Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1997, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 1997
Fréttir
Skoðanakönnun DV á viðhorfi til álvera á Grundartanga og Keilisnesi:
Yfirgnæfandi meirihluti
fylgjandi álverunum
- 66 prósent með Grundartanga og 74 prósent með Keilisnesi
Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda
er fylgjandi því aö álver verði reist
á Grundartanga og Keilisnesi. Karl-
ar vilja mun frekar álverin en kon-
ur en andstaðan almennt er meiri á
höfuðborgarsvæðinu en á lands-
byggðinni. Þetta eru helstu niður-
stöður skoðanakönnunar DV sem
gerð var i síðustu viku af markaðs-
deild Frjálsrar fjölmiðlunar hf.
Úrtakið í könnuninni var 1200
manns. Jafnt var skipt á milli höf-
uðborgarsvæðisins og landsbyggð-
arinnar sem og á milli kynja. Eftir-
farandi tvær spumingar voru lagð-
ar fyrir þátttakendur: „Ertu fylgj-
andi eða andvígur álveri á Grundar-
tanga í Hvalfirði?“ og „Ertu fylgj-
andi eða andvígur álveri á Keilis-
nesi á Reykjanesi?" Skekkjumörk í
könnun sem þessari eru tvö til þrjú
prósentustig.
Sé tekið mið af svörum allra í
fyrri spurningunni sögðust 57,1 pró-
sent vera fylgjandi álveri á Grund-
artanga, 29,8 prósent voru því and-
vig, 12,3 prósent voru óákveðin og
0,8 prósent neituðu að svara spurn-
ingunni. Alls tóku því 86,9 prósent
afstöðu í málinu.
Ef aðeins eru teknir þeir sem af-
stöðu tóku voru 65,7 prósent fylgj-
andi fyrirhuguðu álveri Columbia á
Grundartanga og 34,3 prósent and-
víg þeim áformum.
Sé tekið mið af svörum allra í
seinni spumingunni sögðust 64,1
prósent vera fylgjandi álveri á Keil-
isnesi, sem Atlantal-hópurinn hefur
áformað um nokkum tíma og gerir
enn, 22,7 prósent vom því andvíg,
12,5 prósent óákveðin og 0,8 prósent
vildu ekki svara spumingunni. Af-
stöðu tóku því 86,8 prósent úrtaks-
ins.
Andstaða meiri á suðvestur-
horninu
Af þeim sem afstöðu tóku sögðust
73,9 prósent vera fylgjandi álveri á
Keilisnesi og andvígir voru 26,1 pró-
sent.
Miðað við búsetu kjósenda virð-
ast niðurstöðumar vera mjög svip-
aðar i báðum spurningunum. Fylgj-
endur álveranna koma frekar af
landsbyggðinni en á höfuðborgar-
svæðinu. Andstæðingar eru hins
vegar álíka margir á hvorum stað.
Mismunandi afstaða kynj-
anna
Kynin hafa mismunandi afstöðu
til fyrirhugaðra stóriðjufram-
kvæmdanna eins og sjá má á með-
fylgjandi gröfum. Ríflega sex af
hverjum tíu körlum eru fylgjandi ál-
verinu á Grundartanga, rúm 24 pró-
sent þeirra eru andvígir og tæp 10
prósent óákveðin. Tæplega helming-
ur kvenna er fylgjandi Grundart-
angaálverinu, 35 prósent em því
andvíg og 16 prósent óákveðin eða
vildu ekki svara spumingunni.
Afstaða karla til álvers á Keilis-
nesi er enn jákvæðari. Alls 75,7 pró-
sent þeirra eru fylgjandi því álveri,
17 prósent andvíg og 7,3 prósent óá-
kveðin eða neituðu að svara spum-
ingunni. Hjá kvenþjóðinni em rúm
52 prósent fylgjandi, 28 prósent á
móti og 19 prósent óákveðin eða
gefa ekki upp afstöðu sína.
-bjb
Gleðileg staðfesting
réttrar stefnu
- hvatning til að halda áfram á sömu braut, segir Finnur Ingólfsson
„Þetta er hvatning fyrir þá sem
unnið hafa að undirbúningi nýrrar
stóriðju að undanfórnu og ótvíræð
staðfesting á stefnu þessarar og
fyrri ríkisstjóma í þeim málum og
hvatning til að halda áfram á þess-
ari braut,“ sagði Finnur Ingólfsson
iðnaðarráðherra í samtali við DV
um niðurstöður skoðanakönnunar
blaðsins á viðhorfum fólks til nýrra
álvera.
Finnur sagði að niðurstöður DV-
könnunarinnar komi heim og sam-
an við niðurstöður könnunar sem
markaðsskrifstofa iðnaðarráðuneyt-
isins og Landsvirkjunar lét gera ný-
lega, þótt í könnun DV sé talsvert
meiri stuðningur við byggingu ál-
vers á Grundartanga en var í þeirri
könnun.
Báðar þessar kannanir undir-
striki það að þjóðin vilji aö orku-
auölindimar séu nýttar til atvinnu-
uppbyggingar á íslandi sem byggist
á því að efla hér orkufrekan iðnað
og byggja hann upp með erlendum
fjárfestum og nýta þannig orkuauð-
lindimar. „Stóriðja er aðeins einn
hluti af atvinnuuppbyggingunni og
við þurfum auðvitað að ganga fram
af ákveöinni varfærni í þessum efn-
um, en þetta er gleðileg niðurstaða,"
sagöi iðnaðarráðherra. -SÁ
Með og á móti álverum
- niöurstaöa skoöanakönnunar DV 25. til 26. febr. 1997 -
Grundartangi Keilisnes
13%
í. 57"
Ef abeins eru teknir þeir
sem tóku afstöðu verða
niðurstöðurnar þessar:
| Fylgjandi
Andvígir aðeins eru teknlr þeir
sem tóku afstöðu verða
Óákv./sv. ekki nlðurstööumar þessar:
= 4%
◄
Afstaða kynjanna til álveranna
■ Karlar
□ Konur
24,7
35,5
28,3 1Q9
17 m ™ *
n
Fyigjandl Andvígir Óákv./sv. ekki Fylgjandi Andvíglr Óákv./sv. ekkl
ggl6,3
■
ikv./
Grundartangi
■
And
Keilisnes ,
DV
Dagfari
Vitleysingarnir hjá VR
Menn eru ævareiðir út í Versl-
unarmannafélag Reykjavíkur. VR
hefur leyft sér að semja við stór-
kaupmenn. Og það sem verra er,
Stórkaupmannafélagið leyfði sér
að semja við VR. Nú má auðvitað
halda þvi fram að varla hefðu þessi
félög farið að semja um kaup og
kjör nema þau væm tiltölulega sátt
við þá samninga. Fólk skrifar ekki
undir kjarasamninga nema það
telji sig una við kauphækkanimar
annars vegar og geti greitt kaup-
hækkanimar hins vegar. Þá má
heldur ekki gleyma því að stór-
kaupmenn fullyrða að þessir samn-
ingar séu i samræmi við yfirlýsing-
ar forsætisráðherra um aukinn
kaupmátt og samninga innan
ramma þeirrar verðbólguþróunar
sem ráðherrann hefur markað slík-
um samningum.
En ráðherrann er ekki ánægður.
Hann segir að samningamir séu á
ystu mörkum og hefur sennilega
gert ráð fyrir að menn væm ekki
svo vitlausir að fara eftir orðum
hans og taka mark á honum og
semja út á ystu nöf. En það er ekki
aðeins forsætisráðherra sem hefur
gagnrýnt VR og stórkaupmenn.
Vinnuveitendasambandið skamm-
ast og Alþýðusambandið skammast
og menn eru svo reiðir að þeir geta
varla sagt orð. Þessi reiði á sinar
skýringar í því að bæði VSÍ og ASÍ
vita best og vita ein hvernig á að
semja. Kjarasamningaviðræður
fara þannig fram að menn semja
ekki strax og skrifa ekki undir
neitt fyrr en allt er komið í óefni.
Nú er einmitt að líða að þeirri
stóru stund aö verkföll eru yfirvof-
andi og verkalýðsforingjar og
vinnuveitendaforystumenn hafa
komið í fjölmiðla mörgum sinnum
á dag til að lýsa áhyggjum sínum
mörgum sinnum á dag og allt er
þetta liður í að gera þjóðinni grein
fyrir því að samningar eru erfiðir
og samningsaðilar leggja sig fram
og menn eru báðum megin borðs-
ins uppteknir við að hugsa um sína
skjólstæðinga og semja fyrir þá.
Þetta eru hinar hefðbundnu aðferð-
ir við að ná samningum og þess
vegna er það hreinn dónaskapur og
ögrun við samningsfrelsið að tvö
félög, VR og stórkaupmenn, taki
sig til í miðjum klíðum og semji án
þess að nokkur maður hafi tjáð sig
um það áður, að samningar væru
erfiðir eða að samningar væru á
næsta leyti. Þessi skerðing á samn-
ingsfrelsinu er misnotkun á samn-
ingafrelsinu og ögrun við þá menn
í karphúsinu sem bera ábyrgð á
samningum og marka stefnuna í
samningamálum sem öðrum kem-
ur ekki við.
Þetta á Magnús L Sveinsson og
þeir hjá VR að vita, hvað þá stór-
kaupmenn sem hafa alla tíð verið
þægir og þýðir félagar innan VSÍ
og eru nú að setja sig á háan hest,
með því að þykjast geta samið fyr-
ir sjálfan sig. Eins og einhver geti
samið fyrir sjálfan sig! Það hefur
aldrei gengið. Enda er það óðs
manns æði hjá VR að semja um
launahækkanir sem kynda elda
verðbólgunnar og þeir semja um
lágmarkslaun sem er ekkert að
marka því lágmarkslaun í heildsöl-
unni eru ekki til og þar er nánast
enginn sem vinnur eftir taxta og
hvað er þá fólkið aö semja um?
Nei, þetta eru vitlausir samningar
hjá VR og stórkaupmönnum og
þeir eru allt of lágir miðað við það
sem aðrir geta fengið og þeir eru
éillt of háir miðað við verðbólgu-
mörkin og þeir eru allt of snemma
á ferðinni vegna þess að þeir eru
ekki fordæmisgefandi. Nema þá ef
þeir verða fordæmisgefandi, þá er
það vegna þess að þeir koma í veg
fyrir að aðrir geti samið hærra.
Dagfari