Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Blaðsíða 41
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1996
45
DV___________________
Ámi Stefánsson
Ámi Stefánsson hrl., Goðheimum
21, Reykjavík, verður sjötíu og fimm
ára á jóladag.
Starfsferill
Árni fæddist að Miðhúsum í
Reykjarijarðarhreppi við Djúp og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófí frá MA 1945, embættisprófi í
lögfræði frá HÍ 1949 og öðlaðist hrl.-
réttindi 1961.
Árni var fulltrúi hjá Lárusi Jó-
hannessyni hrl. í Reykjavík 1949-60
en starfrækti síðan eigin lögmanns-
stofu og fasteignasölu.
Árni sat í nokkur ár í yfirfast-
eignamatsnefnd, var oft dómkvadd-
ur matsmaður og nokkrum sinnum
meðdómsmaður í héraðsdómi.
Hann hefur starfað í ýmsum félög-
um, s.s. Lögmannafélaginu og Djúp-
mannafélaginu.
Fjölskylda
Ámi kvæntist 22.9. 1945 Hólm-
laugu Halldórsdóttur, f. 25.1.1922, d.
1982, húsmóður. Hún var
dóttir Halldórs Gunn-
laugssonar, kaupmanns i
Hveragerði, og Ingibjarg-
ar Jósefsdóttur, hjúkrun-
arkonu, síðast í Reykja-
vík.
Böm Áma og Hólm-
laugar eru Stefán, f. 17.5.
1945, húsasmiður í
Reykjavík, kvæntur Stef-
aníu Einarsdóttur og eiga
þau þrjú börn; Guðný, f.
27.5. 1949, húsmóðir og
skrifstofumaður í Reykja-
vík, gift Bjarna Sigurðssyni og á
hún þrjú böm.
Sonur Guðnýjar og fóstursonur
Áma og Hólmlaugar er Ámi Sæ-
mundsson, f. 4.2. 1960, nemi í
Reykjavík.
Systkini Áma eru Amdís, f. 30.1.
1923, húsmóðir í Reykjavík; Kristín,
f. 17.4. 1929, húsmóðir í Reykjavík;
Páll, f. 28.4. 1932, bifvélavirki í
Reykjavík.
Foreldrar Árna voru Stefán Páls-
son, f. 7.2. 1890, d. 30.10. 1967, bóndi
að Miðhúsum og í Svans-
vík við ísafjörð, og k.h.,
Jónfríður Elíasdóttir, f.
8.10. 1893, d. 20.12. 1975,
húsfreyja.
Ætt
Stefán var bróðir Guð-
rúnar, móður Þórðar Þor-
bjarnarsonar, forstjóra
Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins, föður
Þórðar Þ. Þorbjarnarson-
ar borgarverkfræðings.
Stefán var sonur Páls, alþm. og próf-
asts í Vatnsfirði Ólafssonar, alþm.,
prófasts á Melstað og dómkirkju-
prests Pálssonar, prests í Guttorms-
haga Ólafssonar, prests í Eyvindar-
hólum Pálssonar, bróður Páls á
Hörgslandi, langafa Guðrúnar, móð-
ur Péturs Sigurgeirssonar biskups.
Móðir Páls var Helga Jónsdóttir
,,eldprests“ Steingrímssonar. Móðir
Ólafs á Melstað var Kristín, systir
Þuríðar, langömmu Vigdísar for-
seta. Kristín var dóttir Þorvalds,
prófasts og skálds í Holti undir
Eyjafjöllum Böðvarssonar, prests í
Holtaþingum Presta-Högnasonar,
prests á Breiðabólstað Sigurðsson-
ar. Móðir Páls í Vatnsfirði var Guð-
rún Ólafsdóttir, Stephensens dóms-
málaritara í Viðey og Sigríðar Stef-
ánsdóttur Stephensens, systur Stef-
áns, langafa Þóris Stephensens dóm-
kirkjuprests.
Móðir Stefáns í Miðhúsum var
Arndís, systir Ragnhildar, móður
Birgis og Kristjáns Thorlacius.
Arndís var dóttir Péturs Eggerz,
verslunarstjóra á Borðeyri, og Jak-
obínu Pálsdóttur Melsteð, systur
Ragnheiðar, langömmu Ástu, ömmu
Davíðs Oddssonar forsætisráðherra.
Jónfríður var dóttir Elíasar, b. og
sjómanns í Uppsölum í Selárdal
Oddssonar, úr Garpdalssókn
Björnssonar.
Móðir Jónfríðar var Kristín Jóns-
dóttir.
Árni verður að heiman á afmælis-
daginn.
Árni Stefánsson.
Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjándóttir, húsfreyja að
Vegamótum á Blönduósi, verður átt-
ræð á jóladag.
Starfsferill
Helga fæddist á Blönduósi og ólst
þar upp. Hún stundaði lengst af hús-
móðurstörf á mjög bammörgu
heimili. Auk þess starfaði hún f eld-
húsi við Héraðssjúkrahúsið á
Blönduósi í nokkur ár.
Fjölskylda
Maður Helgu er Þórarinn Þor-
leifsson, f. 10.1. 1918, fyrrv. verslun-
armaður á Blönduósi. Hann er son-
ur Þorleifs Jónssonar, verkamanns
á Blönduósi, og k.h., Ölmu Ólafs-
dóttur húsmóður.
Dóttir Helgu frá því áður er Lára
Bogey Finnbogadóttir, f. 15.10. 1936,
starfsmaður hjá Særúnu á Blöndu-
ósi, gift Árna M. Sigurðs-
syni bílstjóra. Faðir Láru
var Finnbogi Sveinsson, f.
22.12. 1913, d. 11.10. 1936.
Börn Heigu og Þórarins
eru Guðný Þórarinsdótt-
ir, f. 1.8. 1943, húsfreyja í
Meðalheimi í Torfalækj-
arhreppi, en maður henn-
ar er Óskar Sigurfinns-
son, bóndi og starfsmaður
hjá Sölufélagi Austur-
Húnvetninga; Heiðrún
Þórarinsdóttir, f. 9.8.1944,
d. 3.6. 1977, húsfreyja að Eldjárns-
stöðum í Svínavatnshreppi en mað-
ur hennar var Þorsteinn Sigur-
valdason, bóndi þar; Sveinn Þórar-
insson, f. 22.9. 1945, bílstjóri hjá
Kaupfélagi Húnvetninga, kvæntur
Ásdísi Guðmundsdóttur, starfs-
stúlku hjá Særúnu á Blönduósi;
Gestur Þórarinsson, f. 11.7. 1947,
hitaveitustjóri á Blönduósi, kvænt-
ur Ragnhildi Helgadóttur
verkakonu; Hjördís Þór-
arinsdóttir, f. 27.6. 1948,
húsfreyja á Snærisstöð-
um í Svínavatnshreppi,
gift Benedikt Steingríms-
syni, bónda þar; Finn-
bogi Þórarinsson, f. 16.11.
1949, starfsmaður hjá
Haraldi Böðvarssyni á
Akranesi, kvæntur Vil-
borgu Guðjónsdóttur
verkakonu; Ólafur Þórar-
insson, f. 19.2.1951, versl-
unarmaður í Keflavík, kvæntur
Kristínu Þorkelsdóttur húsmóður.
Bamaböm Helgu eru nú tuttugu
og fjögur talsins, langömmubörnin
eru tuttugu og sjö og langa-
langömmubörnin þrjú.
Systkini Helgu: Guðmunda
Margrét Kristjánsdóttir, f. 3.9. 1915,
d. 10.1. 1994, húsmóðir á Akureyri,
gift Birni Guðmundssyni; Torfhild-
ur Sigurveig Kristjánsdóttir, f. 28.8.
1924, húsmóðir í Grindavík, gift Páli
Eyþórssyni; Jónína Alexandra
Kristjánsdóttir, f. 25.11. 1925, hús-
móðir á Selfossi, ekkja eftir Bjama
Kristinsson; Guðný Hjálmfríður
Elín Kristjánsdóttir, f. 27.9. 1930,
húsmóðir í Reykjavík; ívar Krist-
jánsson, f. 22.9. 1934, búsettur á Ak-
ureyri, kvæntur Rósu Sighvatsdótt-
ur; Hallbjörn Reynir Kristjánsson, f.
24.5. 1936, búsettur á Blönduósi,
kvæntur Guðrúnu Elsu Kristjáns-
dóttur. Auk þess vora tveir bræður
sem dóu í frumbernsku.
Foreldrar Helgu voru Kristján
Júlíusson, f. 20.3. 1892, d. 28.1. 1986,
verkamaður á Blönduósi, og k.h„
Margrét Guðrún Guðmundsdóttir, f.
12.8. 1897, d. 8.12. 1974, húsmóðir.
Helga verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Helga Kristjánsdóttir.
Jóhannes Haraldur Proppé
Jóhannes Haraldur Proppé, fyrrv.
framkvæmdastjóri, Hæðargarði 33,
Reykjavík, verður sjötugur annan í
jólum.
Starfsferill
Jóhannes fæddist við Tjamargöt-
una í Reykjavík og ólst þar upp.
Hann stundaði bamaskólanám við
Miðbæjarskólann, útskrifaðist frá
VÍ 1944, stundaði framhaldsnám við
vátryggingaskóla í London 1945-46
jafnframt því sem hann starfaði hjá
Lloyd’s tryggingafélaginu.
Jóhannes starfaði hjá Samtrygg-
ingu íslenskra botnvörpunga
1944-67, lengst af sem fúlltrúi, og
starfaði hjá Sjóvátryggingafélagi Is-
lands 1967-92, lengst af sem deildar-
stjóri. Þá var hann jafnframt fram-
kvæmdastjóri hjá Samtryggingu ís-
lenskra botnvörpunga 1969-76 er
fyrirtækið var lagt niður.
Jóhannes starfaði mikið á vegum
Heimdallar og landsmálafélagsins
Varðar og sinnti ýmsum félags- og
trúnaðarstörfum innan Sjálfstæðis-
flokksins. Hann hefur verið virkur
félagi í Frímúrarareglunni frá 1950,
hefur setið í stjóm og verið gjald-
keri Landssamtaka hjartasjúklinga
frá stofnun 1983, hefur starfað mik-
ið á vegum AA-samtakanna frá 1968
og sinnt ýmsum nefndastörfum.
Fjölskylda
Jóhannes kvæntist 9.4. 1948 Unni
Guðbjörgu Guðmundsdóttur
Proppé, f. 14.6.1929, sjúkraliða. Hún
er dóttir Guðmundar Helga Guð-
mundssonar, f. 4.3. 1897, d. 3.4. 1971,
skipstjóra í Reykjavík, og k.h., Guð-
finnu Árnadóttur, f. 2.6.1901, d. 30.4.
1975, húsmóður.
Börn Jóhannesar og Unnar eru
Sævar Guðmundur Proppé, f. 24.9.
1945, kaupmaður í Reykja-
vík, kvæntur Ingu Jónu
Sigurðardóttur og á hann
Qögur börn; Fríða Proppé,
f. 20.4. 1949, fyrrv. ritstjóri
og meðferðarfulltrúi, gift
Helga Skúlasyni og á hún
tvö börn; Ragna Björk
Proppé, f. 9.8. 1954, hús-
móðir á Jótlandi, en mað-
ur hennar er Valur Frið-
riksson og á hún fjórar
dætur; Auður Brynja
Proppé, f. 9.8. 1965, starfs-
maður hjá Air Lingus í
London, en maður hennar er Jean-
Pierre Bailey og á hún tvær dætur.
Systkini Jóhannesar: Laura Hild-
ur Proppé, f. 27.6. 1905, d. 12.7. 1992,
húsmóðir á Patreksfírði, var gift
Garðari Jóhannessyni útgerðar-
manni sem einnig er látinn og eign-
uðust þau fimm börn; Friða Proppé,
f. 25.9. 1906, d. 23.12. 1975, lyfsali á
Akranesi; Clara Proppé, f. 17.1.1908,
d. 16.5.1910; Hugo Adolph Proppé, f.
13.10. 1909, d. 21.12. 1933, frímerkja-
kaupmaður í Reykjavík; Jakob
Proppé, f. 15.11. 1910, d. 2.3. 1911;
Carla Hanna Proppé, f. 18.7. 1912, d.
31.10. 1977, húsmóðir í Reykjavík,
var gift Þóri Kristni Kristinssyni
bifreiðasmið sem einnig er látinn og
eignuðust þau þrjú börn; Gunnar
Knútur Proppé, f. 22.9. 1915, fyrrv.
verslunarstjóri og sölumaður í
Reykjavík, var kvæntur Áslaugu El-
isabet Árnadóttur Proppé tannsmið
sem lést 1991 og eignuðust þau fjög-
ur börn; Ástráður Jónsson Proppé,
f. 16.8. 1916, d. 21.5. 1995,
(kjörsonur), húsgagna-
smiður i Reykjavík, var
kvæntur Sigriði Hans-
dóttur Proppé sem lést
1989 og eignuðust þau
þrjú börn.
Foreldrar Jóhannesar
voru Carl Friedrich
Proppé, f. 22.11. 1876, d.
3.11. 1942, verslunar-
stjóri í Ólafsvík og á
Þingeyri, síðar fram-
kvæmdastjóri í Reykja-
vík, og k.h., Jóhanna
Jósafatsdóttir Proppé, f. 15.6.1880, d.
10.3. 1935, húsmóðir.
Ætt
Carl Friedrich var elsta barn
Claus Eggerts Dietrich Proppé, bak-
arameistara í Hafnarfirði, og k.h.,
Helgu Jónsdóttur Proppé.
Claus Eggert var sonur Carls
Heinrich Proppe, gestgjafa í Ne-
umúnster í Holstein í Þýskalandi,
og k.h., Dorotheu Proppe, f. Reese,
húsmóður.
Helga var dóttir Jóns Jónssonar,
dbrm. og b. á Grjóteyri í Kjós, og
Bóthildar Bjai-nadóttur, b. í Kára-
nesi í Kjós, Sigmundssonar.
Jóhanna Jósafatsdóttir var dóttir
Jósafats Samsonarsonar, b. á
Kirkjufelli í Grundarfirði, og k.h.,
Brynhildar Teitsdóttur.
Jóhannes er að heiman á afmæl-
isdaginn.
staðgreiðslu-
og greiðslukortaafsláttur aM.milli hirni0So
og stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáauglfsingar
DV
550 5000
Afmæli
Tll hamingju
með afmælið
24. desember
75 ára
Guðrún Jóhannsdóttir,
Bakkakoti 2 A, Skaftárhreppi.
Sigurður Jónsson,
Árskógum 8, Reykjavík.
Sigurgeir Halldórsson,
Öngulsstöðum III, Eyjafjarðar-
sveit.
70 ára
Þorsteinn Ingólfsson,
Brekkuhvammi 12, Hafnaifiröi.
Stefán Danielsson,
Tröllatungu, Kirkjubólshreppi.
Finnur Malmquist,
Dalbraut 55, Akranesi.
Hulda G. Sæland,
Espiflöt 1, Biskupstungna-
hreppi.
60 ára
Auðdís Karlsdóttir,
Kvíholti 10, Hafnarfíröi.
Hrefha Sigurðardóttir,
Hjarðarholti 10, Akranesi.
50 ára
Sigurborg Pétursdóttir,
Breiðvangi 65, Hafnarfirði.
Brynja Baldursdóttir,
Hnjúkaseli 11, Reykjavík.
Brynja veröur með morgun-
kaffi fyrir vini og vandamenn
að heimili sínu á aðfangadags-
morgun, frá kl. 10-14.
Guðmundur J. Kristvinsson,
Krummahólum 55, Reykjavík.
Kolbeinn Sigurbjömsson,
Lerkilundi 15, Akureyri.
Margrét Bjömsdóttir,
Stekkjarflöt 18, Garðabæ.
40 ára
Gerður Guðmundsdóttir,
Gnitaheiði 4, Kópavogi.
Jóhann Kieman,
Dúfnahólum 6, Reykjavík.
Ingibjörg Björgvinsdóttir,
Kambaseli 65, Reykjavík.
Bjöm Logi Björnsson,
Mávanesi 2, Garöabæ.
Gunnar Ríkharðsson,
Þingeyrum, Sveinsstaðahreppi.
Stefán Kjæmested,
Miðhúsum 48, Reykjavík.
Brynja Björg Bragadóttir,
Eiðismýri 20, Seltjamamesi.
Símon Már Sturluson,
Ásklifi 13, Stykkishólmi.
Guðlaug Bergmann Matthí-
asdóttir,
Skólavegi 14, Keflavík.
Jónas Pétur Pétursson,
Skútahrauni 16, Skútustaða-
hreppi.
Jónína M. Arinbjarnar,
Gnoðarvogi 32, Reykjavík.
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Smáauglýsingar
i
550 5000