Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1997, Qupperneq 34
42
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1997
Afmæli
Baldur Davíðsson
Baldur Davíösson landmælinga-
maður, Safamýri 53, Reykjavík, er
sjötugur i dag.
Starfsferill
Baldur fæddist á Eskifiröi, var á
Reyðarfirði á fyrsta árinu en ólst
síðan upp á Eskifirði. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1948 og stund-
aði síðan nám um skeið við verk-
fræðideild HÍ.
Baldur starfaði hjá bandarískum
verktökum á Keflavíkurflugvelli
1951-56 en hefur síðan starfað hjá
Mælingadeild Reykjavíkurborgar
frá 1956.
Fjölskylda
Baldur kvæntist 6.10. 1961 Ingi-
björgu Vigfúsdóttur, f. 24.5. 1927,
húsmóður og starfsmanni við
Sjúkrahús Reykjavíkur. Hún er
dóttir Vigfúsar Kristjánssonar,
bónda á Kirkjubóli í Vaðlavík, og
Kristínar Málfríðar Jónsdóttur hús-
freyju.
Böm Baldurs og Ingi-
bjargar era Davíð, f. 6.8.
1961, byggingarverkfræð-
ingur; Kristín Sigríður,
f. 7.11. 1962, BA í ensku
og húsmóðir í Oostende í
Belgíu, gift Pétri Ed-
vardssyni framkvæmda-
stjóra og eru börn þeirra
Katrin Ingibjörg, f. 2.11.
1989, Sara, f. 2.8. 1992, og
Jóhanna, f. 13.10. 1994;
Vigfús, f. 7.11. 1962, land-
mælingamaður.
Albróðir Baldurs var
Haukur, f. 10.4. 1925, d. 12.2. 1973,
lögfræðingur, var kvæntur Krist-
jönu Káradóttur.
Hálfbróðir Baldurs er Bolli Dav-
íðsson, f. 5.11. 1933, kaupmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Baldurs voru Valdimar
Davíð Jóhannesson, f. 18.9. 1896, d.
8.3. 1960, póstafgreiðslumaður og
símstöðvarstjóri á Eskifirði, og Ingi-
björg Ámadóttir, f. 25.4.1901, d. 12.8.
1927, húsmóðir.
Ætt
Davíð var sonur Jóhann-
esar Davíðs Johnsen,
sýslumanns á Reynisstað
í Skagafirði, Ólafssonar
Johnsen, prófasts á Stað á
Reykjanesi, bróður Ingi-
bjargar, konu Jóns for-
seta. Bróðir Ólafs var Jaf-
et gullsmiður, langafi
Guðna Guðmundssonar,
fyrrv. rektors MR. Ólafur
var sonur Einars, stúd-
ents og borgara i Reykja-
vík, bróður Sigurðar, fóður Jóns
forseta. Einar var sonur Jóns,
prests á Rafnseyri, Sigurðssonar og
Ingibjargar, systur Þórðar í Vigur,
ættföður Vigurættarinnar. Ingi-
björg var dóttir Ólafs, ættföður
Eyrarættarinnar, Jónssonar. Móðir
Ólafs prófasts var Ingveldur Jafets-
dóttir, lóskera við Innréttingamar í
Reykjavík, Ulugasonar. Móðir Jó-
hannesar sýslumanns var Sigríður
Þorláksdóttir, prests á Móum á Kjal-
amesi, Loftssonar og Sigríðar
Markúsdóttur.
Móðir Davíðs póstafgreiðslumanns
var Margrét Johnsen Guðmundsdótt-
ir, prests í Amarbæli, Einarssonar,
bróður Ólafs, prófasts á Stað.
Ingibjörg var systir Steinunnar,
móður Stefáns Benediktssonar,
þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli, og
systir Margrétar, móður Hrafns
Pálssonar, deildarstjóra og tón-
skálds. Ingibjörg var dóttir Áma, b.
og umboðsmanns á Höfðahólum á
Skagaströnd, bróöur Amórs, prests
í Hvammi, afa Gunnars Gíslasonar,
fyrrv. alþm. í Glaumbæ, og Bjama
Einarssonar handritafræðings. Ámi
var sonur Árna, b. í Höfnum á
Skagaströnd, Sigurðssonar, bróður
Bjöms á Tjöm, langafa Áma, fóður
Jóns L. stórmeistara.
Móðir Ingibjargar var Ingibjörg
Pálsdóttir, b. á Réttarholti á Skaga-
strönd, Ólafssonar. Móðir Ingibjarg-
ar var Sigríðm- Vilhelmína Jóhann-
esdóttir, b. í Naustavík, Þorsteins-
sonar, bróður Þorsteins, langafa
Hjartar Pálssonar skálds.
Baldur er að heiman.
Baldur Daviösson.
Sigríður Guðjónsdóttir
Sigríður Guðjónsdóttir, dvalar-
heimilinu Seljahlíð, Hjallaseli 55,
Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í
dag.
Starfsferill
Sigríður fæddist á ísafirði. Hún
var tveggja ára er hún missti föður
sinn og ólst þvi upp hjá móðurfor-
eldram sínum í Amardal til sextán
ára aldurs. Sextán ára fór Sigríður í
vist til Súðavíkur, var síðan í ýms-
um störfum á ísafirði og í vist i
Reykjavík og starfaði eitt ár á Ála-
fossi. Hún hefur verið búsett í
Reykjavík frá 1954.
Fjölskylda
Sigríður giftist 1.1. 1939 Jóhanni
Sigurði Gunnari Aðalsteini Sigurðs-
syni, f. 15.6.1913, d. 23.10.1986, versl-
unarmanni á ísafirði og síðar verk-
stjóra hjá ísbiminum. Hann var
sonur Sigurðar Benjamínssonar og
Kristínar Jóhannsdóttur sem
bjuggu á ísafirði og síðar á Seltjarn-
amesi.
Börn Sigríðar og Jóhanns era
Guðmundur Jóhannsson, f. 7.7.1934,
d. 1991, vélstjóri og starfsmaður SÞ,
var kvæntur Sigrúnu Jóhannsdótt-
ur og eru böm þeirra fimm auk þess
sem hann átti bam með Erlu Sigur-
jónsdóttur; Sigurður K. Jóhannsson,
f. 24.7.1941, starfsmaður hjá vamar-
liðinu á Keflavíkurflugvelli, búsett-
ur í Reykjavík, kvæntur Margréti
Konráðsdóttur og eiga þau tvö böm;
Guðjón Elí Jóhannsson, f. 1.3. 1944,
vélstjóri og pípulagningameistari á
Seltjamamesi, kvæntur Auði Her-
mundsdóttur og eiga þau tvö böm;
Sigríður Jóhannsdóttir, f. 23.6.1948,
bankastarfsmaður í Kópavogi, gift
Helga Magnússyni og eiga þau þrjú
böm.
Kjördætur Sigríðar og Jóhanns
era Sirrý Hulda Jóhannsdóttir, f.
29.6.1938, húsmóðir í Kópavogi og á
hún þijú böm; Þorbjörg Edda Guð-
mundsdóttir, f. 3.8. 1952,
skrifstofumaður í Gauta-
borg, gift Sigurði Bemd-
sen og á hún þijú böm.
Alsystir Sigríðar var
Ásgerður Guðjónsdóttir, f.
6.8. 1913, d. 17.10. 1988,
húsmóðir í Reykjavík.
Hálfsystkini Sigríðar
vora Guðjón Kristinsson,
f. 21.3. 1922, d. 16.6. 1943,
sjómaður á ísafirði; Helga
Kristinsdóttir, f. 25.2. 1925,
d. 5.8. 1993, húsmóðir í
Reykjavík.
Foreldrar Sigríðar vora
Guðjón Ásgeirsson, f. 12.2. 1890,
drukknaði á Gunnari 6.6.1914, skip-
stjóri á ísafirði, og k.h., Þorbjörg
Guðjóna Guðmundsdóttir, f. 27.7.
1890, húsmóðir.
Ætt
Guðjón var sonur Ásgeirs Helga,
b. í Fremrihúsum og á Svarthamri,
Kristjánssonar frá Am-
ardal, Elíassonar.
Móðir Guðjóns var Hin-
rika Guðmunda Sigurð-
ardóttir, b. í Fremrihús-
um, Guðmimdssonar.
Móðir Guðmundu var
Jónína Barbara Sturlu-
dóttir, b. á Kleifum í
Skötufirði, bróður Guð-
mundar í Kálfavík, afa
Guðmundar jarðfræð-
ings, föður Finns fugla-
fræðings. Sturla var son-
ur Sturlu, b. í Þjóðólfs-
tungu, Sturlusonar. Móð-
ir Sturlu á Kleifum var Ingibjörg
Bárðardóttir, ættföður Arnardal-
sættarinnar, Illugasonar. Móðir
Jóninu var Guðrún Jónsdóttir, b. í
Æðey, Snæbjömssonar. Þorbjörg
Guðjóna var dóttir Guðmundar, b. í
Amardal, Gestssonar, b. í Skjald-
bjamarvík, Matthíassonar, h. í
Steig, Jónssonar.
Sigríöur Guöjóns-
dóttir.
Leiðrétting:
Laddi
fimmtugur
í afmælisgrein, sem birtist í
laugardagblaði DV um Þórhall
Sigurðsson, Ladda, fimmtugan,
urðu þau mis-
tök að sagt var
að tengdamóðir
Ladda, Hrönn
Skagfjörð,
starfaði sem
kennari. Hið
rétt er að hún
er húsmóðir en
maður hennar, og tengdafaðir
Ladda, Aðalsteinn Thorarensen
húsgagnasmiður, hefúr starfað
um árabil sem kennari við Iðn-
skólann í Reykjavík.
Þá var sagt að móðir fyrri
konu Ladda væri Kristín Guð-
laugsdóttir. Hið rétta er að hún
heitir Ásta Kristný Guðlaugs-
dóttir. Laddi er fimmtugur í dag,
mánudag. Beðist er velvirðingar
á þessum missögnum.
Magnús Reynir
Magnússon
Magnús Reynir Magn-
ússon, plötu- og ketilsmið-
ur og síðar leigubilstjóri,
Víðihvammi 26, Kópa-
vogi, verður sjötugur á
morgun.
Starfsferill
Magnús fæddist á
Granda í Ketildalahreppi
í Vestur-Barðastrandar-
sýslu en ólst upp við Am-
arfjörð. Hann stundaði
bamaskólanám í Bakka-
dal. Magnús flutti til
Magnús Reynir
Magnússon.
Reykjavíkur 1944, hóf þá
nám við Iðnskólann í
Reykjavík, lærði og
plötu- og ketilsmíði í
Stálsmiðjunni og lauk
sveinsprófi í þeirri grein.
Magnús starfaði í Stál-
smiðjunni til 1955 og siö-
an af og til með hléum.
Hann hóf leigubílaakstur
1955, ók leigubíl á Hreyfli
með hléum næstu árin,
hefur síðari árin stundað
leigubílaakstur ein-
göngu.
Fjölskylda
Sonur Magnúsar er Magnús Helgi
Magnússon, f. 19.12. 1963, borgar-
starfsmaður í Reykjavík.
Systkini Magnúsar: Ingibjörg,
kennari í Borgamesi; Páll, sjómað-
ur og bóndi á Bíldudal; Helgi, nú lát-
inn, sjómaður og ýtusfjóri á Bíldu-
dal; Svanlaug, húsmóðir í Reykja-
vík; Skúli, jógakennari í Reykjavik.
Foreldrar Magnúsar vora Magn-
ús Guðmundur Magnússon, bóndi í
Amarfirði, og k.h., Rebekka Frið-
riksdóttir, bamakennari og hús-
freyja.
Til hamingju
með afmælið
20. janúar
85 ára
Ingólfúr Baldvinsson,
Lindasíðu 4, Akureyri.
80 ára
Júlíana Isebam,
Hringbraut 43, Reykjavík.
75 ára
Sigur-
björg Stef-
ánsdóttir,
húsmóðir,
Stranda-
seli 7,
Reykjavík.
Svava Elí-
asdóttir,
Víðigerði,
Mosfellsbæ.
Hermann Guðmundsson,
Seljalandsvegi 44, ísafirði.
70 ára
Helga Guðmundsdóttir,
Strandaseli 11, Reykjavík.
Sverrir Bjamason,
Efstasundi 52, Reykjavík.
50 ára
Margrét Skúladóttir,
skrifstofu-
maður hjá
VÍS,
Hlíðar-
hraut 6,
Blönduósi.
Eiginmað-
ur hennar
er Sigurð-
ur Hjálm-
arsson.
Þau dvelja á Kanaríeyjum á
afmælisdaginn.
Hannes Ámason,
Bylgubyggð 43, Ólafsfiröi.
Fritz H. Bemdsen,
Furuhjalla 6, Kópavogi.
Hrafnhildur Þór Jóhannes-
dóttir,
Dalbraut
24, Bíldu-
dal.
Eiginmað-
ur hennar
er Snæ-
björn
Ámason,
útgerðar-
maður og
skipstjóri.
Þau taka á móti ættingjum og
vinum í veislusal Kiwanis-
klúbbsins, Engjateigi 11, í
kvöld kl. 18.00-20.00.
40 ára
Guðmundur Ragnar Jóns-
son,
Kópavogsbraut 102, Kópavogi.
Friðjón Jóhannsson,
Ránargötu 10, Reykjavík.
Ragnar Jón Gunnarsson,
Sigtúni 39, Reykjavík.
Auður Óskarsdóttir,
Jófríðarstaðavegi 6, Hafnar-
firði.
Sólveig R. Kristinsdóttir,
Hafiiartúni 1, Selfossi.
Þorbjörg Magnúsdóttir,
Norðurbraut 5, Höföahreppi.
Geir Sigurðsson,
Klapparstíg 12, Njarðvík.
Þórdis Jónasdóttir,
Leirvogstungu 5, Mosfellsbæ.
staðgreiöslu- og greiðslu-
kortaafsláttur og stighcekkandi
birtingarafsláttur
o\Vt mil/f Nm/nt
Smáauglýsingar
550 5000