Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1997, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997
11
Fréttir
Hjón í Sandgerði eignuðust 3 börn á 10 mánuðum:
Meðgangan erfiðust
með tvíburana í fanginu
DV, Suðurnesjum:
„Erfiðust var meðgangan með
yngsta drenginn og að vera með tvö
börn á handleggnum. Tvíburamir
voru ekki nema 10 mánaða þegar
hann fæddist en það kemur mest á
óvart hvað drengirnir eru gjörólik-
ir, bæði í útliti og í sér,“ sagði Sal-
ome Guðmundsdóttir. Hún og eigin-
maður hennar, Gissur Þór Grétars-
son, eignuðust þrjá drengi á sama
árinu 1986. Fjölskyldan býr í Sand-
gerði.
„Þetta gerist þegar eiginkonan
tekur svona vel á móti mér þegar ég
kem af sjónurn," sagði Gissur Þór og
hló.
Tvíburarnir heita Albert og Veig-
ar og urðu 11 ára 12. janúar en Rún-
ar, sá yngsti, verður 11 ára 23. nóv-
ember. Systir þeirra, Elínbjörg,
verður 14 ára í júlí. Salome og Giss-
ur Þór eignuðust því 4 börn á rúm-
um 3 árum.
„Við komum fram við drengina
eins og þeir séu þríburar. Frá því
þeir byrjuðu í skóla höfum við
reynt að passa að einn sé ekki að
læra íyrir alla. Þeir læra ekki sam-
an en það koma fyrir mjög skondin
atvik hjá þeim. Stundum kemur fyr-
ir að þeir hafa ekkert að gera og
enga aðra að leika sér við og þá er
eins og þeir séu aleinir en samt þrir
saman,“ sögðu hjónin. Þau eru mjög
stolt af bömum sínum en með fjölg-
uninni breyttust ýmis framtíðará-
form þeirra.
Salome, sem er ættuð frá ísafirði,
vann í Landsbankanum en hætti og
varð heimavinnandi húsmóðír. Hún
vann heima við bókhald og launaút-
reikninga en starfar nú hjá Botn-
dýrarannsóknarstöðinni í Sand-
gerði. Gissur Þór hefur verið á sjó
frá 18 ára aldri og er nú vélstjóri á
Njáli. Þegar strákamir fæddust var
hann á línubát og því lítið heima.
Hann segir að mesti þunginn hafl
lent á eiginkonunni sem stóð sig
eins og hetja ásamt Elínbjörgu. Þeg-
ar Gissur Þór kom í land reyndi
hann að sinna Elínbjörgu svo að
hún fengi einnig athygli.
Þau voru að byggja glæsilegt ein-
býlishús og þurftu að fara hægar í
þær framkvæmdir en ella en fjöl-
skyldan býr í húsinu nú. Á meðan
bömin vora lítil fengu þau góðan
stuðning frá fjölskyldum sínum og
vinafólki sem veitti þeim ómetan-
lega hjálp. Þau þurftu á stærri bíl að
halda og eru nú á sex manna bíl.
-ÆMK
Alma Diego, formaöur Hringsins, meö blóm sem bárust í tilefni 90 ára af-
mælisins. DV-mynd Birgitta
Fjölskyldan. Rúnar, sá yngsti, milli tvíburanna Alberts og Veigars, Salome, Elínbjörg og Gissur Þór. Dv-mynd æmk
Kvenfélagiö Hringurinn 90 ára:
Fjölskyldur langveikra
barna styrktar
DV, Stykkishólrui:
Kvenfélagið Hringurinn í Stykk-
ishólmi er 90 ára um þessar mund-
ir. Félagið var stofnað til styrktar
berklasjúkum og var fyrsti formað-
ur þess Amdís Jónsdóttir.
Síðan hafa kvenfélagskonur lagt
mörgu góðu málefni lið og í tilefni
afmælisins nú stofnuðu þær sér-
stakan sjóð, Bamasjóðinn, til
styrktar fjölskyldum langveikra
bama.
Tvær konur, sem unnið hafa ötult
starf innan félgsins, vora heiðraðar.
Maggý Lárentsínusdóttir var gerð
að heiðursfélaga en hún hefur starf-
að í félaginu í 55 ár og Hólmffíði
Hildimundardóttur heiðursfélaga
var einnig veitt sérstök viðurkenn-
ing. Hún hefur starfað í kvenfélag-
inu i 70 ár og er enn við störf.
Alma Diego, núverandi formaður
félagsins, segir verkefni síðasta árs
hafa verið af ýmsum toga. Félagið
keypti blóðrannsóknartæki fyrir
Sjúkrahúsið i Stykkishólmi og út-
búnað til sjúkraflutninga fyrir
Björgunarsveitina Berserki. Einnig
styrkir félagið kirkjuskólastarf í
Hóiminum og hefur alla tíð séð um
kaup á fermingarkyrtlum. Kvenfé-
lagskonur hafa árlega fært íbúum
Dvalarheimilis aldraðra og sjúk-
lingum á St. Franciskusspítalanum
jólagjafir og er þá lítið eitt talið af
þeirra góða starfi. -BB
jpiullt af Úrvalsefni:
Skynfærin á ferð og flugi
Jóhanna Jóhannsdóttir spjallar létt um utanferðir
íslendinga og gefúr góð ráð.
Endalaust flug
Flugvélar með tveggja hestafla hreyfla og sólarrafhlöður
fara á loft innan skamms.
Geimverubær, Bandaríkjunum
Við íslendingar eigum okkar Snæfellsjökul og umhverfi
hans. En Bandaríkjamenn hafa komið upp geimverubæ
þar sem þær sýna sig tíðast.
Góðu veirumar
Sumar veirur lifa á því að sálga bak-
teríum sem valda veikindum í fólki.
Hvernig er
orðaforðinn?
Prófaðu bara sjálf/ur orðaforða
þinn og íslenskukunnáttu