Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1997, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 1997
Fréttir
Veldi Jóhanns A. Jónssonar og Hængsmanna á Þórshöfn umdeilt:
Líkt við einveldi þar sem
oddvitinn er einræðisherra
- græddu 250 milljónir á hlutabréfum í HÞ - 20 hús á staðnum til sölu
Hraðfrystistööin á Þórshöfn er langstærsta atvinnufyrirtækiö í bænum. Jóhann A. Jónsson og Hængsmenn hafa
sankað að sér hlutabréfum í fyrirtækinu undanfariö eitt og hálft ár.
Miklar deilur og ósætti hafa
staðið yfir í hálft annað ár á Þórs-
höfn á Langanesi. Ástæðan er að
margir Þórshafnarbúar eru búnir
að fá nóg af ægivaldi Jóhanns A.
Jónssonar sem er bæði oddviti
hreppsins og framkvæmdastjóri
Hraðfrystistöðvar Þórshafnar sem
er langstærsta atvinnufyrirtækið í
bænum.
Jóhann og fleiri háttsettir menn
í HÞ hafa sankað að sér hlutabréf-
um í fyrirtækinu. Þeir stofnuðu
einkahlutafélagið Hæng ehf. í febr-
úar 1995 og félagið á nú þegar fjórð-
ung hlutafjár í HÞ en hlutabréfin
voru flest keypt á nafnverði eða því
sem næst.
í síðustu viku sprakk meirihlut-
inn í sveitarstjóm Þórshafnar-
hrepps eftir ósætti um sölu 11,3%
hlutabréfa sem hreppurinn á í HÞ
sem er að nafnvirði rúmar 33 millj-
ónir króna. Jónas Jóhannsson,
einn þriggja sem setið hafa í meiri-
hluta í sveitarstjórn, sagði sig úr
henni en hann vildi láta auglýsa
söluna þannig að hlutabréfin yrðu
seld á opnum markaði til að sem
mest fengist fyrir þau. Jón Gunn-
þórsson, sem er í minnihluta sveit-
arstjómar, var sömu skoðunar.
Meirihluti sveitarstjómarinnar
var hins vegar á því að selja þau
beint til Hængs ehf.
Jónas segir að þetta hafi verið
dropinn sem fyllti mælinn en mörg
mál hafi verið í ólestri á Þórshöfn
að undanfómu.
„Ég er búinn að fá alveg nóg af
þessu og það er svo margt sem er
að hér. T.d. á nú að byggja hér
íþróttahús sem er allt of stórt fyrir
þetta bæjarfélag. Allavega hefur
ekki veriö byggt svona stórt
íþróttahús í öörum bæjarfélögum
af svipaðri stærð og Þórshöfn,“*seg-
ir Jónas.
Jón Gunnþórsson segir það vera
mjög óeðlilegt að Jóhann skuli
bæði vera oddviti, framkvæmda-
stjóri HÞ og einn af eigendum
Hængs. Hann geti ekki verið hlut-
laus aðili í þessum efnum og því
vemdi hann sína hagsmuni í fyr-
irtækinu óspart á kostnað hrepps-
ins.
„Ég er á móti því að hreppurinn
sé að selja eignir sínar, eins og
hlutabréfin, undir því verði sem
hægt er að fá fyrir þær. Það er
enginn á móti íþróttahúsi hér á
Þórshöfn en mönnum finnst það
einfaldlega of stórt og dýrt. Það
var haldinn kynningarfundur á
staðnum fyrir arkitekt sem kom
fram með ýmsar athugasemdir og
breytingartillögur en honum var
meinað að gera það. Það verður að
öllum líkindum lögð fram van-
trauststillaga á sveitarstjórnina í
Fréttaljós
Robert Róbertsson
vikunni,“ segir Jón sem er í
minnihluta hreppsnefndar.
Innherjaviöskipti
Eigendur Hængs, sem em fimm
talsins, em allir í stjómunarstöð-
um hjá HÞ. Tap var á rekstri Hrað-
frystistöðvarinnar árin 1991 og
1992 en 23 milljóna króna hagnaður
varð 1993 og enn meiri árið 1994
eða um 34 milljónir. Hængsmenn
em sagðir hafa séð að hagnaðurinn
stefndi í aö verða enn meiri af
rekstri fyrirtækisins 1995. Þeir hafi
því byrjað fljótlega að kaupa hluta-
bréf í HÞ og keyptu af Þróunarsjóði
og ýmsum einstaklingum. Sam-
kvæmt heimildum DV vom hluta-
bréfin yfirleitt keypt á nafnverði
sem þá var á genginu 1,05.
Sem yfirmenn hjá HÞ hljóta þeir
að hafa vitað að til stóð að tvöfalda
hlutabréfin með útgáfu jöfnunar-
bréfa. Tveir hagfræðingar sem DV
Jóhann A. Jonsson er oddviti og
framkvæmdastjóri Hraöfrystistöðv-
arinnar. Völd hans eru mikil á Þórs-
höfn og honum er líkt við einræðis-
herra þar.
ræddi við kölluðu þetta týpísk inn-
herjaviðskipti. Víða erlendis liggja
hörð viðurlög við svona innheija-
viðskiptum með hlutabréf, þ.e.
menn nýti sér í hagnaðarskyni
upplýsingar sem þeir hafa aðgang
að vegna stöðu sinnar.
Gróöinn um 250 milljónir
Staðan er nú sú að Hængur ehf.
á fjórðung hlutafjár í HÞ. Jóhann
og tveir bræður hans eiga um 10%
og því er alls rúmlega þriðjungur
hlutafjár í fyrirtækinu þeirra.
Þórshafnarhreppur er stærsti ein-
staki hluthafinn með um 34% en
þar sem Jóhann er líka oddviti hef-
ur hann ítök í um 70% hlutafjár
eða ríflega tvöföldum meirihluta.
Allt stefnir nú í að Hængur kaupi
þau 11,3% sem hreppurinn ætlar
að selja og þá aukast ítökin enn
frekar.
Miöað við gengi hlutabréfanna á
markaði að undanfomu er verð-
mæti þeirra sex til átta sinnum
meira en Jóhann og Hængsmenn
borguðu fyrir þau. Hreinn ávinn-
ingur þeirra af fjórðungi hlutafjár
í HÞ er rúmlega 210 milijónir
króna. Við það bætist hagnaður-
inn sem Jóhann, bræður hans og
félagar eiga og hafa keypt sjálfir.
Þeir eiga um 10% sem er rúmlega
30 milljónir að nafnvirði. Varlega
áætlað má því búast við að gróði
Jóhanns, bræðra hans og félaga sé
allavega um 250 milljónir króna.
Ægivald Jóhanns
Sumir Þórshafnarbúar telja sig
hafa farið illa út úr viðskiptum við
Jóhann og Hængsmenn og þeir eru
einnig til sem segja að Jóhann
beiti ægivaldi til að koma sínu
fram.
Ráöa öllu á staðnum
„Jóhann oddviti og Hængsmenn
ráða öllu hér á Þórshöfh og það má
líkja þessu við einveldi og oddvita
við einræðisherrann. Hængsmenn
vissu alveg að hlutabréfin í HÞ
mundu hækka og þess vegna
reyndu þeir að kaupa öll hlutabréf
sem þeir gátu keypt í fyrirtækinu
og gerðu það. Einn Hængsmaður,
bróðir Jóhanns, elti mig heilt sum-
ar til að reyna að kaupa af mér
hlutabréf sem ég átti í HÞ. Ég neit-
aði að selja honum þau en seldi
þau síðan á opnum markaði. Það
eru margir hér búnir að fá alveg
nóg af þessu og hafa flúið í burtu.
Það eru 20 hús hér til sölu og ef
svo heldur fram sem horfir þá
verða engir eftir hér nema
kannski útlendingamir sem fá
vinnu hjá HÞ,“ segir Óli Þorsteins-
son, útgerðarmaður á Þórshöfn.
Ekkert óeölilegt
Jóhann A. Jónsson segir sjálfur
að ekkert sé óeðliiegt við að Hæng-
ur kaupi þessi 11,3% af hlutafénu
sem hreppurinn ætlar að selja. Jó-
hann segir aö fleiri hafi staðið til
boða að vera með í Hæng en þeir
ekki viljað það. Óánægjuna telur
Jóhann vera m.a. öfund þeirra sem
selt hafi sín hlutabréf eða ekki vilj-
að vera með í kaupunum og þeir
séu því að vonum sárir nú.
„Hreppurinn er að reyna að fjár-
magna byggingu íþróttahúss og
lækka skuldir og meirihlutinn er
hlynntur því. Það er ástæðan fyrir
því að hreppurinn er að selja þetta
hlutafé sitt í HÞ. Ég veit ekki betur
en meirihluti sveitarstjómar sé
líka hlynntur áætlaðri stærð
íþróttahússins. Við sem höfum
byggt upp HÞ tókum mikla áhættu.
Við höfum alltaf haft háleit mark-
mið og trú á því sem við erum að
gera. Það er hins vegar ekki hægt
að segja um alla hér á Þórshöfii.
Við hjá HÞ emm að reyna að rifa
atvinnulífið upp hér á staðnum og
það gengur ágætlega. Mér finnst
hins vegar mjög slæmt að finna
þessar óánægjuraddir hjá ýmsum í
bænum og það er greinilegt að þeir
geta ekki glaðst yfir því þegar vel
gengur,“ segir Jóhann.
Kjaramálaályktun búnaðarþings:
Krafist opinbers stuðn-
ings og tollverndar
„Búnaðarþing krefst þess aö
heildarstuðningur hins opinbera
við landbúnaðinn lækki ekki enn
frekar. Gera verður þá kröfu að
stuðningurinn sé ekki lakari en ger-
ist í nágranna- og samkeppnislönd-
unum að teknu tilliti til legu lands-
ins,“ segir í kjaramálaályktun sem
samþykkt var á nýafstöðnu búnað-
arþingi.
í kjaramálaályktuninni segir að
með þjóðarsáttarsamningunum árið
1990 og með afnámi útflutningsbóta
og framleiðnikröfu í búvömsamn-
ingi 1991 hafi landbúnaðurinn tekið
á sig meiri tekjuskerðingu en aðrar
atvinnugreinar og á meðan aðrir
þjóðfélagshópar hafi fengið kjara-
bætur hafi tekjur bænda lækkað og
þeir gengið á eignir sínar.
Búnaðarþing krefst þess að land-
búnaðurinn njóti tollverndar þannig
að frekari innflutningur búvara
ógni ekki starfsskilyrðum greinar-
innar. Það krefst þess einnig að op-
inberar álögur á landbúnaöinn veröi
lækkaðar og ekki lagðar á nýjar.
Meðal annarra krafna í kjara-
málaályktun búnaðarþings er sú að
áfram verði hagrætt hjá afurða-
stöðvum, m.a. með samvinnu og
samruna, með það að markmiði að
vinnslukostnaður verði ekki hærri
hér en í nágrannalöndunum og
framleiðendur fái sanngjarnan hlut
i ávinningnum. Þá er minnt á nauð-
syn þess að framleiðendur standi
saman að markaðssetningu afurð-
anna. -SÁ
Veggsport við Gullinbrú:
Vill makaskipti
viö borgina
„Þaö sem þeir voru að velta
fyrir sér var hvort borgin hefði
áhuga á makaskiptum á eignum.
Þeir fengju ónýttar íbúðir sem
borgin á við Aðalstræti og borg-
in tæki skvasshúsið,“ segir Pét-
ur Jónsson, borgarfulltrúi Al-
þýöuflokksins, um það að eig-
endur Veggsports hafi boðið
borginni þessi makaskipti. Hann
lagði þau til í borgarráði fyrir
skömmu.
Að sögn Péturs hefúr þetta mál
lítillega verið rætt en honum sýn-
ist vera lítill áhugi fyrir þessum
skiptum í borgarráði. Hann seg-
ist hafa séð fyrir sér aö borgin
losnaði við eignir sem ekki eru í
notkun og fengi þess í stað hús-
næði sem væri fullnotað. -sv