Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1997, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1997, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997 37 Landsleikur í handbolta í kvöld fer fram síðari lands- leikur íslendinga við Egypta og hefst hann kl. 20.15 í Smáran- um. Um er að ræða vináttuleik og er hann liður í undirbúningi íslands fyrir heimsmeistara- keppnina i Japan. í kvöld verð- ur einnig leikið i Úrvalsdeild- íþróttir inni í körfubolta og eru á dag- skrá fimm leikir. Á Akranesi leika ÍA og Breiðablik, í Borgar- nesi Skallagrímur og Þór, í Grindavík leika heimamenn við Njarðvikinga, á Sauðárkróki, Tindastóll og Haukar og í Reykjavík ÍR og KR. Diskótekið Rocky á Kaffi Reykjavík Þeir sem eru að hugsa um að taka danssporin í kvöld ættu að bregða sér á Kaffi Reykjavík, en þar verður boð- ið upp á dansleik Grétar Laufdal frá kl. 10-01. Það er ásamt tækjum diskótekið Rocky sínum. sem framleiðir tón- listina, en við stjómvölinn er Grét- ar Laufdal, en hann hefur rekið diskótekið frá þvi í haust. Ferðakvöld Grikk- landsvina Grikklandsvinafélagið Hellas efnir til kynningarfundar í Nor- ræna húsinu í kvöld kl. 20.30. Kynnt verður Þessalóníka, menningarborg Evrópu í ár, og fyrirhuguð Grikklandsferð. Þor- steinn Þorsteinsson segir frá Þessalóníku og Sigurður A. Magnússon og Þorsteinn Magn- ússon segja frá fyrirhugaðri Grikklandsferð. Samkomur Q4U á Gauknum Pönksveitin Q4U mun leika fyrir gesti á Gauki á Stöng í kvöld. Er sköpunargáfan vænlegasti virkjunar- kosturinn? er yfírskrift nýsköpunar- þings sem haldið veröur á morg- un í Loftkastalanum kl. 13-17. Á þinginu verður meðal annars af- hending nýsköpunarverðlauna Útflutningsráðs og Rannsóknar- ráðs 1997. Heimilið, staður vaxt- ar og blessunar í kvöld kl. 20.30 hefjast á ný fræðslufundir á vegum Reykja- víkurprófastsdæmis eystra. Verða fundimir i Breiðholts- kirkju í Mjódd. í kvöld flytur dr. Arnfríður Guðmundsdóttir fýr- irlestur sem hún nefnir: Heimil- ið, staður vaxtar og blessunar. Rithöfundar og bæjar- stjóri lesa í Gerðar- safni í dag kl. 17 fara þrir gestir með verk sín á upplestri Ritlist- arhóps Kópavogs í Gerðarsafni. Þetta em rithöfundarnir Kristín Jökulsdóttir, Jónas Þorbjarnar- son og Sigurður Geirdal, bæjar- stjóri í Kópavogi. Félagsfundur Dags- brúnar verður haldinn í dag kl. 13 í Bíóborginni við Snorrbraut. Loftkastalinn: Afrískir dansarar og eldgleypir Dulúðugt andrúmsloft mun myndast í Loftkastalanum í kvöld þegar vestur-afríski danshópurinn Allatantou stigur þar á svið. Með- limir hópsins eru frá Gíneu, Gamb- íu og Martiník. Forsprakki hópsins er Abdoulaye Camara frá Gíneu. Hann hefur haldið sýningar og nám- skeið víða um heim og er af þekktri dansfjölskyldu í Gíneu. Abdoulaye hefur meðal annars staðið fyrir al- þjóðlegum námskeiðum í heima- landi sínu í trumbuslætti og Afríku- dönsum. Það mun þvi ríkja sannkölluð frumskógarstemning þegar Abdo- ulaye og félagar hans dansa gíneska dansa sem þróast út í að dansarinn gleypir eld, ásamt því að setja log- andi bómull í munn sér og draga eldinn milli fóta sér og höndla eld- inn í lófum sínum. Þess má geta að Allatantou-hópurinn kennir nú í Listdansskóla Islands og Kramhús- inu. Allatantou-hópurinn sýnir afrískan dans í Loftkastalanum í kvöld. Ófært um Fróðárheiði Á Vesturlandi er þungfært og á Snæfellsnesi er ófært um Fróðár- heiði og þungfært um Kerlingar- skarð og er þar skafrenningur. Á sunnanverðum Vestijörðum er ver- Færð á vegum iö að moka Mikladal og Hálfdán, en ekki var vitað í morgun um færð á Kleifaheiði. Á Austfjöröum er verið að moka Fjarðarheiði. Að öðru leyti er færð nokkuð góð, en víða er veru- leg hálka. í kvöld verður á Kafíi Puccini, Vitastíg lOa, kynnt nýtt kaffi frá Bandaríkjunum sem heitir Jazziz. í tengslum við kynningu þessarar nýju kaffitegundar, sem er sú 31. sem Puccini býður upp á, verður haldið djasskvöld á Puccini og er það hið vel þekkta Tríó Bjöms Thoroddsens sem leikur fyrir gesti staðarins. Tríóið er skipað Birni Thoroddsen sem leikur á gítar, Ásgeiri Óskars- syni, trommur, og Gunnari Hrafnssyni, bassa. Tríó Bjöms Thoroddsens mun leika frá kl. 21-23. Skemmtanir Djasskvöld hjá Puccini Blús á Sir Oliver Að venju er tónlistarkvöld á Sir Oliver á fimmtudagskvöldum og í kvöld er það blúsmeist- arinn sjálfur, Halldór Bragason, sem mætir með hljómsveit sína, Vini Dóra, og leikur fýrir gesti staðarins. Vinir Dóra hafa haldið upp merki blús- ins hér á landi um árabil og gefið út plötur sem hafa fengið góða dóma. Sir Oliver er nýlegur bar og skemmtistaður sem er við Ingólfsstræti i Reykjavík. Björn Thoroddsen skemmtir ásamt tríói sínu á Puccini f kvöld. Ástand vega m Hálka og snjór án fyrirstööu Lokaö s Vegavinna-aögát CD Þungfært @ Öxulþungatakmarkanir © Fært fjallabílum Jóhanna María og Vigdís Fríða eignast bróður Litli drengurinn á myndinni, sem hlotið hef- ur nafniö Sigfús Andri, fæddist á fæðingardeild Landspítalans 6. febrúar. Hann var viö fæðingu Barn dagsins 3700 grömm og mældist 49 sentímetra langur. For- eldrar hans eru Guðrún Kr. ívarsdóttir og Þor- valdur Siggason. Sigfús Andri á tvær systur, Jó- hönnu Maríu, sem er þriggja ára, og Vigdísi Fríðu sem er átján mán- aða. Trini Alvarado leikur ekkju glæpamanns sem þarf aö búa viö það að maöur hennar er orö- inn draugur. Ærsladraugarnir Ærsladraugarnir (The Frighteners), sem Bíóhöllin sýnir, fjalla á kómískan hátt um vina- samband á milli dauðra og lif- andi. Aðalpersónan er Frank Bannister (Michael J. Fox) sem er í góðu sambandi við nokkra drauga en þó eru ekki allir draug- ar sáttir við hann. Til dæmis þeg- Kvikmyndir ar hann er að borða kvöldverð með fallegri ekkju þá er framlið- inn eiginmaður hennar alltaf að trufla þau. En Bannister á þrjá vini meðal drauganna sem reyn- ast honum vel og satt best að segja á hann mun auðveldara með að eignast vini meðal drauga heldur en lifandi vera. Framleiðandi er Robert Zemen- icks sem hefur alla tíð haft gaman af að leika sér með tækninýjung- ar, má nefna myndir hans Death Becomes Her og Forest Gump. Leikstjóri er Nýsjálendingurinn Peter Jackson en mynd hans, Heavenly Creatures, vann til margra verðlauna. Nýjar myndir Háskólabíó: The Ghost and the Darkness Laugarásbíó: Koss dauðans Kringlubíó: Þrumugnýr Saga-bíó: Ævintýraflakkarinn Bíóhöllin: Space Jam Bíóborgin: Að lifa Picasso Regnboginn: Englendingurinn Stjörnubíó: Tvö andlit spegils Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA ÍÁSKRIFT ÍSÍMA 550 5752 Gengið Almennt gengi LÍ nr. 65 \ 27.02.1997 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 70,470 70,830 67,130 Pund 114,960 115,550 113,420 Kan. dollar 51,500 51,820 49,080 Dönsk kr. 10,9400 10,9980 11,2880 Norsk kr 10,4980 10,5560 10,4110 Sænsk kr. 9,4320 9,4840 9,7740 Fi. mark 14,0210 14,1040 14,4550 Fra. franki 12,3710 12,4420 12,8020 Belg. franki 2,0213 2,0335 2,0958 Sviss. franki 47,6800 47,9400 49,6600 Holl. gyllini 37,1000 37,3200 38,4800 Þýskt mark 41,7300 41,9500 43,1800 ít. líra 0,04190 0,04216 0,04396 Aust. sch. 5,9290 5,9660 6,1380 Port. escudo 0,4154 0,4180 0,4292 Spá. peseti 0,4919 0,4949 0,5126 Jap. yen 0,58260 0,58610 0,57890 írskt pund 111,350 112,040 112,310 SDR 96,94000 97,52000 96,41000 ECU 81,0600 81,5400 83,2900 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.