Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Page 33
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 37 DV Benedikt Erlingsson leikur Gunnlaug ormstungu. Ormstunga á Hvanneyri AOt frá því leikritið Orm- stunga var frumsýnt í Skemmti- húsinu í sumar hefur verkið motið mikilia vinsælda og eru sýningar orðnar fimmtíu og þúár talsins. Nú hyggst Skemmtihúsið sýna Ormstungu á Hvanneyri í kvöld og er þá verkið komið á heimaslóðir Gunnlaugs ormstungu. Er ekki að efa að Borgfirðingar taka vel á móti leikurunum. Tónleikar Leikritið er byggt á Gunn- laugs sögu ormstungu, og eru leikarar tveir, Benedikt Erlings- son og Halldóra Geirharðsdóttir og leika þau mörg hlutverk. Þau sem og leikritið í heild fékk ein- róma lof gagnrýnenda fyrir frá- bær tök á íslendingum til foma. Hefur aðstandendum Ormst- ungu verið boðið að sýna verkið víða, meðal annars í Tókíó og Buenos Aires. Næsta sýning í Reykjavík er á föstudaginn. Ferðamenn í snjóflóða- hættu Björgunarskóli Landsbjargar og Slysavarnafélag íslands stendur fyrir opnum fræðslu- fundi um mat á snjóflóðahættu fyrir feröa- og fjallamenn i kvöld kl. 20.00 í húsi Flugbjörg- unarsveitarinnar í Reykjavík við Flugvallaveg. Kúrekadans Félag eldri borgara í Reykja- vík er með danskennslu, kú- rekadans, í Risinu i dag kl. 18.00. Fjallkonumar Kvenfélagið Fjallkonumar halda fund í kvöld í Safnaöar- heimili Fella- og Hólakirkju kl. 20.30. Gunnar Sigurðsson lækn- ir kemur og ræðir um beinþynn- ingu. Samkomur Kvenfélag Seljasóknar heldur aðalfund þriðjudaginn 4. febrúar kl. 20.30 í Kirkjumiö- stöðinni. Eftir fundarstörf verð- ur Selma Júlíusdóttir með kynningu á ilmolíum. Kvenfélag Háteigssóknar Heldur aðalfund sinn i kvöld kl. 20.30 í safnaðarheimili kirkj- unnar. Upplestur og kaffiveit- ingar. Æskulýðsstarf Hjálpræðishersins Anna og Daniel Óskarsson, sem búa í Norður-Noregi, verið með samkomu í Herkastalanum í kvöld kl. 20.30. Gaukur á Stöng: Gleðisveitin Rjúpan Gaukur á Stöng heldur sem fyrr uppi merki lifandi tónlistar. Á hverju kvöldi koma þar fram hljómsveitir, bæði þekktar og óþekktar. í gærkvöld kom fram ný hljómsveit sem heitir Vestanhafs en þar í broddi fylkingar er gítar- snillingiu-inn Björgvin Gíslason. í kvöld er það hins vegar hljóm- sveitin Rjúpan sem hefur sínar bækistöðvar á Akureyri, nánar til- Skemmtanir tekið á Akureyri. Rjúpan mun sjá til þess að stutt verði í brosið hjá gestum á Gauknum í kvöld. Rjúp- an er mikil gleðisveit og hefur komið víða fram. Fyrir jól gaf sveitin út plötu og má búast við að lög af henni verði í heiðri höfð í kvöld. Meðlimir Rjúpunnar eru þrír, Skúli Gautason, sem var eitt sinn í Sniglabandinu, Karl 01- geirsson og Friðþjófur Sigurðsson. Á miðvikudags- og fimmtudags- kvöld eru það svo félagarnir í Fjörkálfarnir f Rjúpunni skemmta á Gauknum í kvöld. Sixties, sem leika á Gauknum og hljómsveit Sóldögg sem skemmtir um helgina er það hin vinsæla gestum á Gauknum. Ófært úr Fljótum til Siglufjardar Nokkuð snjóaði í nótt og voru vegagerðarmenn við mokstur fram eftir morgni og eru nú allir helstu þjóðvegir landsins færir en víða er nokkur hálka. Ófært er úr Fljótum til Siglufjarðar, þá er skafrenningur á Öxnadalsheiði og á Norðaustur- landi, þar sem er slæmt ferðaveður. Færð á vegum Heiðar eru sumar hverjar ófærar vegna snjóa, má þar nefna Lágheiði og Öxarfjarðarheiði á Norðurlandi, Hellisheiði eystri og Mjóafjarðar- heiði á Austurlandi. Á Suðurlandi er vegavinnuflokkur við að lagfæra leiðina Laugarvatn-Múli. m Hálka og snjór ® Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir LokaörStOÖU tD Þungfært 0 Fært fjallabílum Sonur Jórunnar og Erlends Litli drengttrinn á myndinni fæddist á fæð- ingardeild Landspítalans 23. janúar kl. 7.06. Hann Barn dagsins var við fæðingu 3.195 grömm og 49 sentímetra langur. Foreldrar hans eru Jórunn Rothenborg og Erlendur Sturla Birgis- son. Hann á einn bróður, Alexander, sem er níu ára. Geena Davis og Samuel L. Jackson ieika aðalhlutverkin. Koss dauðans Aðalpersónan í Koss dauðans (The Long Kiss Goodnight) er húsmóðirin og kennarinn Sam- antha Caine sem lifir venjulegu fjölskyldulífi en þjáist af minnis- leysi. Þegar gerð er tilraun til að drepa hana á heimili hennar bregst hún við eins og þjálfaður bardagamaður. Þessi viðbrögð hennar gera það að verkum að fram fara að koma minningar sem eru í engu samræmi við það líf sem hún lifir. Minningarnar láta hana ekki í friði og með að- stoð einkalöggunnar Mitch Hennesey kemst hún að því að hún er allt önnur manneskja en hún hélt sig vera. Hennar rétta nafn er Charly Baltimore og er hún mjög vel þjálfaður leyni- þjónustumaður sem er flæktur í flókin mál hjá ríkinu sem ekki mega koma upp á yfirborðið. Kvikmyndir Samuel L. Jackson er helsti mótleikari Davis í myndinni en leikstjóri er Renny Harlin. Nýjar myndir: Háskólabíó: Áttundi dagurinn Laugarásbíó: Samantekin ráð Kringlubíó: í straffi Saga-bíó: Dagsljós Bíóhöllin: Kona klerksins Bíóborgin: Kvennaklúbburinn Regnboginn: Koss dauðans Stjörnubíó: Tvö andlit spegils Krossgátan r~ r- T“ 4 j * iö ii vr cT “I ur fj,1" pr fr sr iti ■ zr J Lárétt: 1 hlýðin, 4 fæddi, 7 píla, 8 fóðrar, 10 gortaði, 11 vatnagangur, 13 op, 14 reið, 16 kjáni, 18 viðkvæm- ara, 21 hraðinn, 22 haf. Lóðrétt: 1 nauðsynina, 2 gáski, 3 megna, 4 kveikja, 5 grafa, 6 gleð- skapur, 9 óánægja, 12 tryllti, 15 les- andi, 17 tíndi, 19 bráðræði, 20 hús. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 vansi, 6 þý, 7 erja, 8 lóu, 10 skóflar, 12 tólinu, 15 unir, 17 æði, 18 rýmið, 20 an, 21 státinn. Lóðrétt: 1 vesturs, 2 ark, 3 njóli, 4 safi, 5 ill, 6 þó, 9 urginn, 11 auðan, 13 ónýt, 14 næði, 16 rit, 19 má. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 39 04.02.1997 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollgenqi Dollar 69,490 69,850 67,130 Pund 112,790 113,360 113,420 Kan. dollar 51,680 52,000 49,080 Dönsk kr. 11,0930 11,1520 11,2880 Norsk kr 10,7370 10,7960 10,4110 Sænsk kr. 9,5090 9,5610 9,7740 Fi. mark 14,1600 14,2430 14,4550 Fra. franki 12,5130 12,5840 12,8020 Belg. franki 2,0504 2,0628 2,0958 Sviss. franki 48,9100 49,1800 49,6600 Holl. gyllini 37,6700 37,8900 38,4800 Þýskt mark 42,3300 42,5400 43,1800 It. lira 0,04281 0,04307 0,04396 Aust. sch. 6,0130 6,0510 6,1380 Port. escudo 0,4209 0,4235 0,4292 Spá. peseti 0,4983 0,5013 0,5126 Jap. yen 0,56810 0,57150 0,57890 írskt pund 111,130 111,820 112,310 SDR 96,13000 96,70000 96,41000 ECU 81,8100 82,3000 83,2900 Simsvari vegna gengisskráningar 5623270 •% < 4 r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.