Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1997, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1997, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997 49 íþróttir Góð afkoma hjá Celtic Forráðamenn Celtic tilkynntu í gær að hagnaður félagsins hefði nær tvöfaldast á síöasta sex mánaða fjárhagstímabili. Veltan hækkaði um 46% í 1,3 milljarða og hagnaður fyrir skatta hækkaði um 114% i 375 milljónir. Hagnaður eftir skatta varð 210 milljónir og sala að- göngumiða hefur aukist um 46%. Það segir að um 48.400 áhorfend- ur koma á hvern heimaleik liðs- ins og er liðið í hópi tíu liða sem hefur bestu aösóknina. Louis Van Gaal á leiðinni til Barca Spænsk blöð greindu frá því í gær að Louis Van Gaal, þjálfari Ajax, yrði næsti þjálfari Barce- lona. Núverandi þjálfari liðsins, Bobby Robson, yröi þá að víkja úr starfmu. Sögusagnir um að Van Gaal tæki við Barcelona fékk byr undir báða vængi þegar fréttist að hann væri að leita að húsnæði í Barcelona. Ryan Giggs undir þrýstingi Stuðningsmenn Wales sem og þjálfarinn eru ekki ánægðir meö þá ákvörðun Ryan Giggs að gefa ekki kost á sér í landsliðið vegna meiðsla. Bobby Gould sagði að Giggs ætti á hættu að missa sæti sitt í landsliðinu. „Ég er ekki sáttur við þessa ákvörðun hans. Hann hefur ekki leikið vináttuleik fyrir Wales síðan 1991. Hann tilkynnir meiðsli en leikur svo næsta leik fyrir Manchester United," sagði formaður stuðningsmanna- klúbbs velska landsliðsins. Scholes frá keppni í 8 vikur Breska blaðið The Sun greindi frá því gær að Paul Scholes, hinn efhilegi framherji Manchester United, myndi gang- ast undir aðgerð á næstu dögum. Talið er að hann verði frá keppni í 8 vikur. Þetta er áfaU fyrir United þar sem Scholes átti að leysa Eric Cantona af hólmi í næstu tveimur leikjum. Cantona tekur út leikbann gegn Arsenal og Chelsea. Jafnt hjá Svíum Svíar og Tælendingar gerðu markalaust jafntefli á fjögurra þjóða knattspymumótinu í Ban- kok í gær og Japan og Rúmenía skildu jöfn, 1-1. Sharp rekinn Graheme Sharp var í gær rek- inn sem framkvæmdastjóri Old- ham, liðs Þorvaldar Örlygsson- ar, en liðið situr á botni ensku 1. deildarinnar. Ekki hefur verið ráðinn eftirmaður hans. Naumt hjá Geir Montpellier, lið Geirs Sveins- sonar, sigraði spænska liðið Granollers, 21-20, á heimavelli í 8-liða úrslitmn EHF-keppninnar í handknattleik um helgina. Hætt er við að þessi eins marks sigur dugi skammt því Spán- verjamir þykja mjög sterkir á heimavelli. Sex en ekki átta Pétur Hrafn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri KKÍ, haföi sam- band við DV og sagði það ekki rétt hjá Skagamönnum, sem fram kom i blaðinu í gær, að þeir ættu 8 leiki í úrvalsdeild- inni í febrúar. Leikimir væm sex. -JKS/GH íþróttir Itolsku stulkurnar eru alveg einráðar ítalir unnu enn ein gullverðlaun- in á heimsmeistaramótinu á skíðum í Sestriere á Ítalíu í gær þegar Is- olde Kostner varð hlutskörpust í risasvigi kenna. Þýskar stúlkur komu í næstu tveimur sætum, Fyrr- um heimsmeistari, Katja Seizinger, vann silfrið og Hilde Gerg fékk bronsverðlaunin. Kostner náði mjög góðri seinni ferð og kom í mark 0,08 sekúndubrotum á undan Seizinger Þar með hafa ítalskar stúlkur unnið öfl þrenn gullverðlaunin sem í boði hafa verið á mótinu og Kostner lék sama leik og Deborah Comagnoni með því að verja titil sinn frá því á heimsmeistaramótinu í Sierre Nevada í fyrra. Hin 21 árs gamla Kostner á möguleika á að vinna önnur gullverðlaun en hún er á meðal keppenda i bruninu á laug- ardaginn. Wiberg hlekktist á Franska stúlkan Varole Montillet varð í fjórða sæti, Katharina Gutensohn frá Þýskalandi varð fimmta, Reneter Goetschl frá Aust- urriki hafnaði í sjötta sæti og sænskan stúlkan Pernilla Wiberg varð að gera sér sjöunda sætið að góðu en henni hlekktist á i lok síð- ari ferðarinnar. ídag verður keppt í stórsvigi karla og þar verða þeir Kristinn Bjömsson og Arnór Gunnarsson á meðal keppenda. -GH Glæsimark Daöa tryggði Fram stig - jafnaði beint úr aukakasti gegn Stjörnunni Daði Hafþórsson tryggði Fram jafntefli gegn Sljömunni, 24-24, í Garðabænum í gærkvöldi þegar hann skoraði glæsilegt mark beint úr aukakasti eftir að leiktímanum var lokið. Hann skaut úr erfiðri stöðu vinstra megin, beint yfír miðja vöm Stjömunnar og í homið Ijær. „Ég ætlaði mér að skora og hugs- aði bara um koma höndinni nógu hátt og úlnliðnum niður. Það var góð tilflnning að sjá boltann í mark- inu. Annars vorum við mistækir í leiknum og frekar trekktir eftir slakt gengi á útivöllum í vetur,“ sagði Daði við DV eftir leikinn. Leiksins verður fyrst og fremst minnst vegna marks Daða, sem auk þess gerði mörg lagleg mörk, en hann einkenndist af fjölda mistaka hjá báðum liðum. Slök dómgæsla setti líka mark sitt á leikinn og leik- menn létu hana fara einum of í taugamar á sér og voru famir að kenna dómurunum um öll sin mis- tök líka. Lokakaflinn var hins vegar æsispennandi, Einar Einarsson kom Stjörnunni yfir þegar 22 sek- úndur voru eftir, en það virðist vera komið upp í vana hjá Stjömunni að missa leikina úr höndum sér þegar mest á reynir. -VS Mikið einvígi hjá Pet- erson og Meyers - þegar Grindavík sigraöi á Króknum DV, Sauðárkróki: Grindvikingar gerðu góða ferð á Krókinn i gærkvöld, unnu öruggan sigur á Tindastóli i skemmtilegum, jöfnum og spennandi leik lengst af. Baráttan var mikil en ekkert ein- vígi eins grimmt og Bandaríkja- mannanna í liðunum. Herman Meyers hafði betur en Winston Pet- erson skoraði 39 stig fyrir Tindastól í sínum fyrsta leik með liðinu. Heimamenn komust 14 stigum yfir í fyrri hálfleik eftir slæman kafla Grindvíkinga og þrjú tækni- víti en þess má geta að dómgæslan var afar litrík á köflum. Gestirnir gerðu síðan út um leikinn með góð- um kafla á síðustu fimm mínútun- um en þá hafði Ómar Sigmarsson farið af velli með 5 villur hjá heima- mönnum. Meyers var allt í öllu hjá Grinda- vík, Marel var drjúgur og þeir Helgi Jónas og Páll áttu góða kafla. Peterson lofar mjög góðu fyrir Tindastól og er mjög kröftugur leik- maður. Allt liöið lék vel en eins og venjulega notaði Nagy þjálfari alltof fáa leikmenn, aðeins sex. -ÞÁ Isolde Kostner varð hlutskörpust í risasvigi kvenna á HM í gær. Hún getur bætt viö öörum gullverðlaunum í safniö á laugardag. Símamynd Reuter 0-1,1-3, 3-6, 8-6, 9-7, 9-9,11-10,11-12, (13-12), 13-13, 15-13, 17-14, 17-17, 18-19, 20-19, 21-22, 22-23, 24-23, 24-24. Mörk Stjömunnar: Valdimar Grímsson 8/2, Einar Einarsson 4, Hilmar Þórlindsson 4, Siguröur Við- arsson 2, Magnús A. Magnússon 2, Jón Þórðarson 1, Sæþór Ólafsson 1, Einar B. Ámason 1, Konráð Olavsson 1. Varin skot: Ingvar Ragnarsson 8/1, Axel Stefánsson 0. Mörk Fram: Daði Hafþórsson 7, Sigurpáll Aðalsteinsson 7/3, Njörður Árnason 4, Magnús Amgrímsson 3, Páll Beck 2, Oleg Titov 1. Varin skot: Reynir Reynisson 5, Þór Bjömsson 2. Brottvfsanir: Stjaman 6 min., Fram 10 min. Dómarar: Einar Sveinsson og Þor- lákur Kjartansson, slakir. Áhorfendur: Um 150. Maður leiksins: Daði Hafþórs- son, Fram. Tindast. Grindav. (49) 89 (45) 98 0-6, 11-12, 17-16, 25-24, 29-27, 44-29, 44-41, (49-45), 49-49, 57-56, 63-63, 70-78, 74-78, 77-91, 85-91, 89-98. Stig Tindstóls: Winston Peterson 39, Arnar Kárason 15, Cesaro Piccini 12, Ómar Sigmarsson 11, Skarphéð- inn Ingason 6, Láms Dagur Pálsson 6. Stig Grindavíkur: Herman Mey- ers 33, Helgi Jónas Guðfinnsson 12, Pétur Guðmundsson 10, Jón Kr. Gíslason 10, Bergur Hinriksson 8, PáU Vilberg Kristinsson 7, Unndór Sigurösson 3. Fráköst: Tindastóll 35, Grindavik 24. 3ja stiga körfur: Tindastóll 7, Grindavík 6. Vítanýting: Tindastóll 7/14, Grindavík 15\18. Dómarar: Kristinn Albertsson og Bergur Steingrímsson. Margir fúrðu- legir dómar. Áhorfendur: 490. Maður leiksins: Herman Mey- ers, Grindavík. NBA-deildin í körfuknattleik í nótt: Jordan var allt í öllu - skoraði 43 stig þegar Chicago lagði Charlotte í United Center NBA-deildin fór af stað á nýjan leik í nótt eftir stjömuhelgina í Cleveland. Það var fátt sem kom á óvart í leikjunum tólf sem fram fóru í nótt en Michael Jordan er engum líkur frekar en fyrri daginn. Úrslit leikja í NBA í nótt urðu þessi: Washington-New York...........92-97 Orlando-New Jersey...........98-104 Cleveland-Philadelphia.......105-94 Miami-Detroit................104-91 Chicago-Charlotte...........103-100 Milwaukee-Toronto............101-96 Dallas-San Antonio...........97-111 Houston-Vancouver ...........106-97 Portland-Phoenix........... 111-108 Seattle-Denver ..............108-91 LA Clippers-Boston .........116-112 Sacramento-Utah..............98-120 Það lék enginn betur en Michael Jordan þegar Chicago lenti í erfið- leikum gegn Charlotte í United Center að viðstöddum 24 þúsund áhorfendum. Leikurinn var svo til í jámum allan tímann og getur Chicago enn og aftur þakkað Jordan sigurinn. Hann var allt í öllu og skoraði 43 stig áður en yfir lauk. Maður stjörnuíeiksins um síðustu helgi, Glen Rice, skoraði 32 stig fyrir Charlotte. Orlando tapaði heima fyrir New Jersey. Gill var stigahæstur hjá New Jersey með 28 stig og Kittles skoraði 25 stig. Seikaly gerði 23 stig fyrir Orlando og Hardaway skoraði 16 stig. New York vann léttan sigur í Washington. Patrick Ewing gerði 18 stig og blokkaði fjögur skot. Rod Strickland skoraði 21 stig fyrir Was- hington sem átti aldrei möguleika í leiknum. Alonzo Mourning og Hardaway áttu frábæran leik fyrir Miami gegn Detroit. Mouming var með 29 stig og Hardaway 31 stig. Hill gerði 17 stig fyrir gestina. San Antonio vann kærkominn sigur í Daflas en allt hefur gengið á afturfótunum hjá liðinu sem komst í úrslitakeppnina i fyrra. Vemon Maxwell skoraði 34 stig fyrir San Antonio og fyrir Dallas skoraði Gattling 24 stig. Payton var yfirburðamaður hjá Seattle í auðveldum sigri á Denver. Payton skoraði alls 28 stig í leikn- um. Mifls og Hill gerðu sín 22 stig hvor fyrir Cleveland en Iverson skoraði 21 stig fyrir Philadelphia. -JKS Nýr þjálfarí hjá Liechtenstein Alfred Riedl frá Austurriki var í gær ráðinn þjálfari knatt- spyrnulandsliðs Liechtenstein, sem mætir íslandi tvívegis í und- ankeppni HM í ár. Hann tekur við af Þjóðverjanum Dietrich Weise. Aðstoðarþjálfari verður Ralf Loose, fyrrum leikmaður með Fortuna Dússeldorf. Óvíst er með beina sendingu „Við erum að velta því fyrir okkur þessa dagana hvort við sýnum leikinn í beinni útsend- ingu í ljósi síðustu atburða,“ sagði Ingólfur Hannesson, íþróttastjóri RÚV, í samtali við DV. Um er að ræða leik Liverpool og Brann í Evrópukeppninni í knattspymu en til stóð að tveir íslendingar yrðu þar í sviðsljós- inu, þeir Birkir Kristinsson og Ágúst Gylfason. Nú er óliklegt að Birkir leiki í marki Brann og í framhaldinu óvíst hvort RÚV ætlar að sýna leikinn beint. -SK Mjög markvisst vímuefnastarf innan 9 félaga íþróttafélag Reykjavíkur, ÍR, sem fagnar 90 ára afmæli sinu um þessar mundir, verður fyrsta íþróttafélagið sem nýtur sér- stakrar fræðslu hjá ÍBR þar sem markvisst vimuefnastarf verður haft að leiðarljósi. ÍBR samþykkti þá stefnu á síð- asta þingi sínu að hefja mark- visst vímuefnastarf innan félag- anna 9 sem standa að bandalag- inu. ÍR verður fyrsta félagið sem nýtur fræðslunnar enda við hæfi á afmælisári. Þjálfarar hjá ÍR verða á nám- skeiði um næstu helgi og í fram- haldinu verður öllum foreldrum boðið á fundi hjá forvamadeild SÁÁ. Unnið verður eftir mark- vissri stefnumörkun og stefht að samstarfi við sem flesta aðila innan félagsins. -SK Gott hjá Eistum Eistar og Skotar gerðu marka- laust jafntefli í undankeppni HM í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í Mónakó, í stað leiksins fræga í Taflinn í haust sem aldrei fór fram, og kom frammistaða Eistanna, und- ir stjóm Teits Þórðarsonar, mjög á óvart. Skotar halda efsta sæti 4. rið- ils og em með 8 stig eftir 4 leiki. Austurríki er næst með 7 stig eftir þrjá leiki og Svíar era í þriðja sæti með 6 stig eftir 4 leiki. Þá koma Eistar með 4 stig að loknum þremur leikjum. -SK Gunnar leigður til MW - leikur með félaginu í hollensku 1. deildinni til vorsins Gunnar Einarsson, knattspymu- maður úr Val, sem á dögunum samdi til 16 mánaða við hoflenska úrvalsdeildarliðiö Roda, hefur ver- ið leigður þaðan til 1. deildar liðs- ins MW Maastricht til vorsins. Gunnar fór til Hollands í síðustu viku og beint í æfingaleik með MVV gegn úrvalsdeildarliði Will- em H. Hann lék þar sem aftasti maður í þriggja manna vöm og stóð sig vel en MVV tapaði leikn- um, 1-3. „Þrátt fyrir að hafa komiö beint úr snjónum á íslandi í rigninguna í Maastricht sýndi Gunnar Einars- son mjög góðan leik í gærkvöldi. Reyndar skoraði Jack de Gier tví- vegis fyrir Willem en Einarsson hefur góða afsökun fyrir því að vera ekki í toppæfingu," sagði blað- ið Voetbal í Maastricht um frammi- stöðu Gunnars. „Undanfamar þrjár vikur hef ég ekkert getað æft heima á íslandi út af snjó. Ég er því ekki í mínu besta formi sem stendur,“ segir Gunnar í viðtali við blaðið. Góöur styrkur fyrir MVV Þar er jafnframt haft eftir Sef Vergoossen, yfirþjálfara MVV, að hann sé mjög spenntur fyrir íslend- ingnum. „Hann er mjög sterkur í stöðunni maður gegn manni og miðherji Willem fékk aldrei frið. De Gier er einn af bestu sóknar- mönnum í Hollandi og frammi- staða Gunnars gegn honum sýnir að hann veröur liði MW góður styrkur,“ segir Vergoossen. MW er í 5. sæti 1. deildar og á í harðri baráttu um úrvalsdeildar- sæti en segja má að 12 af 18 liðum deildarinnar eigi góða möguleika á að komast upp. Félagið hefur lengst af leikið í úrvalsdeildinni en féll þaðan vorið 1995. Beint í byrjunarliöiö Keppni í 1. deildinni hefst á laug- ardaginn eftir vetrarfríið og MVV leikur þá við Eindhoven sem er í 10. sæti en aðeins tveimur stigum á eftir MVV. Þegar er ljóst að Gunn- ar verður í byrjunarliðinu í þeim leik. Roda ætlar greinilega að koma Gunnari í gott leikform hjá MW en eflaust hefði hann þurft að verma varamannabekkinn hjá Roda til vorsins. Liðið er í hópi efstu liða úrvalsdeildarinnar og er ekki með varalið þannig að hætt er við að verkefnin hefðu verið fá fyr- ir Gunnar þar í bili. -VS Gunnar Einarsson byrjar aö spila meö MVV á laugardaginn. Enn óvissa með lið Englendinga - sem mætir ítölum Glenn Hoddle, landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu, er enn ekki viss um byrjunarlið sitt fyrir stór- leikinn gegn ítölum í undankeppni HM sem fram fer á Wembley í kvöld. Paul Gascoigne og Alan Shearer geta spilað en báðir voru tæpir vegna meiðsla en hinsvegar er enn óvissa með Tony Adams og Paul Ince. Byrjunarliðið verður ekki tfl- kynnt fyrr en skömmu fyrir leik. Líklegast er þó: Seaman - Campbell, Southgate, Adams, Pearce - Ince, á Wembley í kvöld Gascoigne, McManaman, Batty, Beckham - Shearer. Þó gæti Ferd- inand spilað frammi i stað einhvers miðjumannsins. ítalska liðið verður heldur ekki tilkynnt fyrr en á síðustu stundu en það verður líklega þannig skipað: Perazzi - Di Livio, Panucci, Fer- rera, Costacurta, Maldini - Dino Baggio, Albertini, Di Matteo - Casiraghi, Zola. Löngu er uppselt á leikinn, 80 þúsund manns troðfylla Wembley, og miðar gengu á 33 þúsund krónur á svörtum markaði í gærkvöld. -VS Heiðar stendur sig vel hjá Preston - skoraöi tvö gegn Everton Alan Shearer leikur aö nýju meö enska landsliöinu í kvöld og hefur tekiö viö fyrirliöa- stööunni á ný en hann missti af síöasta leik liösins vegna meiösla. ítalir óttast hann manna mest og Costacurta fær væntanlega þaö verkefni aö halda honum niöri. Heiðar Sigurjónsson, knatt- spyrnumaður úr 2. deildar liði Þróttar í Reykjavík, dvelur þessa dagana hjá enska 2. deildar liðinu Preston North End og hefur staðið sig mjög vel. Heiðar, sem er 19 ára, lék á laug- ardaginn með unglingaliði Preston gegn Everton og skoraði tvö mörk, annað þeirra úr vítaspymu. Hann fékk mjög góða dóma fyrir frammi- stöðu sína og á að leika með vara- liði félagsins nú í vikunni. Heiðar fór fyrst til Hibemian í Skotlandi og lék þar einn leik með varaliðinu. Síðan er fyrirhugað að hann fari til Partick Thistle og Raith Rovers í Skotlandi en það skýrist nánar eftir leik hans með Preston. -hiá/VS Ovænt í Belfast Norður-írar unnu óvæntan stórsigur á Belgum, 3-0, í vin- áttulandsleik í knattspyrnu í Belfast í gærkvöldi. Jimmy Quinn, Jim Magilton og Phfl Mulryne skoruðu mörkin. Mul- ryne, 19 ára piltur frá Manchest- er United, kom inn á sem vara- maður í sínum fyrsta landsleik, fiskaði fyrst víti og skoraði síðan laglegt skallamark. Wales og írland gerðu 0-0 jafn- tefli i Cardiff. Mark Crossley lék sinn fyrsta landsleik fyrir Wales og forðaði liðinu frá tapi með frábærri markvörslu. Sextándi sigurinn Víkingur vann auðveldan sig- ur á ÍH, 22-33, í 2. deildinni í handbolta i fyrrakvöld. Þetta var 16. sigur Víkinga í jafhmörgum leikjum og það er aðeins forms- atriði fyrir þá að tryggja sér 1. deildar sætið. Risasigur Keflavíkur Keflavík vann yfirburðasigur á Breiðabliki, 118-46, í 1. deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi. Þaö kemur ekki beint á óvart, Keflavík hefur unnið alla 13 leiki sína en Breiðablik tapað öllum 14. Fimm í kvöld Fimm leikir eru í 1. deild karla í handbolta í kvöld, FH- ÍBV, Selfoss-Haukar, ÍR- Grótta, Valur-KA og Afturelding-HK. IBV-íþróttafélag skal það heita DV, Eyjum: Hið nýja aðildarfélag ÍBV, sem fengið hefur nafhið ÍBV-íþróttafélag og varð til við samein- ingu Knattspymufélagsins Týs og íþróttafé- lagsins Þórs, var formlega stofnað á fram- haldsstofrifundi í síðustu viku. Nýja félagið hefUr knattspymu og handknattleik alfarið á sinni könnu og hefur allar fjái'aflanir Týs og Þórs eins og þjóðhátíð, Pæjumót og Shellmót. Miklar vonir eru bundnar við nýja félagið í Vestmannaeyjum og almenn sátt um fram- kvæmd málsins. Vestmannaeyjabær yfirtekur að mestu skuldir Týs og Þórs en fær í staðinn félagsheimili og velli og eru þau metin á 52 milljónir. Bærinn lætur svo ÍBV-iþróttafélag- inu til umsjónar íþróttamannvirkin og vellina. Búið er að ganga frá því formlega við ÍSÍ, KSÍ og HSÍ að ÍBV-íþróttafélag taki við af Þór og Tý í viðkomandi íþróttagreinum og leik- menn ÍBV í knattspyrnu og handknattleik, sem hingað til hafa verið skráðir í Þór og Tý, eru löglegir með nýja félaginu án allra mála- lenginga. Framkvæmdastjóri nýja félagsins er Guð- mimdur Þ. B. Ólafsson og formaður Þór Vil- hjálmsson. Framkvæmdastjóri knattspyrnu- deildar er Ingi Sigurðsson og framkvæmda- stjóri handknattleiksdeildar er Amar Péturs- son. -ÞoGu Störf á vegum Alþjóða ólympíunefndarinnar: Júlíus situr út þetta ár í einni fastanefndinni A aðalfundi ólympíuneöidar ís- lands í siðustu viku var Júlíus Haf- stein ekki kosinn til áframhaldandi formennsku í nefndinni. Júlíus mun hins vegar sitja í einni af fasta- nefndum Alþjóða ólympíunefndar- innar út þetta ár eins og hann hefur áður verið kjörinn til. Þetta kom fram í viðtali sem DV átti við hann í gær. -Verður þú áfram í þessum nefndum sem persónan Júlíus Hafstein? „Já, það er tilkomið vegna setu minnar í einni af fastanefnd ólymp- íunefndarinnar og það er forseti alþ- jóðu ólympíunefndarinnar sem skipar í þessar nefndir. Hvorki ís- land né önnur lönd eiga sæti í nefndunum. Þarna era valdir ein- stáklingar sem bæði starfa innan ólympíuhreyfinga og eins utan hennar. í þessu tilfelli er um það að ræðu að ég tengist bæði umhverfis- málum og íþróttamálum þar sem ég var formaður umhverfismálaráðs Reykjavíkur í átta ár,“ sagði Júlíus Hafstein í samtali við DV í gær. I nefndinni er að finna menn með hreinan umhverfismálabakgrann og íþróttamálabakgrunn en fáir hins vegar með hvortveggja.“ - Það skiptir þá engu að þú ert ekki lengur tengdur íslensku ólympíunefndinni? „Það skiptir ekki neinu máli enda nefndin skipuð til ákveðins langs tima. Ég held að hún sé skipuð út þetta ár og endumýjað um áramót- in. Hvort framhald verður á því hjá mér get ég ómögulegt sagt um enda ekki i mínum verkahring að kveða upp dóm um það. Ég fer á fundi þessara nefndar og þeir era alfarið greiddir af alþjóða ólympíunefnd- inni og því að kostnaðarlausu fyrir ólympiunefnd íslands," sagði Júlí- us. „I nefndinni eru 22 einstaklingar frá 17 þjóðum og eru henni ætluð ákveðin störf og skila jafnframt skýrslum og greinargerðum til framkvæmdastjórnar Alþjóða ólympíunefndarinnar. Nefndar- menn hafa í raun sjálfval hvemig þeir haga störfum sínum í nefnd- inni. Enda era í henni menn sem ekki eru i viðkomandi ólympíu- nefndum þjóða sinna. -Ætlar þú að sitja áfram í stjóm samtaka Smáþjóðaleik- anna? „Ég hef haft samráð við nánustu samstarfsmenn mína í stjóm Smá- þjóðaleikanna, varaformanninn frá Luxemborg, næsta formann, sem kemur væntalega frá Liechtenstein, og fulltrúa Alþjóða ólympíunefndar- innar svo og ritara nefndarinnar sem kemur frá Möltu. Þessir aðilar hafa óskað eftir að ég taki ekki þá ákvörðun að segja af mér nema í samráði við þá. Ég hef orðið við þeirri ósk vegna þess að þetta eru mínir nánustu samstarfsmenn. Það eru fordæmi fyrir því í þessari stjóm að þar hafa setið menn sem ekki hafa verið fulltrúar í viðkom- andi ólympíunefnd. Ég get nefnt sem dæmi að ritari nefndarinnar frá Möltu var kosinn í stjómina án þess að vera fulltrúi Möltu. Ég vil líka að það komi fram að það er mér ekki fast í hendi að sitja þama, svo langt sem það nær,“ sagði Júlíus Hafstein í gær. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.