Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaftur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aóstoóarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS_ HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar delldir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasfða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sfmi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins f stafrænu formi og 1 gagnabönkum án endurgjalds. Blóðugir sunnudagar Kaþólskir menn í Londonderry á Norður-írlandi minnt- ust þess með fjölmennri mótmælagöngu um helgina að tuttugu og fimm ár eru liðin frá þeim dapurlega degi sem lifir í hugum þeirra sem sunnudagurinn blóðugi. Þrítugasta janúar árið 1972 hófu breskir hermenn skot- hríð á mótmælagöngu í borginni. Þrettán göngumanna lágu þegar í valnum. Jafn margir særðust hættulega og einn þeirra lést skömmu síðar. Nefnd á vegum bresku rík- isstjómarinnar rannsakaði atburðinn og komst að þeirri niðurstöðu að þótt enginn þeirra sem féllu hafi borið vopn, og þótt ekki væri sannað að skotið hefði verið að fyrra bragði að bresku hermönnunum, væri samt ekki hægt að áfellast Breta fyrir mannvígin. Það er niðurstaða sem hvorki kaþólikkar á Norður-írlandi né írska ríkis- stjómin hafa verið sátt við, enda hafa báðir þessir aðilar nú á aldarfj órðungsafmælinu farið fram á að sérstök nefhd verði skipuð til að rannsaka málið að nýju. Breska ríkisstjómin hefur vísað slíkum kröfum á bug. Þessir hörmulegu atburðir fyrir tuttugu og fimm árum höfðu mikil áhrif á þróun mála á Norður-írlandi. Stuðn- ingur meðal kaþólikka við ofbeldisverk til að knýja fram pólitískar breytingar jókst verulega og fjöldi ungra manna gekk til liðs við írska lýðveldisherinn, IRA, sem stóð fyrir margvíslegum hryðjuverkum næstu árin, bæði á Norður-írlandi og Englandi. Hryðjuverkasveitir öfga- fullra sambandssinna, sem berjast fyrir áframhaldandi aðild Norður-írlands að breska ríkinu, létu einnig til sín taka. Þannig magnaðist sá vítahringur ofbeldis sem kost- að hefur hundmð manna lífið síðasta aldarQórðunginn. Þótt þessi blóðugi sunnudagur hljóti eðli málsins sam- kvæmt að höfða sterklega til tilfinninga kaþólskra á Norð- ur-írlandi, ætti flestum að vera ljóst að þetta er aðeins einn blóðugur dagur af mörgum í sögu þessa þjáða lands- hluta. Allir aðilar - bresk stjómvöld og hryðjuverkasam- tök lýðveldissinna og sambandssinna - bera þar þunga sök og hafa hroðaleg óhæfuverk á samviskunni. Þar hef- ur enginn óflekkaðar hendur. Tilraunir til að koma á raunverulegum friðarviðræð- um á Norður-írlandi hafa gengið mjög erfiðlega hin síðari ár. Breska ríkisstjómin lýsti því yfir árið 1993 að megin- markmið hennar í málefnum Norður-írlands væri að semja frið. Tæpu ári síðar, í ágúst 1994, lýsti írski lýðveld- isherinn yfir vopnahléi. Hersveitir sambandssinna gerðu slíkt hið sama síðar þetta sama ár. Það tækifæri sem vopnahléið skapaði var hins vegar illa nýtt til að koma á raunverulegum viðræðum. Enda fór svo fyrir ári síðan, í febrúar í fyrra, að írski lýðveld- isherinn hóf hryðjuverkastarfsemi á nýjan leik með öfl- ugri sprengingu í London. Síðan hefur Qandskapur milli deiluaðila magnast á ný. Þeim ávinningi sem íbúar Norð- ur- írlands höfðu af skammvinnu vopnahléi, ekki síst efnahagslega, hefur verið stefnt í tvísýnu. Ríkisstjóm Johns Majors hefur glatað meirihluta sín- um í breska þinginu og er því komin upp á náð og mis- kunn níu þingmanna norður-írskra sambandssinna í neðri málstofunni. Við slíkar aðstæður er ekki að vænta þeirrar styrku forystu í málefhum Norður-írlands sem nauðsynleg er til að hrinda af stað raunverulegu friðar- ferli. Viðræður sem geta skilað einhverjum árangri munu því bíða þess að ný ríkisstjórn verði mynduð í Bretlandi eftir þingkosningar í vor. Á meðan mun vítahringur pólit- ísks ofbeldis vafalítið færa enn frekari hörmungar að dyr- um fólks sem á sér þá ósk heitasta að fá að lifa í friði fyr- ir pólitískum gangsterum. Elias Snæland Jónsson rlXíKKVK 90A ----^jTTTTTTrnT- Kr. 500.000 YKUl'TUYlKiT jjOSBFg, rtuuns. m. *$#»*• icdyfu *> tew sktUdar r W:K*! i> sm r9°l72036 /4S«r /puYSZ. iéauaa* Nýjar lánastofnanir mundu veita ferskum vindum inn í húsnæðislánakerfið og sætum við þá viö sama borð og aðrir Vesturiandabúar, segir Stefán m.a. Frjálsir húsbankar Kjallarinn Stefán Ingólfsson verkfræöingur komu erlendra húsnæð- islánastofhana fengist erlent fjármagn, reynsla og þekking. Erlend hús- næðislán bera lægri vexti en húsbréfalánin, eru fjölbreyttari og hag- stæðari. Til þess að gera starfsemi húsbanka mögulega hér á landi þyrfti að sefja um þá sérstök lög. Slík lög eru í gildi í grannlöndum okkar og mætti byggja íslenska löggjöf á þeim. Lögunum er ætlað að tryggja rækilega hags- muni lántakenda og veita þeim nauðsynlega vemd. Þau þurfa einnig „Erlend húsnæðislán bera lægri vexti en húsbréfalánin, eru fjölbreyttari og hagstæðari. Til þess að gera starfsemi húsbanka mögulega hér á landi þyrfti að setja um þá sérstök lög. Slík lög eru í gildi í grannlöndum okkar og mætti byggja íslenska löggjöfá þeim.“ Með stofnun frjálsra húsbanka má skapa sam- keppni um hús- næðislán hér á landi. Þeir mundu starfa í samkeppni viö húsbréfakerfið. Húsbankar geta verið innlend hlutafélög, útibú erlendra húsbanka eða fyrirtæki í sameign innlendra og erlendra aðila. Nýjar lánastofnan- ir mundu veita ferskum vindum inn í húsnæðis- lánakerfið svo við sætum í fyrsta sinn við sama borð og aðrir Vesturlandabúar. Húsbankar Húsbankar eru lánastofnanir sem fást ein- göngu við lán- veitingar til hús- bygginga og end- ursölu húsnæðis. Slíkar stofnanir em kunnar í grannlöndum okkar. Margir íslendingar hafa keypt íbúðarhúsnæði með lánum frá þeim. Húsbankar geta verið hluta- félög. Nýverið var sænska hús- næðislánastofhunin til dæmis seld einkafyrirtæki. Líklegt er að bank- ar, tryggingafélög og lífeyrissjóðir mundu sækjast eftir eignaraðild að húsbanka. Þá væri mikilvægt að fá erlenda aðila til samstarfs sem eigendur eða samstarfsaðila. Fyrir nokkrum áriun lýsti full- trúi Kreditforeningen Danmark því yfir að til greina gæti komið aö stofnunin veitti húsnæðislán til íslands. Það gæti gerst með stofn- um útibús eða samvinnu við hlið- stæða innlenda stofnun. Með til- að tryggja húsbönkum traustan rekstrargrundvöll og bolmagn til að sinna hlutverki sínu. í húsbréfakerfinu þurfa hús- næðiskaupendur og seljendur sjálfir að selja skuldabréf á verð- bréfamarkaði. Húsbankar fjár- magna útlán sín sjálfir á fijálsum fjármagnsmarkaði. Oft kaupa stór- ir fjárfestar á borð við lífeyrissjóði og tryggingafélög skuldabréf í mjög stórum einingum. Þannig fjármagna til dæmis hin risastóru veðlánafyrirtæki Fannie Mae og Freddie Mac útlán sín. Umsýsla með fjármagni verður þannig ódýrari fyrir fjárfestana en við eigum að venjast og ávöxtun fjárins betri. Þá verður vaxtamun- ur kerfisins einnig minni sem stuðlar að lægri húsnæðisvöxtum. Hvernig lán Lánveitingar frjálsra húsbanka að erlendri fyrirmynd verða all- frábrugðnar því sem hér gerist. Lán eru há, allt að 90% kaup- verðs. Það er mun öruggara fyrir lánastofnunina, minna fé tapast og kostnaður við rekstur er í lág- marki. Við kaup á notuðu hús- næði eru áhvílandi lán greidd upp og eitt nýtt lán veitt. Stundum er lánað út á 2. veðrétt en veðmörk eru þá lægri. Lánin eru óverð- tryggð og skuldabréf eru ekki keypt með affollum heldur endur- spegla vextimir ástand á fjár- magnsmarkaði. Ýmsar gerðir lána em boðnar. Algengust era 20-30 ára lán með jöfnum afborgunum. Vextir eru fastir eða breytilegir. Breytilegir vextir em endurskoðaðir á nokk- urra mánaða fresti en fastir vext- ir gilda út lánstímann. Stundum em ákvæði um að kjör og for- sendur lána séu endurskoðuð eft- ir 5-7 ár. Hafi forsendur breyst má gjaldfella lániö og verða hús- eigendur þá að taka ný. Lánastofnanimar reyna að að- stoða lántakendur í greiðsluerfið- leikum. Lán með „greiðslumarki" og afkomutryggingu þekkjast. í lánskjömm em þá ákvæði um að fari greiðslubyrði upp fyrir ákveð- ið mark grípi stofhunin til að- gerða til dæmis með lengingu lánstíma. Jafnhliða taka lántak- endm- þá oft afkomutryggingu hjá tryggingafélagi. Greiöslumat er rýmra en við eigum að venjast. Hætta á greiðsluerfiðleikum er einnig mun minni því á fyrstu 6-7 árunum eftir lántöku léttist greiðslubyrðin um meira en 20%. Eignamyndun kaupenda er hrað- ari en við eigum að venjast svo áhætta lánastofhunarinnar er ekki mikil. Stefán Ingólfsson Skoðanir annarra Reyröa haftið „Verðtryggingin, sem er alls ráðandi á íslandi og einsdæmi í veröldinni, gerir það að verkum að fólk getur ekki glöggt séð út í hvaða skuldbindingar það er að fara þegar það tekur lán. Það borgar og borgar og skuldin bara hækkar. Fer m.a. eftir því hve mik- ið hinir bruðla i utanferðir, áfengiskaup o.s.frv. og hækka neysluvísitöluna. Opinberir sjóðir geta jafn- vel hækkað vextina einhliða eftir undirskrift samn- inga. Haftið er vel reyrt og losnar ekki.“ Elín Pálmadóttir í Mbl. 2. febr. Sjónvarpsmenning? „Ríkissjónvarpið er á dagskrá um þessar mundir og sitt sýnist hverjum eins og gengur. Menn spá í menningarhlutverk RÚV og hvort útvarpið eigi að sigla áfram fyrir fullum seglum eða selja í hlutum og breyta afganginum í einhvers konar menntað stúd- íó. ... Umræðan um RÚV rifjar upp þegar íslensk stjómvöld lokuðu lítilli sjónvarpsstöð á íslandi fyrir skort á menningu. ... Stóð íslensku þjóðinni raun- veraleg hætta af hljómlistarfólki á borð við Lawren- ce Welk, Mitch Miller, Johnny Cash, Henri Mancini og öðrum fastagestum dátanna? ... Væri ekki öldin önnur á RÚV ef íslenska sjónvarpið hefði fengið að fæðast í samkeppni frekar en að sigla inn í hana á gamals aldri." Ásgeir Hannes í Degi-Tímanum 1. febr. Danska kerfið „Þegar horft er til þess kerfis, sem Danir hafa byggt upp, er ljóst, að við emm nánast á byrjunar- reit. Hins vegar leikur tæpast nokkur vafi á því, að það getur orðið íslenzku atvinnulífi og launþegum til hagsbóta að fylgja í kjölfar Dana að töluverðu leyti. Ef okkur tækist á nokkrum árum að byggja upp áþekkt kerfi og Danir búa nú við myndu allar aðstæður i samfélagi okkar gjörbreytast." Úr forystugrein Mbl. 1. febr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.