Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Blaðsíða 16
16 ** * * * menning MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997 * * Útópía samræmis tækni og listar Sýning þeirra Péturs Arasonar og Ingólfs Amarsonar á nokkrum verk- um Eyborgar Guðmundsdóttur (1924-1977) i Sýningarsalnum Önnm- hæð, Laugavegi 37, vekur til mn- hugsunar um merka listakonu sem of lengi hefur verið hljótt um. Á sýn- ingunni eru einimgis sjö verk en þau vitna um kafla í íslenskri lista- sögu sem lengi hefur legið í þagnar- gildi og heil kynslóð okkar yngstu myndlistarmanna hefur áreiðanlega farið á mis við. Eyborg átti óvenjulegan feril sem listakona. Samkvæmt greinargóðu yflrliti yfir æfi hennar og störf eftir Rúnu Gísladóttur, sem liggur frammi í sýningarsalnum, hóf hún ekki að stunda myndlist af fúllri al- vöm fyrr en hún var orðin 35 ára gömul en í desember 1959 hélt hún utan til Parísar þar sem hún komst undir handleiðslu ekki ómerkari manns en Victors Vasarelys, frrnn- kvöðuls þeirrar nýju sýnar á mynd- listina sem kennd hefur verið við op- list. í stað þess að nýta formið og lit- inn til að miðla táknrænni merk- ingu eða túlka innra tiifmningalíf listamannsins vildi hann rannsaka virkni forms- ins á áhorfandann sem sjónrænt áreiti. Fyrir honum var myndlistin nánast vísindaleg rann- sókn á virkni forma og lita þar sem hvert ein- stakt verk var ffekar liður í rannsóknarverkefni en endanleg og sjálfstæð niðurstaða. Út frá þess- um tilraunum Vasarelys varð svo til list sem breyttist eftir sjónarhomi áhorfandans og að síð- ustu hreyfanlegir listmunir sem höfðuðu til virkrar þátttöku áhorfandans sjálfs í sköpun og upplifun verksins. Vasarely lagði þannig einnig gmnninn að þeim þætti í myndlist 20. aldar sem kenndur hefur ver- ið viö hreyfilist eöa kínetiska list. Þetta var fram- sækin list sem tók mið af tækniþróun samtímans og þeirri staðreynd, sem Walter Benjamin hafði Eyborg Guðmundsdóttir: quadrofoni, 1974. vakið athygli á, að listin á tímum fjölföldunarinn- ar hafði verið svipt ám sinni sem helgigripur. Það var Dieter Rot sem flutti þessar hugmynd- ir hingað til íslands i lok 6. Éiratugarins, um það leyti sem Eyborg var að hefja myndlistamám sitt Myndlist Olafur Gíslason í París, og hafa kynni hennar af Dieter vafalaust ráðið miklu um val hennar á lærimeistara. Myndlist Vasarelys og skoðanabræðra hans átti að vekja áhorfendur til gagnrýninnar vitundar um sjónskynið möguleika þess, þess sem þessi myndlistar vildi þess að rjúfa þá einangran sem listin hafði hafnað irman kalkaðra grafa lista- safiianna með því að tengja hana nýjustu straumum í byggingarlist og umhverfismótun. Á bak við þessar hugmyndir lá út- ópía um nýtt samræmi á milli sam- félags og tækni með virkri þátttöku einstaklingsins, útópía sem síðar átti eftir að hopa fyrir nýjum vera- leika kalda stríðsins, vígbúnaðar- kapphlaupsins og nýlendustyrjald- anna á sjöunda og áttunda áratugn- um. Hér á landi birtust þessir fersku vindar, sem Dieter Rot flutti með sér hingað til lands, ekki bara í verkum Eyborgar heldur líka í ólíkum myndum í verkum Harðar Ágústs- sonar, Jóns Gunnars Ámasonar og Magnúsar Pálssonar. Hlutm- Eyborgar í þessum kafla listasögunnar hefur verið vanrækt- ur og vanmetinn til þessa. Verkmn hennar hefur ekki verið haldið fram af Listasafninu eða öðrum söfnum og vekur þessi sýning okkur til vitundar um nauð- syn þess að haldin sé yfirlitssýning á verkum þessarar merku listakonu þar sem verk hennar yrðu sett í víðara samhengi og þetta tímabil lista- sögunnar krufið nánar. Það er augljóst að verk Eyborgar víkka og stækka svið íslenskrar lista- sögu og sýningin á Annarri hæðinni er lofsvert framtak, þó ekki væri nema fyrir að vekja athygli okkar á þeirri staðreynd. Sýningin á verkum Eyborgar stend ur tii marsloka. Sýningarsalurinn Önnur hæð að Laugavegi 37 er opinn á miðvikudögum kl. 14-18 eða eftir samkomulagi. Ævistarfið á þúsund blaðsíðum Dr. Helgi Haraldsson, prófessor í rússnesku viö Óslóarháskóla, hefur afhent þjóð sinni ævistarf sitt, bundið í dökk spjöld með gyfltri áletrun: Rússnesk/íslenska orða- bók. Hún er þúsund blaðsíður með yfir 50.000 uppflettiorðum og við- aukum, meðal annars um rússneskt þjóðskipulag fyrr og nú, og á að gagnast bæði rússneskumælandi fólki og íslenskum notendum. „Ég byrjaði að skrifa frumgerð handritsins fyrir röskum tuttugu ánun eöa 1976,“ segir Helgi, „og gerði þá samning við orðabókarfor- lag í Moskvu. Smám saman óx verkið en rússneska forlagið mætti því með skilningi að bókin færi úr böndunum. Ég var í starfi í Ósló og fékk engin laun fyrir þessa auka- vinnu - það er nú eitt í sambandi við orðabókarvinnu að hún er yfir- leitt hjáverkastarf. Ef vel ætti að vera þyrfti auðvitað hóp sérfræð- inga sem gæti einbeitt sér að verk- inu þann tíma sem það tekur, en orðabókin mín var unnin á kvöldin, um helgar og í fríum. Fyrstu árin var ég stöðugt í sam- bandi við ritstjóra bókarinnar i Moskvu um orðaval og almenna að- ferðafræði, handritið fór á milli fram og aftur. Þegar menn vom ásáttir um höfuðatriði var farið að vélrita handritið. Það var aðallega verk konu minnar, Dinu - en án hennar hefði þessi bók ekki orðið það sem hún varð. Framgerð hand- rits lá fyrir vélrituð 1986, tíu áram eftir að verkið hófst. Helgi Haraldsson - gafst ekki upp. DV-mynd Pjetur Til gamans má geta þess að þeg- ar vélritað var á tvenns konar letur varð að nota fjórar kúlur sem stöð- ugt þurfti að skipta um, tvær fyrir venjulegt letur, rússneskt og ís- lenskt, og tvær fýrir skáletur, rúss- neskt og íslenskt! Sérðu fyrir þér hvers konar handavinna þetta var? Þó að handritið væri tilbúið hélt ég áfram að dytta að því og auka við það og fékk svo að vita hjá útgefandanum aö ef viðbætumar ættu að koma með þyrfti að vélrita hand- ritið aftur - 3.500 vélritaðar síður! Sem betur fer gáfumst við ekki upp. Þetta var í upphafi tölvualdar og við fengum lítinn Makka sem við slógum handritið inn á. Fyrst var bókin sem sagt hand- rituð, svo vélrituð og loks tölvusett. Um þaö leyti sem því lauk voru Sovétríkin að riða til falls og ég fékk bréf frá forlaginu um að vegna skipulagsbreytinga væri útgáfu orðabókar minnar frestað um óá- kveðinn tíma. Þá örvænti ég um að þessi bók liti nokkum tima dagsins ljós. Leitin að nýjum útgefanda tók tíma en fyrir tUstilli Ólafs Egilsson- ar sendiherra fékkst styrkur úr Menningarsjóði og siðan tók Nesút- gáfan að sér að gefa bókina út.“ Rússnesk-íslenska orðabókin er fallega útgefin í góðu bandi og kost- ar 14.980 kr. Einsöngstónleikar Elsa Waage kontraaltsöngkona heldur einsöngstónleika á vegum Styrktarfélags íslensku óperunn- annað kvöld, þriðjudag, kl. 20.30. Undirleikari hennar er Mzia Bachturize, undirleikari við Scala óperuna. Þær búa báð- ar á Ítalíu og hafa áður komið ffarn saman á ýmsum tónleik- um, meðal annars á Scala- safninu. Þær koma hingað sérstaklega til að halda þessa tónleika. Efnisskráin er fjölbreytt. Tónleikamir hefjast á ljóð- um og aríum eftir Wagner en eftir hlé flytja þær ljóðatónlist eftir Tosti, Jón Ásgeirsson og Sigfús Ein- arsson og söngva úr My Fair Lady og West Side Story. Myrkur Caput-dagur Næstu tónleikar á Myrkum músíkdögum era annaö kvöld kl. 20 i Listasafni íslands. Þá stýrir Guðmundur Óli Gunnarsson Caput- hópnum sem leikur í öllu sínu veldi - átján hljóöfæraleikar- ar og mannsrödd! Dagskráin er alíslensk, hefst á Le Metrique du Cri eftir Atla Ingólfsson, svo kem- ur Syrpa úr óperunni Leggur og skel eftir Finn Torfa Stefánsson, í segulsviði eftir Snorra Sigfús Birgisson, Stokkseyri eftir Hróð- mar Sigurbjömsson og Sinfónía nr. 2 eftir Áskel Másson. ÖU verk- in eru framflutt nema Syrpa Finns Torfa. Dómínó rokgengur Þjóðin hefur sannarlega beðið málþola eftir að fá að sjá aftur á sviði leikrit eftir sitt ástsælasta leikskáld eftir miðja tuttug- ustu öld, Jökul Jakobsson. Dómínó gengur svo vel hjá Leikfélagi Reykjavíkur að uppselt er fram í mars og hefur verið bætt við auka- sýningum til að reyna að anna eftirspum. Ein slík er þriðjudaginn 18. febr- úar og er óðum að selj- ast upp. Dómínó var frum- sýnt á Listahátíð 1972, tekið upp um Hanna haustið Og urðu MaríaKarls-™3^^1^ dóttirogEg-31 6 000 III Ólafsson 18estl- Synmgarnar Dómlnó. eru nu orðnar 12 og uppselt á allar, 24 í viðbót éra í sölu og þegar uppselt fram í mars, jafhvel biðlistar. Þá er Ijóst að gangurinn verður tölu- vert meiri nú en í gamla daga og mega Kristín Jóhannesdóttir og hennar fríða lið vel við una. Þjóð í hættu Helga Sigurjónsdóttir hefúr safnað saman greinum sínum um skólamál frá undanfömum fjórum áram og gefið út í bók- inni Þjóð í hættu - hvert stefh- ir í skólamálum? í fyrsta hluta bókarinnar er greinaflokkur- inn Nýskólastefhan um nýju kennslufræðina sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1993. Annar hluti heitir Skóli - til hvers og fjallar um hvemig nýja stefiian breytti smám saman grunnskólanwm íslenska í uppeldisskóla. í þriðja hlutanum, Frelsi og ábyrgð, er spurt hvort of mikið frelsi bama og unglinga sé ekki orðið að hreinu ábyrgðarleysi sem sé skaölegt ungmennunum sjálfum og þjóðfélaginu öllu. Rauður þráður bókarinnar rek- ur hvernig bæta megi hag barna sem eru lengi að læra og sem bæði gamli skólinn og nýi skólinn hafi vanmetið. Helga hefúr haft for- göngu um að þróa árangursríkar kennsluaöferðir fyrir „dyslexísk" börn í Menntaskólanum í Kópa- vogi. Helga gefur bókina sjálf út. Umsjón Silja Aflalsteinsdóttir nam

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.