt haldin úti í fiár-
húsum hér og það er ekkert verra
að halda þau þar. Eins og Hákon
heitinn á Borg sagði þarf að sinna
skepnunum jafnframt mn jól og ára-
mót. Annars var sauðburður með
minnsta móti í fyrravetur. Þá bám
sex kindur og þær siðustu í aprE.“
Súpukjöt á aðfangadag
Eins og á hinum bæjunum er lít-
ill undirbúningur fyrir jólahátíðina
á Ósi. „Systir mín í Keflavík sendir
okkinr kökur svo fámn við skötu frá
BEdudal, en okkur finnst hún ekki
nógu mikið kæst. Við viijinn hafa
hana mjög kæsta. Á aðfangadag höf-
um við nýtt kjöt, bara súpukjöt í
potti, ekki neinar stórsteikur eins
og tíðkast víða um land. Við eram
ekki góðir í matartEbúningi en
reynum að gera sem best úr því sem
við höfum. Við hlustum á jólamess-
una í útvarpinu ef tími gefst tE,“
segir Bjössi. Pétur, faðir hans, seg-
ist vera slæmur í fótum og höndum.
„Mín jól verða hálflasin. Ég hef ver-
ið betri en ég er nú, en það er önn-
ur saga. Við borðmn hangikjöt á
jóladag. Bjössi reykir fyrsta flokks
hangikjöt, ekta taðreykt. Á áramót-
unum er líka hangikjöt og svið,“
segir Pétur.
Póstur tvisvar í viku
Pétur segir að þeir feðgar séu
hættir að hafa jólatré. Fyrir
nokkrum árum fengu þeir sér sjón-
varp en nýlega brotnaði greiðan í
óveðri og ekkert sést í sjónvarpinu
nú. Að öUu jöfhu era skEyrðin góð
á Ósi. „Það horfir svo tE að sjón-
varpslaust verði um jólin. Við von-
um bara að útvarpið bEi ekki líka,“
segir Bjössi. Þeir feðgar fá póst
tvisvar í viku með sjópóstinum frá
BEdudal. Ekki komst pósturinn tE
skila síðast vegna óveöurs en þeir
vona að hann skili sér fyrir jólin.
Aðspurður inn vetrarsauðburðinn
segir Pétur: „Já, hann er tilkominn
út af aðkeypta fénu. Það kom aldrei
fyrir hér áður að kindur bæra á vet-
urna. Þetta byijaði 1984 og þetta fé
er líka með fótaveiki, alveg hræði-
legt. Það getur oft verið erfitt að
eiga við þetta, sérstaklega þegar
Sigurjón Jónasson, bóndi í Lokinhömrum, bakar lítillega fyrir jólin og borð-
ar steikt kindahjörtu á aðfangadag.
Þorbjörn Pétursson með jólalömb í fjárhúsi á Ósi. Hann segir ekkert verra að halda jólin í fjárhúsunum.
snjóar mikið og skefur. Annars
gengur þetta sinn vanagang hér og
þetta er ekkert nýtt fyrir okkur
Bjössa," segir Pétur Sigurðsson á
Ósi að lokum. Pétur og Þorbjöm
vEja einnig senda jólakveðjur tE
landsmanna.
Boðskapur jólanna
Jólahald á þessum bæjum er eins
frumlegt og tíðkast getur á íslandi
nú á dögum. Það þætti víst ekki
girnEeg jólasteik að hafa steikt
kindahjörtu með lauk og súpukjöt á
aðfangadag hjá nútimafiölskyld-
unni. Hvað þá að hafa ekkert jóla-
tré, skreytingar, pakka né sjónvarp!
Hvað sem því líður halda einbúarn-
ir á Hrafnabjörgum, Lokinhömram
og Ósi jólin með sínum hætti. Þeir
sinna sínum skepnum, kveikja á
kertum á aðfangadag og hlusta á út-
varpsmessuna. Þar ríkir ekkert jóla-
kapphlaup. Þar leikur báran við
fiöragrjótið í skammdeginu og frost-
ið bítur kinn. Tófan skokkar við
bæjardymar og þefar af ilmandi
hangikjötinu. Hamraveggirnir
halda ÍEífiskEdi yfir einbúunum á
þessum seiðmagnaða stað. Eina
skíman frá bæjunum er frá kerta-
ijósi úti í glugga - boðskapur friðar
og kærleEía, boðskapur sem frelsar-
inn færði okkur. Um hann snúast
jólin og því hafa einbúarnir í Amar-
firði ekki gleymt. -RS
Feðgarnir á Ósi, Þorbjörn Pétursson og Pétur Sigurðsson. Þeir boröa súpu
kjöt á aðfangadag og nú i desember standa þeir í vetrarsauðburði.
Blóðbankinn
óskar öEum blóðgjöfum og velunnurum sínum
gleðEegra jóla og góðs komandi árs með þökk fyrir hjálpina
á Hðnum árum.
Starfsfólk Blóðbankans
Vélstjórafélag íslands
Aðalfundur
Vélstjórafélag íslands boðartil aðalfundar laugardaginn
28. desember 1996 kl. 14.00. Fundurinn er haldinn að Brautarholti 30, Reykjavík, á 3.
hæð. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins. Léttar veitingar I boði að loknum fundi.
Fundur vélstjöra á farskipum
verður haldinn föstudaginn 27. desember kl. 14.00 f Borgartúni 18,3. hæð.
Fundur vélstjúra á fiskiskipum
verður haldinn föstudaginn 27. desember kl. 17.00 í Borgartúni 18, 3. hæð.
*
Verðið kemur á óvart
Rétt verð 25.900.
Margir litir og stœrðir
Fríar Póstkröfur
SfCápusalan
oSnorrabraut 56 5 562 4362