Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1996, Blaðsíða 52
Vinningstölur laugardaginn 21.12/96
5 23 24
m 35 38
HeildarvinningsupphæO
19.248.270
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnlngsupphæð
l.SqfS 6.597.080
2. 4 af J+ 5 179.640
3. 4qf5 173 8.950
4. 3 af5 5.466 660
Vinningstölur
21.12.96
@@@
KIN
FRETTASKOTJÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
I I
MÁNUDAGUFt 23. DESEMBER 1996
Smáauglýsingadeild DV er opin
í dag, Þorláksmessu, frá kl. 9-18.
Blaðaafgreiðsla DV er opin frá
kl. 6-20 í dag.
Smáauglýsingadeild og blaða-
afgreiðsla DV verða lokaðar á
aðfangadag og jóladag.
Smáauglýsingadeild er opin
fimmtudaginn 26. desember, annan
í jólum, frá kl. 16-22. Síminn er 550
5000.
Ritstjórn er lokuð á aðfangadag
og jóladag, en vakt verður frá kl.
13.30-19 á annan í jólum. Beinn sími
á ritstjórn er 550 5866.
DV kemur næst út um hádegi
fóstudaginn 27. desember.
Gleðileg jóll
ERU FERÐAMENN
ÞÁ UMSVIFALAUST
JARSAPIR?
Biskup íslands segist verða var við aukna fátækt á íslandi:
Margir eiga ekki
fýrir jólagjöfum
- ástandið hjá mörgum bágborið, segir herra Ólafur Skúlason
„Fólk hefur hringt í mig og sagt
að það sjái enga leið til þess að
kaupa jólagjafir handa bama-
börnunum. Ég held að það sé
varla hægt að vera aumari en að
geta ekki glatt barnabömin sín á
jólum án þess að lýsa því yfir að
maður sé alger aumingi. Stálpuð
börn skilja svona lagað en það er
jafnsárt fyrir afann og ömmuna
að fokið skuli í öll skjól hjá þeim,“
segir biskupinn yfir íslandi, herra
Ólafúr Skúlason.
Hann segir að ástandið hjá
mörgu fólki sé orðið svo bágborið
að það eigi ekki i sig og á hvorki
um jólin né í annan tíma. Hann
segir svipað marga leita til hjálp-
arstofnunar kirkjunnar í ár og í
fyrra. Aftur á móti séu þeir sem
leita sér hjálpar núna orðnir
dýpra sokknir í vandræðin heldur
en þeir voru í fyrra.
Kerfið þjarmar að fólkinu
„Það er enginn vafi á því að það
er fátækt á íslandi. Kerfið þjarm-
ar að fólkinu. Þeir sem voru fá-
tækir í fyrra sjá síður til sólar nú.
Kirkjan fylgist með þessu. Unga
fólkið er útsett fyrir atvinnuleysi
og eldra fólkið, sem hætt er að
ganga reglulega til starfa, kvartar
yfir því að það sé erfitt að láta
endana ná saman,“ segir Ólafur.
Ólafur getur ekki hugsað þá
hugsun til enda að gamla fólkið
þurfi að kvíða hverju ári sem líð-
ur vegna þess að það sé erfiðara
að eiga aura fyrir nauðþurftum.
Kirkjan á erfitt með að sætta sig
við að velferöarþjóðfélagið verði
lagt niöur.
Mænum niöur á Austurvöll
„Við viljum ekki heldur horfast
í augu við að bamabörnin okkar
þurfi að burðast með slíka skulda-
bagga að þau geti ekki risið upp.
Vandi íslendinga er tvíþættur, við
viljum ekki safna skuldum en við
viljum samt halda í það sem hef-
ur gert ísland að velferðarþjóðfé-
lagi og þess vegna mænum við
niður á Austurvöll til þess að gá
hvort þeir sem við höfum kosið
finni einhvern meðalveg til þess
að sigla fram hjá þrengingum án
þess að varpa böggunum á barna-
bömin okkar,“ segir Ólafur.
Fólk leitar mikið til prestanna i
nauð og þeir koma því í samband
við hjálparstofnanir. Sálarlíf
þessa fólks er oft á tíðum afar bág-
borið. Til þess að fá aðstoð frá
Hjálparstofnun kirkjunnar þarf
að hafa uppáskrift frá sóknar-
presti sem hefur kynnt sér ástand
viðkomandi.
„Hjálparstofnunin leysir ekki
fátæktarvandann á varanlegan
hátt en reynir að létta fátæka fólk-
inu hátíðarnar. Hún lætur það
hafa pakka með matargjöfum sem
framleiðendur og stórkaupmenn
hafa gefið, eins og kjötstykki og
dósamat.
-em
Jólapakkamót Taflfélagsins Hellis fór fram i Mjóddinni í gær. Keppt var í fjórum aldursflokkum, 15 ára og yngri, og
voru fjölmargir ungir skákmenn sem tóku þátt í mótinu.
DV-mynd Pjetur
E-töflur teknar
Fíkniefnadeild lögreglunnar lagði
hald á 500 E-töflur sem bárust til
landsins í pósti.
Tollverðir póstmiðstöðvarinnar í
Ármúla fundu töflurnar í almennri
póstsendingu. Fíkniefnadeildin á-
kvað að skipta um innihald bögguls-
ins og tilkynning var send móttak-
anda en hann lét ekki sjá sig. -RR
Jólaveðrið:
Milt og
gott
Allt stefnir í að jólaveðrið í ár
verði milt og gott um land allt
með suðlægri átt og mildu veðri
sunnan- og vestanlands en ekki er
hægt að útiloka vægt frost norð-
anlands. Sömu sögu er að segja út
vikuna og ekki er búist við
breyttu veðri fyrr en fer að líða að
helgi.
Veðrið í dag er á bls. 53
Qledilajjól ag. gæfuríkt
kanumdi ár með þökk
fyrír mðákiptin á áriim
óem er að líða.