Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 10. FEBRUAR 1997 29 Vinna að öryggismálum tölvukerfa tekur aldrei enda Tölvur í gíslingu „Undanfarin tvö til þijú ár virð- ist sem innbrotum og þjófnuðum á tölvubúnaði fyrirtækja, stofnana og einstaklinga hafi fjölgað. Við sjáum fréttir þar að lútandi reglulega í dagblöðum. Einnig verðum við að hafa í huga að það eru ekki öll til- felli sem ná fréttasíðum dagblað- anna. Kannanir, sem gerðar hafa verið víða erlendis, sýna að sífellt færist í aukana að tölvubúnaði sé stolið og geri ég ráð fyrir að hér á íslandi sé málum svipað háttað, því miður,“ segir Hannes Sigurðsson, rafmagnstæknifræðingur hjá Skýrr hf., en hann starfar við öryggisút- tektir á tölvuumhverfum fyrirtækja og stofnana. Hannes segir að margt bendi til þess að tölvuþjófnaður sé vaxandi vandamál. fðulega fylgir fréttum um þjófnað á tölvum að tap- ið sé mjög bagalegt fyrir viðkom- andi aðila. Þegar gögn og hugbúnað- ur tapast getur tjónið verið mun til- finnanlegra en þegar vélbúnaður tapast. „Á hörðum diskum eru geymd gögn fyrirtækisins sem hugsanlega hefur farið mikil vinna og tími í. Gögnin geta verið nauð- synleg rekstri þess og mega ekki giatast né komast í hendur óvið- komandi aðila. Allt of oft vill það koma fyrir að ekki eru tekin afrit þrátt fyrir mikilvægi gagnanna." Þrátt fýrir mikinn áróður fyrir því að afrit séu tekin af mikilvægum gögnum er oft mikill misbrestur á því að svo sé gert. „Reglur um afrit- un á gögnum og hugbúnaði auk geymslu afrita ættu að vera til hjá öllum fyrirtækjum, ekki síst hjá minni fyrirtækjum sem ekki eru með stór tölvukerfi. Oftast eru fyrir- tæki með einhverjar huglægar regl- ur um afritun. Það þarf að koma Raf- mögnuð plötubúð Vefsíða plötusölukeðjunnar Tower Records 'í Bandaríkjunum er á slóðinni http://www.towerrecords.com og er ein af skemmtilegri vefsíðum á Intemetinu. Þar er hægt að leita uppi titla á sérstökum „básum“ og geta leitarorð verið hvort sem er nafn flytj- anda, tónlistartegundar eða titils. Gestir sið- unnar geta líka farið inn á lista yfir 1000 vin- sælustu smáskífumar, fengið upplýsingar um þær, keypt þær og fundið hvar „alvörubúðim- ar“ era (gagnlegt fyrir þá sem hyggja á ferðalag og plötukaup vestanhafs) og hlustað á tóndæmi. Þeir sem vilja geta líka fengið skjávöm sem tónlist- Hannes Sigurðsson hjá Skýrr segir nauðsynlegt að tryggja öryggi tölvugagna. þeim á blað og gera þær eðlilegan hluta af vinnudeginum. Tölvubún- aðinn er hægt að tryggja hjá trygg- ingafélagi. Gögnin sjálf er einungis hægt að tryggja með því að fylgja settum reglum varðandi afritun og geymslu þeirra.“ Tölvuþjófn- aður virð- ist koma í bylgjum en hvað varðar ástæður þess að menn stela slíkum tækjum segir Hannes að því sé stundum haldið fram að eiturlyfja- neytendur fjármagni neyslu sína með tölvuþjófnaði. „Hægt er að vinna gegn tölvuþjófnaði með þvi að efla þjófavamir hjá fyrirtækjum og setja reglur varðandi öryggis- og aðgangsmál. Einnig er æskilegt að merkja allan tölvubúnað fyrirtækis- ins og skrásetja." Hannes segir að svo virðist sem það fari í vöxt að tölvur séu teknar i „gíslingu" og þær eða gögn í þeim séu boðin eig- endum aftur gegn „lausnargjaldi". „Fyrirtæki og einstak- lingar geta spomað við þessu, m.a. með því að afrita gögn reglulega og geyma afrit aðskilin frá tölvunum. Gögn finnast því ekki ein- göngu á hörðum disk- um í tölvum og eigend- ur þeirra verða þvi síð- ur fýrir tjóni af völd- um þjófiiaðarins og ættu ekki að vera til viðræðna um greiðslú á „lausnargjaldi“. Að hans sögn eru iðnaðar- njósnir þriðja ástæða þess að tölvum er stolið. „Ef þessi ástæða er ekki þegar fyrir hendi hér á landi í dag megum við gera ráð fyrir að hún verði það fyrr en síðar.“ Hann leggur áherslu á að fyrirtæki séu mjög háð tölvukerfum sínum og gögnum sem í þeim eru geymd. „Kröfur fyrirtáekja varðandi aðgengileika að upplýsingum í tölvukerfum eru al- mennt þær að réttar upplýsingar eigi að vera aðgengilegar réttum að- ilum, á réttum stað og á réttum tíma. Til að það sé mögulegt eiga allir þættir sem hafa áhrif á aðgang og rekstur tölvukerfa að vera í lagi. Fyrirtæki þurfa þess vegna að marka sér stefnu og setja reglur varðandi aðgangs- og rekstrarör-* yggi tölvukerfa. Ef við skilgreinum hvað þarf að verja og hvers vegna þarf að verja það verður auðveldara fyrir okkur að ná settum markmið- um.“ Reglur eru nauðsynlegar Að sögn Hannesar er nauðsynlegt að stýra hverjir hafa aðgang að hús- næði og tölvubúnaði viðkomandi fyrirtækis. „í öðru lagi verður að stýra hverjir hafa aðgang að gögn- um og hugbúnaði. I þriðja lagi hverjir hafa aðgang að öðmm gögn- um eins og pappírsgögnum, disk- um, hugbúnaði, afritum o.s.frv. og' setja reglur um alla meðferð þeirra. Einnig er mjög gott að unnið sé að því að koma á venjum og hefðum varðandi öryggismál og gera þau að sjálfsögðum hluta af daglegum rekstri fyrirtækisins. Vinna að ör- yggismálum tölvukerfa tekur aldrei enda,“ segir Hannes að lokum. Á heimasíðu Skýrr hf. er hægt að gangast undir könnun á því hvern- ig öryggismálum tölvukerfis er háttað. Slóðin þangað er http:, //www.skyrr.is/ -JHÞ n Smashing Pump- kins eru meöal þeirra tónlistar- manna sem eru áberandi hjá Tower Records. armenn hafa sjálfir hann- að. Til dæm- is geta aðdá- endur Frank Zappa feng- ið eina slíka sem goðið hannaði sjálf- ur. Þeir sem hafa áhuga á bresku útgáf- unni ættu að skoða http: //www. co.uk -JHÞ Kort á netinu Hver kannast ekki við það að ætla að fara að leita sér upplýsinga um fiskveiðar en enda svo á því að týna sér í vefsíðum sem fjalla kannski um geitarækt í Ytri-Mongólíu? Sá sem skrifar þetta kannast reynd- ar ekki við að hafa lent í þessu en þetta gæti komið fyrir, það era allavega mörg öngstræti á upplýsinga- hraðbrautinni og auðvelt að villast þar. Það er gott að hafa aðgang að síðum þar sem alveg ljðst liggur fyrir hvað er í boði. Því ættu þeir sem kannast við fyrr- greint vandamál að fá úrlausn sinna mála á slóðinni http://www.mapquest.com/ Hér er í raun um að ræða kort af öllum heiminum og, það sem meira er, þar er hægt að skoða nákvæm götukort af hverri ein- ustu stórborg á plánetunni Jörð. Hverfafundur - nteð borgarstjóra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri heldur hverfafund með íbúum Hamra- Folda- Húsa- Rima- Borga- Víkur- og Engjahverfís í Grafarvogi í Fjörgyn mánudaginn 10. febrúar kl. 20.00. Á fundinum mun borgarstjóri m.a. ræða um áætlanir og framkvæmdir í hverfunum. Síðan verða opnar umræður og fyrirspurnir með þátttöku fundarmanna og embættismanna borgarinnar. Jafnframt verða settar upp teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru fróðlegu og myndrænu efni. Allir velkomnir. Skrifstofa borgarstjóra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.