Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1997, Blaðsíða 28
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sóiarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997
Helgarblað DV:
Það verður
ekkert álver
Lesendur DV ættu að finna sitt-
hvað við sitt hæfi í blaðinu á morg-
un. Helgarviðtalið er við Lindu
Samúelsdóttur, húsfreyju og sex
barna móður á bænum Tungu í
Hvalfjarðarstrandarhreppi, sem hef-
ur verið framarlega í flokki and-
stæðinga fyrirhugaðs álvers á
Grundartanga. Hún segist þess full-
viss að álver muni aldrei rísa á
þessum stað.
Umfjöllun er um Gus Gus fjöl-
listahópinn, sem er að verða heims-
frægur. Rætt er við Þorfinn Guðna-
son kvikmyndagerðarmann en
heimildarmyndir hans eru famar
að vekja athygli erlendis. M.a. hefur
National Geographic ákveðið að
sýna þátt hans um hagamúsina.
Ýmislegt meira fróðlegt efni er í
blaðinu sem of langt mál yrði að
telja upp hér. -bjb
Læknavandinn
verður leystur
DV, Eskifirði:
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra sagði í samtali við frétta-
ritara DV á Eskifirði í gær að
hörgull á heilsugæslulæknum á
Austurlandi væri ekki ásættanlegur
en í ráðuneytinu væri unnið að
lausn þessara mála. Ráðherra vildi
ekki greina frá hugsanlegum úrbót-
um, en þær væru í sjónmáli.
Vandi Austfirðinga er sá sami og
víða í læknishéruðum á landsbyggð-
inni, einkum þeim fámennari, að
illa hefur gengið að manna þau og
er læknislaust á stórum svæðum.
Landlæknir hefur unnið að því að
fá læknanema á lokastigi náms,
lækna sem hætt hafa störfum vegna
aldurs og sjúkrahúslækna í leyfum
til að þjóna læknislausum héruðum
um lengri eða skemmri tíma.
-ÞV/SÁ
ísaQarðarbær hefur falið RLR að kanna Qárreiður Suðureyrar:
Fyrrum sveitar-
stjóri grunaður
um fjárdrátt
- hefur nú látið af störfum sem sparisjóðsstjóri á Þórshöfn
Fyrrum sveitarstjóri Suðureyr-
arhrepps liggur undir grun um að
hafa í starfi sínu dregið sér fé áður
en hann lét þar af störfum á síð-
asta ári. Kristján Þ. Júlíusson,
bæjarstjóri á Isafirði, sagði í sam-
tali við DV í gær að málið væri nú
í rannsókn hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
Sveitarstjórinn lét af störfum
þegar sameining hreppa á norðan-
verðum Vestfjörðum gekk í gildi á
síöasta ári. Síöastliðið sumar hóf
hann siðan störf sem sparisjóðs-
stjóri hjá Sparisjóði Þórshafnar og
nágrennis. Hann lét hins vegar af
störfum þar þann 2. janúar. Sam-
kvæmt upplýsingum DV óskaði
hann sjáÚúr eftir stjómarfundi.
Þar óskaði hann eftir að fá að láta
strax af störfum - ástæðurnar
voru persónulegar, samkvæmt
upplýsingum DV.
Á seinni hluta síðasta árs komu
athugasemdir frá endurskoðend-
um ísafjarðarbæjar varðandi fjár-
reiður Suðureyrarhrepps. Þá hafði
svokallað milliuppgjör á reikning-
um sveitarfélagsins verið lagt
fram. Grunsemdirnar um tjárdrátt
eru byggðar á því að skekkjur
komu fram á viðskiptareikningum
Suðureyrar. Grunur leikur á að
sveitarstjórinn fyrrverandi hafi
dregið sér fé, eins og fyrr segir.
Um er að ræða grun um fjárhæðir
sem „skipta verulegu" máli sam-
kvæmt upplýsingum DV.
I kjölfar þess að grunsemdir
vöknuðu fól bæjarstjórinn á ísa-
firði lögmanni bæjarins að óska
eftir því að RLR rannsakaði við-
skilnað og fjárreiður sveitarstjór-
ans fyrrverandi. Þar er málið nú
alfarið til rannsóknar. Ótt
Gámasmyglið:
Upplýsingar
komu frá
tollyfirvöldum
Tollvörður situr nú í gæsluvarð-
haldi vegna smygls á 23.800 flöskum
af sterku áfengi i tveimur gámum
sem komu til landsins annars vegar
fyrir jólin og hins vegar síðastliðið
sumar. Fjórir aðrir menn eru einnig
í haldi. RLR bárust fyrstu upplýsing-
ar um gámasmyglið frá rannsóknar-
deild ríkistollstjóraembættisins á
fostudag i síðustu viku. Dreifing
áfengisins er talin hafa átt sér stað
víða um landið en þar er um að ræða
allt annað en þær 4 þúsund flöskur
sem RLR hefur lagt hald á. Rann-
sóknin beinist að verulegu leyti að
þvi hvers vegna gámarnir, sem
komu frá Bandaríkjunum, fóru ótoll-
afgreiddir inn í landið._Ótt
Löggan á floti
Það var frekar óskemmtileg að-
koma þegar lögreglumenn á Egils-
stöðum komu til vinnu sinnar eld-
snemma í morgun. Hitaelement í
loftræstikerfi lögreglustöðvarinnar
sprakk í nótt og heitt vatn streymdi
út þannig að fimm til sex sentí-
metra djúpt vatn lá yfir gólfinu.
Töluverðar skemmdir hlutust af.
-JHÞ
Ingibjörg Pálmadóttir heimsótti eldri borgara á dvalarheimilinu Hulduhlíö á
Eskifiröi í gærdag. Hér heilsar hún upp á Regínu Thorarensen, fréttaritara
DV um fjölda ára. DV-mynd PV
Ný stóriðja og Ríósáttmálinn:
7 milljarða land-
græðsla á móti
stóriðju
- sgir sérfræðingur RALA
„Það þarf um 6-7 milljarða skóg-
ræktar- og landgræðsluátak til að
vega upp á móti áhrifum fyrjrhug-
aðra stóriðjuframkvæmda,"' segir
Halldór Þorgeirsson, sérfræðingur á
Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
í samtali við DV.
„Ég set þetta svona fram til að
sýna samhengið," segir Halldór en
þegar fyrirhuguð stóriðja verður
komin í gagnið fer mun meira en nú
af koltvísýringi, sem er lofttegund
sem ýtir undir gróðurhúsaáhrif, út í
andrúmsloftið. Samkvæmt sam-
komulaginu sem gert var á um-
hverfisráðstefnu SÞ í Ríó, Ríósam-
komulaginu, og íslensk stjómvöld
hafa undirritað, skuldbinda þjóðim-
ar sig til að sjá til þess að þær hver
um sig sleppi ekki meiri koltvísýr-
ingi út í andrúmsloftið árið 2000 en
þær gerðu árið 1990.
Ríkisstjórn íslands hefur skil-
greint þetta markmið fyrir sitt leyti
þannig að ekki þurfi að taka tillit til
áhrifa nýrrar stóriðju hér á landi
samkvæmt sáttmálanum eins og
hann er nú orðaður. Hins vegar er
að sögn Halldórs verið að semja um
mun ákveðnara orðalag á mengun-
arvarnaskuldbindingum sem taka
eiga gildi eftir aldamót en í þeim
viðræðum sé þó eftir sem áður geng-
ið út frá árinu 1990 sem viðmiðunar-
ári.
Rök íslendinga í þessum málum
era þau að þjóðin ræður yfir miklu
af endumýtanlegri orku og hefur
náð miklum árangri í að beisla
hana. Ekkert koldíoxíð verði til við
orkunýtingu fallvatna og því sé
sanngjarnt að íslendingar þurfi ekki
að taka á sig jafn miklar skuldbind-
ingar í þessum efnum og þær þjóðir
sem fá mestalla orku sína með því
að brenna jarðefnum. -SÁ
L O K I
Veðrið á morgun:
Smáél
norðaust-
anlands
Á morgun verður minnkandi
norðanátt og síðar norðvestan-
og vestanátt, gola eða kaldi.
Smáél verða fram eftir degi norð-
austanlands en annars úrkomu-
laust og allvíða léttskýjað. Frost
verður á bilinu 1 til 6 stig á lág-
lendi.
Veðrið í dag er á bls. 36
ÓDÝRASTI
EINKAÞJÓNNINN
tmxa
BlLSKÚRSHURÐA-
OPNARI
Verð kr. 21.834,-
lýbýlavegi 28 Sími 554 4443