Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1997, Side 5
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997
5
I>V
Fyrrum framkvæmdastjóri Júpiters hf. í Bolungarvík ákæröur í sakamáli:
22,6 milljóna króna
sakargiftir í ákæru
Rlkissaksóknari hefur höfðað
sakamál gegn Einari Jónatanssyni,
fyrrum framkvæmdastjóra útgerð-
arfyrirtækisins Júpiters hf. í Bol-
ungarvik, fyrir meint brot framin í
rekstri félagsins þar sem honum er
gefið að sök að hafa ekki staðið skil
á staðgreiðslu af launum starfs-
manna og virðisaukaskatti til ríkis-
sjóðs upp á 20 milljónir króna áður
en félagið var úrskurðað gjaldþrota
i apríl 1993. Einar er einnig ákærð-
ur fyrir 2,6 milijóna króna fjárdrátt
með því að hafa ekki staðið Lífeyr-
issjóði Bolungarvíkur skil á lífeyris-
sjóðsiðgjöldum sem haldið var eftir
við útborgun launa starfsmanna fé-
lagsins á árunum 1992-1993.
Réttarhöld eru þegar hafin í mál-
inu. Þegar það var þingfest fyrir
Héraðsdómi Vestfjarða og Einar
mætti fyrir dóminn tii að gera
grein fyrir afstöðu sinni til
ákærunnar kvaðst hann ekki hafa
gerst brotlegur. Á sínum tíma
hefði verið í gildi samkomulag á
milli Júpiters hf. og innheimtu-
manns ríkissjóðs, það er sýslu-
manns, um skil á staðgreiðslu
skatta af launum starfsmanna, svo
og um greiðslur sem hafi átt að
berast ríkissjóði vegna innheimts
virðisaukaskatts fyrirtækisins.
Varðandi fiárdráttarþátt
ákærunnar kvað Einar jafnframt
hafa verið fyrir hendi Scimkomulag
milli Júpíters hf. og Lifeyrissjóðs
Bolungarvikur um skil á lífeyris-
sjóðsiðgjöldum starfsmanna fyrir-
tækisins. Hann kvaðst því ekki sek-
ur af ákærunni.
Svokailað milliþinghald fór fram
á ísafirði í gær en í aðalmeðferð
málsins mun Einar halda uppi vörn-
um. Þá mun væntanlega verða leit-
ast við að leiða til lykta hvort sýslu-
maðurinn í Bolungarvík „samdi“
við Júpíter hf. um hin opinberu
gjöld áður en félagið var úrskurðað
gjaldþrota. Sama mun væntanlega
giida um framangreint samkomulag
við lífeyrissjóðinn. -Ótt
Fréttir
Stoðfirðingar an læknis
Nú er svo komið að Stöðfirðingar eru
án læknis eftir að héraðslæknirinn,
Óttar Ármannsson, hætti nýlega störf-
um eftir nokkurra ára læknisstörf hér.
Hann hafði aðsetur á Fáskrúðsfirði en
var á Heilsuseli Stöðvarfjarðar tvisvar í
viku að jafnaði í um það bil fiórar
stundir í senn.
Ástæða uppsagnar hans er tekjutap
vegna lyfsölu heilsugæslustöðvanna á
báðum stöðum eftir þær breytingar
sem orðnar eru á lyfsölumálum í land-
inu.
Óttast nú margir að upp sé runnið
skeið tíðra mannabreytinga í læknis-
málum stöðvanna, þar sem jafnvel að-
eins læknakandídatar verði við störf í
nokkra mánuði í senn. -GH
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa
allsherjar atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar,
trúnaðarmannaráðs og endurskoðenda í
Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur fyrir árið 1997.
Framboðslistum eða tillögum skal skila á
skrifstofu félagsins, Húsi verslunarinnar,
Kringlunni 7, eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi,
mánudaginn 20. janúar 1997.
Kjörstjórnin
HELGRRTILBOÐ ■A%,
Nautafile 1.380 kr./kg MM Smiðjuvegi 2
Urbein. grísabógur í neti 690 kr./kg MM Fákafeni 9
Svínalundir 997 kr./kg MM Reykjavíkurvegi 64
FJÖLBREYTTASTA TÆKJAÚRVAL LANDSINS!
Skokkklúbbur
OG NÆRINGAR-
R Á Ð G J Ö F
K L . 1 6:00- 1 6:30
Þjálfarar
í S A L
ALLAN TÍMANN
JEET KUNE D O
Kl. 14:30-15:00
AEROBIC OG
FITUBRENNSLA
K L . 15:00-15:30
JOGAFLÆÐI
K L . 15:30-16:00
AL.LI R
VELKOMNIR!
Opið hús
D A G S K R Á
A I K I D O
K L . 13:00-14:30
GÍM
SUÐURLANDSBRAUT 6 (BAKHÚS), SÍMI 588 8383
VlÐ ERUM...
9
SUNNUDAGINN
JANUAR
8
00
2
OO
KL