Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1997, Page 2
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997
18
ténlist
Island
-plötur og diskar—
t 1.(2) Merman
Emilíana Torrini
| 2. (1 ) Strumpastuð
Strumparnir
t 3. ( 9 ) Pottþétt 96
Ýmsir
4 4. ( 3 ) Pottþétt jól
Ýmsir
| 5. ( 5 ) Allar áttir
Bubbi Morthens
t 6. ( 6 ) Seif ,
Póll Oskar
t 7. (12) Kvöldið er okkar
Ingimar Eydal
t 8. (13) Falling Into You
Celine Dion
4 9. ( 8 ) Jólaperlur
Ýmsir
410. ( 9 ) Pottþétt 6
Ýmsir
|11. ( 7 ) Fólk erfrfl
Botnleðja
4 12. ( 4 ) Í.AIftagerði
Alftagerðisbræður
113. (16) Secrets
Toni Braxton
114. (10) Pottþéttdans
Ýmsir
115. (Al) Coming Up
Suede
116. ( - ) Spice
Spice Girls
117. ( - ) Stoosh
Skunk Anansie
118. (- ) Sígildar sögur
Brimkló
119. (Al) Older
George Michael
120. (-) Ómissandi fólk
KK og Magnús Eiríksson
London
-lög-
t 1. (- ) 2 Become 1
Spice Girls
| 2. (1 ) Knockin' on Heavens Door
Ounblane
t 3. (- ) Don't Cry for Me Argentina
Madonna
4 4. ( 2 ) Un-Break My Heart
Toni Braxton
4 5. ( 3 ) One & One
Robert Miles featuring Maria N..
4 6. ( 4 ) A Different Beat
Boyzone
| 7. ( 7 ) Breathe
The Prodigy
4 8. ( 5 ) Horny
Mark Morrison
4 9. ( 6 ) All by Myself
Celine Dion
t 10. (- ) Don't Marry Her
The Beautiful South
NewYork
| 1.(1) Un-Break My Heart
Toni Braxton
!2. ( 2 ) I Belive I Can Fly
R. Kelly
3. ( 3 ) Don't Let Go
En Vogue
4. ( 4 ) No Diggity
Blackstreet
t 5. ( 5 ) Nobody
Keith Sweat Featuring Athena...
t 6. ( 7 ) I Belive in You and Me
Whitney Houston
4 7. ( 6 ) Mouth
Merril Bainbridge
t 8. ( 9 ) l'm Still in Love With You
New Edition
t 9. (10) I Finally Found Someone
Barbra Streisand & Bryan Adams
t 10. ( -) Macarena
Los Del Rio
Bretland
-plöturog diskar —.*_
t 1. ( 1 ) Spice
Spice Girls
t 2. ( 2 ) Take Two
Robson & Jerome
t 3. ( 3 ) Blue Is the Colour
The Beautiful South
t 4. ( 4 ) Falling into You
Celine Dion
t 5. ( 5 ) Greatest Hits
Simply Red
t 6. ( 6 ) The Score
Fugees
t 7. ( 7 ) A Different Beat
Boyzone
t 8. ( 8) Travelling without Moving
Jamiroquai
t 9. ( 9 ) Older
George Michaei
t 10. (10) Crocodile Shoes II
Jimmy Nail
-- Bandaríkin
-plöturog diskar—
t 1.(1 ) Tragic Kingdom
No Doubt
t 2. ( 2 ) Falling into You
Celine Dion
t 3. ( 3 ) The Preacher's Wife
Soundtrack
t 4. ( 4 ) Razorblade Suitcase
Bush
t 5. ( 6 ) Romeo + Juliet
Soundtrack
4 6. ( 8 ) Secrets
Toni Braxton
4 7. ( 5 ) Space Jam
Soundtrack
4 8. ( 7 ) Blue
Leann Rimes
t 9. ( 9 ) The Moment
Kenny G
tlO. (- ) Evita
Soundtrack
Bestu (og verstu)
plötur sídasta árs
Mörg erlend blöð og tímarit og aðrir miðlar hafa
þegar birt lista sína yfir bestu plötur síðasta árs.
Sum hafa einnig látið fylgja með lista yfir verstu
plötur ársins og eru þeir í mörgum tilfellum ekki
síður fróðlegir en hinir.
Q
Breska tónlistarblaðið Q birti á dögunum lista
yfir fimmtíu bestu plöturnar að mati gagnrýnenda-
hóps blaðsins. Þeim var ekki raðað í númeraröð. Þó
voru tiu bestu plöturnar dregnar í sérstakan dilk og
þeim raðað í stafrófsröð og síðan komu hinar fjöru-
tíu sem raðað var á sama hátt. Tíu bestu plötur árs-
ins 1996 voru þessar að mati gagnrýnenda Q:
1977 (Ash), Ben Folds Five (Ben Folds Five), Slang
(Def Leppard), The Score (Fugees), Everything Must
Go (Manic Street Preachers), Moseley Shoals (Ocean
Colour Scene), New Adventures in Hi Fi (R.E.M.),
Mercury Falling (Sting), Coming up (Sting) og
Second Toughest in the Infants (Underworld).
People
Starfsmenn bandaríska vikuritsins People eru
alla jafna ekki þekktir fyrir að kafa djúpt ofan í hlut-
ina enda er blaðið byggt upp á stuttum greinum og
viðtölum. Þar birtist þó ávallt umsögn um helstu
plötur sem út eru gefnar og það er löngu orðinn fast-
ur liður að tónlistarskrifararnir geri upp hug sinn í
lok hvers árs til þess hvað skar sig úr í gæðum.
People-fólkið setur plötuna New World Order með
gamla soul- og gospelsöngvaranum Curtis Mayfield
í efsta sætið yfir tíu bestu plötur ársins. í öðru sæti
er New Adventures in Hi Fi með R.E.M. Kanada-
maðurinn Beck er í þriðja sæti með plötu sína Od-
elay. Þá kemur Tony Toni Toné með plötuna House
of Music. Fimmta besta plata siðasta árs er að mati
People Down on the Upside með Seattlehljómsveit-
inni Soundgarden. Þar á eftir kemur I’m with
Stupid með Aimee Mann. Eventually með Paul
Westerberg er í sjöunda sæti, The Trouble with the
Truth með Patty Loveless er númer átta. Þá kemur
Appalachia Walts með Yo-Yo Ma, Edgar Meyer og
Mark O’Connor og Lyle Lovett rekur lestina með
plötu sína The Road to Ensenada.
í People er einnig birtur listi yfir tíu verstu plöt-
R.E.M. virðist koma plötu sinni New Adventures in Hi Fi víða inn á listana yfir tíu bestu plötur síðasta
árs.
ur ársins. Hann er svohljóðandi:
Older (George Michael), Wildest Dreams (Tina
Turner), Chaos and Disorder (Prince), To the Faith-
ful Departed (The Cranberries), Broken Arrow (Neil
Young with Crazy Horse), Louder than Words (Lion-
el Richie), Life Is Sweet (Maria McKee), 18 ’tO I Die
(Bryan Adams), Tennessee Moon (Neil Diamond) og
You’ve Got to Believe in Something (Spin Doctors).
EW
Entertainment Weekly afgreiðir sitt toppsæti
snyrtilega og gefur það Nýju bresku innrásinni (The
British Reinvasion). Sumt af því sem henni tilheyr-
ir kom reyndar út í Evrópu (og væntanlega í Banda-
ríkjunum líka) árið 1995 en það hafði sín áhrif í
fyrra. Þessari nýju bresku innrás tilheyra sérstak-
lega að mati sérfræðinga Entertainment Weekly
plöturnar Different Class (Pulp), (What’s the Story)
Morning Glory? (Oasis) og platan með tónlist úr
kvikmyndinni Trainspotting. Þá fá L.T.J. Bukem,
Tricky og Underworld sérstakt hrós.
Að öðru leyti er listi EW yfir bestu plötur ársins
1996 svohljóðandi:
Walking Wounded (Everything but the Girl), Cali-
fornia Love (2Pac Featuring Dr. Dre), New
Adventures in Hi Fi (R.E.M.), You?Me?Us? (Richard
Thompson), C’Mon N’ Ride It (The Train) (Qad City
DJ’s), Sheryl Crow (Sheryl Crow), Mother Mother
(Tracy Bonham), Store in a Cool Place (Able Tasm-
ans) og Words (The Tony Rich Project).
EW valdi þrjár verstu plötur síðasta árs. Þær sem
fengu þann vafasama heiður eru FáUing into You
(Celine Dion), Evil Empire (Rage against the
Machine) og Live from the Fall (Blues Traveler).
Kiss fékk flesta á tónleika 1996
Bandaríska rokkhljómsveitin Kiss reyndist vera
sú atkvæðamesta á hljómleikasviðinu á nýliðnu
ári. Hljómsveitin fékk jafnvirði tæplega tveggja
komma níu milljarða króna í kassann sem er langt
umfram það sem sá næstvinsælasti fékk fyrir sína
hljómleikaferð.
Að því er fram kemur í tímaritinu Pollstar, sem
birtir aðallega viðskiptafréttir úr skemmtanalíf-
inu, var árið 1996 heldur dapurt hvað varðar að-
sókn á tónleika vestanhafs. Tónleikagestir vestan-
hafs eyddu samtals rúmlega einum milljarði doll-
ara í aðgöngumiða. Árið 1995 var heddarupphæð-
in 950 milljónir, allverulega miklu minna en árið
1994 þegar 1,4 milljarðar komu í kassa hljómleika-
haldaranna. Ástæðan fyrir því að heildarupphæð-
in varð hærri í fyrra en árið þar á undan er fyrst
og fremst sú að listamennimir fóru fram á að fá
lágmarkskauptryggingar frá tónleikahöldurum
hækkaðar frá því sem áður var og þurfti af þeim
sökum að hækka miðaverðið.
Allmargar hljómsveitir sem nutu vinsælda á
áttunda áratugnum voru endurreistar í fyrra til
að rifja upp gamlar lummur og til að bjarga í
leiðinni misjafnlega burðugum íjárhag gömlu
liðsmannanna. Hljómsveitir á borð við Styx,
Kansas, Steve Miller Band og Chicago
héldu út á vegina og upp á tónleikasviðin
en áheyrendurnir létu sig vanta. Raunar
voru það aðeins áttunda áratugar-hetjurn-
ar Kiss og Eagles sem gerðu það gott í
fyrra.
Af öðrum listamönnum sem hlutu náð
fyrir augum og eyrum bandarískra tónlist-
argesta á síðasta ári má nefna Alanis Mori-
sette, Oasis, Bush, Smashing Pumpkins,
Phish og Tori Amos. Phish náði mesta áhorf-
endaskaranum, sjötiu þúsund manns í yfir-
gefinni flugherstöð Bandaríkjahers í New
York fylki. Vinsælasta hljómleikaferðin þar
sem hópur listamanna ferðaðist saman og
efndi til sameiginlegra tónleika nefndist
H.O.R.D.E.
Kiss bar hins vegar höfuð og heröar yfir
aðra listamenn sem voru einir á ferð eða í
mesta lagi með upphitunarhljómsveitir með i
ferð. Hljómsveitin kom fram á 92 tónleikum í
Bandaríkjunum og varð uppselt á þá flesta. Vin-
sælasti dægurtónlistarmaður Bandaríkjanna það
sem af er þessum áratug, kántrísöngvarinn Garth
Brooks, varð i öðru sæti og á hæla honum kom
söngvarinn og lagasmiðurinn Neil Diamond. Sá
fjórði í röðinni varð Rod Stewart. Þá kom Bob
Seger, síðan Jimmy Buffett, Reba McEntire, Alan-
is Morisette, Hootie and the Blowfish og tíunda
sætinu náði gamla
rokkbrýnið Ozzie Os-
bourne sem ávallt
virðist eiga tryggan
áheyrendahóp þrátt
fyrir misjafnt gengi á löngum ferli.
Af þessum hópi eru það einungis söngkonan Al-
anis Morisette og hljómsveitin Hootie and the
Blowfish sem teljast til hóps ungra listamanna.
Hinir eru allir komnir vel til ára sinna og mælist
ferill þeirra flestra í áratugum. Bent hefur verið á
að tónleikaferð Kiss hafi verið ákaflega vel mark-
aðssett og þar af leiðandi hafi ekki verið hjá því
komist að hún heppnaðist vel. Á móti benda menn
á ákaflega vel markaðssetta ferð sem skilaði þó
fremur lélegum árangri, mældum í brúttótekjum
fyrir aðgöngumiðasölu. Hljómsveitin Sex Pistols
komst ekki einu sinni í eitt af fimmtíu efstu sæt-
unum yfir vinsælustu
tónleikasveitir
síðasta árs.
Kiss: Lengi lifir í gömlum glæöum eða lengi dugar gömul málning og eldgleypabrögö.