Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 36 ferðir Leigir Islendingum bíla og sumarhús í Danmörku: Aðstoðar fólk sem býr til sínar eigin ferðir - orlofsíbúðir og bændagisting einnig í boði Paö væri ekki amalegt aö fá afnot af einum svona í sumarfríinu. „Það varð hálfgerð sprenging í fyrra því þá leigðum við fjórfalt fleiri bíla en árið þar á undan. Rekstrarfyrirkomulagið gerir það að verkum að bílaleigan getur leigt bílana mun ódýrara en samkeppnis- aðilarnir," sagði Fylkir Ágústsson á ísafiröi, umboðsmaður International Car Rental ApS (ICR) sem er í Esbjerg í Danmörku. ICR kaupir bílana toll- og skatt- frjálsa og leigjir þá eingöngu útlend- ingum, þ.e. ekki Dönum, í minnst viku í einu. Fyrirtækið kaupir nýja bíla árlega svo viðskiptavinirnir eru alltaf á góðum bílum. „Ef miðað er við að það séu 3-4 í bíl voru um 1.500 íslendingar akandi á vegum Danmerkur og Evrópu í fyrra á bíl- um frá ICR, enda er það allt að 14 þúsund krónum ódýrara að skipta við ICR en helstu samkeppnisaðil- ana ef bíllinn er t.d. leigður í 2 vik- ur,“ sagöi Fylkir. Hann sagði mest að gera í júní, júlí og ágúst. Ekið heim að dyrum „Sé bíllinn tekinn á leigu í 2 vik- ur eða lengur er honum ekið endur- gjaldslaust til viðskiptavinanna. Annars er hann afgreiddur í t.d. Billund, Vejle, Odense og innan þeirra svæða endurgjaldslaust. Séu bílamir teknir á Jótlandi og á Fjóni era þeir afgreiddir heim að dyrum, Á Sjálandi er afgreiðsla við Kastr- up- flugvöll og í einstaka tilfellum er hægt að afgreiða bíla í Ham- borg,“ sagði Fylkir. í stórum drátt- um er nánast hægt að fljúga hvert sem er innan Danmerkur og fá þar leigðan bíl á vegum ICR. Fylkir seg- ir að nokkuð hafi borið á því að fólk hafi beðið um bíl í Noregi þar sem mjög dýrt sé að leigja bíla og einnig er algengt að fólk leigi bíl í Dan- mörku og aki til annarra landa. Sumarhús í Danmörku „í hittifyrra fann ég fyrir miklum þrýstingi frá viðskiptavinum min- um að útvega þeim sumarhús í Dan- mörku og þess vegna kom DanCent- er til sögunnar. DanCenter er sum- arhúsaleiga sem leigir út sumarbú- staði í eigu Dananna. Ég er með stóran og ítarlegan litprentaðan bækling yfir 8.500 sumarhús sem hægt er að leigja en þau kosta á bil- inu 20-150 þúsund krónur á viku. Þau eru leigð frá laugardegi til laug- ardags og á sl. ári voru 400-500 Is- lendingar í slíkum sumarhúsum," sagði Fylkir. Ef fólk hefur t.d. áhuga á að vera á einhverjum ákveðnum stað í Dan- mörku þarf það bara að gefa upp tímasetningar og hversu margir ferðast saman og þá getur Fylkir sent þeim lista yfir þau sumarhús sem eru laus. Aðspurður sagði hann engan einn stað vinsælli en annan. „Þetta er svo misjafnt eftir þörfum fólks. Sumir taka t.d. tvö sumarhús á leigu á sitt hvorum staðnum og ferðast á milli. í sumum tilvikum er ódýrara að vera t.d. bara í hálfan mánuð til 3 vikur í einu í sama hús- inu.“ Orlofsíbúðir og bændagisting I sumum tilvikum hentar fólki hetur að vera í orlofsíbúðahverfum, t.d. ef hjón eru með 2-3 börn. Þá eru þau e.t.v. nálægt sundlaug, leikvelli eða strönd en búa í staðinn nær ná- grönnunum í þrengra sambýli. Hægt er að leigja slíkar íbúðir í viku, nokkrar vikur eða bara í nokkra daga með aðstoð Fylkis, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. „Ef fólk vill t.d. fara og skoða Legoland og gistir ekki mjög nálægt er auðvelt og mun ódýrara að út- vega því bændagistingu í 1-2 nætur, ýmist fyrir eða eftir dvölina í sum- arhúsinu eða orlofsíbúðinni. Bændagistingin er mun persónu- legri og allt að helmingi ódýrari en hótelgisting og hægt er að velja um mismunandi form hennar, þ.e. hvort fólk býr inni í bænum, í sum- arhúsi bóndans eða litlu íbúðinni sem hann hefur útbúið,“ sagði Fylk- ir. Danmörk æ vinsælli Fylkir segir Danmörk vera vin- sælt ferðamannaland og að það verði vinsælla með hverju árinu. „Það tengjast svo margir íslending- ar Danmörku, annað hvort í gegn- um ættingja eða eiga þar vini frá því þeir voru í námi eða öðru. Fólk er því í auknum mæli farið að vilja skipuleggja sínar ferðir sjálft en þarf þá e.t.v. á upplýsingum og að- stoð að halda. Pakkaferðir henta því alls ekki öllum og kannski síst þeim sem eru V£mir að ferðast," sagði Fylkir. Þeir sem vilja fá nánari upp- lýsingar hjá Fylki eða fá sendan bækling geta hringt í síma 456-3745. Samvinnuferðir-Landsýn til Portúgals: af sólarstöðum Portúgala á suður- ströndinni. Aðstaðan til hvers kyns skemmt- ana og dægradvalar er fjölbreytt í Albufeira og nágrenni. Fjölmargir golfvellir eru í næsta nágrenni, skemmtilegir smábæir á hverju strái og tilvalið að leigja sér bíla- leigubíl og njóta rómaðrar gestrisni þorpsbúa. Stutt er i stórskemmtileg- an vatnsleikjagarð, Atlantic Park sem gefur skemmtigörðum í Flórída lítið eftir. „Laugavegurinn" i Albufeira er rétt við Praia D’Oura-ströndina. Þar er mikið af verslunum, katFihúsum, krám og veitingastöðum og líf og fiör frá morgni til kvölds. Úwal hótela Hótel Samvinnuferða- Lcmdsýnar eru fjögur í Albufeira. Alagoamar er nýtt þriggja stjörnu íbúðahótel, um 2 mínútna gang frá verslunarmið- stöð. íbúðirnar eru rúmgóðar og loftkældar. Bellavista er gott þriggja stjömu íbúðahótel í rólegu um- hverfi, í um 15 mínútna göngufæri frá stórri verslunarmiðstöð. Stúdíó- íbúðimar eru rúmgóðar með 1-2 svefnherbergjum, stofu, eldhúskrók, baði, síma og útvarpi. Þær eru þrifnar 6 sinnum í viku. Trópico er mjög gott þriggja stjörnu íbúðahótel á Praia D’Oura svæðinu. Þar eru fallegar íbúðir með einu svefnherbergi, stofu, eld- húsi og baði. Gervihnattarsjónvarp Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir- Landsýn býður farþegum sínum í fyrsta skipti frábæra gististaði í Portúgcd. Gistingin er í Algarve-hér- aði á suðurströnd Portúgals. Algar- ve er syðsta og sólríkasta hérað landsins. Falleg strandlengjan er mjög fjölbreytt og ein hin sérstæð- asta í heimi. Hótel Samvinnuferða- Landsýnar eru í bænum Albufeira, en það er einstaklega fallegur smá- bær og tvímælalaust sá vinsælasti Falleg strandlengjan á Algarve er mjög fjölbreytt og ein hin sérstæðasta í heimi. er í íbúðunum ásamt síma og öryggishólfi. Ourapraia er glæsilegt fjögurra stjörnu íbúðahótel, staðsett miðsvæðis á Praia D’Oura. íbúðir eru fallegar og vel búnar, loftkældar stúdióí- búðir og íbúðir með svefn- herbergi, stofu, eldhúskrók og baði. Þær eru allar með svölum eða verönd. Skoðunarferðir Bærinn Albufeira á suðurströnd Portúgals er einstaklega fallegur og tvímælalaust sá vin- sælasti af sólarstöðum Portúgala á suður- ströndinni. Samvinnuferðir ætla að bjóða upp á fjölbreytt úrval skoðunarferða frá Al- bufeira. Ein slík er tveggja daga ferð til höfuðborgar- innar Lissabon þar sem farþegar njóta þess besta sem borgin hefur upp á að bjóða. Borgin er glæsileg á að líta og ber þess glöggt merki að fyrir þremur öld- um var þar mesta ríki- dæmi veraldar. Heimsókn í arabahverfið þykir sérstak- lega áhugaverð, enda réðu Márar lengi rikjum í Port- úgal. ByggingarstiUinn í Lissabon hefur greinilega orðið fyrir áhrifum frá þeim. Ein skoðunarferðin er til Granada og Gíbraltar. í Granada er hin eina og sanna arabahöll skoðuð og konungshöll Máranna. Gíbraltar- ströndin er einnig skemmtileg með sjóbarna kletta. Þar verða meðal annars heimsóttir apar sem lifa villtir á þessum slóðum og einnig hellirinn frægi, St. Michael. Af öðrum! skoðunarferðum S/L má nefna kvöldferð í gamlan bónda- bæ, jeppasafarí, ferð til bæjanna Portimáo, Otháo og Faro og einnig skipulögð ferð í Atlantic Park-vatn- sleikjagarðinn. -ÍS Sérstæður sólarstaður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.