Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1997, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1997, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 Fréttir Hreyfing gæti verið að komast á kjarasgmningaviðræðurnar: Tilboð frá VSI um lág- markstekjur í burðarliðnum Samkvæmt heimildum DV er í undirbúningi hjá Vinnuveitenda- sambandinu tilboð um lágmarks- tekjur sem yrðu komnar í 70 þús- und krónur í lok samningstímabils- ins eftir 2 eða 3 ár. Þama er ekki um það að ræða að hækka lægsta launataxta í 70 þúsund krónur á mánuði. Laun eru með ýmsum hætti. Sums staðar er fólk bara á töxtum þar sem allt er innifalið. Annars staðar eru þau samansett úr mörgum þáttum, svo sem vaktaá- lagi, bónusyfirborgunum og fleiru. Þetta myndar samtals ákveðnar tekjur. Það eru 70 þúsund króna tekjur á mánuði sem verið er að ræða um hjá vinnuveitendum. Ýms- ir telja að þetta geti orðið til þess að koma hreyfingu á samningamálin. Þá er talið öruggt að innan tíðar muni ríkisstjómin leggja á borðið - búist við skattatilboði frá ríkisstjórninni innan tíðar tilboð um skattabreytingar til að lækka jaðarskatta. Það er þó ekki talið duga, meira þurfi að koma til fyrir þá tekjulægstu í þjóðfélaginu. Vitað er að ríkis- stjómin vill mikið til vinna að koma í veg fyrir ófrið á vinnumarkaði og þær af- leiðingar sem hann gæti haft. „Við héldum fund með kjörstjórn og að- gerðarnefnd til að fara yfir hvað þurfi að gera við undir- búning vinnustöðv- unar. Það var einnig rætt hvort sterkara væri að fara í staö- bundin verkföll eða allsherjarverkfall. Menn ræddu þessi mál en tóku engar ákvarð- m í Karphúsinu undanförnu. þar sem lítil hreyfing hefur verið á samningamálum að DV-mynd BG miðjan þennan mánuð látum við kjósa um hvort menn vilja taka slaginn eða ekki,“ sagði Hcilldór Bjöms- son, formaður Dags- brúnar, í samtali við DV. Hann sagði að í dag yrði haldinn óform- legur fundur Dags- brúnar og VSÍ þar sem hann sagðist ætla að biðja menn að tala um málið af alvöm og hætta þessum pókerleik. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmda- stjóri VSÍ, var Bamaníðingar: Dómar eru of vægir - sagði dómsmálaráðherra „Kynferðislegt ofbeldi gegn böm- um er einhver allra alvarlegasti glæpur sem hér er framinn og mikilævægt að þjóðfélagið reyni að taka skynsamlega á þeim málum... Mitt mat er þaö að dómar í alvarleg- um líkamsmeiðingarmálum og ekki síst í kynferðisafbrotamálum séu of vægir hér,“ sagði Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra í utandag- skrárumræðum um kynferðislega misnotkun á börnum á Alþingi í gær. Það var Jóhanna Sigurðardóttir sem hóf umræðuna. Hún sagði stöðu þessara mála hér á landi mjög alvarlega og ógnvekjandi þegar fyr- ir liggur að bamavern dam efndir hefðu haft til meðferðar 465 mál þar sem 560 böm koma við sögu síðast- liðin fimm ár. Hún sagði þetta þeim mun alvarlegra þar sem erlendar rannsóknir sýndu að einungis lftill hluti þessara mála kæmu fram í op- inberum gögnum. Engin ástæða væri til að ætla að annað væri upp á teningnum hér. Hún sagði ljóst að það þyrfti að skoða þetta sérstak- lega og vinna að úrbótum í því sem snýr að brotaþola kynferðisofbeldis. Hún spurði bæði dómsmálaráö- herra og félagsmálaráðherra um hvenær væri að vænta úrbóta í þessum málum. Þorsteinn svaraði hvemig lög- reglan stæði að rannsókn og úr- vinnslu þessara mála hér á landi Páll Pétursson félagsmálaráðs- herra sagði að allt þyrfti að gera sem hægt væri til að bæta þau með- ferðarúrræði sem til em og til að koma í veg fyrir þessa glæpi sem hann sagðist telja að gengju næst morði. -S.dór Verölaun úr minningarsjóöi Vátryggingafélags íslands voru afhent í gær í Listasafni íslands. Þaö var Olafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, sem afhenti verðlaunin og á myndinni sjást verölaunahafarnir Egill Friöleifsson kórstjóri, dr. Gísli Pálsson prófessor og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti íslands. Þetta er í annaö skipti sem verölaun eru veitt úr minningarsjóönum. DV-mynd Pjetur Þak fauk af Qárhúsi í Ólafsfirði: Þakið er mölbrotið fram um alla sveit - segir bóndinn að Kvíabekk DV, Akureyri: „Við erum vön því að það komi svona hnútar í austanáttinni sem kemur héma einu sinni til tvisvar á ári. Hnútamir koma úr fjallaskörðun- um og em alveg hábölvaðir, þeir geta tekið heilu húsin,“ segir Andrés Krist- insson, bóndi á Kvíabekk í Ólafsfirði, en þak fauk af fjárhúsi hjá honum í mikilli vindhviðu í gærmorgun. Andrés segir að nokkrir slík- ir hnútar hafi komið í gær- morgun og einn þeirra hafi verið svo öflugur að hann hristi og skók íbúðarhúsið þar sem heimilisfólkið var. Mikill hávaði fylgdi í hviðunum og varð Andrés sem var inni í bæ ekki var við þegar þakið fauk af fjárhúsinu og það uppgötv- aðist ekki fyrr en síðar. „Þetta gat farið verr því það vom engar skepnur i húsinu, þær vom allar úti og sakaði ekki. Þakið á fjárhúsinu er hins vegar handónýtt enda mölhrotið fram um alla sveit,“ sagði Andrés. Einn hestur fannst dauðin- við háspennustaur í túninu skammt frá bænum. Lögregl- an á Ólafsfirði segir að annaðhvort hafi þakplata lent á hestinum eða hann hafi hreinlega fokið á staurinn og drepist þannig. -gk DV-mynd Helgi Hestur fannst dauöur. Þú getur svaraS þessari spurningu meö því aö hringja í síma 9041600. 39,90 kr. mínútan j» m, m / rödd FOLKSINS 904 1600 Er rélt að birta meðaltals- einkunnir í einstökum skólum? spurður um þá kyrrstöðu sem ríkt hefur í samningamálunum frá því þær töldust hafhar eftir áramótin. „Segja má að allt sé þetta í hefð- t bundnum farvegi. Þetta er eins kon- " ar taugastríð og kergja eins og alltaf og á meðan það ríkir kenna menn hvorir öðmm um allt. Þá er það ' einnig staðreynd að umræðan hefur ekki þroskast vegna þess að verka- lýðshreyfingin fór í mál við okkur ( um hvort yfirborganir í formi tíma gætu ekki gengið á móti taxtahækk- un nema viðkomandi verði sagt upp. Við töpuðum málinu í héraðs- dómi og eftir það þykir mér það ekki samboðið mönnum að halda áfram umræðum um að færa yfir- borganir inn í kaup þegar fallinn er dómur fyrir því að það megi ekki,“ sagði Þórarinn V. -S.dór Stuttar fréttir Reiðar konur ( Samkvæmt frétt RÚV em margar konur reiðar yfir því að svokölluð kristnihátíðarnefnd skuli eingöngu skipuð körlum. Breyting verður ekki á nema að t.d. kona taki við af Ólafi Skúla- syni í embætti biskups sem er meðal nefiidarmanna. Smugumál í Ósló Fiskveiðideilan í Smugunni kom m.a. upp á borðið í viðræð- um utanríkisráðherra íslands og Noregs á fundi norrænna utanrík- isráðherra í Osló í gær. | Rændur í Grosní í pistli Hauks Haukssonar, fréttaritara RÚV í Rússlandi, í gær kom m.a. fram að hann var rændur á ferð sinni um Grosní, höfúðborg Tsetséníu í Kákasus. Stækkun í uppnámi Ákvörðun um stækkim jám- blendiverksmiðjunnar á Grund- artanga er í uppnámi vegna tog- streitu íslendinga og Norðmanna um eignaraðildina. Stöð 2 greindi frá. Óeðlilegir vextir Dæmi eru um að bankar taki hærri vexti af greiðslugreifingu kreditkorta en sem nemur drátt- arvöxtum. Samkvæmt Stöð 2 telja I þingmenn þetta óeðlilegt. Hættulegur vatnsloki Vinnueftirlit ríkisins telur að vatnsloki á botni sundlaugarpotts í Hafharfirði sé hættulegur og vill banna notkun hans eftir alvarlegt óhapp þar um síðustu helgi. Þetta kom ffarn á Stöð 2. Vandræðahringtorg Nýtt hringtorg við Hveragerði hefur reynst vandræðalausn. Samkvæmt Stöð 2 hafa sumir bíl- stjórar ekið þvert yfir torgið. Ekkert hlaup Mikið vatn hefur runnið úr Grímsvötnum síðustu vikm- og ( því er ekki búist við Skeiðarár- hlaupi i vetur. Samkvæmt Sjón- varpinu eru þetta góð tíðindi fyr- ir Vegagerðina sem getur nú byggt ný vegamannvirki á Skeið- arársandi í friði. I Eggvopn 72 sinnum Eggvopnum var beitt í 72 málum sem komu til rannsóknar hjá lög- reglunni í Reykjavík á síðasta ári og til 4. febrúar sl. Þetta kom fr am í fyr- irspurnartíma á Alþingi í gær. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.