Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Side 28
32 MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1996 Auglýsendur, athugið! /////////////////// SMÁAUGLÝSINGADEILD OPIÐ: föstudaginn 20. desember kl. 9-22 ATH. Smáauglýsing í helgarblað verður að berast fyrir kl. 17 á föstudag. Laugardaginn 21. desember kl. 9-14. Sunnudaginn 22. desember kl. 16-22. Mánudaginn 23. desember, Þorláksmessu, kl. 9-18. Fimmtudaginn 26. desember, annan í jólum, kl. 16-22. LOKAÐ: aðfangadag og jóladag. Síðasta blað fyrir jól kemur út eldsnemma að morgni mánudaginn 23. desember. Fyrsta blað eftir jól kemur út um hádegi föstudaginn 27. desember. smáauglýsingadeild Þverholti 11 - sími 550 5000 Fréttir ^Áhöfn Frera fær styttra jólafrl en áhöfn Vigra: Ahöfn Vigra samþykkti útiveru á sjómannadaginn - en Freramenn ekki, segir útgeröarmaðurinn „Þetta er afar einfalt mál. Ég gerði í sumar samning við sjómenn- ina á Vigra um að vera úti á sjó- mannadaginn. Þeir sögðu já og fengu því tveggja daga frí núna. Freraáhöfnin sagði nei vegna sjó- mannadagsins og þess vegna fengu skipverjar ekki frí,“ segir Gísli Jón Hermannsson, útgerðarmaður Ög- urvíkur, en heyrst hefur af óánægju vegna þess að verið sé að mismuna áhöfnunum tveimur. Vigri kom inn laugardag en Freri ekki fyrr en um hádegi í dag þrátt fyrir að hafa einnig verið á sjó á sjómannadag- inn. Áhöfn Frera kærði málið hins vegar og dómur féO þeim í vil og var útgerðin sektuð. Gísli Jón segir sektina hafa verið greidda. „Það er ekkert verið að mismuna einum eða neinum. Okkur er heimilt að halda skipunum úti fram á Þor- láksmessu en áhöfiiin á Vigra samdi um tveggja daga frí nú í stað útive- runnar á sjómannadaginn. Það gerðu Freramenn ekki og því fá þeir ekki frí. Þeir sem segja nei fá ekki en þeir sem segja já fá. Þetta er ekki flóknara en það,“ segir Gísli Jón. -sv „Við framleiðum hér sælumjólk, smjörva, smjör og mjólkurduft. Sérstaða okkar felst einna helst í framleiðslu á kálfa- fóðri. Það er nóg að gera hér og stöðug vinna allt árið,“ segir Björn Baldurssson, aðstoðarverkstjóri hjá Mjólkurbúi Húnvetninga á Blönduósi sem hér sést við smjörstrokkinn. Mjólkurbúið er af meðalstærð og framleitt er úr 4 millj- ónum lítra af mjólk árlega. DV-mynd ÞÖK Viö óskum landsmönnum öllum gleöilegra jóla, árs og fribar. Þökkum lesendum sámfylgdina á árinu RagnheiSur Þórdís Jónsdóttir 1. verðlaun í jólakortasamkeppni OV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.