Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Blaðsíða 26
26
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1996
íþróttir unglinga
Islandsmót HK og Landsbankans í handbolta stelpna í 6. flokki:
Stelpurnar eru hörkugóðar
- FH-stelpurnar bestar í keppni A-liða og B-lið Hauka sigraði
- leikur í riðli með Frökkum og Rússum
Það var mikið um að vera í
íþróttasölum Kópavogs 6.-8. desem-
ber því HK-mótið i handbolta
stelpna í 6. flokki fór þá fram og var
spilað bæði í Digranesi og Kársnesi.
- I A-liði sigraði FH en í keppni B-
liða unnu Haukar. Alls mættu 24 lið
til keppni í A- og B-liðum. Áhorf-
endabekkir voru vel setnir enda
skemmtileg tilþrif hjá stelpunum.
Úrslit urðu annars sem hér segir.
Leikir um sæti - A-lið:
I. -2. FH-ÍR......................7-5
3.-4. Fram-Haukar.................9-5
5.-6. Fylkir-Stjarnan.............2-6
7.-8. Breiöablik-Grótta...........5-0
9.-10. ÍBV-HK.....................6-5
Leikir um 9.- 12. sæti:
ÍBV-Fjölnir.......................8-4
HK-Valur..........................5-4
II. -12. Fjölnir-Valur............8-7
13. sæti IŒ.
Meistari: FH.
Keppir í Þýskalandi
milli jóla og nýárs
Landsliðhópur íslands í hand-
bolta, u-18 ára, sem tekur þátt í Hela
Cup 1996, var valinn um sl.
mánaðamót. Voru 17 leikmenn vald-
ir úr 22 manna forvalshópi og
hófust æfingar hjá þeim 13. des-
ember. Æft er í hádeginu og á
kvöldin er spilað gegn meistara-
flokksliðum sem leika í 2. deild.
Hela Cup er haldið í Merzig, sem
er í grennd við Saarbrucken og er
þetta 10. árið sem það er haldið.
Island tekur þátt í því í annað sinn
en 1995 lenti sama liðið og tekur
þátt núna, í 3. sæti, en þá léku
strákamir í u-16 ára liðinu.
Liðið heldur utan 26. desember og
kemur heim 31. desemher.
Mjög sterkt mót
Átta lið taka þátt í mótinu að
þessu sinni og eru Frakkar og
Rússar nú með að nýju, eftir
nokkurt hlé, og styrkist mótið mjög
með tilkomu þeirra. Danmörk hefur
unnið u-18 ára keppnina tvö ár í
röö.
ísland lendir núna í mjög erfiðum
riðli, þ.e. með Rússlandi,
Þýskalandi og Póllandi, en i B-riðli
leika Danmörk, Frakkland, Sviss og
Saarland.
Fjórir nýliðar
Flestir leikmanna íslenska liðsins
eru að fara í annað skiptið á þetta
mót en fjórir nýliðar em þó í
hópnum, þeir Heimir Árnason, KA,
Jóhann Guðmundsson, Selfossi, Sig-
urgeir Ægisson, FH, og Sindri
Sveinsson, Fram.
Landsliðshópurinn
Bjarki Hvannberg................Val
Daníel S. Ragnarsson............Val
Einar Jónsson..................Fram
Guöjón Sigurösson............Gróttu
Halldór Sigfússon, fyrirliöi.....KA
Helgi H. Jónsson...........Stjarnan
Heimir Ámason....................KA
Hjalti Gylfason...............Fylki
Hörður Flóki Ólafsson............KA
Jóhann Guðmundsson..........Selfoss
Ragnar Óskarsson.................ÍR
Sigurgeir Ægisson................FH
Sigurgeir Höskuldsson...........Val
Sindri Sveinsson...............Fram
Sverrir Þóröarson................FH
Þorsteinn........................KR
Vilhelm Sigurðsson.............Fram
Þjálfari liðsins er Heimir Ríkarðsson og
honum til aðstoðar er Bjöm Eiriksson.
Liðsstjóri er Einar Bjömsson.
Harðir strákar
„Þessir strákar hafa æft vel og
eru mjög áhugasamir og miklir
reglumenn - en að undanförnu hafa
þó skólaprófin aðeins truflað æfing-
arnar. Nokkuð hefur þó borið á
veikindum en allir em búnir að ná
sér af þeim, sem betur fer.
Þetta eru harðir strákar og í góðri
gmnnæfingu svo ég geri mér vonir
um góðan árangur - þrátt fyrir allt.
Drengimir eru metnaðarfullir og og
leggja sig alla í þetta,“ sagði Heimir.
Umsjón
Halldór Halldórsson
Leikir um sæti - B-lið:
1.-3. Haukar-Stjaman..............6-5
1.-3. Fylkir-Stjarnan.............3-8
1.-3. Fylkir-Haukar...............4-6
Meistari: Haukar. 2. sæti Stjarhan. 3.
Fylkir.
4.-6. Grótta-Fram.................9-9
4.-6. FH-Grótta...................7-8
4.-6. Fram-FH....................13-2
4. sæti Fram. 5. Grótta. 6. FH.
7.-9. Fram (2)-Breiðablik.........6-7
7.-9. ÍBV-Breiðablik..............6-3
7.-9. Fram (2)-ÍBV.............. 6-1
7. sæti Fram(2). 8. Breiðablik. 9. ÍBV.
10.-11. Stjaman-Fjölnir...........0-5
U-18 ára landsliðið í handbolta:
Haukastelpurnar sigruðu í keppni B-liða og er liðið þannig skipað: Bryndís Jónsdóttir, Guðrún Einarsdóttir, Gígja
Jóhannsdóttir, Tinna Barkardóttir, Erna Þráinsdóttir, Unnur Ásgeirsdóttir, Ingibjörg Karlsdóttir, Áslaug
Þorgeirsdóttir, Sonja Steinarsdóttir, Petra Baumruk, Jóna S. Angantýsdóttir og Elsa K. Auðunsdóttir. - Lið
Stjörnunnar varð í 2. sæti og er liðið þannig skipað: Arna Gunnarsdóttir, Birna Kristinsdóttir, Elsa Rut Óðinsdóttir,
Erla H. Tryggvadóttir, Hjördís H. Sigurðardóttir, María Einarsdóttir, Rakel Dögg Bragadóttir, Helga Sigurðardóttir,
Erna Haraldsdóttir og Sigurbjörg Guðmundsdóttir. - Lið Fylkis varð í 3. sæti og er þannig skipað: Tinna Birgisdóttir,
Ragnhildur Guðmundsdóttir, Lára Lýðsdóttir, Alita Smáradóttir, Birgitta Óttarsdóttir, Maríanna Magnúsdóttir, Sólveig
Pétursdóttir, Valgerður Halldórsdóttir, Arna Hilmarsdóttir og Ólöf Jóstíusdóttir.
U-18 ára landsliðið í handbolta hefur góðum leikmönnum á að skipa og er til alls víst í Þýskalandi. DV-mynd Hson
t
Þrjú bestu liðin í keppni A-liða: Fremst eru FH-stelpurnar sem urðu meistarar og er liðið þannig skipað: Svanhildur Einarsdóttir, Hrönn Hallgrímsdóttir, Birna
Helgadóttir, Harpa Samúelsdóttir, Alma Rún Pálmadóttir, Kristín Rut Jónsdóttir, Margrét Ólafsdóttir og Nína Geirsdóttir. - í miðröðinni eru ÍR-stelpurnar sem
urðu í 2. sæti og er liðið þannig skipað: Marta Joy Hermannsdóttir, íris Sverrisdóttir, Margrét Ósk Guðbergsdóttir, Dagbjört Steinarsdóttir, Soffía Arna
Ómarsdóttir, María K. Valgeirsdóttir, Kristín Gunnarsdóttir, Linda H. Hermannsdóttir, Heba Erlingsdóttir, Sólveig Kjærnested, Brynja Gunnarsdóttir, íris Dögg
Harðardóttir og Sigrún Klörudóttir. - Lið Fram varð í 3. sæti og er liðið þannig skipað: Erla B. Tryggvadóttir, Eva Hrund Harðardóttir, Sandra Kristjánsdóttir,
Sandra R. Þorsteinsdóttir, Alma Sigurðardóttir, Arna Ómarsdóttir, Sesselja Vilhjálmsdóttir og Hildur Knútsdóttir.
’ '