Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1997, Page 40
KIN
Vmningstölur
18.1/97
Vmningstölur laugardaginn 18.1/97
5 9 13 ígj|
töfi'r 14 32 36) |
Vi nningar
'1.5
Fjöldi
vinnlnga
4.3
Vinningsupphseð
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
I hverri viku greiöast 7.000. Fuilrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1997
Fangavörður kærður:
Málið fer
til ríkissak-
sóknara
Mál fangavarðar á Litla-Hrauni,
sem kærður var til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins vegna meints smygls
á eiturlyfjum inn í fangelsið, er enn
í rannsókn. Kæran kemur frá öðr-
um fangaverði á Litla- Hrauni.
„Rannsókn málsins mun að öllum
líkindum ljúka nú í vikunni og að
því búnu verður það sent til ríkis-
saksóknara. Það er síðan hans að
ákveða hvert framhaldið verður,"
segir Gísli Pálsson hjá RLR að-
spurður um rannsókn málsins.
-RR
L O K I
Vélsleðamaður fleytti kerlingar í snjóflóði:
Sá ekkert fyrr
en skriðan kom
í Ijósgeislann
- segir Sævar Ö. Guðmundsson sem slapp naumlega
„Auðvitað bregður manni í brún
við að lenda í miðju snjóflóði. Það er
óskemmtileg lífsreynsla. Ég verð hér
eftir á varðbergi þegar ég ek eftir
svona hlíðum," segbr Sævar Ö. Guð-
mundsson sem lenti í snjóflóði sem
féll við Hrafnabjargaháls í grennd
við Skjaldbreið á föstudagskvöld.
Sævar var þar á ferð ásamt þrem-
ur félögum sínum en þeir voru á leið
í skála við Tjaldafell. Sævar dróst
aftur úr tveimur vina sinna og hafði
verið nokkrum metrum aftar þegar
þeir urðu varir við að hann var horf-
inn. Sævar dróst i átt að flóðinu en
tókst að komast út úr því með sleða
sinn heilu og höldnu. Þegar Sævar
féll af fleytti hann kerlingar á flóð-
inu, eins og Guðmundur Leifsson, fé-
lagi Sævars, lýsti atburðinum.
„Snjóflóðið fór af stað í hávaðan-
um og titringnum frá sleðunum. í
myrkrinu sá ég ekkert fyrr en skrið-
an kom í ljósgeislann af vélsleðan-
um. Á sömu sekúndu skall það á
hægri hliðinni á sleðanum mínum.
Við það flaug ég af og sleðinn fór
hring. Við trilluðum með snjóflóð-
inu nokkum spotta,“ segir Sævar.
Sævar lenti á höfðinu og þakkaði
fyrir það eftir á að hafa verið með
hjálm. Hann meiddist ekki og sleð-
inn slapp líka þótt hann færi í hring.
Að sögn Guðmundar voru bæði
Sævar og sleðinn eins og snjókarlar
sem veltust um í snjónum.
„Ég get ekki neitaö því að mér
stóð ekki á sama eftir á og ég var var
um mig þegar ég keyrði í hlíðunum
eftir að þetta gerðist. Daginn eftir
sáum við að annað flóð hafði fallið
þarna rétt hjá þegar við fórum að
skoða þetta í björtu,“ segir Sævar.
Snjóflóðið var metri á dýpt en það
telur Sævar að hafi orðið sér til
bjargar.
-em
Laddi verður fimmtugur í dag en hann tók forskot á sæluna og hélt upp á afmæliö sitt á Café Oliver á laugardags-
kvöld. Vinir og vandamenn heiðruöu Ladda en hann skemmtir sér augsýnilega vel með Agli Eðvarðssyni og
Björgvini Halldórssyni. Á innfelldu myndinni er Laddi ■ einu af sínum fjölmörgu gervum. DV-mynd Hilmar Þór
Seyðisfjörður:
Hættuástand
enn í bænum
Hættuástand vegna snjóflóða er
enn á Seyðisfirði. Tvö svæði, sem
rýmd voru i bænum sl. fimmtudag,
eru enn lokuð. Þrjú snjóflóð féllu
þar fyrir helgina en ollu engu fjóni.
Hættuástandi hefur hins vegar
verið aflýst á Siglufirði en þar voru
20 hús rýmd á miðvikudagskvöld.
íbúar þeirra gátu snúið heim til sín
á laugardag. -RR
Líkamsárás:
15 ára
piltur
handtekinn
15 ára piltur var handtekinn eftir
að hafa ráðist á útigangsmann á
Hlemmi aðfaranótt sunnudags.
Maðurinn hlaut áverka við árás-
ina og var fluttur á slysadeild. Árás-
arpilturinn var fluttur til Hafnar-
fjarðar þar sem hann býr. Vegna
aldurs var hann afhentur foreldrum
sínum. -RR
Öxnadalsheiði:
Margir fastir
„Við þurftum að sækja marga
bíla sem voru fastir í brekkunum en
vindhraði fór yfir ellefu vindstig,"
segir Siguijón Sigurðsson, verk-
stjóri hjá Vegagerðinni á Akureyri.
Seinni partinn í gær var snarvit-
laust veður á Öxnadalsheiði og var
Vegagerðin önnum kafin við að
hjálpa fólki úr hrakningum og
reyna að halda veginum opnum.
Þeir gáfust upp um sexleytið í gær-
kvöld og var heiðin þá ófær öllum
bilum. -em
Langholtskirkja:
Friðarspillir-
inn farinn
- segir Jón Stefánsson
„Sá sem olli ófriðnum er farinn
og hér ríkir mikil gleði. Þetta leggst
stórkostlega í mig og friður rikir nú
í Langholtskirkju," segir Jón Stef-
ánsson, organisti í Langholtskirkju.
í gær messaði Jón Helgi Þórarins-
son í fyrsta sinn í Langholtskirkju
fyrir troðfullu húsi. Þrír kórar
sungu við messuna undir stjóm
Jóns Stefánssonar organista.
„Jón Helgi kann að meta starfið
sem við vinnum og vill notfæra sér
tónlistina í þágu kristninnar. Skoð-
anir okkar falla algerlega saman,“
segir Jón.
-em
ÓDÝRASTI
EINKAÞJÓNNINN
nmn
BÍLSKÚRSHURÐA-
OPNARI
Verð kr. 21.834,-
lýbýlavegi 28 Simi 554 4443