Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1997, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 6. FEBRUAR 1997 Fréttir__________________________________ Á þriðja tug bíla í árekstri á Kringlumýrarbraut: Margir ökumenn láta eins og hásumar sé - segir Baldvin Ottósson, aðalvaröstjóri lögreglunnar Griðarlega stór árekstur varð á Kringlumýrarbraut, undir göngu- brúnni í Fossvogi, á fjórða tímanum í gær. Á þriðja tug bíla lenti í árekstrinum sem talið er að megi rekja til mikillar hálku og skafrenn- ings sem byrgði ökumönnum sýn í óveðrinu í gær. Fimm manns voru fluttir á slysa- deild en að sögn Jóns Baldurssonar yfirlæknis var ekki um alvarleg meiðsl að ræða hjá neinum. Að sögn lögreglu er þetta einn stærsti árekstur sem menn muna eftir í Slökkviðliösmenn þurftu körfubíla til að geta skafiö snjó af þökum húsa þar sem taliö var aö hætta Stafaði af. DV-mynd s fjölda ára. Fjölmennt lið lögreglu og slökkviliðs var kallað á vettvang. Gríðarlegt eignatjón varð í árekstr- inum. Kringlumýrarbraut var lokuð í langan tíma vegna slyssins og jók það enn á ringulreiðina sem skapað- ist í mjög erfiðri færð á höfuðborg- arsvæðinu í gær. Nokkrir minni háttar árekstrar urðu einnig í borg- inni en engin slys urðu á fólki í þeim. „Um 40 björgunarsveitarmenn á 10 bílum og 50 lögreglumenn voru fólki til aðstoðar og þeir voru marg- ir sem þurfti að hjálpa. Miðað við aðstæður gekk þetta í langflestum tilfellum vel ef undan er skilinn stóri áreksturinn. Við stýrðum öll- um aögerðum frá sérstakri aðgerða- stöð hér í lögreglustöðinni við Hverfisgötu," segir Baldvin Ottóson, aðcdvarðstjóri lögreglunnar, að- spurður um óveðrið. Að sögn Bald- vins var mest að gera um hádegið í gær en þá var skafrenningurinn Lögregla og hjálparsveitir höföu í nógu að snúast á höfuðborgarsvæöinu og Suöurnesjum viö aö hjálpa fólki í vonskuveöri sem gekk yfir suövesturhorn landsins í gær. Lögregla hjálpaöi hundruðum barna heim úr skólum í gær- dag og hér sést lögregluþjónn aðstoöa þrjú börn sem áttu i erfiöleikum vegna veðursins. Dv-mynd s Gríöarlega stór árekstur varö á Kringlumýrarbraut í gær þegar á þriöja tug bíla lenti í árekstri þar. Fimm manns voru fluttir á slysadeild en meiðsl þeirra reyndust ekki alvarleg. Gífurlegt eignatjón varö í árekstrinum. Fjölmennt liö lögreglu og slökkviliðs var kallaö á vettvang og Kringlumýrarbraut var lok- uö í rúma tvo klukkutíma eftir slysiö. Dv-mynd pjetur hvað mestur í borginni. „Það hlýtur að vera mikill bjart- sýnisandi í mörgum hér á Reykja- víkursvæðinu því búnaður margra bíla er með ólíkindum miðað við tíðina. Margir ökumenn láta eins og hásumar sé,“ segir Baldvin. Tækjadeild borgarinnar var úti með allt sitt lið og öll sín tæki í gær en hafði vart undan skafrenningn- um. Engin mikil óhöpp urðu í Kópa- vogi, Hafnarfirði og Garðabæ en þar var illfært í mörgum hverfum. Á Suðumesjum var mjög slæmt veður lengst af í gær og mjög mikill skafrenningur. Á Reykjanesbraut lentu ökumenn í vandræðum en þar skóf mjög mikið en engin slys urðu þar. Þrír árekstrar urðu I Keflavík en engin slys á fólki. Lögregla og björgunarsveitir á Suðurnesjum höfðu í nógu að snúast og aðstoðuðu marga við að komast leiðar sinnar. -RR Dagfari Angan heimahaga bönnuð Ramakvein berast nú frá íslend- ingum búsettum ytra, einkum í Danmörku og Sviþjóð, og það ekki að ástæðulausu. Þorrinn stendur nú sem hæst og mörlandinn kýlir vömbina um allt land og mið. En það á ekki við um landa okkar sem búa fjarri heimahögum. Danir hafa neitað að taka við þorramatnum og svipaða sögu er að segja af Svíum. Þetta er auðvitað hið mesta fólsku- verk norrænna bræðra okkar og ber að svara jafnt með viðskipta- þvingunum sem og pólitískum að- gerðum. Nógu erfitt er að dvelja langdvöl- um flarri landi sínu þótt mönnum sé ekki gert það ómögulegt að finna angan heimahaganna. Færi til þess gefst aldrei betra en á þorra. Þá hafa menn fengið senda til sín súrsaða hrútspunga, svið og sviða- sultu, bringukolla, harðflsk og hangikjöt. Allur ilmar þessi matur yndislega, vel súrsaður og reyktur. Erflðara er í seinni tíö að útvega súrsaðan hval en útsjónarsamir menn ráða þó viö að að bjarga hval í pakkann. Ónefht er enn það sæl- gæti sem ilmar best, sjálfúr hákarl- inn. Þorrablót, hvort sem þau eru hér á landi eða ytra, eru heldur brágð- og lyktarlaus án hákarls og brennivíns. Þetta skilja skandinavískar skrifstofublækur ekki. Þær banna viðtöku á góðmetinu og gripa fyrir neflð berist pakki af vel súrsuðu og kæstu góðmeti frá íslandi. Þvílíkur söfnuður. Þessir frændur okkar bera við reglugerðafargani Evrópu- sambandsins og segjast ekki mega taka við pungungum. Þetta er auð- vitað helber fyrirsláttur. Þessar pempíur þola bara ekki þjóðlega matarlykt. Úrkynjunin er slík að þeir eta í mesta lagi pasta og græn- fóður og stöku skinkurúllu til þess að styðja danskan landbúnað. Þorrablót á að halda í Kaup- mannahöfn 15. febrúar. Kokkamir hafa verið ráðnir og allt er til reiðu - nema sjálfur þorramaturinn. Hvað gera bændur þá? Verður boð- ið upp á dönsk vínarbrauð og lagtertur? Er hægt að bregða skin- kunni í súr eða svíða svínshausa til málamynda? Eru eistun undan svímun boðleg í sultu? Allt þetta er heldur klént, eins og Jón Viðar orðar það. Svíar eru raunar engu betri. Þorrablót þar i landi verða líklega haldin meö alræmdum kjöt- bollum að þarlendum sið. Tóm gefst vart til þess að súrsa þær svo þær verði ætar. íslendingar í Danmörku og Sví- þjóð geta því vart blótað þorra í þetta sinn. Þeir geta þó, að þjóðleg- um, sið blótaö þeim skandinav- ísku skrifræðisþrælum og ilm- vatnspempíiun sem banna inn- flutning á þjóðlegum þorramat. Sá gjörningur er raunar punkturinn yfir i-ið. Þetta kemur nefnilega í kjölfar þess að Danir brenndu hangikjöt og annað góðmeti sem íslendingar sendu fullir stolts til Danaveldis þá er forseti íslands heimsótti herraþjóðina fyrrver- andi. Og ekki nóg með það. ís- lenskir gæðaostar voru sendir með forsetanum en þeir frændur okkar kunnu ekki að meta vam- inginn. Þeir endursendu því ostana. Það er hægt að sætta sig við það að meðferðin á þorrapungunum flokkist undir móðgun en að brenna eða endursenda góðmeti sem sent er með þjóðhöfðingjanum er hrein stríðsyfirlýsing. Stoltir ís- lendingar geta ekki annað en brugðist við slíku. Lágmark er að utanríkisráðherra kalli danska sendiherrann á sinn fund og mót- mæli í nafni osta, hangikjöts, hrútspunga og hákarls. Beri munnleg mótmæli ekki ár- angrn- verður að grípa til aðgerða. Þá ber ráðherra að gefa þeim góða manni vel verkaðan hákarl, súran bringukoll og hrútspunga og vita hvort hann lætur sig ekki. Það væri kannski nægileg hótun að láta hann lykta af hákarlinum? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.