Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1997, Blaðsíða 28
60
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997
Verkamenn
gerðir ringlaðir
—>■ „Bolabrögðin í þessu máli eru
til skammar fyrir verkalýðs-
hreyfinguna. Ég ætla ekki að
segja að það gildi um mennina
sem voru að greiða atkvæði því
að þeir voru gerðir ringlaðir."
Eiríkur Stefánsson, verkalýðs-
leiðtogi á Fáskrúðsfirði, í Al-
þýðblaðinu.
Áttar sig ekki
á kröíunum
„Ég þarf að skoða þessar kröf-
ur betur þvi ég átta mig ekki al-
veg á þeim.“
'> Halldór Björnsson, form. Dags-
brúnar, um kröfur VR, í DV.
Sorgarsaga R-listans
„Það verður leiðinlegasti kafl-
inn í sorgarsögu R-listans ef
Geldinganesið verður lagt undir
iðnaðar- og athafnastarfsemi."
Gunnar Jóhann Birgisson borg-
arfulltrúi, í Morgunblaðinu.
Ummæli
Veit bara ekki neitt
„Ég veit ekki einu sinni hvar
ritstjórn þessa blessaða blaðs er
niðurkomin. Það er verkefni
# morgundagsins að finna út úr
þvi hvar kontórinn er.“
Össur Skarphéðinsson, ritstjóri
Alþýðublaðsins, í Degi-Tímanum.
Skrýtinn mismunur
„Meðaltímatekjur karlmanns
með stúdentspðróf eru t.d. 738
kr., en fari hann í 3ja ára há-
skólanám og ljúki BA-prófi þá
lækka þær niður í 732 kr.
Tryggvi Þór Herbertsson hag-
fræðingur, í Degi-Tímanum.
Leikmenn í íshokkíi eru vel varð-
ir enda skelia þeir oft saman á
miklum hraöa.
Íshokkí
Til eru myndir sem benda til
þess að leikur sem minnir á ís-
hokkí hafi verið leikinn í
Hollandi snemma á 16. öld en ís-
hokkí eins og við þekkjum það í
dag var fyrst leikið í Kanada 25.
desember 1855 í bænum
Kingston í Ontario en Halifax
hefur einnig gert tilkall til þessa
heiðurs. Alþjóðaíshokkísam-
bandiö var stofnað árið 1908.
Heimsmeistara- og
ólympíukeppni
Heimsmeistarakeppni áhuga-
manna í íshokkíi var fyrst hald-
in árið 1920 í tengslum við
Ólympíuleikana en allt til ársins
1968 töldust sigurvegarar á
Ólympíuleikum einnig heims-
meistarar. Áriö 1977 var at-
vinnumönnum fyrst gefinn kost-
ur á að taka þátt í heimsmeist-
arakeppninni.
Blessuð veröldin
Stanley-bikarinn
Stanley lávarður, landsstjóri í
Kanada, gaf þennan fræga bikar
árið 1880. Það var svo árið 1913
sem fyrst var farið aö keppa um
Stanley-bikarinn meðal atvinnu-
liða í meistaradeild Norður-Am-
eríku. Montreal Canadiens hafa
oftast unnið bikarinn, eða 23
sinnum, fyrst 1916 og síðast 1986.
Vaxandi 990 mb lægð um 1.000 km
suðsuövestur af Reykjanesi hreyfist
norðnorðaustur en yfir suðvestan-
verðu Grænlandshafi er nærri kyrr-
stæð og minnkandi 970 mb lægð.
Veðrið í dag
í dag verður sunnan- og suðaust-
angola eða -kaldi. Þurrt og bjart veð-
ur á Norðurlandi en él í öðrum
landshlutum. Austangola eða -kaldi
og víða léttskýjað síðdegis en geng-
ur í allhvassa austanátt með snjó-
komu og skafrenningi sunnanlands
í kvöld og nótt. Vægt frost.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
sunnangola eða -kaldi og él en aust-
lægari og léttir til síðdegis. Vaxandi
austanátt í kvöld, allhvasst og snjó-
koma eða él í nótt. Vægt frost.
Sólarlag f Reykjavík: 17.49
Sólarupprás á morgxrn: 09.29
Síðdegisflóð í Reykjavík: 22.18
Árdegisflóð á morgun: 10.44
Veöriö kl. 6 í morgun:
Akureyri
Akurnes
Bergstaöir
Bolungarvík
Egilsstaðir
Keflavíkurflugv.
Kirkjubkl.
Raufarhöfn
Reykjavík
Stórhöföi
Helsinki
Kaupmannah.
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Amsterdam
Barcelona
Chicago
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
Lúxemborg
Malaga
Mallorca
Miami
Paris
Róm
New York
Orlando
Nuuk
Vín
Winnipeg
léttskýjaö -3
snjóél -1
skýjaö -1
léttskýjaö -3
skýjaö -2
skýjaö -1
skýjaö -1
úrkoma í grennd -4
snjóél á sió.kls. -0
snjókoma -0
þokumóöa 3
léttskýjaö -0
léttskýjaö 1
léttskýjaö 3
skýjaö 9
þokumóða 10
snjókoma -4
rigning 9
rigning og súld 6
rigning 4
rign. á síö.kls. 11
rigning 9
þoka 9
þoka 9
skýjaó 11
skýjaö 12
léttskýjaö 1
heiðskírt 9
snjókoma -12
rign. á síö.kls. 4
heiöskírt -27
Sigurður Sæmundsson, landsliðseinvaldur í hestaíþróttum:
Verðum að halda
forystunni í ræktun
„Starfið felur í sér að velja þá sjö
hesta sem sendir verða á heims-
meistaramótið, sem haldið verður í
Noregi í ágúst, en landsliðið verður
valið eftir að úrtökumót hefur ver-
ið haldið hér á landi. Úr þeirri
keppni koma fimm hestar, síðan
velur landsliðseinvaldur tvo hesta í
viðbót. ! vali á þessum tveimur
hestum kemur margt til greina. Það
er hægt að velja þá erlendis frá eða
velja hest sem hefur sérstööu en
hefur ekki getað tekið þátt í úrtöku-
mótinu af einhverjum orsökum og
fleira þarf að taka með í reikning-
inn við valið. Það kemur einnig í
minn hlut að velja varahesta, sem
Maður dagsins
fara einnig utan, og svo er það i
mínu starfi að fylgja liðinu eftir og
tefla því fram,“ segir Sigurður Sæ-
mundsson, bóndi í Holtsmúla, sem
hefúr verið skipaður landsliðsein-
valdur í hestaiþróttum.
Siguröur hefur verið liðsstjóri
áður en breytir það einhverju að
vera orðinn landsliðseinvaldur?
„Ekki svo miklu. Völdin hafa fylgt
Sigurður Sæmundsson.
liðsstjóranum en völdin eru meira
afgerandi nú.“
Landsliðseinvaldi er mikill vandi
á höndum því ekki eru endilega all-
ir sammála skoðunum hans og vali:
„Það er í þessari íþrótt eins og öðr-
um, þaö eru skiptar skoðanir um
það hverjir eigi að fara og hverjir
ekki. Svo fer það eftir árangri
hvemig störf hans eru metin.“
Sigurður var spurður hvernig
við stæðum okkur gagnvart erlend-
um þjóðum: „Það má segja að yfir-
höfúð stöndum við okkur vel en
þessar stærri þjóðir sækja gífurlega
á okkur, enda er fjármagnið mun
meira þar heldur en hér, og ef tek-
ið er dæmi um Þýskaland þá sigla
Þjóðverjar í nánustu framtíð í að
vera með sama hestafjölda og við.
Við höfum haldið forystunni hing-
að til í ræktun og ég tel að við verð-
um aö gera það, það er eini mögu-
leikinn jfyrir okkur til að lifa af
samkeppnina."
Sigurður býr á Holtsmúla, ná-
lægt Hellu, og þar heldur hann stórt
og myndarlegt hrossabú: „Ég er
með töluvert á annað hundrað
hrossa og er með þann búskap ein-
an. Við erum að vísu með sauðfé
fyrir heimilið en við höfúm aldrei
búið með annað en hross. Eigin-
kona Stefáns er sænsk og heitir Lís-
bet Sæmundsson og er hún jafn-
mikið í hestamennskunni og Stef-
án. Þau eiga þijár dætur, ein er enn
i heimahúsum, enda aöeins níu ára
gömul, ein býr í Svíþjóð og sú
þriðja er við nám í tamningum í
Þýskalandi. -HK
Myndgátan
Úrsláttarkeppni
„ EG ER
pdEÐLÍNIUfK I
RorfiRy - KÍvsAMÍS
FRÍWÚRuM ~ ASt'
BSRB -BHMR-LÍONSy
Qs»
cP
KP%t
aP s
J?
•i.iU- - "..."
V\W/
\W/ g&P
173+
-EybÓR-
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnoröi.
____________DV
Handbolti
kvenna
og karla
Handboltinn verður í sviös-
ljósinu í kvöld, en þá fara fram
margir leikir í 1. deild karla og 1.
deild kvenna. Hjá körlunum eru
sex leikir á dagskrá og má búast
við spennandi viðureign í þeim
öllum. í Hafnarfirði leika í
íþróttir
Kaplakrikanum FH og ÍBV, á
Selfossi leika heimamenn við
Hauka, í Seljaskóla leika ÍR og
Grótta, í Valsheimilinu Valur og
KA og í Mosfellsbæ leika Aftur-
elding og HK. Allir leikirnir hefj-
ast kl. 20.00. Þrír leikir eru í 1.
deild kvenna. Stjarnan leikur
gegn Val í Garðabæ og Víkingur
gegn Fram í Víkinni. Þessir leik-
ir hefjast kl. 20.00, en leikur FH
og Hauka hefst kl. 18.15.
Frátekið borð
Félagar úr Höfundasmiðju
Leikfélags Reykjavikur hafa lagt
land undir fót og sýndu ör-
lagafléttuna Frátekið borð á Hót-
el Örk síðastliðið sunnudags-
kvöld og verður leikurinn endur-
tekinn i kvöld kl. 21.00. Frátekið
borð er einþáttungur með illfyr-
irsjáanlegu plotti. Þar kynmunst
við tveimur konum sem hefur
Leikhús
verið stefnt saman á veitinga-
stað. Þær þekkjast ekki en reyna
að finna út hvers vegna í ósköp-
unum þær eru þama staddar.
Hver bauð þeim? Hvað eiga þær
sameiginlegt? Leikarar eru Saga
Jónsdóttir, Soffla Jakobsdóttir
og Bryndís Petra Bragadóttir.
Leikstjóri er Ásdís Skúladóttir.
Bridge
Spilin í Reykjavíkurmótinu í
sveitakeppni eru forgefln og sömu
spil eru því spiluð í öllum leikjum
riðlakeppninnar í hverri umferð.
Eitt af þeim spilum sem vakið hefur
miklar umræður er spil 7 í sjöundu
umferð riðlakeppninnar. Stórar töl-
ur sáust á mörgum borðum þegar
NS gátu ekki hamið sig í sögnum og
fengu harða refsingu. Sagnir gengu
þannig á mörgum borðum, suður
gjafari og allir á hættu:
* Á1065 V KG763 ♦ -- * DG83
4 — * 1054 * KD1087 * K9754 N V A S
♦ K987 -- ♦ ÁG653 ♦ Á1062
* DG432
ÁD982
* 942
* —
Suður Vestur
1 ♦ pass
2 # pass
3 Grönd Dobl
Norður Austur
1 * 1 ♦
3 * pass
p/h
Þrátt fyrir lélega samlegu litanna
á höndum AV voru margir sem létu
sér ekki segjast heldur létu sagnir
vaða alla leið upp í dauðadæmd
þrjú grönd. Vissulega er það vondur
samningur en lega spilanna hjá and-
stæðingimum getur heldur ekki ver-
ið öllu verri. Vestur á auðvelt
refsidobl sem biður um tigulútspil
og sagnhafí á ekki sjö dagana sæla.
Fjölmargir sagnhafar spiluðu þrjú
grönd dobluð og skráðu stuttu síðar
ýmist 1.400 eða jafnvel 1.700 í dálk
andstæðinganna. Það hlýtur að telj-
ast furðulegt að enda í þessum
samningi dobluðum. NS hefðu til
dæmis í þessari sagnseríu átt að
flýja í fjögurra laufa samning. Hann
er að sjálfsögðu einnig doblaður en
er sennilega ekki nema einn niður.
Fjögurra spaða samningur er einnig
furðu góður þrátt fyrir 5-0 leguna.
Sagnhafl á að geta skrapað saman 9
slögum í þeim samningi.
ísak Öm Sigurðsson